Morgunblaðið - 05.07.2000, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 05.07.2000, Qupperneq 36
36 MIÐVIKUDAGUR 5. JÚLÍ 2000 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ + Ástkær eiginmaöur minn, faðir, tengdafaðir og afi, MATTHÍAS INGIBERGSSON apótekari, Hrauntungu 5, Kópavogi, er lést 28. júní sl., verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 7. júlí kl. 13.30. Katla Magnúsdóttir, Freyja M. Frisbæk, Bent Frisbæk, Þór Matthíasson, Janet Matthíasson, Edda Matthíasdóttir Swan, Edward Swan, Sif Matthíasdóttir, Jörundur Svavarsson, og barnabörn. Elskuleg eiginkona mín, móöir, tengdamóöir og amma, ÁSDÍS ÓLAFSDÓTTIR, Gullsmára 7, Kópavogi, lést á Landspítalanum, Fossvogi, mánudaginn 26. júní. Útför hennar hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Ingimundur Guðmundsson, Ólafur Valgarð Ingimundarson, Ingibjörg Andrea Magnúsdóttir, Ingi Guðmar Ingimundarson, Unnur Kjartansdóttir, Svandís Ingimundardóttir, Arnar Freyr Ingimundarson, Valrún Valgeirsdóttir, Bryndís Ingimundardóttir, Helgi Kristjónsson og barnabörn. + Ástkær eiginkona mín, INGIBJÖRG ELÍSABET JÓHANNESDÓTTIR frá Flateyri, Úthlíð 35, Hafnarfirði, lést föstudaginn 30. júní á Landspítalanum, Fossvogi. Útförin auglýst síðar. Fyrir hönd aðstandenda. Helgi Sigurðsson. + Bróðir okkar, GUNNAR ÞORSTEINSSON, Vfðinesi, lést á bráðamóttöku Sjúkrahúss Reykjavíkur, Fossvogi, föstudaginn 16. júní sl. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey. Þökkum starfsfólki Víðiness fyrir góða um- önnun síðustu árin og einnig starfsfólki bráða- móttöku. Guð blessi ykkur öll. Helga, Hólmfríður og Jódís Þorsteinsdætur og systrabörn. + Elskuleg móðir, tengdamóðir, amma og langamma, ANDREA GUÐMUNDSDÓTTIR, Ásvallagötu 49, andaðist á Vífilsstöðum mánudaginn 3. júlí. Jarðarförin auglýst síðar. Aðstandendur. + Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við and- lát GUÐRÚNAR HELGADÓTTUR hjúkrunarkonu, Reykjamörk 17, Hveragerði. Sérstakar þakkir eru til starfsfólks hjúkrunar- heimilisins Ljósheima á Selfossi fyrir góða umönnun. Helgi Ársælsson, Steinunn Óskarsdóttir, Guðfinna Ársælsdóttir, Zdenek Smidak, barnabörn og barnabarnabarn. + Henny Arna Hovgaard fædd- ist í Lyngdal í Noregi 18. maí 1944. Hún lést á Landspítalan- um við Hringbraut 29. júní siðastliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Laurits Skaret, f. 22.3. 1912, d. 14.6. 1996, og Tor- hild Skaret, f. 27.3. 1919. Systkini henn- ar eru, Ivar Olav, f. 12.10. 1942, Tor- Leif, f. 12.7. 1949, d. 13.12. 1990, Arvid, f. 25.10.1952. Hinn 4. september árið 1976 giftist Henny eftirlifandi eigin- manni sínum, Jakobi Nikulássyni, f. 17.3. 1922 í Hovi í Færeyjum. Þau eignuðust þrjú börn; tvibur- ana Davíð og Óskar, f. 25.7. 1977 og dótturina Þórhildi, f. 16.1. 1980. Utför Hennyar fer fram frá Dómkirkjunni í dag og hefst at- höfnin klukkan 15. Mér er ljúft að skrifa nokkur orð um Henny Hovgaard sem Drott- inn kallaði heim til dýrðar sinnar eftir langvarandi veikindi. Henny kom til íslands frá Noregi 1974 og hóf að vinna á Gesta- og sjómannaheimili Hjálp- ræðishersins. Þar kynntist hún Jakobi sem einnig vann þar og felldu þau hugi saman. Nokkru síðar giftu þau sig og stofnuðu heimih sem var byggt á bjarg- inu Kristi. Þar ríkti kærleikur og friður, orð Guðs var í hávegum haft og bænir voru beðnar. Börnin lærðu snemma að lesa bænir en slík iðja er gott veganesti fyrir lífið. Henny var auðmjúk krist- in kona sem í daglegu lífi sínu vitnaði um frelsarann. Fyrir mörgum árum greindist Henny með illvígan sjúkdóm og þurfti margoft að leggjast inn á sjúkrahús, bæði hér heima og er- lendis. Hún faldi Guði öll ráð sín og treysti honum algjörlega. Eitt sinn heimsótti ég hana á sjúkrahús í Nor- egi þar sem hún lá mikið veik eftir erfiða aðgerð. Hún brosti þegar hún sá mig og sagðist aldrei vera ein því Jesús væri alltaf hjá sér. Henny vakti yfir velferð barna sinna, lét sér annt um að þau mættu læra það sem hugur þeirra beindist til. Þau byrjuðu í tónlistarnámi ung að árum og oftast fór Henny með þeim og bar fyrir þau hljóðfærin til að létta þeim sporin. Annar sonur Hennyar sagði við mig eftir lát móð- ur sinnar: „Hún var svo góð og mikil mamma. Hún gat neitað sér um allt fyrir okkur börnin.“ Nú er Henny sárt saknað af eigin- manni og börnum, aldraðri móður sem og öðrum ættingjum og vinum. Við í Hjálpræðishernum söknum hennar mikið. Hún var trú í starfi og við þökkum Guði fyrir sem gaf okkur hana. Við vitum að hún er hólpin, hef- ur fullnað skeiðið og varðveitt trúna. Megi góður Guð styrkja Jakob og börnin sem hafa misst svo mikið. Margoft þinn líkami lasburða var en líf þitt hinn glöggasta vott um það bar að þú vildir berjast sem best fyrir hann hvers blóð fyrir okkur á Golgata rann. (J.S.) Blessuð sé minning þín. Við mæt- umst á ný. Imma og Óskar. HENNYARNA HOVGAARD AÐALHEIÐUR TRYGGVADÓTTIR + Aðalheiður Tryggvadóttir fæddist í Gufudal á Barðaströnd 13. febrúar 1911. Hún lést á sjúkrahúsinu á Isafirði 31. maí síð- astliðinn og fór útför hennar fram frá Isa- fjarðarkirkju 10. júní. Hún amma okkar var ein af hetjum síð- ustu aldar, hún var ein af þessum konum sem aldrei gáfust upp hvað sem gekk á. Það hafa að sjálfsögðu fylgt því miklir erfiðleikar þegar hún stóð nánast ein uppi með smábörn þegar afi lenti í alvarlegu slysi sem hann hlaut ævilanga örorku af. En hún amma okkar gafst ekki upp, hún og afi eignuðust fleiri börn og stofn- uðu af miklum dugnaði eigin rekstur. Ekki munum við eftir því að amma minntist þessa tíma með biturð eða hafi fundist mikið til sinna afreka koma, heldur sá hún alltaf björtu hliðamar á hverju sem var og í hverjum manni. Það var okkur mjög gott veganesti út í lífið að verða þeirrar gæfu aðnjótandi að al- ast upp í nábýli við þau afa og ömmu á Ár- bakka og höfum við alltaf með stolti kynnt okkur sem einar af Ar- bakkaættinni. Hún amma okkar taldi okk- ur trú um að við gætum allt sem við vildum því við værum fallegar, gáfaðar og góðar. Núna seinni árin, eftir að við urðum full- orðnar, var alltaf notalegt að hitta ömmu því henni var mjög í mun að hrósa og láta öllum í kringum sig líða vel. Svipurinn hennar bjarti, hlýjan í röddinni og umhyggjan sem hún sýndi okkur alla tíð mun lifa með okkur og gleymist ekki hvar sem við erum og hvert sem við förum. Amma sagði alltaf: þú lítur svo vel út núna, eru þetta þínir synir, þeir eru svo fal- legir eins og allir af okkar ætt. + Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, INGUNN PÉTURSDÓTTIR frá Seyðisfirði, lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ mánudaginn 3. júlí. Jaröarförin fer fram frá Seljakirkju föstudaginn 7. júlí kl. 13.30. Gylfi Gunnarsson, Sólborg Sumarliðadóttir, Ingunn Gylfadóttir, Tómas Hermannsson, Sara Gylfadóttir Sævar Þór Gylfason, Sigríður Ólafsdóttir og barnabörn. + Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð, vináttu og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður og vinar, MARGRÉTAR HARALDSDÓTTUR, Krummahólum 8, Reykjavík. Sérstakar þakkir viljum við senda starfsfólki Landspítalans. Björn Sigurðsson, Kristín Dís Sigurðardóttir, Haraldur Brynjar Sigurðsson, Þórunn Elfa Ævarsdóttir, Sigurður Frímann Björnsson. Amma sá til þess að fjölskyldan héldi vel saman og hittist oft, það eru því frábærar minningar sem við eig- um frá ferðalögum stórfjölskyldunn- ar í Reykjanes sem var okkar sólar- strönd. Þar var synt, dansað og skemmt sér. Því amma vildi alltaf að það væri dansað og eflaust vill hún að við dönsum í dag. Einnig var alltaf sungið „Hvað er svo glatt“. Kurteisi og höfðingleg framkoma var henni í blóð borin. Hún mat kosti samferðamanna sinna, lastaði aldrei nokkurn mann og leiddi hjá sér hvat- vísi og ónærgætni annarra. Hún var fróð og vel gefin og kunni skil á ótrú- legustu fræðum. Hún var einfaldlega einstök manneskja sem öllum þótti vænt um. Við vitum að afi var hjá henni síð- ustu dagana og tók á móti henni hin- um megin þegar hún kvaddi okkur og við vitum líka hvernig umhorfs er í þeirra paradís á himnum. I kvöldroða kyrrð þið sitjið og kúrist upp við hvort annað. Og rifjið upp stundir, þið vitíð um oÚcur öll og hvort annað. Það er engin leið til þess að gera fulla grein fyrir þakklæti okkar til ömmu fyrir allt sem hún og afi hafa gert fyrir okkur á lífsleiðinni og sam- vistir við þau hafa haft ómetanleg áhrif á okkur. Guð blessi minningu Aðalheiðar Tryggvadóttur. Bjarnveig Brynja og Aðalheiður Anna Guðmundsdætur. Elsku Alla amma er dáin. Amma á Árbakka sem alltaf var svo gott að koma til. Árhakki hafði alltaf sér- stakan ljóma yfir sér og á ég margar góðar minningar þaðan. Þar átti amma hlýlegt og fallegt heimili sem hún og Siggi afi höfðu byggt upp saman. Hún amma Alla var sérstak- lega vönduð og vel gerð. Hún átti mikinn fjölda vina og kunningja og var hvarvetna aufúsugestur. Hún skipti aldrei skapi og var umhyggju- söm við ættingja og vini. Út í lífið fór ég með það veganesti frá ömmu að ég gæti allt, væri falleg, gáfuð og góð. Það er ómetanlegt að hafa feng- ið að kynnast ömmu og hennar já- kvæðu lífsskoðunum. Hver minning dýrmæt perla að liðnum Iífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibj.Sig.) Blessuð sé minning Aðalheiðar Tryggvadóttur. Hildur Halla Jónsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.