Morgunblaðið - 05.07.2000, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 05.07.2000, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. JÚLÍ 2000 9 FRÉTTIR Innritun nýnema í framhaldsskóla nær lokið MK vísar 120 Kópavogsbúum frá MENNTASKÓLINN í Kópavogi hefur neitað um 120 nemendum úr Kópavogi um skólavist í haust. Margrét Friðriksdóttir skólameist- ari segir að til vandræða horfi með framboð náms á framhaldsskóla- stigi í Kópavogi og byggja þurfi nýjan framhaldsskóla í bæjarfélag- inu. Umsóknir um nám í fram- haldsskóla fylgdu að mestu hefð- bundnu sniði í ár en þó hafa ýmsar breytingar orðið á spurn eftir námi í einstökum skólum. Margrét Friðriksdóttir segir vandann mikinn og fyrirsjáanlegt að hann fari vaxandi á næstu árum. „Kópavogur hefur stækkað gríðar- lega en framhaldsskólaplássum hefur ekkert fjölgað. Við erum að vísa frá Kópavogsbúum sem búa hér allt í kringum skólann," segir Margrét. Um 120 umsóknum um skólavist frá nemendum í Kópavogi var vísað frá en Margrét segir að enn sé óvíst með skólavist fyrir marga þeirra. „Aðsóknin að skólan- um er gífurlega mikil og við gátum ekki tekið inn nema hluta af þeim nemendum sem sóttu um. Ég býst við að Menntaskólinn í Kópavogi sé sá skóli sem er í hvað erfiðastri stöðu þetta árið,“ segir Margrét. Fulltrúar Kópavogsbæjar munu á næstunni funda með menntamála- ráðuneytinu og leita leiða til úr- bóta. Margrét segir að það leysi að sjálfsögðu ekki vanda þeirra sem hyggjast hefja nám í haust. Hún segir að hluta vandans megi leysa með því að byggja bóknámsstofur við skólann en það hljóti að koma að því að nýr framhaldsskóli verði byggður í Kópavogi. Heldur dregur úr aðsókn í MR Ragnheiður Torfadóttir, rektor Menntaskólans í Reykjavík, segir að heldur hafi dregið úr aðsókn að skólanum, fækkunin sé þó ekki mikil og eigi sér eðlilegar skýring- ar. „Það eru alltaf einhverjar sveifl- ur í því hvaða nám ungu fólki þykir eftirsóknarvert. Þessi skóli er nokkuð sérhæfður en hann veitir mjög góða undirstöðu fyrir háskólanám í raunvísindum, s.s. í stærðfræði og eðlisfræði, en einnig í hugvísindum. Þetta er menntun sem er staðgóð og nýtist mönnum í hvaða háskólanámi sem þeir stunda,“ segir Ragnheiður. „Það er mjög eðlilegt að aðsókn sveiflist frá ári til árs,“ segir Ragnheiður sem telur enga ástæðu til að breyta kennsluháttum í bili þótt lítillega hafi dregið úr aðsókn. Ekki sé langt síðan umsóknir voru miklu fleiri en skólinn gat tekið við og spurn nemenda eftir skólavist í MR hafi verið breytileg í áranna rás. Ragnheiður segir ásókn nemenda úr nágrannasveitarfélögum í MR hafa minnkað talsvert. „Eftir því sem skólarnir í nágrenninu eldast og eflast og fá betra húsnæði og aðstöðu er eðlilegt að það sé ekki þessi óskaplega mikla aðsókn sem var,“ segir Ragnheiður. Næsta haust hefja 225 nemendur nám í skólanum í 9 bekkjardeildum en það er svipað og síðustu ár. „Mér finnst þetta góð tala,“ segir Ragn- heiður. „Það er miklu notalegra og auðveldara fyrir nemendur að þurfa ekki að vera í alltof fjölmenn- um árgangi." Kvennaskólinn í Reykjavík vísar niörgum frá Kvennaskólinn í Reykjavík þarf að vísa frá um 120 nemendum sem er um helmingur þeirra sem sóttu um. Oddný Hafberg aðstoðarskóla- meistari segir aðsókn að Kvenna- skólanum fara vaxandi og skólinn sé við það að fyllast. „Við erum með yfirstærð af bekkjum þótt við reiknum með að einhverjir staðfesti ekki skólavist," segir Oddný sem býst við að nemendur verði um 520 á næsta ári. Oddný segir skólann í raun ekki rúma nema 480 ef nóg pláss eigi að vera fyrir alla. „Við kennum hér í öllum skúmaskotum," segir Oddný. Hún telur ástæðuna fyi-ir vinsældum skólans einkum vera gott kennaralið en að hluti skýringarinnar geti einnig verið sú að nemendur vilji frekar vera í bekkjakerfi en í fjölbrautaskóla. 200 fleiri umsóknir um Iðnskólann í Hafnarfirði Aðsókn í Iðnskólann í Hafnar- firði er með mesta móti að sögn Sveins Jóhannssonar aðstoðar- skólameistara. Umsóknir á haust- önn eru um 200 fleiri en í fyrra og enn eru umsóknir að berast. Sveinn telur nýtt húsnæði skipta miklu máli en þegar það hafi verið tekið í notkun hafi aðstaða nemenda og kennara breyst mjög til batnaðar. Borgarholtsskóli vinsæll Umsóknum nýnema um skólavist í Borgarholtsskóla fjölgaði um hundrað frá í fyrra en alls hefja um 360 nýnemar þar nám í haust. Eyg- ló Eyjólfsdóttir skólameistari segir skólann í mikilli sókn. Margt komi þar til, húsnæðið sé nýtt og rúm- gott, kennaraliðið áhugasamt og skólastarfið í sífelldri þróun. „Það er mikill uppgangsandi hérna,“ segir Eygló. „Skólinn hefur verið duglegur við að auglýsa sig og skapa sér nafn og nemendur héðan bera honum vel söguna." Um 700 nemendur verða í skólanum næsta vetur en skólinn var upphaflega byggður fyrir 1.000 nemendur. Eygló segir hverfið sífellt vera að stækka og því eðlilegt að nemend- um fjölgi um leið. Aldrei fleiri umsóknir í Flensborg Einar Birgir Steinþórsson, skóla- meistari Flensborgarskóla í Hafn- arfirði, segir skólann aldrei hafa fengið fleiri umsóknir. „Við fengum 165 umsóknir frá nýnemum sem er mesti fjöldi sem við höfum fengið en jafnframt erum við að innrita úr minnsta árgangi sem hefur verið hér í Hafnarfirði mjög lengi,“ segii’ Einar sem er mjög ánægður með aðsóknina. Einar þakkar þessa auknu aðsókn m.a. tölvuvæðingu skólans en í haust er gert ráð fyrir að nemendur geti keypt fartölvur á sérstöku tilboði og nýtt þær við nám sitt í skólanum. Lítill byr er víkingaskipið fslendingur lagði af stað Hafís ennþá við Grænland VÍKINGASKIPIÐ íslendingur lagði af stað vestur um haf frá Ól- afsvík um klukkan 6 í gærmorgun. Hafði þá ferð skipsins tafist um nokkra daga vegna hafíss á leiðinni til Grænlands. Samkvæmt upplýs- ingum frá Veðurstofu Islands ætti Islendingur að eiga greiða siglinga- leið meðfram suðurjaðri ísbreið- unnar en enn er mikill ís þar sem ráðgert er að sigla að landi á Græn- landi. í samtali við Morgunblaðið í gær sagði Stefán Geir Gunnai'sson, skipverji á Islendingi, að h'tinn byr væri að fá og því gengi nokkuð hægt í upphafi ferðar. Sagðist Ste- fán hafa litlar áhyggjur af hafísn- um, enn gæti ræst úr í þeim málum því líklegt væri að ísinn myndi bráðna nokkuð á þeim 6-8 dögum sem það mun taka að sigla að hon- um. Mikil hreyfing væri á ísnum og því mögulegt að sæta lagi til að sigla í gegnum hann. Sagði Stefán engan vafa leika á því að Islendingur næði til Grænlands á tilsettum tíma. Aætlað er að Islendingur taki land á Grænlandi 15. júlí en dagana 15. til 17. júlí eru fyrirhuguð hátíða- höld þar til að fagna landafunda- afmæli Leifs heppna. Munu Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Islands, og Margrét Þórhildur Danadrottn- ing verða þar á meðal 300 opinberra hátíðargesta. Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson. Fálkaungi í hreiðri Norður-Hérað. Morgunblaðið. HANN var pattaralegur fálka- unginn sem fréttaritari rakst á í hreiðri sfnu á dögunum. Horfði forvitnum augum á komumann meðan móðirin, sem er ungur fugl, sveimaði yfir og fylgdist með en hafði ekki að öðru leyti áhyggjur af heimsókninni. Utsala — útsala Utsalan byrjar á morgun Barnakot Kringlunni4-6sírm 588 1340 AUGUST SILK ✓ á Islandi HeiCdsöCuvetð á 100% siC^i í dag, SíðuHiúCa 35. 3. Aaeð, Í{C. 4r-7. Peysasett, peysar, náttsett, sCoppar. 2 fyrir 1 til 28 júlí Gleraugnaverslunin Sjónarhóll Glæsibæ og Hafnarfirði II Alexandertækni fyrir alla Fjárfestu í sjálfum þér Einkatímar í Alexandertækni. Losað um spennu í líkama. Bætir svefn og almennt andlega líðan. Leiðréttir slæma ávana og vekur líkamlega meðvitund. jónína Ólafsdóttir, Lindargötu 44a, simi 552 2175. TEENO Laugavegi 56, sími 552 2201 WJJl mfcðs ■J..U,,Li.l IHDUSTRY Hefst f fyrramálið kl. 10. Vönduð og falleg föt á börnin frá þekktum framleiðendum á verulega lækkuðu verði. Tunberlande E L L E ENGiABÖRNÍN Laugavegi 56, sími 552 2201 CotiminL DIESEL

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.