Morgunblaðið - 29.07.2000, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 29.07.2000, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ I DAG LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ 2000 43 BRIDS llmsjón Guömnndur 1‘áll Amarson BIKARLEIKUR Spari- sjóðs Keflavíkur og Sam- vinnuferða/Landsýnar fór fram í félagsheimili brids- spilara á Suðurnesjum, Mánagrund, í síðustu viku og var jafn og spennandi. Pyrir síðustu lotuna áttu Samvinnuferðir sex IMPa til góða, en Suðurnesjamenn tóku málin í sínar hendur í síðustu lotunni og unnu með 16 IMPa mun. Þetta spil skóp stærstu sveifluna: Suður gefur; NS á hættu. Norður * G876 v - * Á108 * KDG952 Vestur Austur A Á92 * 4 * ÁKD109853 v G742 ♦ 4 ♦ G652 * 6 + 10753 Suður * KD1093 v 6 * KD973 * Á8 I opna salnum voru liðs- menn Sparisjóðsins, þeir Jó- hannes Sigurðsson og Karl G. Karlsson í AV, gegn Þor- láki Jónssyni og Guðm. P. Arnarsyni. Sagnir gengu: Vestur Norður Austur Suður Jóhannes Þorlákur Karl Guðm. 1 spaði 4 hjörtu 5 hjörtu* 6 hjörtu 6spaðar Pass Pass 7 hjörtu Dobl Pass Pass Pass Sex spaðar vinnast auð- veldlega, svo fórn Karls í sjö hjörtu var vel heppnuð og kostaði aðeins 300 fyrir tvo niður. f lokaða salnum var meiri þoka í sögnum og þar völdu AV að verjast í hálf- slemmu. NS voru Arnór Ragnarsson og Kari Her- mannsson, en AV Helgi Jó- hannsson og Guðm. Sv. Her- mannsson: Vestur Norður Austur Suður Helgi Arnór Guðm. Karl 1 spaði 4 hjörtu 6spaðar Pass Pass Pass Eftir sömu byrjun og á hinu borðinu velur Arnór að stökkva beint í slemmu við fjórum hjörtum. Guðmund- ur hefði auðvitað getað fórn- að þar og þá, en Helgi átti eftir að tjá sig og hann gat hæglega setið með 2 varnar- slagi og því passaði Guð- mundur. Helgi hafði vissu fyrir einum slag og von um annan, en sú von reyndist tál eitt. 1430 í NS og 14 IMPar til Suðurnesjamanna. Dýrt spil, en munaði þó ekki leiknum. MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira les- endum sínum að kostnaðarlausu. Til- kynningar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnu- dagsblað. Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja afmælistilkynn- ingum og/eða nafn ábyrgðarmanns og símanúmer. Fólk get- ur hringt í síma 569- 1100, sent í bréfsíma 569-1329, eða sent á netfangið ritstj @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa: Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1,103 Reylq'avík Arnað heilla HA ÁRA afmæli. Nk. I U mánudag, 31. júlí, verður sjötugur Snorri Þor- steinsson, forstöðumaður Skólaskrifstofu Vestur- lands. Af því tilefni taka hann og kona hans á móti gestum í héraðsheimilinu Þinghamri á Varmalandi á morgun, sunnudag 30. júlí, kl. 17-21. Ljósm.st Mynd, Hafnarf. BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 1. júlí sl. í Kapellu St. Jósefsspítala af sr. Báru Friðriksdóttur Magdalena Ásgeirsdóttir og Ragnar Hilmarsson. Heimili þeirra er í Miðstræti 4, Reykjavík. Hlutavelta Morgunblaðið/Kristinn Þessar duglegu stúlkur söfnuðu með tombólu 1.838 kr. til styrktar Rauða krossi íslands. Þær heita Áshildur María Guðbrandsdóttir, Súsanna Helgadóttir og Svava Helgadóttir. Með morgunkaffinu Ég er þvottavélar- viðgerðarmaðurinn. Afsakið, en mér seink- aði svolítið. Farðu þér hægt, ég fann eggjabakka. UOÐABROT STÖKUR Inni’ á landi og út við sjó allar raddir þegja. Þó er eins og þessi ró þurfi margt að segja. Grænum halla blöðum brátt blómin valla fögur. Yfir fjalla herðum hátt hangir mjalla kögur. Litla sóley, lyft þér nú í Ijós og hlýja daga, enginn gaf mér eins og þú ást á sumarhaga. Aldrei kveldar, ekkert húm, eilíf sýn til stranda, enginn tími, ekkert rúm, allar klukkur standa. Sendið hingað sólskin inn, sumardagar ljósir, vetur gróf á gluggann minn, gráar hélurósir. Friðrik Hansen. STJÍÍI5.MJSI*A eftir Frances Ilrakc LJON Afmælisbam dagsins: Þér hættir til að láta tilfinning- arnar hlaupa með þig í gön- ur og átt þvístundum undir höggaðsækja þess vegna. Hrútur (21. mars -19. apríl) Það er margt á döfinni hjá þér, bæði í einkalífi og á vinnustað. Láttu ekki hrær- ingarnar koma þér úr jafn- vægi; þér ríður framar öllu á að halda sönsum. Naut (20. apríl - 20. maí) Umhyggju þinni fyrir þínum nánustu er viðbrugðið. Láttu samt ekki misnota hana, held- ur hafðu sjálfur þá stjóm á hlutunum sem þú vilt hafa. Tvíburar t (21. maí - 20. júní) M Þú þarft að finna tjáningar- þörf þinni útrás með einhverj- um hætti. Einbeittu þér að því, annars áttu á hættu að staðna og stífna í hvívetna. Krabbi (21. júní - 22. júlí) Þú verður að setjast niður og fara í gegn um málin, gera þér grein fyrir mikilvægi þeirra og raða þeim í forgangsröð. Þetta myndi létta þér lífið. Ljón (23. júlí - 22. ágúst) Þótt allt leiki í lyndi skaltu hafa það bak við eyrað, hversu fallvalt lánið getur verið. Það er hyggilegt að búast við breytíngum þótt engar verði. Mem -j; (23. ágúst - 22. sept.) <mL Það muna reyna á samböndin í fjölskyldunni og þú mátt hafa þig allan við til þess að halda fólkinu saman. En þol- inmæði þrautir vinnur allar. (23. sept. - 22. okt.) Þú þarft að huga að starfs- frama þínum. Það eru miklar breytingar að verða og þú þarft að standa fast á þínu svo hlutur þinn verði ekki borinn fyrir borð. Sþorðdreki ^ (23. okt. - 21. nóv.) Mk Þú hefur lengi verið í vand- ræðum með ákveðin mál, en nærð nú tökum á þeim og tekst að snúa þróuninni þér í hag. En þetta á eftir að kosta sitt. Bogmaður m ^ (22. nóv. - 21. des.) ifcO Það er ekki víst að þú sért tíl- búinn til að viðurkenna það, hvernig málum þínum er komið. En þú verður að líta í eiginn barm, aðrir bjarga þér ekki. Steingeit (22. des. -19. janúar) Það er eitthvað sem rekur á eftir þér að fara ótroðnar slóð- ir.Láttu athugasemdir ann- arra sem vind um eyru þjóta; þú ert á réttri leið. Vatnsberi . (20. jan. -18. febr.) Lífö Það er ýmislegt að gerast sem hefur áhrif á skoðanir þínar á mönnum og málefnum. Það er allt í lagi að skipta um skoðun, ef ástæðan er traust. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Láttu vera að monta þig af því að aðrir leiti til þín með vandamál sín. Slíkt á að hafa hjá sér annars missir þú allt traust og trúnaðurinn hverf- ur. Stjörnuspúna á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. FRETTIR Dagskrá þjóð- garðsins á Þingvöllum UM HELGINA verður boðið upp á dagskrá á Þingvöllum. I fréttatilkynningu segir: „Farið verður um fornar slóðir troðnar af kynslóðum sem áður fyrr áttu er- indi milli bæja á hrauninu. Þær mörkuðu spor sín í hraunklappir og mosaþúfur og skildu eftir sig fjölda ömefna sem enn þekkjast mörg hver þó ýmis hafi fallið 1 gleymsk- unnar dá þegar búskapur lagðist af og smalasveinar þurftu þeirra ekki lengur við til að átta sig. í dag, laugardag, verður um þriggja klukkustunda gönguferð frá Hrauntúni að Lambagjá. Lagt verður af stað kl. 13. Á sama tíma hefst barnastund í Furulundi. Sunnudaginn 30. júlí verður gönguferð um Skógarkot og Öl- kofradal kl. 13. Kl. 14 verður guðs- þjónusta í Þingvallakirkju og að henni lokinni, kl.15, verður svoköll- uð þinghelgarganga þar sem gengið verður um þingstaðinn í fylgd stað- arhaldara í um eina klukkustund. Þátttaka í dagskrá þjóðgarðsins er ókeypis og öllum opin. Allar nánari upplýsingar veita landverðir í þjónustumiðstöð þjóð- garðsins. Markaður í Skagafirði MARKAÐUR verður haldinn í risa- tjaldinu í Lónkoti í Skagafirði sunnu- daginn 30. júlí. Markaðurinn er op- inn gestum frá klukkan 13 til 18, en sölufólk hefur tímann frá kl. 10 til 13 til að koma sér fyrir. Markaðir í Lón- koti eru haldnir árlega síðustu sunnudagana í júní, júlí og ágúst. Hægt er að panta söluborð hjá Ferðaþjónustunni Lónkoti. Ættarmót ÆTTARMÓT niðja Sigfúsar Axfjörð og Kristínar Jakobsdóttur á Krónustöðum í Eyjafirði verður haldið að Laugaborg í Eyjafirði í dag, laugardaginn 29. júlí. Skráning hefstkl. 10:00. Vitni óskast FIMMTUDAGINN 27. júlí sl. var ekið á vinstri framhurð bifreiðarinn- ar RE-844 sem er Hyundai fólks- bifreið dökkblá að lit. Bifreiðin stóð á bifreiðastæði í Mjódd austan við hús nr. 6 við Þönglabakka. Þeir sem geta gefið upplýsingar um árekstur- inn vinsamlegast hafi samband við umferðardeild lögreglunnar í Reykjavík. Hestadagur í Arbæjarsafni DAGSKRÁ tengd þarfasta þjóninum verður sunnudaginn 30. júlí á Árbæj- arsafni. Áður íyrr var Árbær vinsæll án- ingastaður ferðalanga á leið til og frá Reykjavík. Á sunnudaginn verður póstlest á ferð um safnið með pakka og bréf til íbúa húsanna í safninu milli klukkan 13 og 14. Húsfreyjan í Árbæ mun bjóða ferðalöngum og öðrum gestum upp á lummur. Messa verður í safnkirkjunni frá Silfrastöðum kl. 14, prestur er séra Kristinn Ágúst Friðfinnsson og organisti Sigrún Steingrímsdóttir. Á milli klukkan 13 og 16 verður hestvagn á ferð um safnsvæðið og geta yngstu gestimir fengið að ferðast með vagninum. Einnig verður hefðbundin dag- skrá, handverksfólk verður við störf í húsunum, skepnur bíta gras í haga og við Komhúsið era leikföng fyrir börnin. í Dillonshúsi er boðið upp á Ijúffengar veitingar. Frost o g funi NÆSTI fyrirlestur á jöklasýning- unni á Höfn verður næstkomandi mánudagskvöld, 31. júlí, en þá flytur Aiá Trausti Guðmundsson fyrirlestur sinn sem fresta þurfti í síðustu viku. Fyrirlesturinn nefnist Frost og funi og fjallar hann um eldvirkni í Vatna- jökli á nútíma. Sagt verður frá eld- stöðvakerfunum undir ísnum, þ.á m. virkasta eldstöðvakerfi landsins, Grímsvötnum, sem er um leið eitt öfl- ugasta háhitasvæði heims. Sagt er frá Kverkfjöllum, Bárðar- bungu og fleiri eldstöðvum. Áhersla er lögð á að rekja eldgosasögu sl. 1.000 ára og fjallað sérstaklega um síðustu gosin, s.s. Grímsvatnagosin 1934,1983 og 1998 og eldgosin norð- an við Grímsvötn 1938 og 1996. Rakin verður ferð sem farin var til þess að komast á goseyjuna, tind Gjálpareld- stöðvarinnar, rétt fyrir Skeiðarár- hlaupið 1996. Að lokum verður sagt frá ýmsum eldfjallaathugunum sem íslenskir vís- indamenn stunda á Vatnajökli og velt upp hugmyndum um framtíð eldvir- kninnar í Vatnajökli. Ari Trausti er jarðeðlisfræðingur að mennt, kunnur fjallgöngumaður og hefur ritað bæk- ur m.a. um Vatnajökul og fjallgöngur. Jöklasýningin er haldin í samvinnu við Reykjavík - menningarborg Evrópu árið 2000. Fyrirlesturinn er í bíósal Sindra- bæjar og hefst kl. 20. LEIÐRÉTT Rangt föðurnafn í Morgunblaðinu í gær var rang- feðraður Páll H. Hannesson. Hann var sagður Einarsson. Beðist er vel- virðingar á mistökunum. AMERISKAR BILSKURSHURÐIR taldar með öruggustu hurðinn á markaðnum Hagstætt verð Hurðaver ehf., Smiðjuvegi 4D, símar 577 4300 og 895 6570 STAYYOUNG ANDLITSLYFTING SÝNILEGUR ÁRANGUR STRAX! ¥ Sléttir og stinnir húðina ¥ Húðin verður mýkri og þéttari ¥ Lagar bjúg í andliti ¥ Eyðir augnpokum ¥ Áferðarfallegri og unglegri húð SNYRTISTOFAN SAFÍR ÁLFHEIMUM 6 UPPLÝSINGAR og TÍMAPANTANIR í SÍMA 533 3100

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.