Morgunblaðið - 05.07.2000, Page 28

Morgunblaðið - 05.07.2000, Page 28
28 MIÐVIKUDAGUR 5. JÚLÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. JÚLÍ 2000 29 STOPNAÐ 1913 Útgefandi: Arvakur hf., Reykjavík. Framkvœmdastjóri: Hallgrímur B. Geirsson. Ritstjórar: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. FRIDSAMLEG BYLTING í STJÓRNMÁLUM MEXÍKÓ SIGUR Vicente Fox í forsetakosn- ingunum í Mexíkó boðar um- byltingu í stjórnmálalífi lands- ins, sem hefur verið í heljargreipum Byltingarflokksins (PRI - Partido Revolucionario Institucional) í rúma sjö áratugi, eða allt frá árinu 1929. Slík hafa tök PRI verið á stjórnmála- kerfinu í landinu að margir eiga erfitt með að átta sig á þeirri byltingu sem átt hefur sér stað. Og það með frið- samlegum hætti í því eldfima and- rúmslofti, sem einkennt hefur stjórn- málin í Mexíkó, einkum á fyrstu áratugum aldarinnar, þegar landið logaði í uppreisnum og borgarastyrj- öldum. Kjör Fox sem forseta á vegum Þjóð- arátaksflokksins ( PAN - Partido de Accion Nacional) er talinn mikill sigur fyrir lýðræði í heiminum og þá sér- staklega lýðræðisþróunina í Mexíkó. Flokksræði hefur ríkt í landinu og PRI hefur skýlt sér á bak við lýðræð- isleg ytri tákn eins og kosningar, en úrslit þeirra voru jafnan ráðin af flokksbroddunum fyrirfram. Hvers kyns spilling var einkennandi í stjórn- málum, en þó kastaði fyrst tólfunum síðustu tvo áratugina eða svo. Landið hefur orðið fyrir miklum efnahagsleg- um skakkaföllum undanfarin ár, sem enn hefur aukið á gífurlegt misrétti og fátækt. Vaxandi óánægju, ókyrrðar og átaka hefur því gætt. Mikið skref var tekið í lýðræðisátt árið 1997, þegar Cardenas, frambjóðandi Lýðræðislega byltingarflokksins (PRD - Partido de la Revolucion Democratica), sigraði með miklum yfirburðum í fyrstu borg- arstjórakosningunum í Mexíkóborg. Þau úrslit þóttu benda til þess að brestir væru komnir í valdakerfi PRI. í framhaldi af þeim úrslitum ákvað nú- verandi forseti, Ernesto Zedillo, að greiða fyrir lýðræðislegum kosningum nú og hvikaði hann ekki frá þeirri ákvörðun. Stjórnmálasviðið í Mexíkó er ger- ORÐOG LEIÐTOGAR 186 ríkja komu saman til ráðstefnu í Kaupmannahöfn fyrir fimm árum þar sem þeir sam- þykktu átak gegn fátækt, atvinnuleysi og félagslegri útskúfun. „Við höfum ekki náð þeim markmið- um sem við settum okkur ... við höfum ekki staðið við fyrirheit okkar og alls ekki á tilsettum tíma. Það er hin dapur- lega staðreynd. Við hefðum getað gert betur - miklu betur,“ sagði Poul Nyrup Rasmussen, forsætisráðherra Dana, meðal annars í ræðu sinni er hann ávarpaði aukaþing Sameinuðu þjóð- anna í Genf, sem haldið var til að fjalla um árangur af starfi ráðstefnunnar í Kaupmannahöfn. Það er dapurlegt til þess að vita að enn sem komið er hafi þær skuldbind- ingar sem gefnar voru fyrir fimm árum ekki reynst neitt annað en orðin tóm, en ekki er rétt að afskrifa hin góðu áform með öllu, því niðurstaða auka- þingsins í Genf var sú að stefnt skuli að því að fækka þeim um helming fyrir ár- ið 2015 sem búa við sára fátækt. Orð eru til alls fyrst - og það mark- mið þjóðarleiðtoganna frá því fyrir fimm árum, að skapa efnahagslegar, breytt frá því sem var fyrir fáum ár- um. Flokksræðið PRI er á hröðu und- anhaldi og tveir aðrir flokkar hafa gert sig gildandi. Erfitt er að staðsetja PRI í litrófi stjórnmálanna, en flokkurinn hefur að mörgu leyti fylgt íhaldssamri efnahagsstefnu, en jafnframt staðið fyrir þjóðnýtingu í atvinnulífinu. Væntanlega mun starf hans í stjórna- randstöðu móta og skerpa pólitískar áherzlur hans í framtíðinni. PAN-flokkur Fox forsetaefnis er talinn hægrisinnaður en hefur þó lagt áherzlu á frjálslyndi á ýmsum sviðum. PRD-flokkurinn telst hins vegar til vinstri. Fyrstu viðbrögð fjármálamarkaðar- ins við sigri Fox eru jákvæð og hækk- uðu hlutabréf í mexíkóskum fyrirtækj- um strax um 5%. Það sama má segja um pólitísk viðbrögð í lýðræðisríkjun- um. Vicente Fox er talinn miðjumaður í stjórnmálum og hefur sjálfur sagt að hann taki stefnumið Tonys Blair, jafn- aðarmannaleiðtogans brezka, sér til fyrirmyndar. „Verkefni okkar er að koma á breytingum án haturs og reiði,“ sagði Fox eftir kjör sitt og skoraði á fólk að grípa ekki til hefnda- raðgerða gegn fyrri valdhöfum. Hann hefur lýst því sem meginverk- efni að tryggja efnahagslegan stöðug- leika og hefur lofað „nýju efnahags- undri“ með 7% hagvexti, 2% verðbólgu og 1,3 milljónum nýrra starfa. Þá verður ráðist gegn spillingu, sem eink- enndi valdatíma PRI, og eitt af höfuð- verkefnum segir Fox verða bætt kjör fátæklinga og réttlátari dreifing þjóð- arauðsins. Víst er að verkefni forsetaefnisins er risavaxið. íbúarnir eru um 100 milljónir og meirihlutinn býr við sár- ustu fátækt. Þótt Mexíkó sé tæknivætt nútímaríki hefur lítið breyzt í þeim efnum frá því þeir Pancho Villa og Emilio Zapata fóru fyrir uppreisnar- her öreigabændanna í upphafi aldar- innar. EFNDIR menningarlegar og lagalegar forsend- ur fyrir félagslegri þróun, er í fullu gildi. En sú staða má ekki koma upp að fyrirheit hinna ríku um að rétta hag þeirra fátæku reynist ekkert annað en innantóm loforð. Nú er tími til kominn að játa verkin tala. í þessum efnum skipta fjarlægðir engu máli og við sem byggjum alls- nægtahorn heimskringlunnar - norð- urhvel jarðar - berum ríka ábyrgð á því að dregið verði úr þeim mikla mun lífsgæða sem jarðarbúar búa við. Þörf fyrir aðstoð er misjöfn eftir heimshlutum, en augljóslega þarf að beina aðstoðinni til vanþróuðustu ríkja heims, ekki síst í Afríku. Bresku hjálp- arsamtökin Oxfam benda á í skýrslu að til þess að takast á við fátækt dugi fá- tækustu löndunum ekki aðeins aukinn hagvöxtur, heldur vöxtur sem gagnist öllum. Hinar ríku þjóðir heims hafa ákveðnar skyldur í þessum efnum ekki sízt af siðferðilegum ástæðum. En jafnvel þótt þær líti á málefni fátæku þjóðanna út frá þröngum eigin hags- munum er Ijóst að það er þeim í hag að rétta fram hjálparhönd. Nýsköpunarsjóður námsmanna úthlutar styrkjum til 126 rannsóknarverkefna Fj ölbr eytt flóra verkefna Nýsköpunarsjóður námsmanna úthlutar árlega styrkjum til háskólanema í þeim til- gangi að þeir geti eytt sumrinu vlð að vinna að metnaðarfullum og krefjandi rannsóknarverkefnum. Valgarður Lyng- dal Jónsson kynnti sér nokkur þeirra verkefna sem í ár hlutu styrki frá sjóðnum. .—-. Morgunblaðið/Kristinn Valtýr Stefánsson Thors Kolbrún Þ. Pálsdóttir Björgvin Guðmundsson Ólöf Helga Þór Þorvarður Tjörvi Ólafsson níu löndum með tækja- búnað til Kosovo til að aðstoða Flóttamanna- stofnun Sameinuðu þjóðanna við skráningu flóttamanna. í því til- felli fólst stuðningur fyrirtækisins iyrst og fremst í sérþekkingu og vinnuframlagi starfsmanna þess. Það eru einmitt fjölbreytt- ar leiðir af þessu tagi sem verkefninu er meðal annars ætlað að kynna hér á Islandi þar sem aðferðir hafa ef til vill verið helst til ein- hæfar til þessa. AUNDANFÖRNUM ár- um hefur Nýsköpunar- sjóður námsmanna getið sér gott orð íýrir vinnu þeirra mörg hundruð námsmanna sem starfað hafa á hans vegum sem og fyrir niðurstöður verkefnanna sem þeir hafa leyst af hendi. Þetta árið hlutu 126 verkefni styrk af 201 umsókn sem borist hafði sjóðnum. I sumar starfa því alls um 150 námsmenn á vegum sjóðsins og eru mörg verkefnanna unnin í sam- starfi nemenda, íyrirtækja og há- skólastofnana. I verkefnunum sem unnið er að í sumai’ að tilstuðlan sjóðsins kennir ýmissa grasa, enda verkefnin mörg og nemamir koma úr öllum deildum háskólanáms. Þegar svo fjölbreytt flóra verkefna er til staðar er erfitt að velja nokkur úr til nánari kynn- ingar enda skal það tekið fram að þau verkefni sem hér eru kynnt fyrir lesendum eru ekki valin vegna þess að þau séu betri eða áhugaverðari en önnur. Hins vegar má ef til vill sjá á fjölbreytni þeirra sem hér eru kynnt, hve víða hlýtur að vera við komið í þeim 126 rannsóknarverkefnum sem unnið er að í sumar. Kostnaður og fjármögnun bj örgunaraðgerða Björgvin Guðmundsson er hag- fræðinemi sem fékk styrk úr Ný- sköpunarsjóði námsmanna til að vinna í sumar að rannsókn á kostn- aði af björgunaraðgerðum og leiðum til fjármögnunar þeirra. Segir Björgvin hugmyndina að verkeíhinu hafa kviknað þegar hann heyrði fréttir fluttar af björgunaraðgerðum þar sem fullyrt var að björgunar- starf hér á landi kostaði ekki neitt þar sem það væri allt unnið í sjálf- boðavinnu. „En eins og við vitum,“ segir Björgvin, „þá er ekkert tO sem heitir ókeypis. Það er alltaf einhver sem borgar brúsann og mig langaði að kanna það tO hlítar, annars vegar hver raunverulegur kostnaður við björgunaraðgerðir er og hins vegar hvaðan fjármagnið tO þeirra kemur.“ Björgvin segir að við rannsóknina komi það honum tO góða hversu ná- kvæm skráning er tO hjá þeim sem að björgunarstarfi standa. Til séu skýrslur um allar aðgerðir, hversu viðamOdar þær voru, tækjabúnað sem var notaður o.s.frv. Hins vegar eru margir kostnaðarliðir sem afar erfitt er að meta. Nefnir Björgvin sem dæmi að sjálfboðaliðar við björgunarstörf þurfa oft að fara úr vinnu tO að sinna útköllum og þannig myndist ákveðinn fómarkostnaður sem ekki verði metinn í fjárhæðum á einfaldan hátt. Björgunarstarf sprottið af þörf fólksins Björgvin segir einnig vera afar áhugavert að líta tO þess, hvers vegna björgunarstarfi sé háttað eins og raunin er hér á landi. „Mér finnst athyglisvert að skoða hvernig starf- semi björgunarsveita hefur verið rif- in áfram af sjálfboðaliðastarfi í gegn- um árin. Áður en rfldð fór á nokkum hátt að koma að björgunarstörfum var þegar búin að myndast hefð fyrir björgunarsveitum víða um land. Þannig er starfsemi björgunarsveita hér á landi íyrst og fremst sprottin af þörf fólksins í landinu.“ Að sögn Björgvins er það ekki ætlun hans að skoða einstakar að- gerðir eða að benda á einhverja sem hefðu átt að bera kostnaðinn af þessu eða hinu útkallinu. „Það sem vakir fyrii’ mér er að skoða hvemig þetta hefur breyst síðustu tíu árin og að bera saman kostnað frá einu ári til annars. Umræðu á borð við þá, hversu mikið kosti að leita að einni rjúpnaskyttu, tel ég að menn eigi að forðast.“ Einelti í skólum, hugmyndir kennara Ólöf Helga Þór er menntaður kennari og námsráðgjafi en stundar nú meistaranám í uppeldis- og menntunaríræði við Háskóla ís- lands. Áður var hún um tíma for- stöðumaður Rauðakrosshússins sem er neyðarathvarf fyrir böm og ung- linga. Einelti er því nokkuð sem Ólöf hefur kynnst frá mismunandi sjón- arhomum og unnið með í mörg ár enda segir hún að þegar tillaga að rannsókn á hugmyndum kennara um einelti kom frá Rannsóknastofn- un uppeldis og menntamála (RUM) hafi henni strax fundist mjög spenn- andi að geta tekið þátt í slíkri vinnu. Ræðir við kennarahópa um einelti Um þessar mundir er Ólöf að ræða um einelti og ýmislegt því tengt við hópa kennara sem hafa boðiðsig fram tO þátttöku í verkefn- inu. „I þessum hópviðtölum fáum við vísbendingar um viðhorf og hug- myndir kennara um einelti, orsakir þess og afleiðingar og helstu úrræði. Á þessum vísbendingum byggjum við síðan spumingalistana sem send- ir verða út til kennara þegar þeir koma til starfa í skólunum í ágúst.“ Telur Ólöf að það að vinna spum- ingalistann á þennan hátt sé mun vænlegra til árangurs en að reyna að þýða og staðfæra erlenda spuminga- lista. Með þessu móti verði spum- ingalistinn algerlega miðaður við ís- lenskar aðstæðtu- og niðurstöður rannsóknarinnar, sem birtar verða í lokaskýrslu í haust, muni því vænt- anlega nýtast íslenskum grunnskól- um betur en ella. Þátttaka atvinnulífsíns í mannúðarmálum Hagfræðineminn Þorvarður Tjörvi Ólafsson vinnur í sumar að verkefni sem ijallar um þátttöku at- vinnulífsins í mannúðarmálum. Vinnur hann verkefnið í samvinnu við Rauða kross íslands, sem sér honum m.a. fyrir vinnuaðstöðu og efniskostnaði. Að sögn Þorvarðar Tjörva er markmið verkefnisins fjór- þætt. í fyrsta lagi er ætlunin að fá heOdarsýn yfir framlög fyrirtækja á íslandi til mannúðarmála, í öðm lagi að bera framlög á íslandi saman við nágrannalöndin, í þriðja lagi verður athugað hvaða hag fyrirtæki hafi af þátttöku í mannúðarstarfi og í fjórða lagi er verkefnið leið tO að leita nýrra fjáröflunarleiða fyrir mannúðarsam- tök. Segir Þorvarður Tjöni að verk- efnið byggi fyrst og fremst á þeirri hugsun að bæði atvinnufyrirtæki og mannúðarsamtök geti hagnast á slflcri samvinnu um leið og mannúð- arstarfið sjálft eflist. Imyndin dýrmætasta eignin í því markaðssamfélagi sem ííkir í dag skiptir sú ímynd sem fyrirtæki skapa sér og þær hugmyndir sem fólk hefur um fyrirtæki og vöru- merki sífeUt meira máli. „Langverð- mætustu eignir mannúðarsamtaka eru þau gfldi sem samtökin standa fyrir,“ segir Þorvarður Tjörvi. „Með samstarfi við slík samtök tengja fyr- irtækin nafn sitt við þessi gildi og þannig er samstarfið góð leið fyrir fyrirtækin tíl að bæta ímynd sína og svara kröfum almennings um sið- ferðislega ábyrgð." Þátttaka at- vinnulífs í mannúðarstarfi getur ver- ið með ýmsum hætti en ekki endilega með beinum fjárhagslegum stuðningi. Bendir Þorvai’ður Tjörvi á það, að oft búi mannúðarsamtök og fyrirtæki yfir þekkingu sem aðilar geta þá nýtt sér hvor hjá öðrum. T0 dæmis má nefna þegar Microsoft fyrirtækið sendi 35 staifsmenn frá Áhrif lýsis á ónæmiskerfið Valtýr Stefánsson Thors stundar nám í læknisfræði við Háskóla Is- lands. Hann vinnur nú annað sumar- ið í röð við rannsókn á áhrifum lýsis á ónæmiskerfið og einnig hefur hann starfað við rannsóknina með námi sínu í vetur. Að sögn Valtýs hefur verið unnið að þessari rannsókn í nokkur ár undir stjóm Ásgeirs Har- aldssonar, prófessors í bamalækn- ingum, og hafa margir fagjnenn komið að rannsókninni eða einstök- um þáttum hennar. Valtýr er eini neminn sem tekur þátt í rannsókn- inni í sumar og segii’ hann að það að fá tældfæri tfl slíks, með stuðningi Nýsköpunarsjóðs námsmanna, sé að sjálfsögðu afar mOdlvægt og lær- dómsríkt fyrir sig. Rannsóknin snýst um það að ala mýs, annars vegar á fæði sem bætt er með lýsi og hins vegar á fæði sem bætt er með kom- olíu. Síðan em mýsnar sýktar með bakteríum og fylgst með hvemig þeim reiðir af eftir það. Lýsið virkar eins og allir vita „Við eram margoft búin að fá þá niðurstöðu að mýsnar sem aldar era á lýsi lifa mun betur en hinar, þannig að það virðist ekki leika neinn vafi á gagnsemi lýsisins," segir Valtýr. Það sem rannsóknin snýst hins vegar um í sumar er að reyna að kafa dýpra í það hvemig lýsið virkar á ónæmis- kerfið. Að sögn Valtýs er ónæmis- kerfið geysilega flókið og því ekki einfalt mál að staðsetja virkni lýsis- ins nákvæmlega innan þess en engu að síður era þeir sem að tflraununum standa vongóðir um að geta sýnt fram á fyrstu niðurstöður rannsókn- anna með haustinu. „Menn hafa auðvitað tekið lýsi frá því fyrir óralöngu og það vita allir að lýsi er gott við kvefi og ýmsum öðr- um kvfllum. En í raun veit enginn hvers vegna það virkar svo vel sem raun ber vitni,“ segir Valtýr. Hann segir rannsóknina svo sem ekki eiga eftir að bæta miklu við þekkingu al- mennings á lýsinu, það viti hvort eð er allir hversu hoflt það er. Hins veg- ar er meiri þekking alltaf betri en minni og það sem fyrst og fremst er vonast eftir að komi út úr rannsókn- inni er betri þekking á ónæmiskerfi líkamans, hvemig það virkar og hvemig gripið skuli inn í þegar það er hætt að virka á eðlflegan hátt. Hugmyndafræði íslenskra leikskóla Kolbrún Þ. Pálsdóttir, meistara- nemi í uppeldis og menntunarfræði, vinnur í sumar að könnun á hug- myndafræði leikskóla á Islandi. Leikskólar era, að hennar sögn, menntunarstig sem ekki hefur verið gefinn mikfll gaumur í rannsóknum hér á landi. Verkefnið felst í því að lagðir era spumingalistar fyrir starfsfólk 57 leikskóla í Reykjavík og á Norðurlandi vestra þar sem starfs- menn era spurðir ýmissa spuminga um leikskólastarfið og þá hug- myndafræði sem að baki því liggur. Segir Kolbrún að hennar bíði nú mikið verk við að fara yfir spum- ingalistana og vinna úr þeim upplýs- ingum sem þar er að finna. Allir starfsmenn spurðir Könnunin nær til allra starfs- manna leikskólanna, jafnt faglærðra sem ófaglærðra, enda segir Kolbrún að víða sé það að miklu leyti ófaglært starfsfólk sem heldur starfsemi leik- skólanna gangandi. Því sé ekki síður áhugavert að heyra hvað það starfs- fólk hefur að segja um stárfsemi og stefnu leikskólanna sem það vinnur á. „í lokin langar mig síðan að skoða niðurstöður könnunarinnar með hliðsjón af nýrri aðalnámskrá leik- skóla, leöcskólastefnu Félags ís- lenskra leikskólakennara og helstu kennslubókum í leikskólakennara- námi,“ segir Kolbrún. „í þessum rit- um er ákveðinn grannur að leik- skólastarfi lagður og því athyglisvert að bera það sem þar kemur fram saman við veraleikann." Að sögn Kolbrúnar era leikskólai’ á íslandi æði margbreytflegir. Þeir starfa eft- ir mismunandi hugmyndafræði og áherslum og þær hugmyndir sem að baki liggja birtast á mismunandi hátt í starfi skólanna. Rannsókn hennar miðar að því að koma saman hefldarmynd af því eftir hvers konar hugmyndafræði leikskólar á íslandi starfa og hvemig sú hugmyndafræði endurspeglast í daglegu staifi. Fulltrúar íslensks vinnumarkaðar eru 1 grundvallar- atriðum ósammála um framtíðarstefnu launamála „Þegar búið að skerða samkeppnisstöðu íslensks atvinnulífs“ í áliti nefndar, sem skipuð er fulltrúum allra helstu hagsmuna- samtaka á norskum vinnumarkaði, kemur fram að vegna alþjóða- væðingar í efnahags- málum verði Norð- menn að fara varlega í launahækkanir á næstu árum. Trausti Hafliða- son spurði Grétar Þorsteinsson, forseta * Alþýðusambands Is- lands, og Ara Edwald, framkvæmdastj óra Samtaka atvinnulífsins, hvernig þessi mál snúi að íslensku atvinnulífi. OLÍKT norskum verka- lýðsfélögum og vinnu- veitendum eru fulltrúar íslensks vinnumarkaðar í grandvallaratriðum ósammála um framtíðarstefnu launamála á Is- landi samkvæmt samtali Morgun- blaðsins við Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ, og Ara Edwald, fram- kvæmdastjóri SA. í Morgunblaðinu í fyiTadag kem- ur fram að svokölluð Holden-nefnd, sem m.a. er skipuð fulltrúum norskra verkalýðsfélaga og vinnu- veitenda, aðstoðarseðlabanka- stjóra landsins og sérfræðingi frá hagstofunni, er á einu máli um að ekki megi hækka laun jafn mikið á næstu áram og undanfarin ár ef takast á að halda uppi fullri atvinnu og standast öðram þjóðum snún- inginn í samkeppninni. Fulltrúar norsks vinnumarkaðar era því sam- mála um að launaveislu síðustu ára sé lokið. Engin launaveisla „Ég hef auðvitað fyrirvara á því að hægt sé að yfirfæra þetta ástand í Noregi yfir á ísland,“ sagði Grét- ar. „Ég held að það sé nokkuð ljóst að almennt launafólk hér á landi líti ekki svo á að hér hafi verið einhver launaveisla að undaförnu. Á síðustu áram hafa ekki verið ýkja miklar launabreytingar hjá Evrópusambandsi’íkjunum og ég lít svo á að við höfum búið við þess- ar aðstæður í aðalatriðum. Við verðum auðvitað að taka tillit til þessara aðstæðna en ég tel að það hafi þegar verið gert að einhverju leyti.“ Grétar sagði að samkeppnisað- stæður snera ekki einungis að laun- um heldm- að öllum framleiðslu- kostnaði. „Það kann auðvitað að vera að það séu í vændum enn minni launa- breytingar í Evrópusambandslönd- unum en ég reikna með að það sé í aðalatriðum byggt á einhverri spá.“ Staða norsks og íslensks atvinnulífs keimlík Ari sagði að sú staða sem norskt atvinnulíf býr við sé keimlík stöðu íslensks atvinnulífs. Hann sagði að á síðustu árum hefðu laun þar hins vegar hækkað minna en á Islandi. „Það segii’ sig sjálft að það geng- Morgunblaðið /Arnaldur Vegavinna við Smárann. Ari Grétar Edwald Þorsteinsson ur ekki til lengdar að laun í einu landi hækki meira en almennt ger- ist á meðal samkeppnislanda nema til komi aukin framleiðni,“ sagði Ari. „Annars er atvinnulíf tiltekinn- ar þjóðar að verðleggja sig út af markaðnum og það kemur því um koll fyrr eða síðar. Það er þegar búið að skerða samkeppnishæfni ís- lensks atvinnulífs enda höfum við miklar áhyggjur af samkeppnis- stöðunni en hún er mjög viðkvæm um þessar mundir og afkoma at- vinnulífsins er líkleg til að verða lakari á þessu ári en nokkur undan- farin ái’. Við höfum lagt áherslu á það í kjarasamningum að gera langtíma- samninga en með því eram við að reyna að minnka árlegar launa- breytingar og veita fyrirtækjunum svigrúm til þess að mæta kostnað- inum með aukinni framleiðni. Það er enginn vafi á því að þetta er höf- uðverkefni hagstjórnar á íslandi og stærsta áhugamál aðOa vinnumark- aðarins." í Noregi er lagt tO að launa- myndun verði samræmd og að sér- stök nefnd skipuð fulltrúum helstu hagsmunasamtaka komi sér saman um ávkeðinn efnahagslegan ramma sem miða skuli við þegar til samn- ingaviðræðna á vinnumarkaði kem- ur. Norska líkanið miðstýrðara Grétar sagði að þessi leið hefði að sumu leyti verið farin hér á landi. ,Alþýðusambandið hefur talið æskilegt að rekin sé hæfilega sam- ræmd launastefna í landinu," sagði Grétar. „Stefna sem lýtur að því að ná verðbólgunni veralega niður og koma henni í einhverjar tölur sem eru í takt við það sem gerist í kring- um okkur. Eitt af því mikilvægasta fyrii’ launafólk er að tryggja mjög lága verðbólgu.“ Ari sagði að það launaákvarðana- módel sem hefði þróast í Noregi virtist vera töluvert miðstýrðara en það sem notast hefði verið við hérlendis. „Ég sé ekki fyrir mér að þeir verði okk- ur fyrirmynd hvað þetta yarðar,“ sagði Ari. „Ég held að hér þróist þetta frekar þannig að aðilar rói í sömu átt vegna sam- eiginlegs skOnings á viðfangsefninu án þess að því sé slegið upp í einhverja mið- stýrða nefnd sem tek- ur heildarákvarðan- ir.“ Holden-nefndin vOl enn fremur að launa- hækkunarramminn verði gerður trúverðugri með því að taka inn í hann launahækkanir tfl forstjóra og annarra stjómenda og sagði Grétar að það væri á sinn hátt rökrétt og að þetta ætti að eiga við um alla hópa á vinnumarkaði hvaða nafni sem þeir nefndust. „Við þekkjum það að stjórnendur sumir hverjir era með margfalt hæri’i tekjur en aðrir starfsmenn í fyrirtækjunum og ef það era eðlileg rök fyrir því þá ætti það auðvitað ekki að vera neitt leyndarmál." Ari sagði að þeir kjarasamningar sem verið væri að gera hér á landi væru lágmarkslaunasamningar og að þeir bönnuðu engu fyrirtæki að greiða hærri laun en um semdist. Hann sagði enn fremur að launa- munur hér á landi væri mjög lítill miðað við í öðram löndum og jafnvel minni en í Noregi. Þá sagðist hann ekki alveg átta sig á því hvernig Norðmenn hygðust nálgast þetta þegar einkafyrirtæki ættu í hlut. Laun hjá hinu opinbera hafa hækkað meira á fslandi í áliti norsku nefndarinnar segir einnig að laun háskólamenntaðs fólks hjá hinu opinbera hafi hækkað minna en í einkageiranum og að ráða verði bót á því þar sem munur af því tagi grafi undan góðri sátt á vinnumarkaði. Ari sagði að á Islandi væri þess- um málum þveröfugt farið, þ.e. að á íslandi hefðu laun í opinbera geir- anum hækkað mun meira en á hin- um almenna markaði og að það skapaði ýmis vandamál því að við samningaborðið virtist óhjákvæmi- legt að alls kyns samanburður gegndi stóra hlutverki. Grétar sagði að á síðasta samn- ingstímabfli, þ.e. eftir samningana í byrjun árs 1997, hefðu ýmsir hópar á vinnumarkaði hérlendis náð fram umtalsvert meiri hækkunum en samið hefði verið um á almennum vinnumarkaði og að það væri eitt- hvað sem kallaði á árekstra.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.