Morgunblaðið - 05.07.2000, Side 14

Morgunblaðið - 05.07.2000, Side 14
14 MIÐVIKUDAGUR 5. JÚLÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ Morgunblaðið/Golli Sunna Hlíf Friðriksdóttir 9 ára fékk marhnút á öngulinn hjá sér og var þetta í fyrsta sinn sem hún veiddi fisk. Morgunblaðið/Golli Krakkamir notuðu flestir veiðarfæri sem útbúin voru á staðnum úr spýtum, girni, sökkli og öngli. Ungir veiðimenn dorga í sólskini Hafnarfjörður MILLI400 og 450 börn á ald- rinum sex til tólf ára söfnuð- ust saman í sól og blíðu á Flensborgarbryggju/ Óseyrarbryggju í gær þar sem æskulýðs- og tóm- stundaráð Hafnarfjarðar stóð fyrir sinni árlegu dorg- veiðikeppni. Börnin komu ýmist sjálf með veiðistengur eða fengu veiðarfæri sem út- búin voru á staðnum úr spýt- um, girni, sökkli og öngli. Margir hinna ungu veiði- manna voru að dorga í fyrsta sinn en báru sig mjög fag- mannlega að, þræddu beitu upp á öngulinn, köstuðu út í sjóinn og biðu einbeittir eftir því að fiskur biti á hjá þeim. Beitan var af ýmsu tagi, sumir notuðu með rælyu cða fiskbita, aðrir ánamaðka og enn aðrir maisbaunir. Krökkunum fannst skemmti- legt að setja „fiskamat" á færið sitt og bíða eftir að það hreyfðist og sögðu þau að það allra skemmtilegasta væri svo að „veiða alvöru fisk“. Fiskamir sem bitu á hjá krökkunum vom fjölbreytt- ir. Sumir fengu skarkola eða marhnút, aðrir ufsa og ein- hveijir sögðust hafa séð krossfiska, ála og fleiri furðufiska. Fagnaðar- og skelfingar- óp þegar fiskarnir voru dregnir á land Hressustu viðbrögðin vakti marhnúturinn þau skipti sem hann beit á en yngstu veiðimennirnir höfðu fæstir séð slíkan fisk. Þeim brá því mjög í brún þegar þau drógu fenginn upp og við blasti brúnn og kmmpað- ur fiskur með galopinn munn og útbreidda ugga. Það var því mikið fjör á bryggjunni í gær og heyrðust til skiptist fagnaðar- og skelfingaróp þegar fiskarnir vom dregnir á land. Dorgveiðimennimir sem tóku þátt í gær vom margir hveijir af leikjanámskeiðum íHafnarfirði. Með þeim vom leiðbein- endur af leikjanámskeiðum og einnig foreldrar og eldri systkini sem aðstoðuðu þau við að útbúa færin og við að ná valdi á réttu handtök- unum. Margir að veiða fisk í fyrsta sinn Krakkamir sátu eða lágu á maganum á bryggjunni og rýndu stíft ofan í vatnið. Þau sögðust vera að athuga hvort þau sæju ekki eitthvað sem þau gætu nælt í en oft „borð- uðu fiskarnir bara beituna án þess að festast á önglin- um“ og þá urðu þau að draga öngulinn upp og ná sér í meiri beitu áður en hægt var að halda áfram. Margir voru að veiða fisk í allra fyrsta sinn. Þeirra á meðal var Sunna Hlíf Frið- riksdóttir 9 ára sem veiddi marhnút. Hún var með rækju á önglinum og sagði hún að Morgunblaðið/Golli Sumir krakkanna lágu fram á bryggjubrúnina og rýndu ofan í vatnið til að athuga hvort þeir sæju eitthvað sem þeir gætu nælt f með önglinum. sér hefði brugðið pínub'tið þegar hún sá færið hreyfast og áttaði sig á því að það hafði fiskur bitið á hjá sér. Henni finnst mjög skemmti- legt að dorga og ætlaði hún endilega að reyna að veiða fleiri fiska. Sigurvegarar keppninnar vom Gísli Rúnar Gíslason, sem fékk stærsta fiskinn, kola sem vó 240 grömm, og Kjartan Helgi Kjartansson sem fékk flesta fiska eða fimm talsins. Erla Rut Þorsteinsdóttir og Al- exander Sigurðarson fengu næstflesta fiska eða þijú stykki hvort. Lokað fyrir bflaum- ferð á laugardögum Midbær HEIMILD hefur verið veitt fyrir því að loka fyrir bíla- umferð að hluta til í mið- borg Reykjavíkur alla laug- ardaga það sem eftir lifir sumars. Á fundi sínum í gær samþykkti borgarráð að til- lögu miðborgarstjórnar að veita heimild til að meina bílaumferð um Laugaveg frá Hlemmi, Bankastræti, Aust- urstræti, hluta Skólavörð- ustígs, Aðalstræti og Póst- hússtræti alla laugardaga í júlí og ágúst. I bókun borgarráðs segir meðal annars að þeim til- mælum verði beint til lög- reglustjórans í Reykjavík að hann loki umræddum götum í sumar á meðan tilraun þessi standi yfir. Frárennslismál í ólestri Skólpið fer í opinn skurð Mosfellsbær ÍBÚAR neðstu húsa við Dvergholt og Lágholt í Mos- fellsbæ eru ósáttir vegna frá- rennslismála við lóðir sínar en allt frárennsli af neðri hæðum húsanna, að undanskildu klóaki, rennur út í opinn skurð við lóðarmörkin. Ólafur Sigurðsson, íbúi við Dvergholt, segir að skurður- inn sé slysagildra og böm geti auðveldlega dottið ofan í hann. „Þetta er eitt drullusvað en grasið við skurðinn er orðið hátt og böm geta lent þama ofan í óséð,“ segir Ólafur. Að sögn Ólafs hafa íbúar lengi staðið í stappi við bæjar- yfirvöld í Mosfellsbæ vegna þessara mála en hann segir að Framkvæmdir við Laug“- ardalslaug samþykktar Laugardalur BORGARRÁÐ hefur sam- þykkt að Birni Kr. Leifs- syni, eiganda líkamsræktar- stöðvarinnar World Class, verði seldur byggingarrétt- ur á lóð sunnan við Laugar- dalslaug til byggingar heilsuræktarstöðvar. Greiðsla fyrir byggingarétt- inn verður um 110 milljónir króna, auk 39 milljóna króna greiðslu fyrir afnot af bílastæðum. Byggingarrétt- urinn verður veittur með skilyrðum um tegund og umfang rekstrar. Séu þau ekki uppfyllt er Reykjavík- urborg heimilt að leysa mannvirkin til sín á mats- verði. Gert er ráð fyrir að heilsuræktarstöðin verði um 6850 fermetrar að stærð en við hlið hennar mun rísa yf- irbyggð sundlaug í eigu Reykjavíkurborgar. Gert er ráð fyrir að húsnæði sund- laugarinnar verði um 4000 fermetrar og laugin sjálf verði 25 sinnum 51 metri að lengd, skiptanleg í 2 sinnum 25 metra. Kostnaðaráætlun bygg- ingardeildar borgarverk- fræðings vegna fram- kvæmdanna hljóðar upp á 870 milljónir króna. eðlilegast væri að bærinn kæmi írárennslismálum í samt lag og legði stofnlögn bak við húsin. „Ibúamir greiða hér skatta, þar með talið holræsa- gjald, og því ættu frárennslis- mál að vera í höndum bæjar- yfirvalda,“ segir Ólafur. Dýrt að lagfæra frárennslið Ólafur segir að bæjaryfir- völd vísi ábyrgðinni á íbúa húsanna. „Þeir vilja að íbúar komi sér upp dælubrunnum fyrir framan húsin sem dæli vatninu upp í götu. Mér finnst, einsog mörgum hér, það ekki í verkahring okkar íbúanna að leysa vandamál bæjarins. Þetta er líka kostnaðarsamt, bæði kosta dælumar sitt og eins hefur verið gengið frá lóð- um við þessi hús og í mörgum tilfellum búið að steypa eða hellulœgja fyrir framan þau,“ segir Olafur. Ólafur segir ástæðuna fyrir frárennslisvandamálinu vera þá að í mörgum tilfellum liggi húsin of lágt. Hann segir að þau hafi á sínum tíma verið lækkuð frá upphaflegum teikningum og þá hafi verið ákveðið að leiða frárennslið aftur úr lóðunum. Nú vilji bærinn hins vegar að þetta verði lagfært en vilji samt sem áður engan þátt taka í fram- kvæmdum og kostnaði. Lagnir lagðar í óleyfí Ásbjöm Þorvarðarson, byggingarfulltrúi í Mosfells- bæ, segir bæinn ekki skuld- bundinn til þess að taka við frárennsli neðan við þessi hús. „Þegar húsin vora samþykkt á sínum tíma var einungis gert ráð fyrir stofnlögn í götunum sjálfum. Lagnir í húsunum vora hannaðar með tilliti til þess og ekki gert ráð fyrir frá- rennslislögnum frá neðri hæð- um,“ segir Ásbjöm. Hann segir að síðar hafi lagnir verið lagðar í óleyfi út fyrir lóðarmörk einhvema húsa. „Allar framkvæmdir í þessum húsum sem kalla á skólpviðtöku þama fyrir neð- an era gerðar án leyfis bæjar- ins. Þar af leiðandi geram við þá kröfu að húseigendur skili þessu skólpi í tengistúta í göt- unni,“ segir Ásbjöm. Hann segir að sterkur granur liggi á að um óæskilegt írárennsli sé að ræða í einhveijum tilfellum. Þess vegna hafi bæjaiyfirvöld krafist þess að þessum málum verði komið í rétt horf. Ásgeir segir að nýir eigend- ur að íbúðunum telji sig sumir hafa keypt köttinn í sekknum og það sé sjónarmið út af fyrir sig en vandamálið verði ekki leyst með nýrri stofnlögn. „Þessi lagnaleið yrði á mjög erfiðu svæði. Það má eiginlega segja að svæðið sé nánast botnlaust þar sem gífurlega djúpt er á fast land. Uppsetn- ing dælubúnaðar við húsin er mun ódýrari kostur og eðli- legra að vandamáiið verði leyst á þann hátt,“ segir Ás- geir. Þjónustuhús í Nauthólsvfk Tilboði Völund- arverks tekið MORGUNBLAÐIÐ sagði frá því í gær að Reykja- víkurborg hafi gengið til samninga við Völundar- verk ehf. um byggingu þjónustuhúss við Naut- hólsvík eftir að öllum til- boðum í framkvæmdina hafði verið hafnað. Völ- undarverk var lægstbjóð- andi og hljóðaði tilboð þess upp á 109,1 milljón króna. Tilboðið hefur nú verið lækkað í rúmar 99 milljónir og hefur stjórn Innkaupastofnunar lagt til við borgarráð að til- boðinu verði tekið.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.