Morgunblaðið - 29.07.2000, Blaðsíða 40
40 LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Hundalíf
Ljóska
HVENÆR KOMSTU < HVENÆR HELDyRÐU Aö
EI6INLE6A HEIM í E6HAFI
NÓIT, ALEXANDER A HlfíXÆ KOMIf)
HEIM?
KOMSTU SEINNA
HEIM ENRÚÁT7IR
VORUÖPIt)
VAKANDI
ÞE6AR
E6 KOM
AFHVERJU SVARARÖU
HVERRISPURNIN6U
ME6 ANNARRI
SPURNIN6U?
7 ”
______ iT
Þakka þér fyrir Það var ekkert. Það held ég ekki. Mér finnst
súkkulaðiísinn, Kannski getura við þú ekkert skemmtilegur.
Lilli. gert þetta einhvem
tíma aftur
Aumingja ég.
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Oskabarn
þjóðarinnar -
flugrekstrarsvið
Frá Sveini Guðmundssyni:
EKKI ER ein báran stök yfír Atl-
antshafsála. Ég verð að deila lítilli
ferðasögu með ykkur, gott fólk.
Dóttir mín var að koma heim ný-
lega, hinn 26. júh', ásamt eiginmann-
inum og fjórum ungum börnum, hið
yngsta er rúmlega þriggja mánaða
gamalt. Ferðin hófst í Tókíó í Japan.
Var flogið beint til Amsterdam, en
það hlýtur að hafa tekið eina tíu
tíma. Þá var hoppað beint til Lon-
don og eftir fjögurra tima bið var
fólki og farangri komið fyrir í flug-
vél Flugleiða. Skyldi halda til Is-
lands.
Gekk þetta með eðlilegum erfið-
leikum allt til þessa, en er hefja
skyldi flugið ofreyndist einhver
tæknibúnaður, ljósin fóru af vélinni í
einar fímm mínútur. Var þá byrjað
að tilkynna að gera þyrfti við bilun-
ina. Eftir þriggja tima bið farþega í
flugvélinni, en þá hefði hún átt að
vera lent í Keflavík, virðist sem þeir
frammí hafi verið búnir að sinna
vinnuskyldu og tilkynntu þeir að
finna þyrfti aðra flugvél. Voru far-
þegamir sendii- til baka inn á enska
grundu, aðkomusal, látnir taka sinn
farangur af bandinu og bíða í von og
óvon eftir öðru flugi. Ekki lá á ljósu
hvenær það yrði, en augljóst mátti
vera og þótt fyrr væri að ekki beið
varavél á hlaðinu í Lundúnum.
Lítið heyrðist frá hásetunum,
flugþjónustufólkinu. Fólkið hefur
verið umboðslaust til afreka og lítið
vitað. Mér skilst, að einu sinni hafi
sést til þeirra þríborða og fjórborða
flugliða, sem stungu saman nefjum
sín á milli, eins og hásetamir sín á
milli. Síðan hurfu þeir á braut, vænt-
anlega til hótela sinna. - Samkvæmt
alþjóðlegum góðum siðum fari jú
skipstjórinn fyrstur frá borði og láti
farþegana og áhöfnina bjarga sér. -
Um hótel eða almennilegan góðan
gjörning fyrir lýðinn var ekki að
ræða. Hirðist hann í aðkomusal og
síðar brottfararsal Heathrow fram
til tíu eða ellefu næsta morguns, en
þá mátti innrita mann, mús og far-
angur að nýju. Ekki gátu ferðafröm-
uðimir einu sinni séð um farangur,
sem hafði þó verið borðalagður með
miða og merki KEF/REK. Lítið,
raunar ekkert, mun hafa verið um
lúxusfæði í vélinni á leið yfir Norð-
ur-Atlantshafið, en hún kom loks til
ísalands dálítið eftir „lunehtime"
eða nokkrn eftir hádegisverðartíma.
Ég les í Morgunblaðinu núna, að
tekist hafi að útvega eitthvað að
snæða á flugvellinum, en ekki náðist
að láta mína sex manna fjölskyldu
vita af þvi. Ekki tókst að koma kosti
í vél fyrir tíu að morgni eða gefa
fólkinu jarðbundinn morgunverð á
vegum félagsins. Já, glæsilegt var
það. Má ég þó segja, að ég hefi jafn-
an fengið þetta miklum betra frá
Flugleiðum um árin. Það þarf ekki
að kjassa minnsta barnabarnið mitt,
hvorki í flugvél eða á flugvelli, en ég
verð úrillur þegar mér og mínum er
misboðið.
Allt þetta framtaksleysi og hand-
vömm skrifast hjá mér á stjóm, eig-
endur og yfirmenn flugfélagsins.
Þeir hafa ekkert lært á hremming-
um fyrr í mánuðinum. Afsaka mætti
ef til vill eitthvað á Spáni, þar sem
ekkert starfslið kann að vera, en í
London þar sem flogið er tvisvar á
dag, ef ekki oftar, er þetta óafsakan-
legt og fyrir neðan allar hellur.
Já, mér er misboðið og vil ég láta
þjóðina vita, enda þótt dóttir mín
vilji láta allt þetta yfir sig ganga án
þess að láta á sér bera. Skrifin eru á
mína ábyrgð og í óþökk hennar.
Þetta óska- eða allt að því einka-
barn þjóðarinnar í farþegaflugi get-
ið af dugnaðarfokum tveimur, sem
gengu í hjónaband undir nafninu
Flugleiðir, hefur nú verið ættleitt af
fjárspekúlöntum er kunna ekki ein-
asta einföldustu mannasiði i flug-
rekstri.
SVEINN GUÐMUNDSSON
verkfr.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskiiur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
C' {p^ > GLÆSILEGAR GJAFAVÖRUR
slÉSraSl |
IHB® KETILL
OTTO pöntunarlistinn ^Laugalækur 4 • S: 588-1980^ MÖRKINNI 3 • SÍMI 588 0640 —