Morgunblaðið - 05.07.2000, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 05.07.2000, Qupperneq 38
38 MIÐVIKUDAGUR 5. JÚLÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR GUNNHILDUR SIGRÍÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR frá Hólkotsheimilinu eru fagrar eins og útsýnið á Hólkoti. Kæra vinkona. Að ferðalokum segi ég: Hjartans þökk, vona að við hitt- umst heil hinum megin. í Guðs friði. Vertu sæl. Hákon Jónsson, Það var undarleg tilfínning sem ég fann fyrir, þegar ég heyrði að Hidda hefði loks fengið langþráða hvíld. I allt vor hefur hún legið á Sjúkrahús- inu á Húsavík og beðið þess að líf hennar tæki enda. Með réttu er reyndar ekki hægt að segja að hún hafi beðið þess, því hún hefur barist hatrammlega við illvígan sjúkdóm, krabbameinið. Hún hefur sýnt meiri kraft og dugnað en hægt er að reikna með frá nokkurri manneskju. Það hefur kvalið huga minn alla daga, hve langan tíma hennar stríð hefur tekið. Það var því sambland af sorg og létti sem ég fann fyrir þegar hún andaðist að kvöldi 26. júní. Hún var einstakur persónuleiki, svo ákveðin en samt blíð og góð. Hún var svo fíngerð og alltaf falleg, þó svo að hún væri þreytt og veik. Hún hélt fullri reisn hvað sem á bjátaði. Skapgerð hennar var sér- stök. Hún var óhrædd við að láta skoðanir sínar í ljós. Ef umræður sköpuðust um fólk sem ekki var nær- statt, var hún ófeimin við að segja að hún kærði sig ekki um umræður af því tagi. Mér er minnisstæð gullin regla sem hún lagði mér eitt sinn: „Hafðu aldrei neitt eftir neinum, fyrr en þú hefur heyrt það frá þremur áreiðanlegum stöðum." Hún kenndi ■ um, fluttist aftur á bernskuslóðirnar, varð Hólkotsheimilið eitt þeirra heimila í Reykja- dalnum, sem tóku mér opnum örmum. Maður varð strax umvafinn ólýsanlegri hlýju, sem ætíð fylgir því að vera í návist góðs fólks. Eftir stofnun Harmonikufé- lags Þingeyinga og í samvinnu við þau hjón þar í félagsstarfi, ferða- lögum og öðrum gleði- stundum á vegum har- monikufélagsins bast ég þeim hjónum báðum vináttubönd- um sem aldrei slitna. Horfin er nú af sjónarsviðinu hús- móðirin á býlinu fagra á hólnum, eft- ir harða baráttu í mörg ár við krabbamein. Þá baráttu háði hún af slíkum hetjuskap og æðruleysi að fá- títt er. Hennar er nú sárt saknað af vinum og sveitungum. Kæri Stebbi minn, þér og bömum ykkar og fjölskyldum þeirra votta ég samúð frá mér frá dýpstu hjartarót- um. Þið hafið mikið misst en drengi- lega reynt að létta síðustu stundim- ar. Gamalt fólk ornar sér löngum við gamlar minningar. Minningar mínar + Gunnhildur Sig- ríður Guðmunds- dóttir fæddist á Ak- ureyri 13. maí 1936. Hún lést á Sjúkra- húsi Húsavíkur 26. júní siðastliðinn og fór útför hennar fram frá Einars- staðakirkju í Reykja- dal 4. júlí. Birting afmælis- og minningargreina MORGUNBLAÐIÐ tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á rit- stjóm blaðsins í Kringlunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðs- ins í Kaupvangsstræti 1, Akureyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinamar í símbréfí (569 1115) og í tölvupósti (minn- ing@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höfundar/send- anda fylgi. Hver sá, sem kemur í Hólkot í Reykjadal á sólbjörtum sumardegi, verður hrifinn af hinu fagra útsýni, sem þar blasir við. Eng- um sem kynnst hefur fjölskyldunni þar á bæ gleymast þau kynni. Þegar ég, fyrir hartnær þrjátíu ár- OSWALDS sími 551 3485 ÞJÓNUSTA ALLAN SÖLARHRINGINN ADAl S I RÆTI 4B • 101 Rl YKJAVÍk j 5 ! Í Wf : D/ivít) Inger Ol/tfnr l ’tj/inn stj. ('tfimirstj. Ut f/tr/trstj. LÍKKISTUVINNUSTOIA EYVINDAR ÁRNASONAR þeim sem umgengust hana, að bera virðingu fyrir öðrum, hvar í þjóðfé- lagsstiganum sem þeir stóðu. Aðferðir hennar við að ala upp unga fólkið voru öðruvísi en hjá öðr- um þeim sem ég þekki. Aldrei minn- ist ég þess að hún hækkaði róminn. Hún sýndi ungdómnum virðingu og hún var endurgoldin af hálfu barn- anna til hennar. Við systkinin sóttum mikið í að komast í Hólkot, þar leið okkur svo vel. Það er mikill missir fyrir þá sem áttu Hiddu að, nú þegar hún er horf- in úr okkar heimi. Mér finnst samt gott að vita til þess að nú líður henni vel. Guðmundur sonur hennar, sem lést fyrir aldur fram fyrir fáeinum árum, tekur án efa á móti henni og leiðir hana um hinar nýju slóðir. Fyrir hönd systkinanna á Baug- hóli 15, vil ég þakka fyrir að hafa hlotið þá gæfu að kynnast þeim hjón- um í Hólkoti, Hiddu, Stebba og öllum þeirra bömum. Það hefur verið aðdá- unarvert að fylgjast með samheldni þessarar ástríku fjölskyldu í öllum þeim veikindum sem á hafa herjað á undanfornum árum. Elsku Stebbi, Alla, Tóti, Olga, Stefán og Gunna, við hugsum til ykkar á erfíðri stundu og biðjum þess að framtíðin megi verða fjölskyldum ykkar gæfurík og björt. Hulda Ragnheiður Árnadóttir. Hvað getur maður sagt á stundu sem þessari? Amma er farin, loksins fékk hún að hvflast. Þó að ég viti að nú sé hún laus við allar þjáningar þá er þetta samt svo sárt, allt svo tómt og skrýtið. Amma var sú frábærasta og yndis- legasta mannvera sem ég hef á æv- inni kynnst. Dugnaðurinn og vilja- styrkurinn sem ein manneskja gat búið yfir. Hún kunni ekki að gefast upp. Hún var alltaf eitthvað að gera og allt það sem hún hefur kennt mér er ómetanlegt. Ég gleymi því aldrei þegar hún kenndi mér fyrst að pijóna og allar fallegu bænirnar sem hún kenndi mér. Allar ferðimar í beijamóinn og kaupfélagið og þegar við fórum niður í skógargirðingu til að tína köngla. Best af öllu var þegar hún klæddi mig upp í kuldagallann sinn og húfuna sína svo ég leit út al- veg eins og hún og sendi mig út á gönguskíði til að stríða konunni á næsta bæ, því að amma átti að vera rúmliggjandi. Það var alltaf stutt í húmorinn hjá ömmu og jafnvel undir það síðasta varð hún að fylgjast með öllu. Ég gæti sennilega skrifað heila bók um afrek hennar og hversu ynd- isleg manneskja hún var en ég ætla samt að stoppa hér. Ég mun alltaf elska þig, amma mín og ég sakna þín mikið, eiginlega allt of mikið. Þín, Bergrún Lilja. Hvert líf á sér upphaf og endi. Elsku Hidda mín, nú hefur þú yfir- gefið þessa jarðvist eftir hetjulega baráttu og ert laus við allar þjáning- ar, ég efa ekki að það hefur verið vel tekið á móti þér. Ég gleymi aldrei ferðunum austur í Hólkot, það var alltaf tekið vel á móti manni og maður var alltaf vel- kominn. Það var oft margt um mann- inn í Hólkoti og þó svo að það mynd- aðist röð við matar eða kaffiborðið var alltaf nóg pláss því þröngt mega jú sáttir sitja. Þetta voru yndislegir tímar sem gleymast aldrei, hvort sem það voru hlýlegar móttökur, ferðirnar í beijamóinn og í búið í skúrnum og auðvitað öll prakka- rastrikin. Eftir að ég varð fullorðin fækkaði ferðunum í Hólkot en samt kom ég alltaf annað slagið með fjölskyldu mína og var ævinlega tekið vel á móti okkur. Síðastliðið sumar var ég með börn- in mín í útilegu ásamt mágkonu minni og bömum hennar og ákváð- um við að renna við í Hólkoti og það var eins og við manninn mælt, allir voru drifnir inn í kaffi og kökur. Þá spurði ég Hiddu hvemig heilsan væri og hún svaraði um hæl að það þýddi ekkert að velta sér upp úr því, maður tæki því sem að höndum bæri. Elsku Hidda ég vil þakka þér fyrir allt. Elsku Stebbi, Alla, Tóti, Stebbi, Olga, Gunna og allir ástvinir ykkar. Ég bið þann sem lífið gaf að hugga ykkur og styrkja á sorgarstund. Kveðja, Sigurlín Birgisdóttir og fjölskylda. ATVINNUAUGLYSINGAR Fiæðslumiðstöð Re^^gavíkur Laus störf í grunn- skólum Reykjavíkur skólaárið 2000-2001 Kennarar Langholtsskóli, sími 553 3188. Almenn kennsla í 1. bekk, 1/1 staða. Almenn kennsla í 2. bekk, 2/3 staða. Almenn kennsla á miðstigi. Tónmennt, 1/2 - 2/3 staða. Upplýsingar gefa skólastjóri og aðstoðarskóla- stjóri. Umsóknarfrestur er til 2. ágúst nk. Umsóknir ber að senda í skólann. Laun skv. kjarasamningum kennarafélaganna viö Launanefnd sveitar- félaga. Nánari upplýsingar um laus störf og grunnskóla Reykjavíkur er að finna á netinu undir job.is Önnur störf Langholtsskóli, sími 553 3188. Skrifstofustjóri, 75 - 100% starf. Upplýsingar gefa skólastjóri og aðstoðarskóla- stjóri. Umsóknir ber að senda í skólana. Laun skv. kjarasamningum Reykjavíkurborgar við viðkomandi stéttar- félög. Nánari upplýsingar um laus störf og grunnskóla Reykjavíkur er að finna á netinu undir job.is • Fríkirkjuvegi 1 • ÍS-101 Reykjavfk, • Sími: (+354) 535 5000 • Fax: (+354) 535 5050 • Netfang: ftnr@rvk.is JMsrðttnhlafrifr Starff I markaðsdeild Morgunblaðið leitar að kröftugum starfsmanni í markaðsdeild, einhverjum sem hefur gaman af að vera í lifandi umhverfi og takast á við ný verkefni. Leitað er að reyklausum einstaklingi sem getur hafið störf sem allra fyrst. Starfssvið: • Umsjón með markpóstsútsendingum og auglýsingabirtingum. • Samskipti við þjónustuaðila. • Skipulagning einstakra viöburða og heimsókna. • Móttaka auglýsinga- og styrktarbeiðna. • Samantektir og skýrslugerðir ásamt tilfallandi aðstoð sem þarf í markaösdeild. Hjá Morgunblaðinu starfa rúmlega 350 starfsmenn. Höfuðstöðvar Morgunblaðsins eru í Kringlunni 1 í Reykjavík en einnig er Hæfni: • Stúdentspróf. • Góð mannleg samskipti. • Skipulagshæfileikar. • Sjálfstæð vinnubrögð. • Góð íslensku- og enskukunnátta. • Kunnátta í Word, Excel, Power Point ofl. • Hæfni til að læra hratt. Nánari upplýsingar um starfið gefur markaðsstjóri, Margrét Kr. Sigurðardóttir, margret@mbl.is eða starfsmannahald á virkum dögum kl. 9-16. Umsóknum skai skila til starfsmannahalds Morgunblaðsins fyrir 10. júlí nk. Faríð er með umsóknir sem trúnaðarmál. starfrækt skrifstofa í Katipvangsstræti 1 á Akureyri. Árvakur hf. er útgefandi Morgunblaðsins. upplýsingar er aö flnna á mbl.is/upplýsingar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.