Morgunblaðið - 23.07.2000, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 23. JÚLÍ 2000 27
Nokkrir starfsmanna Pharmaco við vinnu sína.
ræna heimi. Þetta er að vísu að fjara
út vegna nýrrar einkaleyfislöggjafar.
Hún verður hinsvegar ekki farin að
virka fullkomlega fyrr en um 2010
þar sem langur þróunarferill er eftir
við lyf frá því að fengið er einkaleyfi
og þar til lyfið er komið á markað.
Aður var oft mikill verðmunur á lyfj-
um milli landa. Þótt svipað verð hafi
verið á lyfjum á Norðurlöndum gátu
þau verið mun ódýrari í Suður-
Evrópu og á meðan bannað var að
flytja lyf á milli landa gat verðmunur-
inn verið gríðarlegur. I dag eru ný lyf
verðlögð þannig að þau eru á svipuðu
verði um allan heim.“
Fjárfestingar á
hlutabréfamarkaði
í nýjasta fréttabréfi Pharmaco
kemur fram að á fyrsta ársfjórðungi
þessa árs hafi Pharmaco keypt hluti í
Urði, Verðandi, Skuld og deCODE
genetics en selt hlutabréf í Baugi og
Opnum kerfum. Eignarhald fyrir-
tækisins í öðrum félögum eru 1,3% í
Baugi, 0,3% í Delta, 3,3% í Eignar-
haldsfélagi hlutabréfa ehf., 33,2% í
Genís, 48% í íkonasjóðnum, 9,1% í ís-
lenska heilsufélaginu, 0,5% í Omega
Farma og 3,3% í Opnum kerfum.
„Við eigum safn hlutabréfa í
ýmsum fyrirtækjum. Við fjárfestum
þar sem við teljum vænlegt að
fjárfesta hverju sinni en það er
auðvitað munur á þeim fjárfestingum
og því þegar við fjárfestum í
fyrirtækjum eins og Balkanpharma
og Delta, þar sem við ætlum okkur að
koma að stjóm fyrirtækjanna.“
Hækkun á lyflum
Hækkun á lyfjum til sjúklinga hef-
ur verið mikið til umræðu upp á síð-
kastið. Þegar Sindri er spurður hvort
þessi hækkun hafi verið nauðsynleg
segir hann: „Öll umræða um lyfja-
markað er svo röng. Það hefur ekki
orðið nein hækkun á lyfjum, heldur
er ríkið að minnka sinn hlut í lyfja-
kostnaðinum - og það hækkar þann
hluta sem sjúklingar gi-eiða.
Sjúklingar á Islandi eru famir að
borga ansi stóran hlut. I sumum
nágrannalandanna er enginn virðis-
aukaskattur á lyfjum. Hér er hann
24,5% á lyfjum á meðan hann er að-
eins 14% á matvælum. Hér á landi er
útsöluverð á lyfjum mn níu milljarðar
á ári. Þar af er virðisaukaskattur um
tveir milljarðar. Þegar yfirvöld
kveinka sér yfir því að borga yfir
fjóra milljarða með lyfjum hér er
ekki sagt frá því að ríkið fái helming
þeirrar upphæðar til baka í virðis-
aukaskatti. Nú er svo komið að stór
hluti lyfja er alfarið greiddur af sjúk-
lingum þrátt fyrir opinbert trygg-
ingakerfi. Ég hugsa að það styttist í
það að tryggingafyrirtækin fari að
bjóða sérstakar tryggingar til hliðar
við hið opinbera tryggingakerfi sem
nær til þessarar þjónustu.
Það er líka alveg litið framhjá því í
þessum aðgerðum að lyfjameðferð er
ódýrasta, einfaldasta og fljótlegasta
leiðin sem völ er á til að meðhöndla
sjúkdóma.
Það er stöðug þróun í lyfjafram-
leiðslu og ný og betri lyf eru auðvitað
dýrari en þau sem eldri eru. En það
skiptir ekki máli hvað hver tafla kost-
ar. Það sem skiptir máli er að ná ár-
angri og hvað meðferðin kostar öll.
Líðan sjúklingsins skiptir væntan-
lega iíka máli, þótt ekki sé hægt að
setja krónutölu á hana.“
„Ég óttast að við séum aftur að
nálgast það ástand sem ríkti í heil-
brigðismálum áður en Magnús Kjart-
ansson ákvað að hækka hlut ríkisins í
lyfjakostnaði, vegna þess að biðlistar
á sjúkrahúsum voru orðnir óheyri-
lega langir."
Hvað áttu við? „Þá greiddu sjúk-
lingar háan hlut í lyfjum og því miður
höfðu ekki allir efni á þeim. Þá
brugðu læknar á það ráð að leggja
sjúklinga inn til þess að þeir gætu
fengið ókeypis lyf.
Einn sólarhringur á sjúki'ahúsi
getur kostað meira en margra ára
lyfjanotkun.
Það vantar að menn setjist niður
og reikni. Það er eins og hægri hönd-
in viti ekki hvað sú vinstri gerir. Það
er eins og menn hafi bara sitt
starfssvið, einn sjái um lyfjabrans-
ann, næsti um sjúkrahúsin og svo koll
af kolli og það er eins og þessir menn
séu ekki í sama liði. Svo eru þeir bara
lukkulegir með að spara krónu hér
þótt það kosti tuttugu krónur í næstu
deild við hliðina.
Ég er mjög undrandi á því að ekk-
ert skuli heyrast í verkalýðsforyst-
unni út af þessum síðustu hækkun-
um. Ríkið er til dæmis hætt að greiða
niður fúkkalyf. Hvað þýðir það fyrir
bammargar fjölskyldur?"
Hvers vegna heldurðu að verka-
lýðshreyfingin hafi ekki hreyft mót-
mælum? „Ég býst við að það sé vegna
þess að alltaf þegar ríkið dregur úr
sínum hluta í lyfjakostnaði er látið
líta svo út að ríkið sé að klekkja á
„lyfjamafíunni“ og að þessi sama
„lyfjamafía“ sé alltaf að níðast á
sjúklingum. En við sem stöndum að
lyfjainnflutningi og lyfjaframleiðslu
erum að veita þjónustu. Það er alveg
eins hægt að segja að matvöruversl-
anir séu að níðast á hungruðum.“
Hagmaðurinn aðallega
af hlutabréfaviðskiptum
í Morgunblaðinu 10. mars síðast-
liðinn kemur Iram að hagnaður
Pharmaco á síðasta ári hafi verið
331,8 milljónir króna og hafi aukist
um 130% frá árinu áður. Hvaðan
kemur þessi hagnaðaraukning?
„Minnihlutinn er af heildsölunni.
Heildsalan er þó enn uppistaðan í
fyrirtækinu. Veltan skiptist þannig
að um 60% eru lyfjavelta en 40% aðr-
ar vörur. Fjármálastarfsemin hefur
þó skilað meirihluta hagnaðar undan-
farinár.
Hver er áætlaður hagnaður í ár?
„Hann er áætlaður um 240 milljómr -
sem er töluvert lægra en í fyrra, en
þá vorum við með mikinn hagnað af
hlutabréfaviðskiptum.“
Söluráðgjafar okkar gera það líka þessa dagana
Verð frá 1.698.000 kr.
Crjólháls 1
Sími 575 1200
Soludeild 575 1220
Renault Laguna — með enn meiri búnaði
Nú er rétti tíminn til að kaupa Renault I^aguna því söluráðgjafar okkar eru í sérstökum gír í tilefhi
sumarsins. Það þýðir að þrátt fyrir að Laguna sé hlaðin óvenjumiklum staðalbúnaði er aldrei að
vita hvað fylgir með í kaupunum.
Komdu og spjallaðu við söluráðgjafa Renault. Það er aldrei að vita hvað þeir gera fyrir þig.
$ !
RENAULT