Morgunblaðið - 05.07.2000, Side 33

Morgunblaðið - 05.07.2000, Side 33
JVJ.jJKGUINtí|+atJjt) IVUt) YÍKU UAUyjc. ö. J UUl HUUU ÚÚ UMRÆÐAN Morgunblaðið/RAX Til þín sem komst á kristnihátíð á Þingvöllum ÞÁ er kristnihátíð- inni á Þingvöllum lokið. Þú, sem komst á hátíð- ina, ert ríkari eftir en aðrir landsmenn og til þín eru þessar línur skiifaðar, með þökk fyrir einstaka daga. Sjaldan hefur sólin skinið jafn glatt og veðrið verið eins bjart eins og það var á Þing- völlum báða hátíðis- dagana, og reyndar daginn fyrir hátíðina einnig, þegar undir- búningurinn stóð sem hæst. Þingvellir skört- uðu sínu fegursta og fjallahringurinn í kring var tær og tignarlegur. Nú veit ég ekki hvort þú ert ungur eða fullorðinn, bam eða átt fjölskyldu. Þess vegna veit ég ekki heldur hvað það var af dagskránni sem þú tókst sérstaklega þátt í, enda var svo margt í boði. Ef til vill varst þú lengi í skátalandinu með bömun- um þínum, eða á æskuvöllunum þar sem sýnd voru barnaleikrit og allir krakkar unnu saman að því að búa til krossa fyrir Þingvallakirkju. Ef svo er hefur þú ömgglega verið í hópn- um stóra sem kom í sólskininu til kirkjunnar með krossana sína og blómin og hlustaði á íslandsklukk- una kaila á öll bömin. Kannski varst þú um tíma í Kærleikskróknum að hlusta á fæmstu tónlistarmenn þjóð- arinnar syngja, eða á tónleikum sin- fóníunnar, eða á þingfundinum að morgni sunnudagsins. Má vera að þú hafir litið við í Þingvallakirkju þar sem skiptust á upplestrar, tónlistar- flutningur, fyrirlestrar og tíðasöng- ur frá morgni til kvölds. Eða kannski varstu með í bænagöngunni ásamt öllum hinum sem báðust fyrir á þeim stöðum þar sem sorglegustu atburð- ir okkar sögu hafa gerst, á Högg- stokkseyri, við Drekkingarhyl og Brennugjá. En það er allt eins lík- legt að þig hafi verið að finna á sam- komum hjá fríkirkjunum, á mynd- listarsýningu í Stekkjargjá, í bamamessu eða kvennamessu eða bara buslandi í hitanum úti í Öxará miðri. Hvar sem þú hefur verið á há- tíðinni og hvað sem þú hefur gert, þá er mjög líklegt að þú hafir tekið þátt í hátíðarmessunni á sunnudegi með hinum 16.000- 20.000 messu- gestunum. Því þar var hápunktur hátíðarinn- ar og þar var andinn magnaður og sterkur. Aldrei hafa fleh-i tekið þátt í messu á íslandi í einu, aldrei hafa fleiri gengið til altaris í einu, aldrei hefur samstaða kirkjudeildanna verið betri hér á landi. Því þar báðu allir með ein- um huga óháð söfnuð- um og trúfélögum. Þar vora allir eitt í Kristi. Sú eining lifir áfram. Yfir allri hátíðinni ríkti gleðin hjá öllum kynslóðum. Við sem voram saman á Þingvöllum 1.-2. júlí áiið Kristnihátíð Og ef þú átt barn eða börn, þá skaltu vita, segir Þórhallur Heimis- son, að þú hefur gefið börnunum þínum dýr- mæta gjöf með því að fara með þau á þessa miklu hátíð. 2000, við skulum varðveita vel þessa gleði í hjarta okkar því hún er okkur gott veganesti fram á veginn. Og ef þú átt barn eða börn, þá skaltu vita að þú hefur gefið börnunum þínum dýrmæta gjöf með því að fara með þau á þessa miklu hátíð. Þú hefur gefið þeim minninguna um samstöðu þúsundanna, vináttu og bræðra og systrabönd sem ekkert getur í raun rofið. Þegar þau verða stór þá geta þau sagt stolt við börnin sín og barnabörnin; „Eg var líka á Þing- völlum við Öxará árið 2000“. Höfundur var sóknarprestur og staðarhaldari á Þing\’allabæ á Kristnihátíð. Þórhallur Heimisson Tomas Grétar Olason heimilisvinur Sólheima SÓLHEIMAR fagna í dag sjötíu ára afmæli. Af því tilefni verður lýst kjöri heimilisvinar Sólheima. Þessa æðstu viðurkenningu íbúa og byggðarhverfisins hlýtur Tómas Grétar Ólason verktaki fyrir fórnfúst og óeigin- gjamt starf til heilla og gagns Sólheimum í rúma þijá áratugi. Þetta er í annað skiptið í sjötíu ára sögu Sól- heima sem útnefndur er heiðursborgari á Sólheimum sem ber sæmdarheitið „heimil- isvinur“. Á sextíu ára afmæli Sól- heima var Gunnar Ásgeirsson stór- kaupmaður kjörinn heimilisvinur Sólheima, en hann lést 7. júlí árið 1991. Pétur Sveinbjamarson Tómar Grétar Ólason al jafningja. í hópi Ægisfélaga vora og era margir landskunnir skemmti- kraftar og listamenn svo sem Svavar Gests og Sigfús Halldórsson sem nú Tómas Grétar gekk til liðs við Lionsklúbbinn Ægi árið 1968, en klúbburinn hefur sem kunnugt er verið aðalstyrktaraðih Sólheima allt frá því er hann var stofnaður 1957. Framlag klúbbsins hefur skipt sköp- um fyrir Sólheima og er án efa stærsta verkefni sem þjónustu- klúbbur á íslandi hefur tekist á hendur, þótt félagsmenn hafi jafn- framt sinnt fjölmörgum öðram verk- efnum á sviði mannúðar og líknar- mála. Frá árinu 1958 hefur ekkert hús verið byggt á Sólheimum eða í aðrar framkvæmdir ráðist án þess að Ægisfélagar hafi stutt þær með ein- um eða öðram hætti. Á bak við þess- ar stórkostlegu gjafir er ómæld vinna við fjáröflun. Þar hafa ekki verið farnar troðnar slóðir. Má sem dæmi nefna fyrsta sjónvarpsbingó á Islandi og auglýsingar á leigubílum, en þekktasta fjáröflunin er þó án efa árlegt kúttmagakvöld á Hótel Sögu. Ibúar Sólheima meta mikils gjafir Ægisfélaga, en engu síður félags- skap þeirra og sanna vináttu. í des- ember ár hvert mæta Ægismenn með fylgdarliði að Sólheimum og halda „litlu jólin“. í þessari vösku sveit er Tómas Grétar fremstur með- Tímamót Æðstu viðurkenningu íbúa og byggðarhverfís- ins, segír Pétur Sveinbjarnarson, hlýtur ------------------7-------- Tómas Grétar Olason fyrir fórnfúst og óeig- ingjarnt starf til heilla og gagns Sólheimum í rúma þrjá áratugi. era látnir, Ómar Ragnarsson og Haraldur Sigurðsson sem enn leika listir sínar á sviði íþróttaleikhússins ásamt fjölmörgum öðram. Tómas Grétar kynntist Sólheim- um þegar hann kom sem undirleikari með Ömari Ragnarssyni að skemmta á „litlu jólunum“ fyrir 34 áram og vart er hægt að segja að hann hafi farið þaðan síðan. Reyndar þekkti hann nokkuð til stofnunar Sólheima því faðir hans, Óli Pálsson, vann að byggingu Sólheimahússins árið 1930. Tómas Grétar tók sæti í stjóm Sólheima árið 1984. Eftir að skipu- lagsskrá Sólheima var breytt árið 1987 og fulltrúaráð stofnað gegndi hann starfi varaformanns fulltrúa- ráðs og framkvæmdastjórnar þar til í aprfl sl. að hann baðst undan endur- kjöri í framkvæmdastjórn. Tómas Grétar hefur verið starfi Sólheima traustur bakhjarl og sá einstakling- • ur utan Sólheima sem mestra vin- sælda nýtur meðal íbúa. Þekking og löng reynsla hans af verklegum framkvæmdum hefur nýst Sólheim- um vel í öllu uppbyggingarstarfi og þau era ófá skiptin sem hann hefur þurft að „skreppa austur" fyrirvara- laust frá annasömu starfi eða senda vörabfl með tól og tæki til aðstoðar. Enginn hefur verið fastari fyrir þeg- ar sótt hefur verið að Sólheimum hvort heldur átt hefur að leggja stað- inn niður eða yfirtaka starfsemina. Þær klukkustundir skipta þúsund- um sem Tómas Grétar hefur varið í sjálfboðavinnu í erindrekstur við op- inbera aðila, stofnanir og fyrirtæki um málefni Sólheima. Það er ekki að- •*- eins á vettvangi Sólheima sem verk- in era látin tala. Ungur gekk Tómas Grétar til liðs við skátahreyfinguna. Þeirri góðu hreyfingu hefur hann reynst trúr og tryggur, m.a. gegnt starfi félagsforingja í Reykjavík og Kópavogi, auk fjölmargra annarra trúnaðarstarfa. Eiginkona Tómasar Grétars er Guðlaug Gísladóttir, ættuð frá Hvalsnesi í Sandgerðisbæ. Guðlaug og Tómas Grétar hafa unnið þar mik- ið starf fyrir kirkjuna. Sólheimar hafa vaxið frá því að ‘ ~ vera barnaheimili í blómlegt hundr- að manna byggðai’hverfi með öflugri atvinnustarfsemi og góðri félags- þjónustu. Um leið og íbúar Sólheima fagna 70 ára afmæli staðarins færa þeir Tómasi Grétari þakkir fyrir mikið og fómfúst starf í yfir þrjá ára- tugi. Höfundur er formaður fulltrúaráðs og framkvæmdastjórnar Sólheima. exo.is exos kúfýaqHAUewki h Fákafen 9, Reykjavík s: 5682866 Jersey-, krep- og flónels- rúmfatasett Póstsendum Skólavörðustíg 21a, Reykjavík, sírai 551 4050. IÐNAÐARHURÐIR FELLIHURÐIR LYFTIHURÐIR GÖNGUHURÐIR ELDVARNARHURÐIR ÍSVaU-íjOKGA ?HF. HOF DABAKKA 9. 112 HEYKJAVIK SIMI 587 8750 FAX 587 8751 fróttir á Netinu v*róT 1V0’ Landsmöt t Vlöldal dagana 4, til 9. júlí er Iffsnauðsyn f Laugardalnum dagana 7. tll 9. júlt •ýrtnon «r «*n -n» M. 101« 1». Það verður ótrúlega margt aðsjáog gera I Laugardal og Viðidal. FJölbreytt dagskrá. Stárglieslleg landbúnaáartýnlng, Hestamannamót aldarinnar. Enginn sem mtlingl getur valdlð Imtur slg vanta á lltrfka landbúnaáarvlku I höfuðborglnnl

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.