Morgunblaðið - 23.07.2000, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
SUNNUDAGUR 23. JÚLÍ 2000 35
FRÉTTIR
ANNA GUÐVARÐAR-
DÓTTIR CARSWELL
+ Anna Guðvarð-
ardóttir
Carswell fæddist í
Vestmannaeyjum 26.
maí 1950. Htin Iést í
London 6. júlf síðast-
liðinn og fór útfbr
hennar fram í Eng-
landi 14. júlí.
Það eru forréttindi
að fá að kynnast góðu
fólki. Þeirra varð ég
aðnjótandi þegar eig-
inkona mín kynnti mig
fyrir æskuvinkonu
sinni, Önnu Guðvarðardóttur
Carswell, og fjölskyldu hennar. Því
miður þekkti ég Önnu ekki nema í
þrjú ár og samskiptin voru stopul
þar eð hún bjó í Englandi. En það
þurfti ekki að hitta Önnu nema einu
sinni til að sjá að hún var einstök
manneskja. Örlæti var hennar
aðalsmerki. Þá á ég ekki bara við
það hve hún var einstaklega gjaf-
mild á veraldlega hluti, heldur ekki
síður á tíma sinn og hlýjar tilfinn-
ingar. Þessi hæfileiki Önnu til að
gefa af sér vitnaði best um guðstrú
hennar sem hún rækti
af heilum hug. Örlæti
hennar var kristilegur
kærleikur í verki.
Þessi persónuein-
kenni Önnu komu fram
við fyrstu kynni. En
þau birtust sérlega
sterkt í margvíslegri
viðleitni hennar til að
hjálpa nauðstöddu
fólki. Það er vanda-
samt að hjálpa öðrum.
Oft falla menn í þá
gryfju að styðja hinn
hjálparþurfi með röng-
um hætti eða að ráðskast með hann
á einhvem hátt. Anna sneiddi hjá
þessum gryfjum. Hún virtist geta
mætt hverri manneskju þar sem
hún var stödd, sett sig í hennar spor
og eflt hana til sjálfsbjargar. Það
var vegna þess að hún hlustaði á
fólk og lagði sig eftir því sem það
hafði að segja. Þannig fann hún lyk-
ilinn að sannri hjálparlist.
Annað eftirminnilegt einkenni
Önnu var hæfileiki hennar til að
njóta og smita aðra með gleði sinni.
Það er sama hvar borið er niður.
SIGRÍÐUR
BRYNJÓLFSDÓTTIR
tSigríður Bryn-
jólfsdóttir fædd-
ist í Hjörleifshöfða
12. desember 1929.
Hún lést á Sjúkra-
húsi Reykjavíkur 12.
júlí siðastliðinn og
fór útfór hennar
fram frá Háteigs-
kirkju 21. júh'.
Nú hefur Sigríður
Brynjólfsdóttir kvatt
þennan heim. Margs er
að minnast þegar litið
er yfir farinn veg.
Sigríður, eða Sigga
amma eins og hún var alltaf kölluð í
Laxárdal, var einstaklega hlý og
góð við okkur öll. Þegar fréttist að
hún væri væntanleg í sveitina þá
biðu krakkarnir eftirvæntingarfull-
ir eftir að hún kæmi, enda pönnu-
kökuveisla í vændum. Hún var sér-
stakur snillingur í að baka
pönnukökur.
Hún vildi ávallt hafa eitthvað fyr-
ir stafni á meðan hún dvaldi hjá
okkur. Eitt af þeim verkum sem hún
tók gjarnan að sér var að stoppa í
sokka og vettlinga sem urðu eins og
nýir á eftir.
Sigga amma var
fædd í sveit og vildi því
gjarnan fylgjast með
lífinu í sveitinni. Þegar
hún var hér í Laxár-
dalnum yfir sumartím-
ann þá hafði hún mikla
ánægju af því að geta
hjálpað til við að raka,
hugsa um garðinn og
fegra umhverfið.
Hún Sigga amma
hafði mjög gaman af
því að ferðast og kom
hún stundum með okk-
ur í ferðalög um land-
ið. Við skemmtum okkur konung-
lega enda var góða skapið alltaf með
í farteskinu. Hún var mjög fróð um
landið okkar og þó sérstaklega um
sveitirnar í nágrenni Víkur í Mýr-
dal. Einnig var hún mikill visku-
brunnur um blóm og jurtir en það
hafði hún lært af föður sínum.
Margar fleiri minningar koma
upp í hugann sem verma okkur um
hjartarætur um ókomna tíð.
Blessuð sé minning hennar.
Guðný Guðnadóttir
og fjölskylda.
KARL
HJALTASON
+ Karl Hjaltason
fæddist að Litla-
Hamri í Eyjafirði 5.
febrúar 1921. Hann
lést á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Ak-
ureyri 13. júlí síðast-
liðinn og fór útför
hans fram frá Akur-
eyrarkirkju 21. júlí.
Mig langar að minn-
ast Karls Hjaltasonar
nokkrum orðum um leið
og ég votta aðstandend-
um samúð mína við frá-
fall hans.
Góð nærvera, glaðværð og greið-
vikni einkenndu Karl Hjaltason.
Hvar sem við hittumst hvort heldur
var í handavinnustofunni hans í
Bamaskólanum, bátaskýli siglinga-
klúbbsins eða heima við í Kambsmýri
tók hann mér fagnandi. Við smíði
sumarbústaðar Reynis heitins bróður
hans, kynntumst við best. Mér finnst
ég oftast hafa verið þiggjandi í sam-
skiptum okkar og oft sagði hann
skemmtilegar sögur. Hann birti mér
hina dönsku Akureyri
ljóslifandi í sögum sín-
um, enda alinn upp í
menningu danskra
handverksmanna og
sagði sögur af þeim. Ein
var af danska smiðnum
sem gleymdi tommu-
stokknum og kallaði til
handlangarans að rétta
sér spýtu af ákveðinni
lengd. Hann notaði
mælikvarðann: „To for-
klæder, ét hammer-
skaft og een lille bit!“
Þannig voru sögurnar
hans Kalla græskulaus-
ar og innilegur hlátur fylgdi á eftir.
Ég þekkti ekki náið til kennarans
Karls Hjaltasonar en þó skynjaði ég
að einlægur áhugi hans á viðfangsefn-
um sínum, jákvæði og manngæska
skilaði sér til krakkanna í handa-
vinnustofunni.
Ég sendi konu hans, Guðlaugu Pét-
ursdóttur, bömum, bamabörnum,
sem og öðrum vandamönnum, mínar
innilegustu samúðarkveðjur.
Magni Hjálmarsson.
Hversdagslegustu hlutir urðu henni
að sérstöku ánægjuefni: Fábrotin
máltíð gat orðið að hátíðarstund ef
Anna átti í hlut; blóm og fjöll urðu
einhvern veginn dýrmætari í návist
hennar en ella. Það var vegna þess
að hún fagnaði lífinu og naut þess til
hins ýtrasta. Það er gott til þess að
hugsa þegar klippt er á lífsþráðinn í
ævi ungrar manneskju að hún hafi
lifað svo ríkulega.
Anna uppskar líka ríkulega. Ung
giftist hún eftirlifandi manni sínum,
Barrie Carswell, heilsteyptum og
ljúfum manni sem elskaði hana og
virti. Þau eignuðust þrjár dætur.
Þær Natasha Mjöll, Tanya Fönn og
Natalie Drífa bera kærleiksríku
uppeldi og hæfileikaríkum foreldr-
um fagurt vitni. Þær em allar list-
hneigðar, en bæði Anna og Barrie
sinntu listum í frístundum sínum.
Síðustu árin lagði Anna stund á jap-
anskan útsaum og þegar hún lést
átti hún stutt í að öðlast kennara-
réttindi í þeirri grein. Það er at-
hyglisvert að þessi ástríðufulla og
örgeðja kona hafi lagt sig eftir
saumaskap sem krefst óvenjumikill-
ar nákvæmni og þolinmæði.
Anna var til grafar borin skammt
frá Pool í Englandi síðastliðinn
föstudag. Fjöldi vina fylgdi henni og
efndi síðan til samkomu á eftir þar
sem hennar var minnst með marg-
víslegum hætti. Það er vandasamt
að mæra einstakling á slíkri stundu,
en ekki í þessu tilviki. Ég held að ég
hafi aldrei heyrt jafnsterk lofyrði
um eina manneskju sem ég veit
mætavel að eru sönn. Það er erfitt
að ýkja um Önnu. Ailir viðstaddir
vissu að við vomm að kveðja ein-
staka konu sem hafði auðgað lífið
með gleði sinni og kærleika.
Ég votta Gyðu, móður Önnu,
bræðrum hennar og öðrum ættingj-
um mína dýpstu samúð. Barrie,
dætrunum og fjölskyldum þeirra
þakka ég fyrir vináttuna og bið Guð
að styrkja þau í sorginni._
Vilhjálmur Árnason.
Birting af-
mælis- og
minning-
argreina
MORGUNBLAÐIÐ tekur af-
mælis- og minningargreinar til
birtingar endurgjaldslaust.
Greinunum er veitt viðtaka á
ritstjórn blaðsins í Kringlunni
1, Reykjavík, og á skrifstofu
blaðsins í Kaupvangsstræti 1,
Akureyri. Þá er enn fremur
unnt að senda greinarnar í
símbréfi (569 1115) og í tölvu-
pósti (minning@mbl.is). Nauð-
synlegt er, að símanúmer höf-
undar/sendanda fylgi.
Um hvern látinn einstakling
birtist formáli, ein uppistöðu-
grein af hæfilegri lengd, en
aðrar greinar um sama ein-
stakling takmarkast við eina
örk, A-4, miðað við meðallínu-
bil og hæfilega línulengd, - eða
2.200 slög (um 25 dálksenti-
metra í blaðinu). Tilvitnanir í
sálma eða ljóð takmarkast við
eitt til þrjú erindi. Greinarhöf-
undar eru beðnir að hafa
skírnarnöfn sín en ekki stutt-
nefni undir greinunum.
Við birtingu afmælisgreina
gildir sú regla, að aðeins eru
birtar greinar um fólk sem er
70 ára og eldra. Hins vegar
eru birtar afmælisfréttir
ásamt mynd í Dagbók um fólk
sem er 50 ára eða eldra.
Mikil áhersla er lögð á, að
handrit séu vel frá gengin, vél-
rituð eða tölvusett. Sé handrit
tölvusett er æskilegt, að disk-
lingur fylgi útprentuninni. Það
eykur öryggi í textameðferð
og kemur í veg fyrir tvíverkn-
að. Auðveldust er móttaka
svokallaðra ASCII-skráa sem í
daglegu tali eru nefndar DOS-
textaskrár. Þá eru ritvinnslu-
kerfin Word og Wordperfect
einnig auðveld í úrvinnslu.
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteins
Þórarinn Már Ámason og Erla Guðný Pálsdóttir tylltu sér niður við Lag-
arfljótið á góðviðrisdegi og virtu Þinghöfðann fyrir sér speglast í fljótinu.
Norður-Héraði - Þinghöfði er ör-
nefni skammt utan við Krakalæk i
Hróarstungu niður við Lagarfljót.
Þar sunnan undir Þinghöfða voru
voru Krakalækjarvorþing háð og
getið er um í Droplaugarsona sögu.
Þinghöfði
Þar er fjöldi búðatótta og staðurinn
friðlýstur.
Á þessum stað héldu Norðmýl-
ingar þjóðmálafundi, 13 talsins,
upp úr miðri 19. öld, en þeir voru
kallaðir Þinghöfðafundir.
Morgunblaðid'jt
Bílstjórar frá Fylki á Hvolsvelli sjá um verkið á Landvegi. Þetta eru: Þór
Pálsson, Ilermann Ingason, Magnús Guðmundsson og Jón Guðmundsson.
Endurbætur á
11,5 km kafla
á Landvegi
FYLKIR, félag vörubílstjóra á
Hvolsvelli, vinnur nú að endurbygg-
ingu á 11,5 km kafla Landvegar í
Rangárvallasýslu. Hófst verkið á
liðnu vori og eru verklok áætluð um
miðjan september. Jón Guðmunds-
son, einn bflstjóranna, sem jafnframt
er verkstjóri, segir verkið hafa geng-
ið vel en ekki hafi verið unnt að hefj-
ast handa á liðnum vetri eins og áætl-
að var og því sé hart á því að verkinu
Ijúki alveg á tilskildum tíma.
Virkir félagar í Fylki eru nú 14 og
segir Jón að 10-11 bflstjórar hafi að
jafnaði unnið við verkið. Vegarkafl-
inn liggur milli Fellsmúla og Holts-
múla og er kostnaður alls áætlaður
111 milljónir en hlut Fylkis í verkinu
segir Jón vera tæpar 60 milljónir
króna. Var það um 86% af áætlun.
Fremur lítið þurfti að gera við veg-
inn að sögn Jóns annað en að styrkja
hann og bera rétt efni ofan í áður en
slitlag verður lagt. Er unnið gróft
efni úr hrauni rétt við veginn og bor-
ið í hann 45 til 100 cm burðarlag. Efst
er borið 20 cm lag af finni möl.
Slitlag á hluta kaflans fyrir
verslunarmannahelgi
Stefnt er að því að leggja slitlag á
hluta nýja vegarkaflans nú fyrir
verslunarmannahelgi og segir Jón
veður ráða því nokkuð en ef vel viðr-
ar verður hafist handa við það í
næstu viku. Verkið hófst 3. apríl í vor
en Jón segir tilboð Fylkismanna hafa
m.a. miðast við að hægt yrði að vinna
að vetrinum. Síðasti vetur var hins
vegar erfiður þannig að ekki er víst
að upphafleg áætlun standist upp á
dag. Jón sagði bflstjóra Fylkis aðal-
lega hafa unnið við þetta verk í sum-
ar en nokkrir hefðu þó verið í verk-
um fyrir einkaaðila. Hann sagði
alveg óvíst hvað tæki við í haust, ný
verkefni væru ekki í sjónmáli.
Jón Smári Lárusson og Jón Ósk-
arsson, sem stjórna vegaþjónustu á
tengivegum og safnvegum í sýslunni,
sem blaðamaður hitti á Landvegi,
sögðu endumýjaðan veg mikla bót.
Viðhald yrði minna og hin mikla um-
ferð krefðist betri vegar. Um Land-
veg fara vikurflutningabflar árið um
kring og umferð er mjög vaxandi að
sumrinu bæði vegna ferða inná há-
lendið og í sumarbústaði efst í sveit-
inni.
--------------
Lúðrasveit
íStykkis-
hólmi
NÆSTKOMANDI þriðjudag, 25. jú-
lí, fá Stykkishólmsbúar í heimsókn
lúðrasveit frá Skjem í Danmörku.
Hljómsveitin heitir Skjem Garden og
er skipuð fólki á aldrinum 10-20 ára.
Þann dag mun hún leika listir sínar á
íþróttavellinum í Stykkishólmi, en
það er sérstök sýning sem lúðrasveit-
in hefur fengið verðlaun fyrir. Skjem _
Garden er ein af 10 bestu slíkum”
lúðrasveitum í Danmörku.
Frá Stykkishólmi er ferðinni heitið
á Sauðárkrók, Dalvík, Akureyri og
Húsavík.
Daði Þór Einarsson stjómaði þess-
ari lúðrasveit skólaárið 1998-1999 og
mun taka við stjóm hennar aftur í
haust. t