Morgunblaðið - 23.07.2000, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 23. JÚLÍ 2000 25
Áfrviar
meið-
yrða-
máli
KJARTAN Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins
og stjórnarmaður í bankaráði
Landsbankans, hefur áfrýjað meið-
yrðamáli sínu gegn Sigurði G. Guð-
jónssyni hrl. til Hæstaréttar.
„Mér fannst að það væru full
lögfræðileg rök til að áfrýja málinu
og fá niðurstöðu Hæstaréttar um
það. Mér finnst málið þannig vaxið
að það sé full ástæða til að leita all-
ra þeirra úrræða sem réttarkerflð
býður upp á,“ sagði Kjartan í sam-
tali við Morgunblaðið.
Kjartan Gunnarsson höfðaði mál
gegn Sigurði G. Guðjónssyni í
kjölfar blaðagreinar þess síðar-
nefnda sem birtist í Degi 31. ágúst
1999. Þar hélt Sigurður því fram
að Kjartan, sem formaður banka-
ráðs Landsbankans, hefði beitt sér
gegn því að Landsbankinn ætti í
viðskiptum við Islenska útvarps-
félagið því hann væri því mótfall-
inn að bankinn ætti í viðskiptum
við félag sem Jón Ólafsson ætti að-
ild að.
Héraðsdómur Reykjavíkur
sýknaði Sigurð af kröfum Kjartans
í maí sl. en Kjartan fór fram á að
tvenn ummæli Sigurðar yrðu
dæmd dauð og ómerk og sér yrðu
greiddar 600 þúsund krónur í
miskabætur. Dómurinn taldi að
þótt ummæli Sigurðar væru sett
fram af vissu smekkleysi og fælu í
sér aðdróttanir um málsatvik sem
ekki höfðu verið staðreynd þættu
þau ekki þess eðlis að bæri að
ómerkja þau í því samhengi sem
þau voru sett fram í.
Riðlakeppni
pollamóts
KSÍ fyrir
Vesturland
og Vestfirði
Grundarfjörður - Riðlakeppni
pollamóts (9-10 ára) KSÍ fyrir
Vesturland og Vestfirði, en þeir
keppa í A-riðli, var haldið í
Grundarfirði um daginn.
Þau lið sem kepptu voru ÍA
sem sendi tvö lið, a og b, Skalla-
grímur Borgarnesi var líka
með tvö lið en hin liðin, Grund-
arfjörður, Bolungarvík og ísa-
fjörður, voru hvert með eitt lið.
Sigurvegari a-liða var ÍA og
b-liða einnig. Grundfirðingar
voru í öðru sæti a-liða. Sigur-
vegaramir ÍA komast einir
áfram þegar keppt verður með-
al bestu liðanna.
Veðrið var frekar leiðinlegt,
sunnanátt og rigning, en
drengirnir létu það ekki á sig fá
heldur lögðu mikið á sig og
stóðu sigallirvel.
Grundfirðingar höfðu um-
sjón með mótinu og mótsstjóri
var Amar Guðlaugsson.
Jeppa hvolfdi
við árekstur
LITLUM jeppa hvolfdi í fyrra-
kvöld á Akureyri eftir árekstur við
fólksbíl. Báðir ökumenn sluppu
með skrámur. Jeppinn, sem er af
gerðinni Suzuki Sidekick, var á
leið suður Glerárgötu þegar fólks-
bifreiðin ók í veg fyrir hann.
Areksturinn varð á mótum Glerár-
götu og Grænugötu. Við árekstur-
inn hvolfdi jeppanum. Báðir
bílarnir vom óökufærir eftir
áreksturinn og vom þeir dregnir
af slysstað með kranabíl.
Viðvörun frá forvarnardeild lögreglunnar
Mikið um innbrot í bfla
UNDANFARIÐ hefur verið all-
mikið um innbrot í bíla á höfuð-
borgarsvæðinu. Þetta hefur gerst
víða um borgina og ekki verið
bundið við einstök hverfi en hefur
oft orðið á stórum bifreiðastæðum
þar sem er lítil umferð. Nær alltaf
hefur einhverju verið stolið úr bif-
reiðunum, oft hljómtækjum, sem
gjarnan hefur í för með sér
skemmdir á bifreiðunum. Hitt
vekur sérstaka athygli að í um 70
% af þessum innbrotum hefur ver-
ið stolið lausum varningi sem skil-
inn hefur verið eftir í bifreiðunum.
Oft eru þetta töskur með ýmisleg-
um verðmætum varningi en einnig
er stolið farsímum, dýrum verk-
færum og jafnvel fartölvum.
I tilkynningu frá forvarnardeild
lögreglu segir að þetta gefi tilefni
til að minna fólk enn einu sinni á
það að skilja ekki verðmæta hluti
eftir í bílum sínum. Sjáanlegur
varningur í bfl sé ekkert annað en
tilboð og freisting fyrir þjófa.
„Það er nógu slæmt að verða
fyrir því að brotist er inn í bílinn
með því tjóni sem slíku fylgir þótt
menn séu ekki beinlínis að hvetja
til þess með því að hafa sjáanlegan
varning í bílnum. Sumir telja sig
örugga með því að setja farsímann
eða veskið í hanskahólfið og vissu-
lega er það betra en að þessir hlut-
ir liggi sýnilegir í bílsætinu. En, ef
brotist er inn í bílinn þá er hanska-
hólfið fyrsti staðurinn sem þjófur-
inn skoðar. Það er alltaf öruggast
að taka dýrmæta hluti úr bflnum.
Það er líka rétt að muna eftir
því að ekki er sama hvar bílnum er
lagt. Svæði þar sem lítil umferð
fólks er, dimm skot og húsasund,
þar sem hægt er að brjótast inn í
bílinn án þess að fólk sjái, eru
slæmir geymslustaðir bifreiða.
Þegar menn skilja við sig dýra
eða dýrmæta hluti er alltaf rétt að
íhuga hvort geymslustaðurinn sé
sá heppilegasti og öruggasti!" seg-
ir í tilkynningu lögreglunnar.
Verðsamanburduf í flu^stöðvum
fiUUU
fmmkwæmd
í janúor 1999
Vr.rökönmin
framkvæmd
íjanúor
febrúar
2000
á áfangi, tóbaki, uilgKti, gjafavðra, únm, (atnaAi o| matvöru.
110%
100%
90%
80%
70%
60%
Leifsstöð Kastrup Hamburg
110%
100%
90%
80%
70%
60%
Leifsstöð Schiphol Heathrow
ísland vann!
Skv. verðsamanburði PricewaterhouseCoopers
kom Flugstöð Leifs Eiríkssonar best út - annað árið í röð.
Tvö ár í röð hefur Flugstöð Leifs Eiríkssonar komið betur
út en flugstöðvar annars staðar f Evrópu í verðkönnunum
á vegum PricewaterhouseCoopers.
í samanburði við Schiphol og Heathrow var Leifsstöð
með hagstæðasta vöruverðið í 56% tilfella og í
samanburði við Kastrup og Hamborg var Leifsstöð með
hagstæðasta verðið í 88% tilfella.
Leitaðu þvf ekki langt yfir skammt, heldur gefðu þér tíma
og gerðu góð kaup í þægilegu umhverfi í Leifsstöð.
FLUGSTÓÐ
LEIFS EIRlKSSONAR
-gefdu þér tfma