Morgunblaðið - 05.07.2000, Síða 13

Morgunblaðið - 05.07.2000, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. JÚLÍ 2000 13 FRÉTTIR Þróun iðgjalds í ábyrgðartryggingu á millistórum bfl frá janúar 1998 hjá Sjóvá-Almennum Iðgjöíd ökutækjatr'ygginga hjá Sjóvá-Almennum 1996 - 2000 Forsendur: Upphæðir eru ársiðgjald á verðlagi í júní 2000. Vátryggingataki er 25 ára eða eldri, búsettur á höfuðborgarsvæðinu með hæsta bónus. Ökutækið er nýr meðalstór einkabíll, í áh.fl. 1B og 1C í kaskó (t.d. Toyota Corolla). Innifalið í ábyrgðartryggingunni er iðgjald vegna slysatryggingar ökumanns og eiganda og framrúðutrygging. 1. janúar 1996 1. janúar1998 1. júní 2000 1-júlí 2000 Ábyrgðartrygging bóhus 70% j 47.866 Bónus75% L 45Q qqq Stofn afsl. 10% f Bónus75% k 4J QQQ Stofn afsl. 10% f ^ 1 Bónus 75% L cq oQft Stofnafsl. 10% f OOMD Kaskótrygging Bónus 40% L q/\ /jon Sjálfsáb. 59.100 f OU.DÖU BÓnUS 50% L QQ J Qy| Sjálfsáb. 59.100 f ".1»^ Bónus50% L jq QQO Sjálfsáb. 63.600 f Bónus 50% L aa j aa Sjálfsáb. 63.000 f “-lOU Samtals kr. 78.546 49.422 61.255 75.366 Iðgjaldið hækkar um 24.000 krónur IÐGJÖLD Sjóvár-Almennra af lög- boðnum ökutækjatryggingum eru nú hærri en þau voru í ágúst 1996, áður en FIB-tryggingar komu inn á markaðinn hérlendis. I septem- ber það ár buðu FÍB-tryggingar um þriðjungi lægri iðgjöld af lög- boðnum ökutækjatryggingum en hin félögin og í kjölfar þess lækk- uðu þau öll sín iðgjöld verulega. I samanburði á iðgjöldum öku- tækjatryggingar hjá Sjóvá-Al- mennum kemur í ljós að miðað við fast verðlag í júní sl. hefur ábyrgð- artrygging fyrir millistóran bíl af gerðinni Toyota Corolla hækkað um 5.370 kr. frá 1. janúar 1996 til 3. júlí 2000. Hækkunin er enn meiri ef borið er saman tímabilið 1. jan- úar 1998 til 3. júlí 2000. Þá kemur í ljós að það var ríflega 24.000 kr. ódýrara að tryggja sama bíl fyrir rúmum tveimur og hálfu ári. Einar Sveinsson, forstjóri Sjó- vár-Almennra, segir að búið sé að gjörbreyta skaðabótalögum og bótauppgjöri á þessum tíma sem hafi leitt til hærri bótagreiðslna og auk þess hafi verðlagsþróunin leitt til hækkunar iðgjalda. Einar segir að iðgjöldin hafi ver- ið í sögulegu hámarki árið 1992 en lækki strax árið 1993. Þau haldist nokkuð óbreytt 1993-1995 en byrji að lækka aftur 1996. Upp frá því hafi iðgjöld verið hækkuð og veru- leg hækkun hafi orðið í fyrra og svo aftur núna. Einar vísar þarna í könnun sem unnin var fyrir Sjóvá-Almennar af Talnakönnun hf., sem er grundvöll- ur að mati á iðgjaldaþörf félagsins. Þar kemur m.a. fram að miðað við neysluverðsvísitölu hafi iðgjöld lækkað mikið að raunvirði frá 1992 á sama tíma og vísitala neyslu hafi hækkað um 20%. Iðgjöld hafi þó reyndar hækkað um mitt ár 1999 og voru á síðasta ári 73% af því sem þau voru árið 1992. Einar seg- ir einnig að málið snúist ekki ein- vörðungu um iðgjöld heldur verði einnig að hafa í huga hvaða trygg- ingavernd sé veitt. Breytingar á skaðabótalögum Axel Gíslason, forstjóri VÍS, seg- ir að iðgjöldin hafi verið mjög svip- uð milli tryggingafélaganna og það dugi í raun að sýna tölur frá einu félagi til að sýna þróunina almennt í iðgjöldum. Axel segir að það sé ekki áhugavert út frá sjónarmiði félagsins að skoða hvort iðgjöld í janúar 1996, áður en FÍB-trygg- ingar komu inn á markaðinn, hafi verið lægri en þau eru í dag. „Það hefur svo margt annað breyst á þessum tíma. Skaðabótalögunum hefur tvisvar sinnum verið breytt frá 1996. Umhverfið er allt annað. Tjónagrundvöllur er ekki sá sami og það er ekki verið að tryggja það sama,“ segir Axel. Hann segir að umfang tryggingarinnar sé miklu meira í dag en í upphafi árs 1996 og sömuleiðis verndin sem bíleig- andinn er að kaupa. Axel segir að þess verði ekki langt að bíða að VIS tilkynni um breytingar á ið- gjöldum ökutækjatrygginga. Alþjóða- ráðstefnan „Faith in the Future“ Bilatrygginga- vísitala hækkaði um 37 stig á tveimur árum VÍSITALA lögboðinnar ábyrgðar- tryggingar ökutækja hækkaði að meðaltali um 37 stig frá júní 1998 til júní 2000 og um 9,4 stig að með- altali á sama tímabili fyrir húf- tryggingar ökutækja, samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu íslands. Viðbúið er að vísitalan hækki í júlí vegna hækkunar á iðgjaldi bif- reiðatrygginga en Sjóvá-Almennar hafa þegar hækkað iðgjaldið um að meðaltali 29% og búist er við ákvörðunum um hækkanir hinna félaganna á næstu dögum. Vísitalan var sett í 100 í maí 1988 en það ár var löggjöf um lög- boðnar ökutækjatryggingar breytt og tekin upp sérstök trygging öku- manns og eiganda sem gerð skyldi upp samkvæmt ákvæðum skaða- bótalaga. I nóvember 1992 hafði hún hækkað í 161,7 stig fyrir ábyrgðartryggingar og 125,5 stig fyrir húftryggingar en á fyrri hluta árs 1994 tekur hún að hækka og stendur ábyrgðartryggingin í 173,9 stigum í mars 1994. í sept- ember 1996 stóð vísitalan í 185,8 stigum og hafði ekki verið hærri frá því hún var sett í maí 1988. Innkoma FIB Tryggingar í september 1996 buðu FÍB Tryggingar í fyrsta sinn bílatrygg- ingar hér á landi og voru iðgjöld að meðaltali um þriðjungi lægri en að meðaltali á markaðnum. Vá- tryggingarfélag Islands tilkynnti allt að 25% lækkun iðgjalda 27. september sama ár og skömmu síðar fylgdu hin tryggingafélögin á eftir með miklar lækkanir. Vísitala ábyrgðartryggingar féll í október niður í 156,4 stig og hafði ekki ver- ið lægri síðan í maí 1993 en þá tóku gildi ný skaðabótalög sem breyttu bótum frá því sem áður var. Skaðabótalögunum var breytt á ný 1996 og aftur árið 1999. í júní 1998 stóð vísitala ábyrgðartrygg- ingar í 163 stigum en náði í júní síðastliðnum 200 stiga markinu. ALÞJÓÐARÁÐSTEFNAN „Faith in the Future“ hefst í dag í Viðey. Viðfangsefni ráðstefnunnar er leið- sögn trúar og vísinda á nýni öld. Ráðstefnan er haldin í tengslum við kristnihátíð. Tilgangur ráðstefnunnar er að ræða samspil vísinda og trúar auk þess sem leitað verður svara við spumingum er varða trú á framtíð- ina og trú i framtíðinni. Ráðstefnan hefst með setningar- athöfn í kvöld þar sem Davíð Odds- son forsætisráðherra og Karl Sigur- bjömsson biskup íslands flytja ávörp. José Ramos-Horta, þjóðarleiðtogi Austur-Tímor og handhafi friðar- verðlauna Nóbels, er meðal fýrirles- ara ráðstefnunnar. Einnig koma þar fram Thomas R. Odhiambo frá Ken- ya, forseti Vísindaakademíu Afríku, bandaríski trúarheimspekingurinn Nacey Murphy og Thierry Gaudin, formaður ráðgjafanefndar frönsku ríkisstjórnarinnar svo og nokkrir innlendir framsögumenn. Höfuðstöðvar ráðstefnunnar verða í Háskólabíói. Fyrirlestrar á ráðstefnunni em opnir almenningi gegn vægu gjaldi. HÖRP^ .SILKIJ Verð á lítra HARPA MALNINGARVERSLUN, BÆJARLIND 6, KÚPAVOGI. Sími 544 4411 HARPA MÁLNINGARVERSLUN, SKEIFUNNI 4, REYKJAVÍK. Sími 568 7878 HARPA MÁLNINGARVERSLUN, STÓRHÖFBA 44, REVKJAVÍK. Sími 567 4400 HARPA mAlNINGARVERSLUN, DROPANUM, KEFLAVÍK. Sími 421 4790 MáLlliaftKIEISIIRIR v i ? w »» % * ® A UTIMALNINGU Hörpusilki, miðað við 10 lítra dós og hvíta liti

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.