Morgunblaðið - 29.07.2000, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 29.07.2000, Blaðsíða 42
42 LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ 2000 I DAG MORGUNBLAÐIÐ Kasparov og séra Kasparov SKÁK Pardubice, Tékklan di Opna Tékklandsmótið 13.-30. júlí 2000 MEÐAL þátttakenda á skákhá- tíðinni í Pardubice er alþjóðlegi meistarinn Sergei Kasparov frá Hvíta-Rússlandi. Flestir eru sammálu um, að hann sé alllíkur nafna sínum frá Bakú, Garry, sterkasta skákmanni heims. Þegar Sergei Kasparov kom til Pardubice fékk hann gistingu á stúdentaheimili 2 km frá skák- staðnum IDEON. Það er ekki í frásögur færandi nema hvað framkvæmdastjóri stúdentaheimilisins sem tók á móti honum var hissa á, að jafntiginn gestur skyldi stíga fæti í sínar vistarverur. Forviða talaði hann við mótshaldarana og sagði að þetta gengi ekki. Sjálfum Kasparov hefði verið holað niður á stúdentaheimili, en ekki kæmi annað til greina en að honum yrði boðin gisting á besta hóteli bæjarins! Ekki fer sögum af viðbrögð- um mótshaldaranna, en Kaspar- ov situr enn uppi með herbergi sitt á stúdentaheimilinu. Kasp- arov þessi hefur reyndar reynst Islendingum óþægur ljár í þúfu þar sem hann lagði Róbert Harðarson að velli í skákmótinu og var í fótboltaliðinu sem sló út annað íslenska liðið á knatt- spyrnumótinu! Þátttaka íslensku skákmann- anna á skákhátíðinni í Pardubice hefur reyndar vakið töluverða athygli, enda ekki á hverjum degi sem 14 íslendingar taka þátt í alþjóðlegu móti á erlendri grundu. Gengi skákmannanna hefur þó verið misjafnt. Hannes Hlífar er enn meðal efstu manna eftir jafntefli við rússneska alþjóðlega meistarann Vladimir Potkin (2420) í sjöundu umferð. Þeir Jón Viktor Gunnarsson og Stefán Kristjánsspn höfðu staðið sig best hinna Islending- anna, en þeir töpuðu báðir sín- um skákum í sjöundu umferð. Jón Viktor tapaði fyrir rúss- neska stórmeistaranum Nikolai Pushkov (2546) en Stefán tapaði fyrir þýska FIDE-meistaranum Bernd Rechel (2402). 12.-39. Hannes H. Stefánss. 5 v. 63.-116. Stefán Kristjánss. 4 v. 63.-116. Jón V. Gunnarss. 4 v. 117.-149. Róbert Harðars. .3‘/2 v. 248.-256. Einar K: Einarss. IV2 v. 248.-256. Sævar Bjarnason U/2 v. 262. Guðmundur Kjartanss. Vz v. Mikail Gurevich er sem fyrr efstur á mótinu og hefur unnið allar sínar skákir. í b-flokki er staða íslendinganna þessi eftir sjö umferðir: 84.-151. Halldór Halldórss. 4 v. 152.-216. Ólafur Kjartansson 3'A v. 217.-265. Stefán Bergsson. 3 v. 217.-265. Kjartan Guðmundss. 3 v. 266.-318. Dagur Arngrímss. 2'/2 v. 319.-340. Guðni Pétursson 2 v. Birgir Berndsen teflir í d-flokki mótsins og er í 122.- 159. sæti með 314 vinning. Eftir að hafa gert jafntefli í annarri umferð með hvítu tók Hannes Hlífar á sig rögg og tefldi skemmtilega sóknarskák í þeirri þriðju. Hvítt: Hannes Hlífar Stefáns- son Svart: Vlastimil Jandovsky Sikileyjarvörn 1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 d6 6. Bg5 e6 7. Dd2 a6 8. 0-0-0 Bd7 9. f3 Be7 10. h4 b5 Þetta afbrigði Sikileyjarvarn- ar ku heita Richter-Rauser, en Hannes hefur teflt það með góð- um árangri með svörtu. Venju- lega leikur svartur fyrr h7-h6 en í þessari skák ásamt því að stilla hróknum á b8 og skipta upp á d4. Hannes þekkir flesta króka og kima afbrigðisins þannig að honum varð ekki skotaskuld úr því að refsa svörtum fyrir óná- kvæmnina. 11. Rxc6! Bxc6 12. g4 h6 13. Be3 b4 14. Re2 Da5 15. Kbl e5 Kemur í veg fyrir að hvíti riddarinn hreiðri um sig á d4, en hann getur hoppað á annan góð- an reit! 16. Rg3! d5 17. Rf5 Bf8 18. Bh3! d4 19. g5! hxg5 Hið nærtæka 19...dxe3 var einnig slæmt sökum 20. Rd6+ Ke7 (20... Bxd6 21. Dxd6 og tjaldið fellur) 21. gxf6+ Kxf6 22. Dxe3 og hvítur hefur góða sókn. 20. hxg5 Rd7 Hvítur gerir nú út um skákina með snaggaralegum hætti. 21. Rxd4! exd4 22. Bxd7+ Bxd7 23. Hxh8 Be6 24. b3! og svartur gafst upp enda óverjandi mát eftir 24...dxe3 25. Dd6 Fimm valdir í ólympíuliðið Fimm skákmenn af sex hafa verið valdir í Ólympíusveit ís- lands: Hannes H. Stefánss. SM (2557) Helgi Ólafsson SM (2478) Þröstur Þórhallss. SM (2454) Jón G. Viðarss. FM (2369) Jón V. Gunnarss. AM (2368) Sjötti maður verður valinn að loknu Skákþingi íslands. Daði Örn Jónsson Helgi Áss Grétarsson VELVAKAJVDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til fóstudags Varginn í burtu KONA hafði samband við Velvakanda vegna skrifa um Tjömina í Reykjavík í Velvakanda fyrir stuttu. Hún vildi benda á það að í Hafnarfirði er lítil tjöm og þar eru bæði endur og gæsir. í sumar hefur ekki einn einasti ungi komist á legg, vegna vargsins sem bíður fyrir utan og étur alla ungana. Bæjaryfirvöld hafast ekkert að. Hana langar því til að varpa fram þeirri spumingu, hvort ekki séu til einhver ráð til þess að halda varginum í burtu. Ástandið í Afríku ÞAÐ hefur verið töluverð umræða undanfarið um ástandið í Afnku vegna al- næmis. Heilu þjóðflokk- amir em að deyja út. Það hefur hvergi verið talað eða ritað um það að sagn- fræðingar, mannfræðingar eða þjóðháttafræðingar hafi gert neina tilraun til þess að rannsaka og eða skrifa þeirra sögu, týna saman brotin af þeim sem em farnir, hvernig þeir lifðu og hvemig þeir bjuggu. Þama mætti bjarga miklum sögulegum staðreyndum og menning- arverðmætum. Bjarney K. Ólafsdóttir. Ósammála gagnrýni á Utangarðsmenn EG er rosalega ósammála gagnrýni á tónleika Utan- garðsmanna eftir Amar Eggert Thoroddsen, sem heitir Þjónað fyrir altari og birtist í Morgunblaðinu miðvikudaginn 26. júli sl. í gagnrýninni rakkar hann niður tónleikana. Mig lang- ar að spyrja hann hvort hann hafi verið á annarri plánetu? Tónleikamir vora hreint út sagt frábærir. Bubbi keyrði stanslaust í tvo tíma og hélt uppi því- líkri stemmningu. Amar virðist ekkert vita hvað hann var að gera, eina mai'kmið hans virðist hafa verið það, að rakka tónleik- ana nógu mikið niður. Það er erfitt fyrir hann að feta í fótspor Áma Matthíasson- ar, sem er alveg frábær gagnrýnandi. Það eina sem ég er sammála Amari um er að það hefði mátt sleppa púðurkerlingunum þegar lagið Hirosima var spilað. Hann talar einnig um mið- aldra fólk, en ég vil benda honum á að miðaldra er fólk eftir fimmtugt. Þama var saman komið fólk á öll- um aldri, sumt ekki fætt á blómaskeiði Utangarðs- manna og allir í rífandi stemmningu. Hreint út sagt frábærir tónleikar. Hjördís K. Einarsdóttir, Furubyggð 1, Mosf. Hækkun aldurs veg'na ökuprófs EG er einn af þeim sem er fylgjandi hækkun aldurs vegna ökuprófs í 18 ár. Það munar um hvert árið á þessum aldri. Það ætti að taka meira mark á öku- kennuram, sem leggja til hækkun, því þetta era menn sem þekkja til þess- ara mála. Björn Indriðason. Tapad/fundid Poki með bókum tapaðist PLASTPOKI frá verslun 10-11 með verðmætum bókum, tapaðist síðdegis þriðjudaginn 18. júlí sl. frá Rauðarárstíg að Breið- holti. Upplýsingar í síma 5579542. Tvær töskur merktar Face hurfu úr bfl DÖKKBLÁ ferðataska og grá áltaska, merkt Face, sem báðar innihalda förð- unarvörar, voru teknar úr drapplitaðri Nissan Sunny bifreið við Skúlagötu 2 að kvöldi miðvikudagsins 26. júlí sl. Þeir sem gætu gefið einhverjar upplýsingar, eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband í síma 696 0899 eða 699 8587. Fundarlaun. GSM-súni týndist Nokia 32210 með grárri framhlið í leðurhulstri týndist sl. laugardags- morgun á Egilsstöðum. Skilvís finnandi skili sím- anum til lögreglunnar á Egilsstöðum eða hafi sam- band í síma 552-7312. Göngustafur fannst GÖNGUSTAFUR fannst við Grensásveg mánudag- inn 24. júlí sl. Upplýsingar í síma 553 5711. Gleraugu fundust GLERAUGU í hulstri fundust miðvikudaginn 26. júlí sl. í strætisvagnaskýli við Framnesveg. Upplýs- ingar í síma 552 5337. Rautt hjól fannst NÝLEGT rautt unglingar- eiðhjól fannst í Vestur- bænum um miðjan júK. Upplýsingar í síma 897 3431. Hjól - tapað/fundið GRÆNT Mongoose kven- hjól fannst við Hátún í Reykjavík þriðjudaginn 25. júh' sl. Einnig hvarf flöskugrænt Mongoose drengjahjól frá gervigras- vehinum í Laugardal íyrir stuttu. Upplýsingar í síma 5530017. Dýrahald Páfagaukur í óskilum LÍTILL, grænn páfagauk- ur flaug inn um glugga í Garðabæ íyrir stuttu. Eig- andi er vinsamlegast beð- inn um að hafa samband í síma 565 8604. SK4K Umsjón Helgi Áss Grétarsson Svartur á leik. Staðan kom upp á milli stórmeistaranna Evgeny Bareev, (2702) hvitt, og Vladimir Akopjan á ofur- mótinu í Dortmund er lauk fyrir nokkru. Hvítur hafði fyrr í skákinni unnið skipta- mun og að lokum kom upp staða þar sem báðir aðilar höfðu þrjú peð á kóngs- væng, en peðastaða hvits var þó það óheppileg að liðs- munurinn nýttist engan veginn. Þrátt íyrir það átti hann ekki að vera i tap- hættu, en jafnvel ofurstór- meistarar eru breyskir eins og aðrir skákmenn og í stöð- unni nýtti svartur sér hræði- leg mistök hvits í síðasta leik er hann lék 67. De3-c5??. 67.. .Bxe4! Einfalt og ban- vænt. Svartur hótar máti á hl og þess vegna getur hvít- ur ekki tekið drottninguna á c7. Hvítur reyndi 68. Hxh5+ en eftir 68...Kg8 69. Hg2 Dd7! 70. Df2111 nauðsyn þar sem svartur hótaði máti með 70.. .Hhl+ 71. Kxhl Dh3+ 72. Kgl Dxg2. 70...Ddl! Og hvítur gafst upp enda vam- arlaus gagnvart hótunum svarts: 71. Hgl Dxh5 72. Hxbl Bxbl og svartur vinn- ur; 71. g4 Dhl+ 72. Kg3 Hb3+ og svartur vinnur. Nú erum við í svört- ustu Afríku. Víkveiji skrifar... VÍKVERJI átti erindi norðiu- í land hér á dögunum og fór ak- andi í sínum einkabíl. Þetta er í sjálfu sér ekld í frásögur færandi nema að í þessari ferð upplifði Víkverji þá lífs- hættu, sem akandi vegfarendum er búin á þjóðvegum landsins. Verður ekki farið út í nánari atvikalýsingu, en hvað eftir annað varð Víkverji vitni að kæruleysislegum og ótíma- bærum framúrakstri, vítaverðum hraðakstri og tillitsleysi ökumanna og þjösnaskap. Þama sáust bílar á yf- ir hundrað kílómetra hraða, jafnvel með tjaldvagna í eftirdragi og í mörg- um tilvikum virtust ökumenn ekkert tillit taka til aðstæðna í framúrakstri. Hvað er það í lundarfari íslendinga sem gerir það að verkum að annars dagfarsprútt fólk breytist í froðufell- andi villidýr þegar það sest undir stýri? Hverju breytir það í sjálfu sér hvort menn koma klukkutímanum fyrr eða seinna til Akureyrar? Ef menn eiga þangað brýnt erindi á ákveðnum tíma er þá ekki einfaldast að gefa sér þann tíma sem þarf og leggja fyrr af stað, í stað þess að stofna lífi sínu og annarra í stór- hættu? X X X IÁGÆTRI fréttaskýringu Morg- unblaðsins síðastliðinn miðviku- dag, sem ber yfirskriftina ,Agaleysi ökumanna mikill áhrifavaldur", segir meðal annars að fimmtán manns hafi beðið bana í umferðinni á vegum landsins það sem af er árinu og svo virðist sem alvarlegum umferðarslys- um fari fjölgandi. Víkverja kemur það ekki á óvart í ljósi þess sem hann varð vitni að í umræddri ökuferð norður yfir heiðar. Haft er eftir Sigurði Helgasyni, upplýsingafulltrúa Umferðarráðs, að öll gögn sýni að hraðakstur hafi auk- ist á þjóðvegum landsins. Hann segir Ijóst að minnki ekki þessi hraðakstur batni ástandið heldur ekki. „Hér er um að ræða val fólksins í landinu. Ef það velur að draga úr hraðanum mun slysum fækka, en ef þjóðin ætlar að halda sínu striki verður hún líka að horfast í augu við raunveruleikann," segir Sigurður og bendir jafnframt á að hraðakstur íslenskra ökumanna sé í engu samræmi við ástand vega og hámarkshraði ekki virtur. „Ef okkur tekst það eitt að fá fólk til að virða hámarkshraðann er mikill sigur unn- inn,“ segir Sigurður. í umræddri fréttaskýringu Morg- unblaðsins er ennfremur vitnað í orð Gunnars Felixsonar, varaformanns Sambands íslenskra tryggingafélaga, þess efnis að agaleysi íslendinga komi vel fram í umferðinni og að streita og óþolinmæði hafi sínar af- leiðingar þegar út í umferðina er komið. Sigurður Guðmundsson land- læknir velti því upp á ráðstefnu um bætta umferðarmenningu í vor, hvort íslenskir ökumenn væru ökufantar? Víkveiji telur engan vafa leika á því, og þeir eru ekki bara ökufantar held- ur miklu fremur ökuníðingar. VÍKVERJI vill ljúka þessari um- fjöllun um _ ófremdarástand í umferðarmálum Islendinga með því að vitna í orð Sverris Hermannssonar alþingismanns í grein sem hann skrifaði nýlega í Morgunblaðið undir yfirskriftinni „Vargöld á vegum“, en þar segir Sverrir meðal annars: „Það er ekki að undra þótt gætnum ökumönnum blöskri að vera gert að borga brúsann í stórhækkuðum tryggingagjöldum vegna ólöglegs glannaaksturs vitfiirtra ökuníðinga. Fullkomnar upplýsingar liggja fyrir um hveijir eru helstu tjónvaldar. Tryggingafélög hljóta að taka til at- hugunar að gera þeim aldurshópum, sem mestu tjóni valda, að greiða hærri iðgjöld. Þetta er tíðkað erlend- is. Til dæmis greiða konur í Þýska- landi lægri iðgjöld en karlar, enda valda þær minna tjóni að meðaltali. Hér tjóir hvorki nauð né nú heldur einörð krafa til yfirvalda um skjót viðbrögð viðhlítandi. Þá lágmarks- kröfu hlýtur þegninn þó að eiga að landslögum sé framfylgt, enda á hann líf og limi undir að svo verði gert. Það ríkir vargöld á íslenskum vegum, þar sem ökumenn virða lög og rétt að vettugi og valda sjálfum sér og sak- lausu fólki óbætanlegum skaða.“ Framundan er mesta ferða- og um- ferðarhelgi ársins. Víkveiji skorar á íslenska ökumenn, hvem og einn, að líta í eigin barm um leið og þeir setj- ast undir stýri og aka út á þjóðvegina. Líta síðan á hraðamælinn og spyrja sig þeirrar samviskuspurningar, hvort þeim liggi í raun svona lífið á?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.