Morgunblaðið - 23.07.2000, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
SUNNUDAGUR 23. JÚLÍ 2000 19
Reykholtshátíð í fjórða sinn
Sígild tónlist
í sögulegu
umhverfí
VERTAVO-strengjakvartettinn frá
Norgi er meðal flytjenda á Reyk-
holtshátíð, sem haldin verður dag-
ana 28.-30. júlí.
Hátíðin er nú
haldin í fjórða
sinn og segir
Steinunn Birna
Ragnarsdóttir,
listrænn stjóm-
andi hátíðarinn-
ar, að henni hafi
vaxið fiskur um
hrygg ár frá ári.
Markmið há-
tíðarinnar er að
bjóða upp á fyrsta flokks klassíska
tónlist og hvetja til norrænnar
menningarsamvinnu og í anda þess
verður mikið um tónlistarviðburði í
Reykholtskirkju sem bera yfir-
skiiftina Sígild tónlist í sögulegu
umhverfi. Norskur leikhópur tekur
þátt í hátíðinni og sýnir söguleik
undir berum himni. Ennfremur mun
Reykholtskirkja formlega afhenda
Snorrastofu húsnæði til notkunar að
viðstöddum forseta íslands og
norsku konungshjónunum.
Hátíðin er ætíð haldin helgina fyr-
ir verslunarmannahelgi og hefur
síðustu ár verið mjög vel sótt. Hún
hefst föstudagskvöldið 28. júlí með
tónleikum Vertavo-strengjakvart-
ettsins, en hann hefur unnið til fjöl-
margra verðlauna og er af mörgum
talinn einn besti kvartett Evrópu.
„Þetta eru framúrskarandi tónlist-
armenn," segir Steinunn Birna um
stúlkurnar fjórar sem kvartettinn
skipa. „Þær hafa einnig mjög óhefð-
bundna framkomu og útgeislun sem
lætur engan ósnortinn.“
Bryndís Halla Gylfadóttir selló-
leikari mun veita kvartettinum liðs-
inni á tónleikunum í kvintett eftir
Schubert. „Það er eitt fallegasta
verk Schuberts og það er óvenjulegt
fyrir þær sakir að í því eru tvö
selló,“ segir Steinunn Birna.
Ríflega hundrað leikarar og tón-
listarmenn frá Noregi munu á laug-
ardeginum stíga á svið og flytja
söguleik sem fjallar um átök heiðni
og kristni í Noregi. Stefnt er að því
að sýna verkið utan dyra í Snorra-
garði og vonast menn til að veður-
guðirnir verði þeim hliðhollir. Allir
eru velkomnir á þessa sýningu og
aðgangseyrir er enginn.
Laugardaginn 29. júlí verður mik-
ið um að vera á hátíðinni. Reykholts-
kirkja mun formlega afhenda sjálf-
seignarstofnuninni Snorrastofu hús-
næði til notkunar og verða norsku
konungshjónin viðstödd afhending-
una auk forseta Islands. Við þá at-
höfn verður frumflutt verk eftir
Þorkel Sigurbjörnsson sem hann
samdi af tilefni opnunarinnar og
heimsókn Noregskonungs. „Þetta
er mjög skemmtilegt verk við texta
Snorra Sturlusonar sem fjallar um
það hvernig koma eigi fram við kon-
unga. Þetta er því mjög viðeigandi
verk,“ segir Steinunn Birna hlæj-
andi.
A laugardagskvöldið verða tón-
leikar Hönnu Dóru Sturludóttur
sópransöngkonu og Steinunnar
Birnu Ragnarsdóttur píanóleikara.
Þær munu meðal annars flytja nýjar
útsetningar Árna Harðarsonar á
kunnum íslenskum sönglögum. Tón-
leikarnir eru haldnir fyrir boðsgesti
en einnig verður hægt að nálgast
miða við innganginn eða panta hjá
Heimskringlu í Reykholti.
Á sunnudagstónleikum Reyk-
holtshátíðar koma þær Hanna Dóra
og Steinunn Birna fram ásamt ís-
lenskum kvartett. Þar verður fluttur
ljóðaflokkur eftir Mendelssohn sem
ekki hefur heyrst hér áður í þeim
búningi. Verkið er umskrifað af
þýskum manni, Aribert Reiman.
Sunnudagurinn 30. júlí er jafnframt
vígsludagur kirkjunnar. Hátíðar-
messa verður haldin og Kári
Bjarnason flytur fyrirlestur um ís-
lensk nótnahandrit frá miðöldum.
Norræn menningarsamvinna
Steinunn Birna segir að hátíðin
hafi ævinlega verið með norrænni
yfirskrift. „Við veljum eina Norður-
landaþjóðanna til að hafa í forgrunni
hvert ár. Af því að það eru árþús-
undamót brugðum við út af vanan-
um og höfum bæði Noreg og ísland.
Þessar þjóðir eru sögulega tengdar,
enda vilja báðar eigna sér Snorra
Sturluson. - Það er auðvitað engin
spurning að hann er íslenskur," seg-
ir Steinunn Birna.
Steinunn Birna segir að framtíð-
ardraumurinn sé að hafa einnig
námskeið fyrir tónlistarmenn og
nemendur á vegum hátíðarinnar auk
hefðbundinnar dagskrár. „Þannig
myndu þessir fínu kraftar sem við
fáum á hátíðina nýtast til fullnustu."
Steinunn
Birna
Ragnarsdóttir
0 H' M 1-2000
ounnudagur 23. júlí
SiGLUFJÖRÐUR
Þjóðlagahátíð
Á lokadegi Þjóölagahátíðar hefst dag-
skráin með fyrirlestrum í Siglufjarðar-
kirkju og verður umfjöiiunarefnið
kirkjutónlist - íslensk sálmalög í
munnlegri geymd. Kl. 9.30 fjallarGísli
Sigurðsson um munnlega geymd -
hvernig og afhverju? Fyrirlestur
Smára Ólasonarhefstkl. 10. Hann
fjallar um gömul íslensk sálmalög
sem sungin voru íkirkjum og heima-
húsum fram á 20. öld, varðveitt í
munnlegri geymd. Undirbúningur fyrir
þjóðlagamessu sem hefst í Siglu-
fjarðarkirkju kl. 11. Prestur er Bragi J.
Ingibergsson. Dagskrá á Ráðhústorgi
og Drafnarplani hefst kl. 14. Þarverð-
ur opin dagskrá áhugahópa til kl. 17.
*: m k **
l'--. 11 ' v.'-’- ■ •|i M! nemhpr* *■
Faríð verður ígöngu- og skoðunar-
ferð um Heiðmörk í dag.
hvernig hann þrífst, hvaða tegundir
vaxa best og hvernig dýra- og fuglalífi
erháttað í skóginum. Boðið verður
upp á rútuferð frá Mörkinni 6, húsi
Ferðafélags íslands, kl. 13:00. Sam-
starfsaðilar eru, auk Menningarborg-
arinnar, Skógræktarfélag íslands og
Ferðafélag íslands.
www.heidmork.is.
HEIÐMORK KL. 13:30
Skógur í sumarbúningi
/ tilefni af 50 ára afmæli Heiðmerkur
verður farið ígöngu- og skoðunarferð
um svæðið. Gengið verðurum skóg-
inn, hann skoðaður með tilliti til
HALLGRÍMSKIRKJA KL 20:00
Sumarkvöld við orgellð
Organistinn Andrzej Bialko frá Kraká
er gestur þessa Sumarkvölds.
www. hallgrimskirkja. is. ww. reykja-
vik2000.is, wap.olis.is.
Nýjar
bækur
• TVÆR nýjar smábækur eru
komnar út: Reykjavík er ljós-
myndabók með völdum litmyndum
frá Reykjavík nútímans. Mynda-
textar eru eftir Eggert Jónasson.
Hestamenn hefur að geyma spak-
mæli 27 landskunnra hestamanna
sem lýsa viðhorfi sínu til hesta og
hestamennsku. Myndir eru í bók-
inni af flestum þessara hestamanna
ásamt gæðingum þeirra.
Utgefandi er Steinegg. Textar
bókanna eru þremur tungumálum,
íslensku, ensku og þýsku og annað-
ist Orðabankinn þýðinguna. Stærð
bókanna er 7x10 cm. Þær eru 60
bls., litprentaðar í Odda. Bókband
er að mestu unnið í höndum. Verð
hvorrar bókar er 790 kr.
-----------------
Rit
• MANNLÍF og saga fyrir vest-
an, 7. hefti, er komið út. Er þetta
ritröð sem fjallar um mannlíf fyrr
og nú á svæðinu frá Bjargtöngum
að Djúpi. Meðal efnis er viðtal við
Sigurjón G. Jónasson bónda á Lok-
inhömrum, um kristnihald á norð-
urströnd Arnarfjarðar á fyrri hluta
tuttugustu aldar. Fjallað er um
kennimenn sem komu við sögu og
starfsaðstæður þeirra. Fjallað um
Jón í „loftinu" sem var sérstakur
hleðslumaður í Dýrafirði. Greinin
Skútuöldin á Vestfjörðum er eftir
Helga Pálsson frá Haukadal. Þar
er skútulífinu lýst. Gunnar S.
Hvammdal skrifar um Hermann
Wendel ljósmyndara, Jón Strand-
berg um Proppé-bræður og Ingi S.
Jónsson lýsir því er háttsettur
enskur sjóliðsforingi var jarðsettur
að Söndum 1899. Bjarni Hákonar-
son skrifar um Hagakirkju að
fornu og nýju. Viðtal er við Guð-
mund Sören Magnússon um menn
og málefni í Keldudal og fjallað um
verkalýðsforingjann Sigurð E.
Breiðfjörð og Vestfirskar sagnir
fyrr og nú eru á sínum stað.
Útgefandi er Vestfírska forlagið.
Ritstjóri er Hallgrímur Sveinsson.
Heftið er 80 bls. með fjölda mynda.
Prentun: Grafík hf. Verð: 1.200 kr.
Fjölskyldan
saman
Börn og unglingar vilja vera meira með foreldrum sínum en flestir halda.
„Loftskipið“ er skemmtilegt verkefni fýrir alla fjölskylduna. Verkefnið felst í
því að skrá samverustundir fjölskyldunnar í sérstaka dagbók sem fæst hjá
ungmennafélögum og á sundstöðum um land allt. Þær fjölskyldur sem ná
flestum samverustundum komast í pott og geta unnið veglega vinninga.
Verkefnlð hefst 23. júlí oq stendur tll 10. september.
Vt-rti1
meðc^
vr»v
unarhátíð
S.júlí kl.16
Sunnudaginn 23. júlí kl. 16:00 verður haldin á hátíðarsvæðinu við Garðaskóla
glæsileg opnunarhátíð á vegum Ungmennafélags fslands, ísland án eiturlyfja og
Stjörnunnar í Garðabæ. Á hátíðinni verður eitthvað fyrir alla.
Forsetl íslands, Ólafur Rasnar Qrimsson,
vemdarl verkefnlslns, flytur ávarp Hljómsveltln Jagúar
Ásta Hrafnhlldur úr Stundlnnl okkar Hestar Mlnlgotf
Rlsa leiktaekl frá Skemmtllegt Qrillvelsla með öllu tilheyrandi
í boðl Pepsl Flmlelkahópurlnn Tromp Og margt, margt fleira
Mætum öll á hátíðarsvæðið við Garðaskóla* kl. 16:00 og skemmtum
okkur með fjölskyldunni. Um kvöldið verður frítt inn á leik
Stjörnunnar og ÍBV fyrir böm 12 ára og yngri í fylgd með fullorðnum.
‘Dagskráin veröur færð inn í íþróttahúsið Ásgarð ef þurfa þykir.