Morgunblaðið - 23.07.2000, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 23. JÚLÍ 2000 47
Morgunblaðið/Ásdís
Utangarðsmennirnir Pollockbræður, Danny til vinstri og Michael Dean með Bubba Morthens á milli sín.
Köttur úti í mýri ••
Það bykja tíðindi að Utanqarðsmenn, ein helsta
hljómsveit íslenskrar rokksöqu, koma saman fil tónleika-
halds ó næstu vikum. Arni Matthíasson hitti að móli
þrjó Utanqarðsmenn sem söqðu honum að þeir væru loks
að qera hljómsveitina upp eftir nítjón óra bið.
Ein helsta hljómsveit íslenskrar rokksögu er
Utangarðsmenn sem hrintu af stað rokkbylt-
ingu fyrir tuttugu árum sem ekki sér fyrir end-
ann á. Hljómsveitin varð á örskömmum tíma
helsta hljómsveit landsins og söngvari hennar,
Bubbi Morthens, vinsælasti rokktónlistarmað-
urinn upp frá því. Utangai-ðsmenn hristu ræki-
lega upp í íslensku tónlistarlífi þegar sveitin
sendi frá sér sitt fyrsta lag, Rækjureggae, 1.
október 1980 þar sem þeir lýstu yfir stríði við
ríkjandi rokk- og popptónlistarhefð. Innan við
ári síðar var hljómsveitin komin í þrot eftir
gegndarlausa keyrslu og hætti nánast ófor-
varandis. Á næstu vikum hyggjast Utangarðs-
menn halda fimm tónleika til að ljúka ævintýr-
inu almennilega, segja endanlegt bless.
Fjölmargt óuppgert
Þegar Utangarðsmenn ákváðu að hætta
móðir eftir erfiða tónleikaferð um Skandinavíu
og Danmörku síðsumars 1981 mátti skilja á
mönnum að þeir hefðu ekki skilið í bróðemi og
Bubbi Morthens tekur undir það nú, nítján ár-
um síðar, að fjölmargt hafi verið óuppgert inn-
an sveitarinnar þegar þeir félagar slitu sam-
starfinu. Hann er kominn í spjall með þeim
Pollock bræðrum Michael Dean og Daniel í til-
efni af því að sveitin er komin saman aftur til að
kveðja. „Það skildi enginn við Utangarðsmenn
í reiði eða einhverjum tryllingi, en það er rétt
að það var pirringur í mönnum,“ segir hann en
Michael bætir við að hann þekki enga sem slit-
ið hafi nánu samstarfi eða sambandi í góðu.
„Þrátt fyrir yfirlýsingar um að allt sé í sátt og
samlyndi er alltaf erfitt að slíta sambandi. Við
vorum búnir að vinna svo náið saman nánast
allan sólarhringinn í rúmt ár að það var erfitt
að slíta því samstarfi." „Samstarfið byggðist
líka á spennu,“ heldur Danny áfram, „það var
mikill spennubolti í gangi og menn réðu ekki
vel við hann.“ „Það var enginn tími til að
styrkja vinasamband okkar, það fór allur tím-
inn í að keyra hljómsveitina áfram,“ segir
Michael, en grunnur hljómsveitarinnar var
lagður þegar þem Bubba, Michael og Danny
varð vel til vina sem samstarfsmenn í Kassa-
gerðinni. Þeir segja að sá vinskapur hafi nán-
ast farið halloka í togstreitu innan hljómsveit-
arinnar en fljótlega eftir að Utangarðsmenn
hættu saman voru þeir famir að spila saman
aftur þó ekki stofnuðu þeir hljómsveit saman á
ný. „Utangarðsmannapakkinn var óuppgerður
eftir að við hættum en vinatengslin voru til
staðar," segir Bubbi og Mikki bætir við að þeir
hafi verið eins og systkini, oft að rífast og slást
en samt vinir þegar á reyndi.
Danny segir að spennan sem skapaðist inn-
an sveitarinnar hafi keyrt hana áfram og Mikki
bætir við að það hafi svo margt orsakað þá
spennu, það var svo margt í gangi innan sveit-
arinnar, sólóferill Bubba og ólíkar tónlistar-
stefnur sem toguðust á og kölluðu á sífelldar
málamiðlanir. „Það var gott að fara upp á svið
og losna við þessa spennu, fá útrás sem gerði
tónleikana eins villta og þeir voru,“ segir hann
og bætir við að nú orðið geti þeir kallað spenn-
una fram eftir þörfum, „við erum atvinnu-
menn,“ segir hann og kímir, en skilji hana líka
eftir á sviðinu.
íslenski draumurinn
Ekki er bara að þeir félagar komi saman í
sumar til að halda nokkra kveðjutónleika því
þeir tóku einnig upp lag fyrir myndina íslenski
draumurinn samnefnt henni sem frumflutt var
á Netinu á fimmtudag. Þeir segjast hafa horft á
myndina og samið lagið í framhaldi af því;
Bubbi lagði til texta en þeir bræður Danny og
Michael sömdu lagið. Þeir Danny og Michael
segjast hafa samið lagið saman sama kvöld og
þer sáu myndina en Bubbi segir að hann hafi
ekki komið eins mikið að samningunni og hann
hefði helst viljað vegna anna við ótalmargt.
„Þetta sumar er búið að vera stífbókað hjá mér
í tvö ár og ég gat því miður ekki verið eins mik-
ið með í gerð þessa lags og áður fyrr þegar við
vorum að vinna saman að lögum í Utangarðs-
mönnum.“
Eins og fram kemur var lagið samið á einum
degi og það var tekið upp á nánast sama hraða.
Michael segir að vinnubrögð þeirra félaga séu
mun skipulagðari núna og betri en áður fyrr og
hann segir að það hafi reyndar komið sér
skemmtilega á óvart hvað þeir voru góðir þeg-
ar þeir komu saman og hvað allt gekk hratt og
vel fyrir sig í hljóðverinu. „Þetta er líka tónlist
sem ekki á að liggja yfir,“ segir Danny en
Bubbi bætir við að nú orðið séu þeim allir vegir
færir, „þegar maður er allsgáður“.
Eftir að sveitin hætti hafa þeir allir fengist
við tónlist, á ólíkum forsendum þó. Bubbi hefur
haldið velli sem vinsælasti tónlistarmaður
þjóðarinnar, sífellt að reyna fyrir sér á ólíkum
sviðum tónlistar, Michael hefur haslað sér völl
innan jaðarhreyfingar skálda vestan hafs með
tónlist og ljóðum og Danny hefur fengist við
tónlist á mörgum sviðum. Þeir segja að hugs-
anlega eigi menn eftir að einblína um of á Ut-
angarðsmenn og gleyma því að allir séu þeir
með eigin feril í tónlist sem þeir hyggist halda
áfram. Þeir leggja því áherslu á að Utangarðs-
menn séu ekki að koma saman til að fara um
landið á næstu árum, þetta sé ekkert Hljóma-
eða Stuðmannadæmi.
Vel pakkað prógramm
Danny fór í gegnum lögin sem sveitin átti, 43
alls, og valdi úr 35 lög sem þeir félagar munu
síðan smíða úr tónleikadagskrá. Þeir eru sam-
mála um að lögin verði valin til að tónleika-
dagskráin verði sem best en vissulega falli lög-
in mönnum misjafnlega í geð innan
sveitarinnar. „Það er auðvitað ljóst að sum lög
henta betur til tónleikaspilamennsku en önn-
ur,“ segir Bubbi. „Sum laganna henta betur
fyrir plötu en spilamennsku á sviði, eins og til
dæmis Blóðið er rautt. Það skipti mestu máli
að mínu mati að keyra hratt og örugglega í
gegnum prógrammið, hafa það vel pakkað."
Þó lögin hafi almennt elst vel eru textamir
sumir þesslegir að þeir eiga illa við í dag. Bubbi
segist reyndar eiga eftir að læra alla textana
upp á nýtt og bætir við að margir séu þeir ein-
faldlega klikkaðir og eigi ekkert erindi við fólk
í dag en aðrir séu aftur á móti í góðu lagi. „Póli-
tískir textar lifa oft ekki nema það augnablik
þegar þeir eru sungnir en aðrir textar eru fínir
enn þann dag í dag. Ég gæti auðvitað endur-
samið þá alla og gert þá miklu betri en partur
af þessu öllu var hráleikinn i textunum og ég
væri að spilla lögunum ef ég færi að eiga við
textana."
Nýtt íslenskt rokk
Þeir félagar segjast hafa legið mikið yfir því
hvaða hljómsveitir þeir hyggist fá til að spila
með sér á tónleikunum í ferðinni og leggi
áherslu á að fá ekki endilega þekktar hljóm-
sveitir eða vinsælar til að spila heldur hljóm-
sveitir sem séu að leika nýtt íslenskt rokk.
Bubbi segir vera með sinn óskalista og efst á
honum 200.000 naglbítar og Ensími. „Þessar
hljómsveitir eru báðar mjög kraftmiklar þó
þær minni ekkert endilega á Utangarðsmenn.
Mér fannst til dæmis plata Ensíma ein af bestu
plötum sem ég heyrði á síðasta ári, það ólgar
svo mikill kraftur í þeirri sveit og frumlegheit.
Plata 200.000 naglbíta sem kom út um daginn
kom mér líka skemmtilega á óvart, ég átti ekki
von á að hún yrði svo súrrealísk og með svo
svakalega sterkum melódíum í bland við hard-
core rokk. Lítill fugl er með því betra sem ég
hef heyrt lengi, algjör brilli. Það væri gaman
að geta tekið fullt af hljómsveitum með en okk-
ur finnst líka ástæða til að vekja athygli á
hljómsveitum sem njóta ekki sömu vinsælda og
Skítamórall og Land og synir. Þó verð ég að
segja það að plata Lands og sona á síðasta ári
kom mér á óvart og ég varð að endurskoða
fyrra álit sem ég hafði á sveitinni þegar ég
heyrði að þeir voru bara þrusugóðir þó þeir séu
að spila á þessum sveitaballamarkaði."
Ástandið var hræðilegt
Þegar Utangarðsmenn komu fram á sínum
tíma þótti þeim félögum sem ekki væri margt
margvert að gerast í íslenskri tónlist. ,Ástand-
ið var hræðilegt," segir Bubbi, „ömurlegt" seg-
ir Danny og Michael segir að íslensk tónlist
hafi verið andleg eyðimörk. Þeir segja að
ástandið sé aftur á móti mun betra í dag og
Bubbi tekur þannig fram að hanp sé ánægður
með það sem sé á seyði í jaðartónlist. „Það er
miklu meira af góðri rokktónlist til í dag en
þegar við byrjuðum,“ segir Michael. „Það er
mikið drasl í gangi eins og var á sínum tíma en
það er líka góð íslensk rokktónlist sem vantaði
þá.“ „Við getum nefnt í einum grænum fimm
sveitir sem standa upp úr,“ segir Bubbi og tel-
ur síðan upp: „Botnleðja, Ensími, 200.000 nagl-
bítar, Mínus og Sigur Rós, frábærar hljóm-
sveitir og fleiri mætti reyndar tína til. Svo er
líka mikið af rusli en það þarf líka til, það er
bara ákveðin prósenta sem verður góð,“ segir
Bubbi og bætir við að það séu líka til góðar
poppsveitir og nefnir sérstaklega Sálina, „en í
henni fara saman einn besti lagasmiður sem Is-
lendingar hafa eignast og þessi bijálæðislega
góði söngvari sem Stefán Hilmarsson er.“ „Það
eiga allir sinn tilverurétt og hægt að bera virð-
ingu fyrir þeim þó ég kunni ekki að meta þá
sjálfur," segir Michael. „Maður verður að læra
að bera virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum en
ég er ekki viss hvað ég hefði sagt ef þú hefðir
spurt mig fyrir tuttugu árum, þá var ég svo
hrokafullur.“ „Það var hroki æskunnar," segir
Bubbi með áherslu, „og án hans hefðum við
aldrei farið á svið. Ef enginn hroki er þar sem
æskan er er eitthvað að, viðkomandi í ólagi eða
á sterkum lyfjum."
Endanlegt bless
„Það má segja að við séum að loka þessum
Utangarðsmannapakka eins og menn,“ segir
Bubbi; „nokkuð sem við réðum ekki við á sín-
um tíma. Þetta er endanlegt bless og um leið
viljum við gefa yngri kynslóðinni tækifæri á að
sjá okkur tuttugu árum eftir að við hættum,
gefa henni kost á að heyra tónlistina og um leið
að það sem við vorum að gera skipti einhverju
máli. Ég fer ekkert ofan af því að Utangarðs-
menn eru eitt áhrifamesta band íslenskrar
tónlistarsögu fyrir utan Hljóma. Ég staðhæfi
það með fullri virðingu fyrir öllum öðrum
böndum. Þegar Utangarðsmenn komu fram
varð bylting í íslenskri tónlist og jafnvel meiri
bylting en þegar bítlið kom hingað til lands á
sínum tíma. Eg er á því að Utangarðsmenn
hafi haft þau áhrif að íslensk rokktónlist varð
til og þsið skilaði okkur því sem við njótum í
dag. Án Utangarðsmanna hefði ekkert Kukl
orðið til. Án Utangarðsmanna hefði enginn
Tappi tíkarrass orðið til og engin Björk. Án Ut-
angarðsmanna hefði enginn Einar Örn orðið
til,“ segir Bubbi og Michael skýtur inn: „Þetta
er satt, Einar Örn skírðist til rokksins í Utan-
garðsmönnum. Hann var í Rock ’n’ Roll há-
skóla hjá okkur. Þegar hann hætti í Utan-
garðsmönnum vissi hann hvað hann átti ekki
að gera,“ segir hann og skellir upp úr. „Þetta
er enginn hroki,“ segir Bubbi, „og ég er ekki að
segja að það sé okkur að þakka að þetta fólk sé
hæfileikafólk, en við ruddum brautina og gerð-
um þeim kleift að komast af stað.“