Morgunblaðið - 23.07.2000, Page 4
4 SUNNUDAGUR 23. JÚLÍ 2000
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
VIKAN 16/7-22/7
► AFKOMA ríkissjóðs er
betri er áætlanir gerðu ráð
fyrir. Heildartekjur ríkis-
sjóðs voru 10,6 milljarðar
umfram gjöld fyrstu sex
mánuði ársins. Ríkisendur-
skoðun gerir ráð fyrir að
afkoma ríkissjóðs batni um
3,5 milljarða á árinu.
► VERKFALLI Bif-
reiðastjórafélagsins Sleipn-
is hcfur verið frestað til 12.
ágóst. Þetta varð að sam-
komulagi á sáttafundi
Sleipnis og Samtaka at-
vinnulifsins sl. laugar-
dagskvöld.
► RÉTT rúmlega hundrað
farþegar Flugleiða biðu í
rúman sólarhring eftir
flugi félagsins frá Madrid á
Spáni í fyrradag. Töfin
varð vegna bilunar í leigu-
vél á vegum félagsins.
► MANNBJÖRG varð er
vélbáturinn Æskan SH-342
sökk um sex sjómflur suð-
austur af Bjargtöngum á
laugardaginn. Þremur
skipverjum var bjargað úr
sjónum auk sigmanns
Landhelgisgæslunnar.
Mannbjörg varð einnig
þegar bátur sökk í Breiða-
firði á föstudag.
► ROSTUNGUR dvelur nú
í Papey, úti fyrir Hamars-
firði. Ekki er vitað til að
slík skepna hafi sést þar áð-
ur. Talið er að þetta sé ungt
dýr sem gæti verið veikt.
► ENGLAR alheimsins
hlutu tvenn verðlaun á
kvikmyndahátíð í Tékk-
landi síðustu helgi.
► ÁTJÁN keppendur
munu taka þátt í Ólympíu-
leikunum í Sydney sem
hefjast 15. september.
Einn lést og fjölmargir
slösuðust í rútuslysi
RÚTA valt út af brúnni yfir Hólsselskíl,
skammt undan Grímsstöðum á Fjöll-
um, sl. sunnudag með þeim afleiðingum
að einn lést og fjölmargir slösuðust.
Um borð í rútunni voru 27 Þjóðverjar, 3
Austurríkismenn og íslenskur bílstjóri.
Við rannsókn slyssins kom í ljós að
hægra afturhjól lenti á brúarstöpli, með
þeim afleiðingum að rútan lenti í ánni.
Farþegar héldu flestir heim eins
fljótt og auðið var. í kjölfar slyssins
gagnrýndi stjóm Félags leiðsögu-
manna harðlega áherslur í vegagerð.
Erlendir aðilar íjár-
festa í Landsbankanum
FIRST Union National Bank, sjötti
stærsti banki Bandaríkjanna, mim
eignast 4,2% hlut í Landsbankanum.
Hann verður stærsti einkahluthafi í
bankanum. Rfldssjóður er hins vegar
áfram langstærsti hluthafinn í bankan-
um. Fyrir hlutaféð fær Landsbankinn
70% eignarhlut í breska bankanum The
Heritable and General Investment
Bank í London fyrir 2,3 milljarða
króna. Ætlunin er að fjármagna kaupin
með því að auka hlutafé Landsbankans
um 340 milljónir króna.
Mikil eftirspurn eftir
hlutabréfum í deCODE
VIÐSKIPTI hófust með hlutabréf í
deCODE genetics Inc. á Nasdaq-hluta-
bréfamarkaðnum á Wall Street á
þriðjudag. Mikil eftirspum var eftir
bréfimum sem hækkuðu um 40% frá
útboðsgengi. Fjöldi hlutabréfa í félag-
inu var 40 milljónir eftir útboð. Mark-
aðsverð deCODE var tæpir 90 milljarð-
ar í lok dags. Á miðvikudag hófust
viðskipti á evrópska Easdaq-markaðn-
um. Lítil velta var með bréfin á fyrsta
degi.
Ásakanir
ganga á víxl
í Camp David
LEIÐTOGAR ísraels og Palestínu-
manna héldu áfram friðarviðræðum í
Camp David í Bandaríkjunum í gær
en ólíklegt þótti að samkomulag næð-
ist á næstunni. Sendinefndimar
kenndu hvor annarri um þráteflið í
viðræðunum á fimmtudag þegar Bill
Clinton Bandaríkjaforseti fór frá
Camp David til að sitja leiðtogafund
sjö helstu iðnríkja heims og Rússlands
í Japan. Tilkynnt var aðfaranótt
fimmtudags að viðræðunum hefði ver-
ið slitið en nokkrum klukkustundum
síðar skýrði Clinton frá því að Ehud
Barak, forsætisráðherra Israels, og
Yasser Arafat, leiðtogi Palestínu-
manna, hefðu ákveðið að halda við-
ræðunum áfram undir stjórn Made-
leine Albright, utanrfldsráðherra
Bandaríkjanna.
Barak sætti gagnrýni hægrimanna í
ísrael á föstudag eftir að hafa sam-
þykkt að tiltekin hverfi í Austur-Jerú-
salem yrðu undir stjóm Palestínu-
manna. Palestínumenn höfðu ekki
samþykkt þessa hugmynd.
Talsmaður Baraks kenndi Palestín-
umönnum um þráteflið í viðræðunum
og sagði að þeir hefðu „ekki sýnt næg-
an sveigjanleika til að ná samkomu-
lagi“. Palestínumenn sögðu hins vegar
að Israelar ættu sök á þráteflinu þar
sem þeir neituðu að virða ályktanir
Sameinuðu þjóðanna um að þeir létu
öll hemumdu svæðin af hendi.
Flóð í Svíþjóð
ÖLLUM lestarferðum var aflýst í Sví-
þjóð á fimmtudag og herinn settur í
viðbragðsstöðu þegar vatnsföll í Mið-
Svíþjóð breyttust í hættuleg stórfljót
eftir margra vikna úrhelli. Fjöldi
manna flúði heimili sín og tugir vega
lokuðust vegna flóða og skriðufalla.
► RÚSSNESKI auð-
kýfingurinn Borís Ber-
ezovskí tilkynnti á mánu-
dag að hann hygðist láta
af þingmennsku í dúm-
unni, neðri deild rússneska
þingsins, til að mótmæla
meintum einræðistilburð-
um Vladímírs Pútíns
Rússlandsforseta.
► ALÞJÓÐLEGU um-
hverfisverndarsamtökin
WWF sögðu á fimmtudag
að þorskstofninn við Bret-
land væri í útrýmingar-
hættu vegna ofveiði,
slæmrar fiskveiðistjórnun-
ar, mengunar og loftslags-
breytinga sem hefðu áhrif
á nýliðunina.
► ÞJÓÐERNISSINNAR á
Korsíku sögðust á fimmtu-
dagskvöld hafa samþykkt
nýtttilboð frönsku stjórn-
arinnar um að veita eynni
aukin sjálfstjórnarréttindi
til að binda enda á tveggja
áratuga skæruhernað á
eynni.
► YFIRMAÐUR OPEC,
samtaka oh'uútflutnings-
ríkja, lýsti því yfir á mánu-
dag að aðildarríki þcirra
ættu að vera reiðubúin að
auka framleiðslu sína um
500.000 föt á dag í lok
mánaðarins haldi olíuverð-
ið áfram að hækka.
► VLADIMÍR Pútín
Rússlandsforseti sagði eft-
ir fund með Kim Jong-il,
leiðtoga Norður-Kóreu, í
Pyongyang á miðvikudag
að N-Kóreustjórn hefði
lofað að hætta smíði
langdrægra eldflauga
gegpi því skilyrði að rfkinu
yrði veittur aðgangur að
tæknibúnaði og þekkingu
tengdri geimeldfiaugum.
Blóthtís fínnst
í Laxárdal
Ljósmynd/Bjöm Amarsson
Hópurinn við uppgröftinn.
Bjarni F. Einarsson
fornleifafræðingur
hefur unnið að merkum
uppgreftri fornmenja
skammt frá Höfn á
Hornafirði í sumar.
Gunnlaugur Árnason
tók Bjarna tali
og fræddist um upp-
gröftinn.
RÉTT fyrir aldamótin 1900 tóku
bændur í Laxárdal í Austur-Skafta-
fellssýslu eftir því að blásið hafði upp
af mannabeinum og við rannsókn
kom í ljós að þar var fornt kuml. I
sumar hefur Bjarni F. Einarsson
fomleifafræðingur staðið fyrir upp-
greftri á staðnum ásamt sænskum
starfsbræðmm sínum, þeim Daniel
Lindblad og Leif Jonsson, sem einnig
er beinafræðingur. Þar að auki hafa
Svala Lárusdóttir og Bjöm G. Arnar-
son, safnvörður Sýslusafns Austur-
Skaftafellssýslu, ásamt vinnuskólan-
um þar í bæ rétt þeim hjálparhönd.
Að sögn Bjama er þetta merkur
fundur og telur hann þá félaga hafa
fundið blóthús á staðnum, en það er
þá einungis annað sinnar tegundar
sem fundist hefur á Norðurlöndum.
Hitt húsið fannst í Svíþjóð á Borg í
Austur-Gautlandi og að sögn Bjama
er húsið hér á landi í mun betra ást-
andi en það sem fannst í Svíþjóð.
Danskur liðsforingi
kannar kumlið
En hvað kom til að Bjami tók til
við að kanna kumlið svona löngu eftir
að það fannst? „Árið 1902, stuttu eftir
að kumlið fannst, kom hingað til
lands danskur liðsforingi, Daniel
Bruun að nafni, og grefur upp kuml-
ið. Þetta kemur fram í árbók Fom-
leifafélagsins árið 1903 og er kallað
Hólmsfundurinn.
Það kom svo til að fyrir fjómm ár-
um hafði Sýslusafnið á Höfn sam-
band við mig og óskaði eftir því að ég
héldi námskeið í fomleifaskráningu,"
segir Bjami en hann lauk doktors-
prófi í fornleifafræðum frá Gauta-
borgarháskóla í Svíþjóð.
„Námskeiðið stóð yfir í þrjá daga
og seinasta daginn var það á dag-
skránni að skoða þetta kuml, en þetta
er eitt tveggja kumla í sýslunni. Það
var erfitt að finna kumlið, sem var illa
merkt. Kumlið var ekki friðlýst en þó
hafði friðlýsingarhæl verið stungið
niður við kumlið, sem var orðinn
grautfúinn, og því fundum við það að
lokum,“ segir Bjami, en honum þótti
líklegt að fornbær væri á næstu grös-
um við kumlið.
Fornbærinn fundinn
Seinna um sumarið kom í ljós að
Bjami hafði haft rétt fyrir sér, en
hann og félagar hans fundu fom-
bæinn í mynni Laxárdals, 250 metr-
um frá kumlinu. „ Það var ákveðið að
láta prufugrafa á staðnum til þess að
fá staðfestingu á því hvort ekki væri
örugglega um fornbæ að ræða. Þegar
það var staðfest og árið eftir fengum
við fjárveitingu til þess að rannsaka
svæðið betur, bæði fombæinn og
kumlið. í ár fengum við svo frekara
fjármagn frá Alþingi, Hornafjarðar-
bæ og Sparisjóði Hornafjarðar til
þess að halda áfram rannsóknum,"
segir Bjami og heldur áfram: „í
fyrstu þegar við fórum að grafa við
kumlið fundum við einskonar niður-
gröft sem við vissum ekki hvað var í
fyrstu. í fyrra komumst við svo að því
að þama var jarðhýsi sem notað var
sem blóthús," segir Bjarni.
„I húsinu fundum við mikið eld-
stæði og þar fundum við húsdýrabein
af kindum, kúm, hestum og svínum
og hænsnfuglum. Einnig fundum við
fjalhögg úr hvalbeini sem notað var
sem skurðarborð, ásamt miklu af
soðsteini, en algengt var að þeir væru
hitaðir og settir í keröld með töngum.
Þessi keröld vom notuð til þess að
sjóða vatn og mat. Þessum steinum
hefúr svo verið dreift um hólinn sem
bæði kumlið og blóthúsið era í. Lík-
legt er að soðsteinarnir hafi verið
tákn um eldinn, en eldurinn hefur
alltaf skipt miklu máli í öllum trúar-
brögðum.“
Endurtekning einkennir
trúarathafnir
Að sögn Bjama var það aðallega
nálægðin við kumlið sem gaf það til
kynna að um blóthús væri að ræða.
„Landnámsmenn byggðu sína bæi
þannig að í kringum bæjarstæðið
röðuðust niður gripahús og önnur
hús sem í þurfti eitthvað að sækja
daglega. Kumlið er í 250 metra fjar-
lægð frá bæjarstæðinu. Fimm metr-
um frá kumlinu er svo jarðhýsið.
Þessi staðsetning og nálægðin við
kumlið gefa það til kynna að um blót-
hús er að ræða,“ segir Bjami og bæt-
ir við: „Einnig er það ljóst að fólk hef-
ur matast þama á hólnum, dreift
soðsteinum þar og kveikt elda. Þetta
hefur verið endurtekið um tíma, jafn-
vel eftir að jarðhýsið hefur hranið.
Þetta gefur til kynna að þarna hefur
verið blótað, en sífelld endurtekning
einkennir flestar trúarathafnir," seg-
ir Bjami, en að hans sögn fannst líka
þó nokkuð af gjalli og hrájámi við
húsið og á hólnum, en hrájárn er nýs-
míðað járn, beint úr ofninum.
„Jámsmíðar tengjast mjög heiðn-
um siðum,“ segir Bjami. „Það að
smíða úr járni var nánast guðlegt, en
gjall er úrgangurinn eða raddinn
sem bai-inn er úr óhreinu jámi. Við
blóthúsið sem fannst í Svíþjóð var
líka mikið af gjalli að finna, en aðeins
þessi tvö hús hafa fundist sem tengj-
ast trúarbrögðum víkinganna."
Menjarnar eldri en þúsund ára
Bjami segir þær menjar sem fund-
ist hafa á staðnum rúmlega þúsund
ára gamlar. „Við sendum viðarkol úr
birki til Bandaríkjanna í geislakol-
greiningu, en þær niðurstöður eru
ekki nógu stöðugar,“ segir Bjami-
„En ég get þó aldursgreint menjarn-
ar. Eldfjallagjóska á staðnum gefur
það til kynna að þama hafi verið
byggð eftir 871.“
En hverjar era þessar menjar sem
Bjami hefur verið að finna? „Við höf-
um fundið kambsbrot og beinnálar,
kljásteina sem settir vora í vefstaði,
perlur, snældusnúð og jámpinna sem
við vitum ekki enn hvemig vora not-
aðir. Þetta era allt mjög hversdags-
legir gripir, en annars var ekld að
vænta,“ sagði Bjami í lokin og heldur
áfram uppgreftrinum.
Skáldsaga Hallgríms
Helgasonar á
bakvið hina vinsælu
kvikmynd, loksins
aftur fáanleg í nýrri
kiljuútgáfu.
31 Reykjavík
SKÁlUSAliA fFU* HAllGHlM lltlOASON
Mát og mennlngl
malogmennlng.lsl
Laugavegi 18 • Sfmi 515 2500 • Síðumúla 7 • Siml 510 2500