Morgunblaðið - 29.07.2000, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 29.07.2000, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ 2000 35 sagðir: „Ég held þetta sé gimbrin sem ég var að gæla við í vetur.“ Síðan gekkst þú áfram hálfboginn og talaðir í gælandi tón, og hið ótrúlega gerðist að tvævetlan kom til þín. Oft gengum við saman um móana og leituðum að fuglshreiðr- um og þú sagðir mér heiti þeirra og háttalag. Pú kenndir mér að brýna og slá með orfi og ljá og að ekki mætti slá álagabletti, vera með ólæti eða henda steinum í ná- grenni huldufólksins við Kvíaklett- ana. Þú varst friðarstillir þegar kast- aðist í kekki hjá okkar strákunum sem vorum í sveit hjá þér. Þú skammaðist aldrei en sagðir hlut- ina með þeim hætti að við tókum mark á þér og virtum það sem þú sagðir. Mér fannst þú alltaf vera að vinna og ég fylgdi þér hvert sem þú fórst fyrsta sumarið. Þú horfðir ekki mikið á sjónvarpið en hafðir gaman af íþróttum. Einhverju sinni vorum við að horfa á knattspyrnuleik og ég spurði þig með hvaða liði þú héldir. „Ég held með því liði sem leikur drengilega," svaraðir þú. Þú hugg- aðir mig og róaðir þegar strákarn- ir sem voru eldri vildu ekki hafa mig með í fótboltanum. Eða þegar strákarnir sátu og horfðu á kú- rekamynd og ég átti að sækja kýrnar og fannst það ósanngjarnt. Þá sagir þú að ég þyrfti ekki að horfa á myndina, því að ég væri alvöru kúreki. Þannig gast þú ætíð komið með skýringar sem róuðu litla snáðann sem leit svo upp til þín og dáði þig. Ég vildi alltaf sitja við hliðina á þér við matborðið. Borðaði jafnvel súrt slátur, þótt mér fyndist það vont, bara af því að afi gerði það. Mér fannst ég alltaf kominn heim þegar ég sá niður í Bjarnar- fjörðinn á leiðinni norður. Þú varst mjög skipulagður og alltaf að skrifa eitthvað hjá þér. En stundum leyfðir þú þér að fara í fótbolta með okkur strákunum og varst fljótur og snöggur. Ég man að ég beið alltaf eftir því að þú værir búinn að lesa Tímann svo að ég gæti kíkt á teiknimyndasögurn- ar. Ekki datt mér í hug að taka blaðið og lesa það á undan þér. Ég þakka þér fyrir allar skemmtilegu stundirnar í þessu lífi og vona að við hittumst í því næsta. Ég þakka öll skemmtilegu bréfin sem þú skrifaðir mér og fallegu vísurnar til mín sem ég mun geyma vel. Ég bið Guð að vernda þig og ömmu. Þinn afastrákur, Ingimundiir (Mundi). Ég vil með nokkrum orðum minnast frænda míns og velgjörð- armanns Ingimundar Ingimundar- sonar frá Svanshóli sem við kveðj- um nú í dag. Þegar ég var sjö eða átta ára var ég svo lánsamur að vera sendur í sveit á Svanshóli í Bjarnarfirði til Munda og Ingu og þar dvaldi ég síðan öll sumur til fjórtán ára ald- urs. Eftir því sem árin líða verður mér æ ljósara hvað þessi tími hafði jákvæð mótandi áhrif á mig og gerði mér mikið gott. Viðmótið var frá upphafi mótað hlýju og maður fann að hér var maður velkominn. Öll sumur fyllt- ust herbergin á Hóli af krökkum sem voru komin í sveitina til Ingu og Munda. Sum dvöldu allt sumar- ið, önnur voru styttra, en allir vel- komnir. Við, börn Jóa og Soffíu á Hólmavík, fengum öll að njóta þessa og verður það seint fullþakk- að. I minningunni finnst mér að það hafi alltaf verið gaman í sveitinni, enda mannmargt í Bjarnarfirði í þá daga. Auk sveitastarfanna minnist ég sérstaklega íþróttaæf- inga og móta en Mundi var mikill áhugamaður um íþróttir. Öll mögu- leg tæki og aðstaða til íþrótta var fyrir hendi. Þá var einnig mikið lesið á Hóli, enda var þar gott safn bóka sem gaman var að grúska í. Skiptist tíminn hæfilega á milli skyldustarfa og tómstunda og þannig vandist unga fólkið því að standa sig í vinnu og jafnframt að styrkja líkama og sál. Þannig var ekki hægt að hugsa sér betri hús- bónda en Munda á Hóli, hann stjórnaði þannig að maður varð nánast ekki var við og kom fram við okkur krakkana á sinn ljúf- mannlega hátt. Þannig ávann hann sér ævilanga virðingu mína og án efa allra þeirra sem hófu sinn starfsferil sem kúarektorar á Svanshóli. Ekki ætla ég að reyna að telja upp öll þau trúnaðarstörf og fé- lagsstörf sem Ingimundur gegndi, en þau voru margvísleg og tengd- ust m.a. íþróttum, samvinnuhreyf- ingunni og stjórnmálum. Vegna þessara starfa var jafnan gest- kvæmt á Svanshóli og oft líf og fjör og gaman að fylgjast með umræð- unum í eldhúsinu hjá Ingu. Þegar ég hugsa til Ingimundar á Svanshóli verður mér efst í huga þakklæti og virðing. Þakklæti fyrir allt sem hann og Inga hafa gert fyrir mig og virðing fyrir þeim mannvini og hugsjónamanni sem ég tel að Ingimundur hafi verið. Elsku Inga, ég votta þér, strák- unum og fjölskyldum þeirra mína dýpstu samúð. Þorkell Jóhannsson. Að bindast vináttuböndum er fjársjóður sem manni hlotnast bestur og verður dýrmætari með hverju ári sem líður. Þann fjársjóð eignuðumst við hjónin þegar við komum fyrsta sinni í Strandasýslu og kynntumst ábúendum á Svans- hóli í Bjarnafirði, þeim Ingibjörgu Sigvaldadóttur og Ingimundi Ingi- mundarsyni. Við fyrstu kynni var okkur ókunnugum tekið með hlýju og gestrisni og í rúma fjóra ára- tugi höfum við notið vináttu þeirra. Enginn fer frá þeim kynnum nema betri maður. Samfundir okkar við Svanshóls- hjónin hafa tímalega ekki verið langir en hver einasti gefið okkur verðmæti sem hvorki mölur né ryð fá grandað. Þau hafa miðlað okkur fróðleik um náttúru landsins og kosti Strandasýslu, um fólkið sem þar hefur hefur búið, atvinnuhætti og framtíðarsýn og síðast en ekki síst ábendingar um fróðleik við lestur góðra bóka. Miklar breytingar hafa orðið á búsetu í Bjarnafirði síðustu fjóra áratugi, en þegar við komum þar fyrst var sem næst búið á öllum jörðum í Kaldrananeshreppi og var Ingimundur þar hreppstjóri til fjölda ára. Sveitin var fjölmenn og á hverjum bæ mannvænleg börn en vegna breyttra búskaparhátta hefur lögbýlum fækkað og margt af yngra fólkinu sótt þangað sem atvinna og möguleikar til mennt- unar eru meiri. Sveitungar Ingu og Ingimundar hafa verið hluti af lífi þeirra og starfi og kveðja þeir nú forystu- mann sinn til langs tíma. Vinsemd- ar sveitunganna höfum við einnig notið og sendum við þeim og niðj- um Svanshólshjónanna samúðar- kveðjur. Ingu á Hóli sendum við kveðju með ljóði Jónasar Hallgrímssonar „Ferðalok": Háa skilur hnetti himingeimur, blað skilur bakka og egg; en anda, sem unnast, fær aldregi eilífð að skilið. Inga Ingibjörg Guðmundsdóttir, Gunnlaugur Pálsson. GARÐHEIMAR BLÓMABÚD • STEKKJARBAKKA 6 SÍMI 540 3320 Sérfræðingar í blómaskreytinguni við öll tækifæri Skólavörðustíg 12, á horni Bergstaðastrætis, sínii 551 9090. Vesturhlíð 2 Fossvogi Sfmi 551 1266 www.utfor.is Wá ¥ Þegar andlát ber að höndum Önnumst alia þætti útfararinnar. Við Útfararstofu kirkjugarð- anna starfa nú 14 manns með áratuga reynslu við útfaraþjónustu. Stærsta útfararþjónusta landsins með þjónustu allan sólarhringinn. Prestur Kistulagning Kirkja Legstaður Kistur og krossar Sálmaskrá Val á tónlistafólki Kistuskreytingar Dánarvottorð Erfidrykkja UTFARARSTOFA KIRKJUGARÐANNA EHF. ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Sjáum um alla þá þætti sem hafa ber í huga er andlát verður Útfararstjórar okkar búa yfir áratuga reynslu af störfum við útfararþjónustu. Sjáum um útfarir á allri landsbyggðinni. Sverrir Einarssoti Sverrir mi a útfararstjóri, wMhzfÆ Olsen V li ÍP sími 896 8242 V.A MB útfararstjóri. Baldur Frederikseti útfararstjóri, sími 895 9199 Útfararstofa íslands, Suðurhlíð 35, Fossvogi. Sími 581 3300. Þjónusta allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is t Faðir okkar, tengdafaðir, bróðir, afi og langafi, BJARNI G. TÓMASSON, lést á heimili sínu fimmtudaginn 27. júlí. Elísabet Bjarnadóttir, Þór Tómas Bjarnason, Svanhvít Bjarnadóttir, Fjóla Bjarnadóttir, Bjarni Stefán Bjarnason, Sigurður Bjarnason, Fjóla Tómasdóttir, barnabörn og Svanhvít Stefánsdóttir, Hallgrímur P. Helgason, Svanur Ólafsson, Kristrún Ásgeirsdóttir, barnabarnabörn. t Ástkær eiginmaður minn, faðir og sonur, SIGURÐUR RAGNAR GUNNLAUGSSON, lést á Landspítalanum fimmtudaginn 27. júlí. Jóhanna Kristín Tómasdóttir, Unnur Svava Sigurðardóttir, Sigríður L. Sigurðardóttir. t Ástkær móðir mín, RAGNA ÍVARSDÓTTIR, andaðist á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund aðfaranótt fimmtudagsins 20. júlí. Útförin ferfram frá Fossvogskapellu mánudaginn 31. júlí kl. 13.30. Oddur Sigurðsson. t Elskuleg eiginkona mín, dóttir, móðir, tengda- móðir og amma, GYÐA ÞORSTEINSDÓTTIR, Smárahvammi 2, Hafnarfirði, (áður Grenigrund 6, Kópavogi), lést á Landsspítalanum aðfararnótt 28. júlí. Guðmundur Árni Bjarnason, Guðríður Guðbrandsdóttir, Þorsteinn Guðmundsson, Unnur Jónsdóttir, Júlíana Ósk Guðmundsdóttir, Ólafur Björn Heimisson, Guðmunda Gyða Guðmundsdóttir, Gylfi Bergmann Heimisson, og barnabörn. Elskuleg dóttir mín, systir okkar og mágkona Lilja Árnadóttir frá Hæringsstöðum, síðast til heimilis í Dvergagili 40, Akureyri, verður jarðsungin frá Urðakirkju, Svarfaðardal, þriðjudaginn 1. ágúst kl. 13.30. Bergþóra Stefánsdóttir, Sigurllna Árnadóttir, Áslaug Eva Árnadóttir, Stefán Árnason, Sigurbjörg Árnadótti,r Jón Árnason Óskar Árnason, Kristján B. Árnason, Ósk Jórunn Árnadóttir, Sveinn Árnason, Páll Sveinsson, Hafsteinn Vilhjálmsson, Sólveig Bragadóttir, Jouko T. Parviainen, Þórdís Guðmundsdóttir, Ásdís Jónasdóttir, Margrét Stefánsdóttir, Guðmundur H. Jónsson, Margrét Guðmundsdóttir. t HAUKUR BALDVINSSON, Hvolsvegi 16, Hvolsvelli, verður jarðsunginn frá Kotstrandarkirkju þriðjudaginn 1. ágúst kl. 14.00. Blóm og kransar afþakkaðir. Þeim, sem vilja minnast hins iátna, er bent á Sjúkrahús Suðurlands. Aðstandendur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.