Morgunblaðið - 05.07.2000, Síða 16

Morgunblaðið - 05.07.2000, Síða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 5. JÚLÍ 2000 AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ Fjölskylduhátíð á Hólum í Hjaltadal Fjölmennt var í brekkunni þegar Hundur í óskilum spilaði og skemmti. Börn og full- orðnir skemmtu sér saman Morgunblaðið/Klemenz Bjarki Þessi ungi piltur fókk aðstoð við að kíkja í smásjá hjá líffræðingunum. Vafalaust hefur hann orðið margs fróðari um fæðu bleikjunnar. FJÖLSKYLDUHÁTÍÐ var haldin á Hólum í Iíjaltadai síðastiiðinn laugardag. Þrátt fyrir að sólin hefði ekki látið sjá sig eftir veð- urbh'ðu daganna á undan mætti fólk með börnin sín og átti glað- an dag við leiki, þrautir og skemmtiatriði. Meðal þess sem boðið var upp á var svampakast. Sjálfboðalið- ar voru óvenjuviljugir í að stinga hausnum í gat á þar til gerðu spjaldi á meðan þátttak- endur reyndu að hitta andlit sjálfboðaliðans með blautum svampi. Einnig þreyttu menn sig í þeirri þraut að kasta stíg- vélum en þeir sem þreyttust á þeim leikjum gátu stytt sér stundir með því að bregða sér á hestbak. Líffræðingar sýndu áhugasöm- um innviði bleikjunnar og gátu menn m.a. skoðað fæðu bleikj- unnar í smásjá. Fullorðnir og börn tóku höndum saman í rat- leik þar sem ekki reyndi aðeins á ratvísi keppenda heldur þurftu þeir einnig að svara ýmsum spurningum á leiðinni og hnoða saman einni vísu. f lok hátíðar- innar skemmti svo gleðibandið Hundur í óskilum við mikinn fögnuð áheyrenda og sigurveg- arar þrautanna voru að sjálf- sögðu verðlaunaðir. 0 í\ f 0 0»\ wp P 9 | Útsalan I ■ hefst á * 1 morgun M. 10:00 0 l\ $ 0 0 *\ KrmgloHHÍ - Lciugavegi Morgunblaðið/Kristján Þessir ungu KA-menn taka þátt í Esso-móti félagsins sem hefst í dag en þeir notuðu gærdaginn fyrir létta æfingu. Tvö stór knattspyrnumót að hefjast á Akureyri á vegum KA og Þórs Ungir og „þungir“ knattspyrnumenn mæta til leiks TVÖ af stærri knattspyrnumótum sumarsins, Esso-mót KA og Polla- mót Þórs og Flugfélags Islands, fara fram á Akureyri í þessari viku. Esso- mót KA hefst í kvöld, miðvikudag, og verður leikið fram á laugardag en Pollamót Þórs fer fram á föstudag og laugardag. Þátttakendur á Esso-móti KA eru leikmenn í 5. aldursflokki og verður keppt í a-, b-, c- og d-liðum. AIls senda 27 félög víðs vegar að af land- inu lið til keppni en alls verða þátt- tökuliðin 107 talsins og hafa aldrei verið fleiri í 14 ára sögu mótsins. Keppni á Esso-mótinu hefst strax að lokinni setningu í kvöld en næstu fjóra daga verða spilaðir rúmlega 400 leikir á 8 völlum á félagssvæði KA. Mótsslit og verðlaunaafhending verða svo á laugardagskvöld í KA- heimilinu. Pollamót Þórs og Flugfélags ís- lands er fyrir allt annan aldursflokk en mótið hjá KA. Á félagssvæði Þórs við Hamar munu knattspyrnumenn sem komnir eru af léttasta skeiði takast á og að þessu sinni eru einnig tvö kvennalið skráð til leiks, frá Fylki og Þór. Annars vegar er keppt í flokki polla 30 ára og eldri og svo lá- varðadeild, þar sem þátttakendur 40 ára og eldri takast á. Alls eru um 60 lið skráð til leiks að þessu sinni, sem er svipaður fjöldi og undanfarin ár, en mótið er nú haldið í 12. sinn. Grillveisla verður við Ham- ar á föstudagskvöld en lokahóf og verðlaunaafhending fer fram í íþróttahöllinni á laugardagskvöld. Á þriðja þúsund gestir í bæinn Á báðum mótum er leikið í 7 manna liðum en gera má ráð fyrir að 10 til 12 leikmenn skipi hvert lið. Því má ætla að á annað þúsund ungii' knattspyrnumenn muni sprikla á fé- lagssvæði KA næstu daga og um 700 „þungir“ knattspyrnumenn á félags- svæði Þórs. Ekki má gleyma mök- um, foreldrum og öllum þeim böm- um sem knattspyrnuköppunum tengjast. Það má því gera ráð fyrir að alls muni á þriðja þúsund gestir heimsækja Akureyri í tengslum við þessi tvö knattspyrnumót. Krabbameins- félagið með fræðslufund KRABBAMEINSFÉLAG Akureyr- ar og nágrennis stendur fyrir fræðslu um tóbak og vímuefni fyrir um 400 ungmenni í vinnuskólanum og unglingavinnunni á Akureyri, Dalvík og Ólafsfirði. Stendur þetta yfir dagana 5.-7. júlí. Fyrirlesarar eru Guðjón Bergmann tóbaksvam- arráðgjafí og Hilda Jana Gísladóttir, ráðgjafi hjá Kompaníinu á Akureyri. Fræðslan fer fram í íþróttahúsinu á Þelamörk og verður krökkunum einnig boðið í sund í Þelamerkur- laug. Krakkarnir fá frí frá hefðbund- inni vinnu dagana sem fræðslan fer fram en mæta þess í stað með flokks- stjóram í íþróttahúsið á Þelamörk. Verkefnið er styrkt af Áfengis- og vímuvarnamefnd Akureyrarbæjar og er unnið í samvinnu við Kompaní- ið á Akureyri og umhverfísdeildina. ------UM------ Þjónustunám- skeið hjá Miðbæj- arsamtökunum MIÐBÆJARSAMTÖKIN standa fyrir þjónustunámskeiði fyrir starfs- fólk í verslun og þjónustu og nefnist það Fólkið í framlínunni. Námskeið- in verða tvö, það fyrra í kvöld og það seinna á morgun, fimmtudaginn 6. júlí. Bæði námskeiðin verða haldin í Fiðlarasalnum að Skipagötu 14, 4. hæð, og hefjast kl. 18:30. Leiðbein- andi á námskeiðinu er Tómas Guð- mundsson. A námskeiðinu verður farið yfír mikilvægustu þætti þess við að veita góða þjónustu. Einnig verður fjallað um „erfiða“ viðskiptavini, kvartanir og hvað það kostar að missa við- skiptavini. Þátttökugjald fyrir aðild- arfélaga í Miðbæjarsamtökunum er 3.000 krónur en 5.000 krónur fyrir aðra. Innifalin í þátttökugjaldi era námskeiðsgögn og kaffiveitingar. Þátttöku skal tilkynna til Samúels Björnssonar, s: 461-3850, Karls Jónssonar, s: 462-7755, eða Ingþórs Ásgeirssonar, s: 461-5050. ------------------- Ferð til Grímseyjar FERÐAFÉLAG Akureyrar stendur fyrir dagsferð til Grímseyjar laugar- daginn 8. júlí. Siglt verður með Sæ- fara og gengið um eyjuna með leið- sögn. Siglingin tekur um þrjá tíma hvora leið og reiknað er með því að koma til baka um kvöldmatarleytið. Sama dag verður gengið á Trölla- fjall í Glerárdal og er brottför kl. 9. Dagana 14.-18. júlí verður farið um suðurfirði Austfjarða. Gengnar verða dagsferðir út frá Stöðvarfirði. Skrifstofa Ferðafélagsins er opin alla virka daga frá kl. 16 til 19.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.