Morgunblaðið - 29.07.2000, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 29.07.2000, Blaðsíða 14
14 LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ 2000 AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ Bifreiðastjórar Orð dagsins, Akureyri ÞAK-OG VEGGKLÆÐ1\IINGAR ÍSVAL-ÖOKGA r rlr. HÖFÐABAKKA 9.112 RTYKJAVIK SÍMI f>87 8750 FAX 58/ 8751 Morgunblaðið/Margrét Þóra Unglingalið Skiðasambandsins með þjálfurum sinum þeim Fjalari Úlfarssyni og Gunnlaugi Magnússyni. Unglingalið Skíðasambandsins við æfingar UNGLINGALIÐ Skiðasambands Islands dvelur nú um helgina að Hrafnagili í Eyjafjarðarsveit í æf- ingabúðum. Þarna eru saman komin efnilegir ung- lingar fæddir á árunum 1984-1986. Þar á meðal eru 10 unglingar sem valdir hafa verið í úrtökuhúp til undirbúnings fyrir Ólympíu- daga æskunnar, sem fram fara í Vuokatti í Finn- landi i mars á næsta ári. I æfingabúðunum verða unglingarnir við út- haldsæfingar, fara í sund, á grasskiði auk þess sem áhersla er lögð á félagslega þáttinn því að einnig verður farið í leiki og keppt í karaoke. Nýnemum við Háskólann fjölgar stöðugt NÝNEMUM við Háskólann á Akur- eyri fjölgar stöðugt á milli ára. A komandi vetri er ráðgert að nýnem- ar verði um 270 talsins, sem er um 13% fjölgun á milli ára, að sögn Þor- steins Gunnarssonar, rektors HA. Nýnemum fjölgar í öllum deildum skólans nema í kennaradeild, þar sem nýnemar í ár verða jafnmargir og í fyrra, eða 103. Nýnemar í heilbrigðisdeild verða um 70 í vetur en voru 49 í fyrra, í rekstrardeild verða 78 nýnemar en voru 53 í fyrra og í sjávarútvegsdeild hefja 12 nýnemar nám en þeir voru 8 í fyrra. Þórsteinn sagði að nemendur við skólann í vetur yrðu á bilinu 630- 650 en í fyrra voru nemendur skól- ans um 580. Undanfarin þrjú ár hef- ur nemendum skólans fjölgað um 10-20% á milli ára. Þorsteinn sagði að þessar tölur um fjölda nýnema nú væru frá því í júní og þær gætu því eitthvað breyst og þá frekar til fjölg- unar. Kennsla við Háskólann á Ak- ureyri hefst 21. ágúst nk. Þá verður jafnframt tekið í notkun nýtt kennsluhúsnæði skólans í fyrstu nýbyggingu HA á Sólborg og einnig nýir stúdentagarðar við Drekagil, sem Þorsteinn sagði ánægjuefni. Slæm verkefnastaða hjá fslenskri miðlun í Hrísey Leita eftir verkefnum úr einkageiranum VERKEFNASTAÐA Islenskrar miðlunar í Hrísey er ekki góð. Fleiri og stærri verkefni verða að koma til í framtíðinni til að reksturinn beri sig. Þetta kom fram í samtali við Guð- mund B. Gíslason, forstöðumann fyr- irtækisins í Hrísey. Guðmundur segir að lítið sé að gera hjá Islenskri miðlun í Hrísey. „Við höfum hangið á þessum kvöld- verkefnum frá upphafi. Þetta eru símakannanir og sölumennska, yfir- leitt fjórir tímar á kvöldin,“ sagði Guðmundur. Einnig hefur íslensk miðlun í Hrís- ey, í samstarfi við íslenska miðlun í Olafsfirði, tekið að sér símsvörun íyr- ir fyrirtækið Sæplast. Guðmundur segir að sex manns starfi hjá fyrir- tækinu. Tveir hafi fulla vinnu en hinir fjórir séu í kvöldvinnunni. Staðan ekkert allt of björt „Eins og staðan er núna er hún ekkert allt of björt. Við erum bara að reyna að útvega okkur verkefni. Það virðist ekkert vera að gerast hjá opin- bera geiranum þannig að við verðum að reyna að útvega okkur verkefni í einkageiranum. Við eyddum kannski of miklum tíma í að bíða eftir verkefn- um frá hinu opinbera, en menn töluðu þannig í upphafi að von væri á verk- efnum þaðan,“ sagði Guðmundur. Guðmundur sagði að í Hrísey hefði fólk vonast til að verkefni yrðu flutt út á land frá hinu opinbera eins og mikið var talað um. „Þetta hefur hins vegar allt verið í orði en ekki á borði, við höfum engin verkefni séð ennþá,“ sagði Guðmundur. Guðmundur segir að menn verði bara að bíða og sjá hvert stefnir. „Það væri hins vegar gott að vita hvort verið er að vinna í þessum málum eða ekki. Það virðist erfitt að fá upplýs- ingar um það.“ Hann sagði að til þess að rekstur- inn bæri sig þyrfti miklu meira að koma til en þau verkefni sem þeir hefðu nú þegar. Kirkjustarf AKUREYRARKIRKJA: Sumar- tónleikar í kirkjunni sunnudaginn 30. júlí kl 17. Guðmundur Hafsteins- son, trompet, og Eyþór Ingi Jóns- son, orgel. Aðgangur ókeypis. Messa verður um kvöldið kl. 20. Prestur er séra Jóna Lísa Þorsteins- dóttir. Guðmundur Hafsteinsson og Eyþór Ingi Jónsson leika við mess- una. Morgunsöngur þriðjudaginn 1. ágúst kl 9. Kyrrðarstund fimmtudaginn 3. ágúst kl 12. GLERÁRPRESTAKALL: Kvöldmessa verður í Lögmanns- hlíðarkirkju sunnudaginn 30. júlí kl 21. HJÁLPRÆÐISHERINN: Al- menn samkoma sunnudaginn 30. júlí kl 20. Allir eru velkomnir. PÉTURSKIRKJA: Messa laugar- dag kl 18 og sunnudag kl 11 í ka- þólsku kirkjunni við Hrafnagils- stræti 2. í dag, laugardag, kl 20:30. Hópurinn er skipaður sjö ungum íslenskum hljóðfæraleikurum og tónskáldum, sem allir stunda framhaldsnám í tónlist víðs vegar um Evrópu. Atonal Future hefur starfað frá árinu 1998 og frá upphafi sérhæft sig í flutningi nýrrar íslenskrar tónlistar. Fyrstu tónleikar Atonal Future voru haldnir í Iðnó í júlí 1998 fyrlr troðfullu húsi. Sumarið 1999 efndi hópurinn aftur til tónleika í Iðnó og hlaut sem fyrr mik- ið lof áheyrenda og gagnrýnenda. Atonal Future í Deig’lunni TÓNLISTARHÓPURINN Aton- al Future heldur tónleika í Deiglunni -----UH------- Söguganga um Oddeyri MINJASAFNIÐ á Akureyri stendur fyrir sögugöngu um Odd- eyri sunnudaginn 30. júlí undir leið- sögn Guðrúnar Kristinsdóttir safn- stjóra. Lagt verður af stað frá Gránufélagshúsunum, Strandgötu 49, kl. 14. Gengið verður um elstu hverfi á Oddeyri og saga byggðar rifjuð upp. Þátttaka er ókeypis og allir eru velkomnir. Minjasafnið er opið daglega milli kl. 11 og 17, en auk þess er opið til kl. 21 á miðvikudagskvöldum. Þar eru nýjar yfirlitssýningar um sögu héraðsins og sérstaklega Akureyr- ar. Einnig er sýning á ljósmyndum Sigríðar Zoéga, sem stendur í sum- Sýning í Ketilhúsinu MYNDLISTARSYNING verður opnuð í dag, laugardaginn 29. júlí, kl. 16.00 í Ketilhúsinu. Sýnendur eru Konráð Sigursteinsson og Sól- borg Gunnarsdóttir. Sólborg sýnir ljósmyndir og fimm sögur eða mannlýsingar. Konráð mun flytja tónlist í tengslum við sýninguna, ásamt því að sýna myndverk. Að- gangur ókeypis. Sýningin stendur til og með 7. ágúst. Opið daglega kl. 14.00- 18.00, lokað þó á mánudögum. Guðmundur og Eyþór á Siiinar- tónleikum FJÓRÐU Sumartónleikar Akur- eyrarkirkju verða haldnir sunnu- daginn 30. júlí kl. 17. Þá munu tón- listarmennirnir Guðmundur Hafsteinsson trompetleikari og Ey- þór Ingi Jónsson orgelleikari leika verk eftir Vejvanovsky, Duben, Loeillet, J.S. Bach, Hovhaness, Si- belius, V. Williams, Lindberg og Boyce. Tónleikarnir standa í klukkustund og er aðgangur ókeyp- is. Guðmundur Hafsteinsson lauk blásarakennara- og burtfararprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík vorið 1995. Hann stundaði fram- haldsnám m.a. í New York og lauk þaðan meistaragráðuprófi 1998. Veturinn 1998-99 stundaði Guð- mundur nám hjá prófessor Josef Bammer í Vínarborg. Guðmundur leikur reglulega með Sinfóníuhljómsveit íslands og leikur nú í 50 ára afmælissýningu Þjóðleik- hússins: Draumi á Jónsmessunótt. Auk þess er hann einn af stofnend- um málmblásara- og slagverkshóps- ins Serpents. Guðmundur er tromp- etkennari við Tónskóla Sigursveins. Eyþór Ingi Jónsson lauk kantors- prófi frá Tónskóla þjóðkirkjunnar vorið 1998. Hann stundar nú nám við kirkjutónlistardeild Tónlistar- skólans í Piteá í Svíþjóð. Eyþór hefur kennt við Tónlistar- skóla Dalasýslu og Tónlistarskólann á Akranesi ásamt því að spila í kirkjum víða um land. Veturinnn 1998-99 starfaði hann sem organisti í Akureyrarkirkju í leyfi Björns Steinars Sólbergssonar. Samspil Guðmundar og Eyþórs hófst veturinn 1997-98 þegar þeir störfuðu saman við Tónlistarskólann á Akranesi. Síðan hafa þeir haldið tónleika saman á hverju sumri. jy§ METRO Skeifan 7 • Simi 52 5 0800 Fyrir veitingahús, matvælavinnslu, sjúkrahús og þar sem krafist er snertifrírra blöndunartækja OPB ÖLL KVÖLD TIL KL. 21 Afmælisrit Menntaskólans á Akureyri gefíð út Minning- ar úr MA í TILEFNI af 120 ára afmæli Menntaskólans á Akureyri verður gefið út vandað afmælis- rit; Minningar úr MA, og er ráð- gert að það komi út um mánaða- mótin september/október nk. I bókina skrifa um 50 MA- stúdentar á ýmsum aldri og eru þættirnir bæði fræðandi og skemmtilegir, eins og MA- manna er von og vísa, segir í fréttatilkynningu. Sá elsti sem skrifar í bókina var útskrifaður frá skólanum árið 1929 en sá yngsti er nýstúdent frá því í sumar. Þeir MA-stúdentar og aðrir velunnarar skólans sem vilja eignast bókina eru beðnir að hringja í síma 557-9215 eða 557- 5270 fyrir 20. ágúst. Bókin kost- ar 4.900 krónur með sendingar- gjaldi. Skúlptúr í Safna- safninu SÝNING á bronsskúlptúrum eftir Hörpu Bjömsdóttur verð- ur opnuð í Safnasafninu á Sval- barðsströnd í dag, laugardag, kl. 14. Skúlptúramir mynda eina heild sem ber heitið Liðsmenn og era táknmyndir einstaklings, listamannsins. í Safnasafninu era að auki margbreytilegar sýningar með þátttöku fjölda fólks á öllum aldri. Safnasafnið er opið daglega frá kl. 10-18. Hafið bílabænina í bílnum og orð hennar hugföst þegar þið akið. Drottinn Guð, veit mér vernd þína, og lát mig minnast ábyrgðar minnar er ég ek þessari bifreið. í Jesú nafni. Amen. Fæst í Kirkjuhúsinu Laugavegi 31, Reykjavík, Shellstöðinni v/Hörgárbraut, Akureyri og Litla húsinu, Strandgötu 13B, Akureyri. Verð kr. 200

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.