Morgunblaðið - 29.07.2000, Blaðsíða 36
36 LAU GARDAGUR 29. JÚLÍ 2000
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
+
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu
okkur samúð og hlýhug vegna andláts og
útfarar móður okkar, tengdamóður, ömmu,
langömmu og langalangömmu,
ÁSTU MARGRÉTAR AGNARSDÓTTUR
frá Heiði,
Víðgrund 16,
Sauðárkróki.
Marsibil Hólm Agnarsdóttir,
Agnar Búi Agnarsson,
Jóhannes Agnarsson,
Benedikt Agnarsson,
Magnús Agnarsson,
Ásta Margrét Agnarsdóttir,
Ingibjörg Agnarsdóttir
Anna Snæbjört Agnarsdóttir, Páll Þórir Pálsson,
Sigurður Heiðar Agnarsson, Sigurbjörg Sigurðardóttir,
Jón Eiríksson
og ömmubörn.
Kristín Reginbaldursdóttir,
Hrafnhiidur Pedersen,
María Angantýsdóttir,
Guðlaug Einarsdóttir,
GunnarMagnússon,
+
Innilegar þakkir til allra þeirra sem auðsýndu
okkur samúð og vináttu vegna andláts og
útfarar
YNGVA KJARTANSSONAR,
Hrísalundi 16a,
Akureyri.
Bryndís Arngrímsdóttir,
Arnar Yngvason,
Rut Hermannsdóttir,
Hlíf Einarsdóttir,
Einar Kjartansson,
Árni Kjartansson,
Ólafur Kjartansson,
Elín Kjartansdóttir,
Arnfríður Kjartansdóttir,
Jóhann Ragnar Kjartansson,
Óttar Kjartansson,
Andri Yngvason,
Bryndís Guðmundsdóttir,
Kjartan Jónsson,
Marcia J. M. Vilhjálmsdóttir,
Margrét Örnólfsdóttir,
Kristfn Dúadóttir,
Agnar Kristjánsson,
Kim Kappel Christensen,
Jónína Guðjónsdóttir,
Bryndís Hafþórsdóttir.
+
Þökkum af heilum hug öllum þeim sem með
hjartahlýju sinni veittu okkur huggun og styrk
við fráfall okkar yndislega
ÞORSTEINS BRYNJÚLFSSONAR
bankamanns.
Sérstakar þakkir til samstarfsmanna hjá fs-
landsbanka og Flugleiðum og félaga í „Bleiku
beljunni“, fyrir dýrmætan stuðning, til ættingja
og vina og síðast en ekki síst til fjölskyldunnar
sem staðið hefur eins og klettur á bak við okkur.
Sigríður I. Magnúsdóttir,
Brynjúlfur og Bergþóra,
Ingrid Sigfússon,
Aðalsteinn Brynjúlfsson,
Bryndís Brynjúlfsdóttir,
Hersteinn Brynjúlfsson.
+
Innilegar þakkir til þeirra fjölmörgu sem sýndu
okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og
útför elskulegs sonar, bróður og mágs,
JÓNASAR SIGURÐAR KONRÁÐSSONAR,
írabakka 20,
Reykjavík.
Konráð Páll Ólafsson, Ingigerður St. Óskarsdóttir,
Guðjón Árni Konráðsson,
Jóna Ósk Konráðsdóttir, August Hákansson,
Guðmundur Kristinn Konráðsson.
GUÐRUN
JÓNSDÓTTIR
+ Guðrún Jóns-
ddttir fæddist í
Hafnarfirði 29. júlí
1923. Hún lést á
Landspítalanum 11.
júní síðastliðinn og
fdr útför hennar
fram frá Hafnar-
fjarðarkirkju 19.
júní.
Mig langar með ör-
fáum orðum að minn-
ast hennar ömmu
minnar sem lést 11.
júní sl. á Landspíta-
lanum. í dag, 29. júlí, hefði hún
orðið 77 ára gömul. Ég minnist
ömmu sem góðrar konu sem tók
manni alltaf opnum örmum.
Minningarnar um þig eru marg-
ar frá því að ég var að alast upp og
til dánardægurs þíns. Það var alltaf
gaman að koma til ykkar afa fyrstu
árin er við bræðurnir spiluðum við
ykkur og nú í seinni tíð með fjöl-
skylduna. Þá var rætt um daginn
og veginn og oft var glatt á hjalla
því þú hafðir mikla kímnigáfu og
þér fannst gaman að gantast. Þrátt
fyrir veikindi þín dáðist ég að
dugnaðinum í þér, heima fyrir var
allt svo fínt, garðurinn ykkar
glæsilegur og garðskálinn ævinlega
í blóma. Það er ekki langt síðan við
Didda sátum hjá þér og afa og
ræddum tilvonandi brúðkaup okkar
og brúðkaupsferð. Þú sýndir þessu
mikinn áhuga og gantaðist með það
að þú ætlaðir með okkur í ferðina.
En stuttu seinna kvaddir þú okkur
snögglega. Við erum þess fullviss
að þú hefðir ekki viljað að hætt
yrði við brúðkaupið okkar.
Brúðkaupsferðin var farin, án
þín, en sá dagur leið ekki án þess
að þú kæmir upp í huga okkar og
söknuðurinn var mikill.
Elsku amma ég þakka þér fyrir
alla samveruna sem var allt of
stutt. Minning þín mun lifa. Elsku
afi, mamma, pabbi, Siggi, Sigga,
Erna, Gissur, barnaböm og barna-
barnabörn, missir okkar er mikill
en við getum huggað okkur við
góðar minningar um yndislega
móðir og ömmu. Guð blessi minn-
ingu þína elsku amma.
Kallið er komið,
komið er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Margs er að minnast,
margs er hér að þakka.
Guð sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta
skalt.
V. Briem.)
Þinn
Gunnar Ingi Guðmundsson.
Hver minning dýrmæt perla að liðnum
lífsins degi,
hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka
hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem
gleymist eigi,
og gæfa var það öllum, er fengu að
kynnast þér.
(Ingibj. Sig.)
Mig langar til að minnast hennar
Guðrúnar minnar, sem lést á Land-
spítalanum 11. júní sl. í dag, 29.
júlí, hefði hún orðið 77 ára gömul.
Ég var svo lánsöm að kynnast
henni fyrir nokkrum árum, er ég
kynntist eiginmanni mínum, barna-
barni hennar. Þótt kynni okkar
hafi verið stutt átti ég margar góð-
ar stundir með henni og eftirlifandi
eiginmanni hennar, Elíasi. Að
sækja þau heim var eins og að
koma heim til sín, maður var ávallt
velkominn á þeirra fallega heimili.
Ég varð þeirrar gæfu aðnjótandi
að fá að ferðast með þeim erlendis,
þar sá maður dugnaðinn í Guðrúnu,
hún gaf okkur yngra fólkinu ekkert
eftir, hvorki í göngutúrum né öðru.
Ég dáðist mjög að dugnaði hennar
og atorku þó svo að hún hafi átt við
veikindi að stríða, hún gaf ekkert
eftir. Það var svo gaman að spjalla
við hana, hún hafði frá svo mörgu
að segja, ævi sinni er hún var ung
að alast upp, og er ég þess fullviss
eftir frásagnir hennar, að lífið var
ekki leikur, í þá gömlu góðu daga.
Hún var sú manneskja sem var
hægt að leita til við hvaða tilefni
sem var. Eitt sinn reyndum við
hjónakornin að baka flatkökur sem
heldur brást, var þá brugðið á það
ráð að hringja í Guðrúnu ömmu,
það stóð ekki á henni, hún var
mætt eftir örfáar mínútur til að
bjarga okkur, og kenna okkur
réttu aðferðina. Það eru svo marg-
ar góðar minningar um þig,
skemmtilegar stundir, sögur, sam-
töl um hvað þér fannst að betur
mætti fara í lífinu, og ekki síst, að
þér fannst svo gaman að gera að
gamni þínu. Þessar minningar mun
ég varðveita fyrir mig og fjölskyldu
mína. Langömmu Guðrúnu munu
börnin mín ævinlega minnast sem
bestu ömmu í heimi, sem þau áttu
svo stuttan tíma með. En var þeim
svo yndisleg. Með minni hjálp
munu þau alltaf muna þig. Elsku
Elías, missir þinn er mestur, þú
sem ævinlega stóðst henni næstur.
Nánari hjón verður erfitt að finna.
Ég bið algóðan guð að styrkja þig
og leiða í þessari miklu sorg. Elsku
tengdaforeldrar, Siggi, Sigga,
Erna, Gissur, fjölskyldur ykkar og
aðrir ástvinir. Móður- og ömmum-
issir er mikill, söknuðurinn er sár.
Guð veiti ykkur styrk og trú í þess-
ari miklu raun, svo að ykkur auð-
nist að bera sorg ykkar fram á veg
vona og minninga, minninga um
móður, ömmu og systurina bestu,
sem gaf ykkur svo mikið.
Blessuð sé minning hennar.
Dýrleif Ólafsddttir.
Skilafrestur
minningargreina
EIGI minningargrein að birtast
á útfarardegi (eða í sunnu-
dagsblaði ef útför er á mánu-
degi), er skilafrestur sem hér
segir: í sunnudags- og þriðju-
dagsblað þarf grein að berast
fyrir hádegi á föstudag. í mið-
vikudags-, fimmtudags-, föstu-
dags- og laugardagsblað þarf
greinin að berast fyrir hádegi
tveimur virkum dögum fyrir
birtingardag. Berist grein eftir
að skilafrestur er útrunninn eða
eftir að útför hefur farið fram,
er ekki unnt að lofa ákveðnum
birtingardegi. Þar sem pláss er
takmarkað getur þurft að fresta
birtingu greina, enda þótt þær
berist innan hins tiltekna skila-
frests.
Frágangur af-
mælis- ogminn-
ingargreina
MIKIL áhersla er lögð á, að handrit séu vel
frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit
tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi út-
prentuninni. Það eykur öryggi í textameð-
ferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Þá er
enn fremur unnt að senda greinamar í sím-
bréfi (569 1115) og í tölvupósti (minn-
ing@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer
höfundar/sendanda fylgi.
Um hvem látinn einstakling birtist for-
máli, ein uppistöðugrein af hæfilegri lengd,
en aðrar greinar um sama einstakling tak-
markast við eina örk, A-4, miðað við meðal-
línubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200 slög
(um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í
sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú er-
indi. Greinarhöfundar em beðnir að hafa
skímamöfn sín en ekki stuttnefni undir
greinunum.
Formáli minningargreina
Æskilegt er að minningargreinum fylgi á
sérblaði upplýsingar um hvar og hvenær sá,
sem íjallað er um, er fæddur, hvar og hvenær
dáinn, um foreldra hans, systkini, maka og
böm, skólagöngu og störf og loks hvaðan út-
för hans fer fram. Ætlast er til að þessar upp-
lýsingar komi aðeins fram í formálanum, sem
er feitletraður, en ekki í greinunum sjálfum.
FERÐAFÉLAG
# ÍSLANDS
MOfíKINNI 6 - SlMI 568-2533
Gönguferðir um helqina:
Sunnan Þórisjökuls - Hrúður-
karlar laugardag 29. júlí kl.
8.00.
Búrfellsgjá - Valaból sunnu-
dag 30. júlí kl. 13.00. Verð
800. Brottför í dagsferðir frá BSÍ
og Mörkinni 6.
Kjalvegur hinn forni.
Nokkur saeti laus 5.-9. ágúst.
Gengnar söguslóðir í skjóli jökla.
Gist I skálum.
Verslunarmannahelgi með
Ferðafélaginu:
Hraðganga um Laugaveginn.
Dvöl í Þórsmörk.
Hálendið heillar 9,—16.
ágúst.
Sími á skrifstofu er 568 2533,
opið 9-18. www.fi.is, textavarp
RUV bls. 619.
Stóri-stígur — trússferð
dagana 8. til 12. ágúst 2000.
Ný fjögurra daga gönguleið frá
Landmannahelli um stórbrotið
landslag Laufaleita að Stokka-
laek á Rangárvöllum.
Gist i skálum.
Upplýsingar í síma 487 8636.
Velferðir ehf./velferdir@vel.is
Sunnudagsferð 30. júlí
kl.10.30.
Fjallasyrpa, 6. fjall. Botnssúlur.
Gengið frá Svartagili í Þingvalla-
sveit á Syðstu-Súlu (1095 m
y.s.). Verð 1.500 kr. f. félaga og
1.700 kr. f. aðra. Brottför frá BSI.
Farmiðar i miðasölu.
Verslunarmannahelgin, góð
ferðahelgi:
4.-7. ágúst: Núpstaðarskógar.
4. -7. ágúst: Að Fjallabaki með
Jeppadeild.
5. -7. ágúst: Básar, fornir ferða-
garpar.
5.-7. ágúst: Fimmvörðuháls -
Básar.
Snaefell - Lónsöræfi, gönguferð
9.-15. ágúst.
Pantið tímanlega. Skoðið heima-
síðuna: utivist.is