Morgunblaðið - 29.07.2000, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 29.07.2000, Blaðsíða 48
48 LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ r * p, HÁSKÓLABÍÓ ★ ★ HASKOLABIO ...... t /mSBit m „...ekkert minna / í i Al MBl KVIKMYNDIR.IS ★ ★★ Hagatorgi, simi 530 1919 pO\NER-s*n"’9 ^ Yfir 30 þúsund áhorfendur í— Z3SKJ csa Sýnd kl. 3, 5.30, 8,10.30 og 12 á miðn. B. i. 14. FRUMSYNING ÍÍICH NOLTt • ]Eff BliOfitS • SHfiflBX SIQSt :«4ífJ£ÍBa.*L?UI.RWÍ? ■ Frá einu fremsta leikskáldi samtímans, Sam Shepard, dramatískur spennu- tryllir um drauga fortíðarinnar, með einstöku teymi stórieikara Sýnd kl. 5.50, 8 oq 10.15. ★ ★★ Al MBL Sýnd kl.6, 8 oq 10. FORSÝNING FRUMSÝND - LAUGARDAG OG fMtff 5r0$fg( UM VERSLUNAR- AIIWHimfir. KI í i ® MAMMAMRI ftlMA Sýnd kl. 4 og 6 Synd kl. 8,10 og 12 á miðnætti Sýnd kl. 4. Sýnd kl. 4,6,8,10 og 12 á miðn. bí h. K SUNNUDAG KL. 4 \ MANNAHELGINA FYRIR ■ I 990 PUNKTA ■ FBRDU í BÍÓ Álfabakka 8. sími 587 8900 og 587 8905 Sumir hlutir eru þess virði að berjast fyrir. Stórbrotin og átakamikil stórmynd meö Mel Gibson. Stórkostleg upplifun og hlaðin mögnuðum átökum. Frá framleiðendum Independence Day og Godzilla. Frá leikstjóra Independence Day og Godzilla. Frá handritshöfundi Saving Private Ryan. Epísk stórmynd sem enainn má missa af. JETLI AALYAif X FRÁ FRAMLEIÐENDUM THE MATRIX KEMUR SPENNUTRYLLIR í HÆSTA GÆÐAFLOKKI MEÐ JET Ll ÚR LEATHAL WEAPON 4. Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. B. i. 16. Vitnr. 111. ■EDiGnw. Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8,10.15 og 11.30. B. i. 16. Vitnr. 104. ■EDKarrAi. Sýnd kl. 2,4 og 6. ísíenskt tal. Vit nr. 103. *imTAL Sýnd kl. 10. Sýndkmíui Sýr Synd kl. 2,4,6 og 8. Enskt tal. Enginn texti.Vit nr. 108. I Vitnr.95. Vrtnr.102. I Vi Kaupið miða í gegnum VITÍð. Nánari upplýsingar á vit.is Dagskrá Futurice kynnt Framtíðin er í augsýn Morgunblaðið/Þorkell Futurice-frömuðurnir: Dögg Baldursdóttir, Ásta Kristjánsdóttir og Þórey Vilhjálmsdóttir. FYRIR UM tveimur ár- um feng^u þær Þórey Vilhjálmsdóttir og Ásta Kristjánsdóttir, eigend- ur Eskimo models, hugmynd sem átti eftir að vinda upp á sig. Hugmyndin var að halda alþjóðlegan tískuviðburð á íslandi af áður algerlega óþekktri stærðargráðu og koma þannig á framfæri íslenskum fatahönnuðum. ** Eskimo fékk svo Reykjavík Menningar- borg 2000 til liðs við sig og með sameinuð- um kröftum var unnið staðfastlega til að ná settu marki. Nú er stóra stundin í nánd, Futurice er rétt handan við sjéndeild- arhringinn. Dagana 11. og 12. ágúst verður Bláa lóninu breytt í seiðandi fagurt ævintýraland þar sem hönnun og tónlist ræður ríkjum. Nokkur leynd hefur hvílt yfir þátttakendum þess- arar tísku- og tónlistarveislu en nú hefur dagskráin verið gerð ljós. Einar Örn Benediktsson verður kynnir á hátíð- inni. Hann notaði tækifærið þegar dagskráin var ^kynnt að segja að gróskan í íslenskri hönnum minnti hann um margrt á vaxtarbroddinn sem var í íslensku tónlistarlífí fyrir um tuttugu árum síðan. Einar Örn sagði enn fremur: „málið er ekki hvað þú getur, heldur hvað þú gerir,“ og að þetta væri lykillinn að velgengni og frægð. Dagskráin sjálf, föstudagur Á föstudeginum er dagskráin sett með kampavíns- kokkteil í einni fegurstu perlu fslands, Bláa Lóninu. Því næst verður hönnunarlina systranna Báru og Hrafnhildar Hólmgeirsdætra, „Aftur“, sýnd. Hönnun þeirra hefur vakið mikla athygli og ekki síst hugs- unin á bak við hana en öll línan er unnin úr „áður- notuðumtextíl". Þær „endurvinna eða deyja!“ Eftir endurvinnsludraum systranna er „Æ“ Sæunnar Þórðardóttur sýnd. Hönnun Sæunnar gengur út á gæði og sígilda fágun sem kemur á óvart með sprengikrafti og lífsgleði. Hijómsveitin Móa & the Vinylistics frumflytur svo splunkunýtt efni af væntanlegri plötu. Hinn leiðandi breski framúrstefnuhönnuður Trist- an Webber sýnir það nýjasta í hönnun sinni og Ragna Fróða, tísku- og textflhönnuður, gengur ást- arveginn með línu sinni, „Path of Love“, sem er unn- in úr efnum sem Ragna hannar og framleiðir sjálf. Gus Gus mætir svo með blöndu af ómótstæðilegum „instrumental-kveiktum hljóðum." Kansasbúinn brottflutti, Jeremy Scott, lokar svo kvöldinu við Lónið með fötum af nýjustu sýningu sinni undir frumsamdri tónlist frá Björk. Loks verð- ur dansað þar til dagur rís á Astro. Seinni dagurinn Ólátapilturinn Barði í Bang Gang er einmitt það sem þarf til að koma fólki á ról daginn eftir því þá hefst dagskráin fyrir hádegi. Bang Gang kemur sjaldan fram á tónleikum og því er það vel þess virði að strjúka burt svefnstírurnar og mæta snemma. Margir líta með tilhlökkun til samsýningar sjö ís- lenskra hönnuða. Það eri| þær Hugrún Dögg Árna- dóttir, „Hugrun“, Þorbjörg Valdimarsdóttir og Ragnheiður Guðmundsdóttir, „R3 & T9“, Bergþóra Magnúsdóttir, Þuríður Rós Sigurþórsdóttir, Brynja Emilsdóttir, „BES“, og María Ólafsdóttir, „Untit- led“, sem sýna hugarfóstur sín. Norrænir hönnuðir frá Helsinki og Bergen, sem eru systurmenningarborgir Reykjavíkur, sýna það nýjasta í sinni hönnun. Lifandi tónlist og tóngaldrar plötusnúða bæta svo enn betur við töfra hönnuðanna. Herlegheitunum lýkur svo með risastóru lokapar- týi á einhverjum framandi stað í Reykjavík sem enn hefur ekki verið tilkynnt um. Framundan eru spennandi dagar fullir af tónlist og tisku. Radiohead á móti lokun Napsters í MORGUN kl. 07:00 að íslenskum tíma átti fyrirtækið umdeilda Nap- ster samkvæmt lögum að loka fyrir allan aðgang að því efni sem plötu- fyrirtæki þau sem eru í samtökum hljómplötu útgefanda Bandaríkj- anna hafa gefið út. Samkvæmt for- svarsmönnum Napster þýðir þetta einfaldlega að þeir neyðist til þess að slökkva á tölvumiðlurum sínum. Napster hefur fram að þessu boðið upp á samnefnt forrit á heimasíðu sinni sem gerir notendum kleift að fá aðgang að svokölluðum mp3 skrám sem eru vistaðar inni á tölv- um annara notenda, en slíkar skrár innihalda oftast lög tónlistarmanna. Forritið hefur verið afar umdeilt og hafa m.a. meðlimir hljómsveitar- innar Metallicu og rapparinn Dr. Dre kært forritið fyrir að fara ólög- legum höndum um hugverk þeirra. Colin Greenwood, bassaleikari bresku sveitarinnar Radiohead, tók hins vegar upp hanskann fyrir málstað Napsters í fréttaþættinum Newsnight á BBC í fyrrakvöld. „Eg myndi ekki vilja verja þá sem hagnast á tónlist okkar,“ sagði hann. „En um leið er nauðsynlegt að fagna þessari nýju tækni í stað þess að stinga höfðinu í sandinn eins og svo mörg plötufyrirtæki gera, því þessi tækni er komin til þess að vera.“ Hann talaði einnig um það hvernig tölvutengdar tækninýjung- ar hafa haft mikil áhrif á starfsemi hljómsveitarinnar og auðveldað þeim að ná til breiðari hóps fólks. „Við spiluðum nýlega í Barcelona og daginn eftir var hægt að nálgast alla tónleikana í gegnum Napster. Svo þremur vikum seinna þegar við spiluðum í Israel sungu tónleika- gestir með öllum nýju lögunum og það var yndislegt. Stafrænar hljóð- upptökur eru aðeins ein af mörgum aðferðum sem hjálpa listamönnum við það að koma hugverkum sínum á framfæri og þær eiga að sjálf- sögðu eftir að breyta starfsemi plötuútgefenda. Þeh- eiga eftir að neyðast til þess að opna arma sína fyrir tækninni og finna nýjar leiðir til þess að afla tekna og ef til vill væri góð lausn að notast við Nap- ster hugbúnaðinn sem fyrirmynd fyrir þeirra eigin netdreifingarhug- búnað.“ Radiohead, daufír í dálkinn vegna lokunar Napsters.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.