Morgunblaðið - 23.07.2000, Page 48
48 SUNNUDAGUR 23. JÚLÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FOLKI FRETTUM
Poppfárið
TONLIST
Geisladiskur
SVONAER SUMARIÐ
2000
Svona er sumarið 2000. Lög eiga
hljómsveitirnar Sálin hans Jóns
míns, Skítamórall, Land og synir,
Sóldögg, Greifarnir, írafár, A móti
sól, Buttercup, Jargonbuster, Millj-
ónamæringarnir, Sixties, MIR,
200.000 naglbítar og Port. Greif-
amir njóta aðstoðar Brooklyn fæv í
einu lagi og svo Einars Ágústs í
öðru. Umsjón með útgáfu var í
höndum Eiðs Amarssonar. 67,16
min. Skífan gefur út.
ÞAÐ er gaman að vera áhugamað-
ur um dægurtónlist um þessar mund-
ir. Það hefur sýnt sig að popp er ekki
algert „popp“ í augum fólks og rök-
ræður um gildi listformsins hafa verið
miklar undanfama daga. Skoðana-
skipti eru sannarlega af hinu góða og
opin og málefnaleg umræða um dæg-
urtónlist ýtir undir framþróun henn-
ar ásamt því að renna auknum stoð-
um undir gildi hennar. Dægurtónlist
er, hvort sem fólki líkar það eða ekki,
menningarlegt fýrirbæri sem skiptir
máli.
Hitan hefur þó verið hvað mest í
kringum þá tónlist sem í daglegu tali
er nefnd popptónlist eða sveitaballa-
tónlist hér á landi en fyrir stuttu kom
út safndiskurinn „Svona er sumarið
2000“,sem hefur að geyma safn
hljóðritana frá þess háttar sveitum
ásamt lögum frá hljómsveitum sem
vanalega eru ekki settar undir ball-
hattinn.
I .EIKFELAG ISLANDS
loft
552. 3000
THRILLER sýnt af NFVÍ
fös. 28/7 kl. 20.30 aukasýning
530 3030
BJÖRNINN — Hádegisleikhús
með stnðningi Símans
ÍDkIÁ m1®- 26/7 U. 12
IJ/llU fim. 27/7 kl. 12
fim. 3/8 kl. 12
þri. 15/8 kl. 12
ATH Aðeins þessar sýningar
Miðasalan er opin frá kl. 12-18 I Loftkastalanum
og frá kl. 11-17 f Iðnó. Á báðum stöðum er opið
fram að sýningu sýningarkvöld og um helgar þegar
sýning er. Miðar óskast sóttir f viðkomandi leikhús.
(Loftkastalinn/lðnó).
Ath. Úsóttar pantanir seldar 3 dögum fyrir sýningu.
Heildarsvipur laganna er nokkuð
rokkaðri og áleitnari en vera vill.
Hljómsveitir eins og t.d. Sóldögg,
Land og synir og Sálin hans Jóns
míns eru orðnar ófeimnar við að taka
tölvutæknina í þjónustu sína og
skreyta lagasmíðar sínar með raf-
vænum bylgjum. Arangurinn af þess-
um tilraunum er góður þó tilrauna-
mennskan ein og sér hafi að
sjálfsögðu ekkert að segja ef lagið
sjálft er ekki gott.
Gamli stríðshesturinn, Sálin hans
Jóns míns, ríður á vaðið og sýnir og
sannar að hann á enn fullt erindi við
eyru landsmanna. „Sól ég hef sögu að
segja þér“ leynir dáh'tið á sér, virðist
harla ómerkilegt í fyrstu en eflist svo
með hverri hlustun og stendur að lok-
um uppi sem sigurvegari, er sígild
poppsmíð að hætti meistaranna.
Sama verður ekki sagt um annað lag
Sálarinnar á þessum diski, það er
rammur uppfyllingarbragur af því
þótt orkumikið sé.
Skítamórall hefur löngum verið
með helstu popp/ballsveitum landsins
en framlag þeirra hér veldur von-
brigðum. Mórallinn átti fína plötu á
síðasta ári en eitthvað hikstar vélin
hérna. „Ennþá“ er metnaðarlaus
samhræringur af fyrri lögum Skíta-
mórals, sviplaus skyndiframleiðsla
sem virkar engan veginn þrátt fyrir
hressilegan flutning. Seinna lag
Skítamórals er af svipuðum „gæða-
flokki", helst að góður söngur bjargi
því sem bjargað verður. Einar Bárð-
arson, sem semur fyrsta lagið í félagi
við Gunnar Ólason Skítamóralsmann
en á seinna lagið sjálfur, hefur átt það
til að semja fimagóð popplög en í
þetta sinnið tekst honum engan veg-
inn upp. Einar hittir naglann á höfuð-
ið í grein sinni í Morgunblaðinu, laug-
ardaginn 15. júh', er hann segir að það
ISI.llNSkV OIM IIW
^l111 Sími 511 4200
rj
/JjJ
Gamanleikrit f leíkstjórn
Siguróar Sigurjónssonar
fim 10/8 kl. 20
lau 12/8 kl. 20
sun 13/8 kl. 20
mið 16/8 kl. 20
fim 17/8 kl. 20
Miðasölusími 551 1475
Miðasala opin frá kl. 13-19 mán-lau.
og fram að sýningu sýningardaga.
Símapantanir frá kl. 10.
Morgunblaðið/Sverrir
„Land og synir hafa undanfarið verið óhræddir við að prófa nýja hluti og hafa uppskorið ríkulega af þeim til-
raunum. Hreimur Heimisson er besti söngvari „senunnar" í dag og sjarminn stafar af hvcrjum söngtón," segir
Arnar Eggert m.a. í dómnum um plötuna Svona er sumarið 2000.
„að semja og flytja góða dægurtónlist
er vandaverk og á fárra færi“.
Ef Skímó eru Stones þá eru Land
og synir Bítlamir og synd að þeir séu
bara með eitt lag hér. Land og synir
hafa undanfarið verið óhræddir við að
prófa nýja hluti og hafa uppskorið
ríkulega af þeim tilraunum. Hreimur
Heimisson er besti söngvari „senunn-
ar“ í dag og sjarminn stafar af hveij-
um söngtón. Framlag þeirra hér er
afar sannfærandi, gott og melódískt
lag og óhætt að segja að Land og syn-
ir beri höfuð og herðar yfir samheija
sína.
Sóldögg hafa undanfarin ár verið
að að gefa út vönduð og vel gerð popp-
lög, eftirminnilegt er t.d. hið afburða-
góða „Friður" en samt er alltaf eins
og herslumuninn vanti er kemur að
stærri útgáfum. Lag þeirra hér er vel
yfir meðallagi, með nettri tilvísun í
Radiohead í blábyijun og það er von-
andi að þeir nái þessum herslumun
með komandi hausti er þeir gefa út
nýja breiðskífu þar sem þeir hafa alla
burði til að verða „stórsveit“.
Greifamir risu upp við dogg fyrir
nokkrum árum við mikinn fögnuð
landsmanna. Þeir létu sér engan veg-
inn nægja að setja upp sýningar til
heiðurs fortíðarþránni heldur tóku
þegar til við smellasmíði í gríð og erg.
Hljómur laga þeirra hér er heldur
meira „gamaldags“ og hefðbundnari
en nýsveita sem sést ágætlega í lag-
inu, „Eina nótt með þér“, enda er það
endurunninn ellismellur af erlendum
uppruna. Önnur lög þeirra hér eru
hálfgerð dauðyfli og Greifamir ná nú
ekki að gera miklar gloríur á þessari
plötu.
VINSÆLASTA LEIKSÝNING ALLRA TÍMA Á ÍSLANDI:
UeLLlsUÚ LV2V1
VUViVvV'U
AUKASÝNINGAR í
ÍSLENSKU ÓPERUNNI í ÁGÚST.
Á morgun kl. 10.00 hefst sala
á eftirfarandi sýningar:
Fimmtudaginn 10/8 kl. 20.00
Laugardaginn 12/8 kl. 20.00
Sunnudaginn 13/8 kl. 20.00
Miðvikudaginn 16/8 kl. 20.00
Fimmtudaginn 17/8 kl. 20.00
MIÐASÖLUSÍMI 551-1475
Hljómsveitin írafár, sem er fremur
ný af nálinni, á hér stórgott lag með
þungum undirtón. Söngkonan stend-
ur sig með prýði, syngur með kynæs-
andi röddu „að hún vilji mig“ og Ira-
fár lofar góðu. Það verður spennandi
að fylgjast með þessari sveit á næstu
mánuðum.
Það er Htið kjöt á beinunum í fram-
lagi Á móti sól, og Htið á seyði. Helst
að maður taki eftir textanum sem er
afspymuslakur en þess ber að geta að
allflestir textamir á þessari plötu eru
ekki upp á marga fiska. Það er svo
sem ekkert við innihaldsrýran texta
að athuga ef hann er skemmtilegur og
þjónar sínum tilgangi. En maður
verður óneitanlega þreyttur þegar
þeir virðast flestir hver undan öðrum,
fjalla nær allir á andlausan hátt um
einhvem sem er að leita að einhveij-
um öðrum, þráir hann og vill vera
með honum í nótt. „Hvar er ég? Hér
hjá þér, þú í nótt, förum hér, hver er
ég, hér með þér o.s.frv." Maður getur
nú ekki annað en glott út í annað er
maður rennir augum yfir lagaheitin:
„Ennþá“, „Hvort sem er“, „Hvar er
ég?“, „Vertu hjá mér“, „Með þér“,
„Eins ogþú ert“, „Öll sem eitt“. Minn-
ir óþyrmilega á móðurmálsæfingar úr
grunnskóla. Það er helst að Sálin sé
með texta sem rista aðeins dýpra.
Buttercup koma hvað mest á óvart
með hreint út sagt frábærri lagasmíð.
Þeir hafa greinilega hlýtt ráðum mín-
um um síðustu jól og teldð sig hressi-
lega saman í andHtinu. Enda er allt
annað líf að heyra þá nú. Stórgóð
söngkona hefur bæst í hópinn og lag
þeirra hér, „Endalausar nætur“, er
dramatískt og mikilfenglegt lag með
góðu og afar grípandi viðlagi. Eina
sem hægt er að kvarta yfir hér er
söngur Vals Heiðars Sævarssonar,
hann hef ég aldrei skilið og mun seint
skilja af hveiju maðurinn er látinn
syngja.
Hér er diskurinn hálfnaður og þá
fer fljótlega að halla undan fæti, það
er greinilegt að ákveðið hefur verið að
spila strax út öllum trompunum, skilj-
anlega kannski. Jargonbuster eiga til
að mynda lítt eftirminniiegt innlegg,
klént og klisjukennt lag sem er illa
sungið í þokkabót. Einnig eiga Millj-
ónamæringarnir fremur fátæklegt
lag, „Lotta“ er miður hrifandi iðnað-
armambó og ekki finnst mér Bjami
Ara sérstaklega sannfærandi sem
suðrænn stuðbolti. Hin vafasama
sveit Sixties er hér á rokkbuxunum
og brýtur ládeyðuna upp, sleppur
ágætlega frá sínu með laginu „Ekki
snúavið“.
I enda disksins er svo hrúgað
þremur „bastörðum" sem eru greini-
lega að mati skipuleggjenda þessa
safns á skjön við restina. Það hefði þó
farið betur á því að blanda þessu sam-
an við hina flytjendurna, það er svolít-
ið kindarlegt þegar diskurinn breytir
svona skyndilega um gír. Hljómsveit-
in MIR á þarna rokkað nýbylgjulag
sem er að mörgu leyti vel heppnað,
sérstaklega er ábúðarfullt falsettu-
innskot skemmtilegt. 200.000 naglbít-
ar er ein besta popp/rokkhljómsveit
landsins í dag og eiga hér lagið „Stopp
nr. 7“ sem tekið er af plötu þeirra
„Vögguvísur fyrir skuggaprins". Fyr-
irtaks lag en þó eru mörg lög önnur á
áðumefndri plötu sem taka því langt
fram hvað gæði varðar. Port ljúka svo
disknum með ágætu lagi og spilar
hljómsveitin metnaðaríuUt popprokk
í anda nýgræðinganna í Trompet.
Hér er sem sagt að finna, eins og
gengur og gerist með allflestar útgáf-
ur á tónlist, hvaða geira sem hún kann
að tilheyra, góð lög sem ganga upp og
síðan önnur sem gera það ekki. Ná-
kvæmlega svona er popptónlistin
sumarið 2000.
Arnar Eggert Thoroddsen
m FiiLLiu re:
Sýnt í Tjarnarbíói
Sýningar hefjast kl. 20.30
Miðapantanir í síma 561 0280
Miðasala er opin í Tjarnarbíói,
Tjarnargötu, frá kl. 12-18.
Miðinn gildir sem 2 fyrir 1
á Argentínu steikhús.
2. sýn. í kvöld, sun. 23. júlí, örfá sæti laus.
3. sýn. fös. 28. júlí
4. sýn. lau. 29. júlí
5. sýn. fös. 11. ágúst
6. sýn. lau. 12. ágúst
Ath. Ósóttar
pantanir seldar
2 dögum fyrir
sýningu.