Morgunblaðið - 02.08.2000, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 02.08.2000, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 2. ÁGÚST 2000 MORGUNBLAÐTÐ FRÉTTIR Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Gengið í Víkurfjöru FERÐALANGARNIR tveir sem gengu eftir Víkuríjiiru Svört strandiengjan heiilar ferðamenn og þeir sem á dögunum hafa notið kvöldbirtunnar og góða veðurs- gista í Víkurskála ganga gjarnan fram í Víkurfjöru og ins sem hefur verið viðvarandi um allt land í sumar. upp undir Reynisfjall, en náttúrufegurð er þar mikil. SCOLA-sjónvarpsstöðin vill kenna íslensku BANDARÍSKA sjónvarpsstöðin SCOLA hefur áhuga á því að vera með íslenskukennslu á dagskrá sinni en lítill áhugi er fyrir slíku hjá ís- lenskum stjómvöldum, að sögn Mike Handley, stofnanda Enskrar mál- stöðvar ehf. Scola sjónvarpsstöðin er einungis með íræðsluefni á dagskrá sinni og fer þar mest fyrir tungu- málakennslu. Fjöldi háskóla í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada notfærir sér kennsluefni stöðvarinn- ar. „Fyrir fimm árum vildi sjónvarpsstöðin vera með klukku- tíma þátt fimm sínnum í viku þar sem kennd yrði íslenska,“ sagði Handley í samtali við Morgunbiaðið. „En íslensk stjómvöld sýndu þessu engan áhuga,“ sagði Handley, en sjómvarpsstöðin býður einnig upp á tungumálakennslu á Netinu. „Það eina sem stjómvöld þurfa að gera er að framleiða kennsluefni fyrir sjón- varpstöðina sem mun sýna það end- urgjaldslaust,“ sagði Handley, en hann telur að slíkt framtak muni kosta um tíu til tuttugu milljónir króna. Handley sagði mörg fyrirtæki í landinu hafa sýnt framtakinu áhuga þegar hann kannaði málið á sínum tíma og telur hann líklegt að kostn- aður við gerð þáttanna muni ekki verða greiddur af skattborgurum heldur einkafyrirtækjum. „Mér finnst ótrúlegt að íslensk stjórnvöld notfæri sér ekki þetta tækifæri, en nýverið las ég það í Morgunblaðinu að áhugi á íslensku- kennslu í erlendum háskólum væri dvínandi," sagði Handley. Handley sagði mikinn áhuga fyrir íslenskukennslu í Norður-Ameríku. Að hans sögn vom námskeið á hans vegum í Washington D.C. og Balti- more vel sótt og komust færri að en vildu. „Það er mikill áhugi á íslandi og íslenskunni í Ameríku," sagði Handley, en SCOLA hefur sýnt ís- land ídagí þrjú ár og telur Handley fleiri horfa á þáttinn í Ameríku en á íslandi. „íslendingum stendur enn til boða að koma tungumáli sínu og menningu á framfæri. Sjónvarps- stöðin hefur enn áhuga á að vera með íslenskt kennsluefni," sagði Hand- ley. „Það er einnig hægt að nýta kennsluefnið við önnur tækifæri. Þetta myndi henta vel í íslensku- kennslu fyrir nýbúa.“ HORiySÓFAR Landsátak VIS Sýndu þroska - aktu eins og maður Ragnheiður Davíðsdóttir Landsátak vís, Vátryggingafélags íslands, verður hrundið í framkvæmd í íyrramálið. Ragnheiður Davíðsdóttir stýrir for- vamastarfi VÍS, en í hverju er landsátakið fólgið? „Átakið er margþætt. Á Kjalamesi verður komið fyrir stórri fjölskyldumynd og tveimur bílflökum úr einu og sama slysinu, þar sem fjórar manneskjur slösuðust alvarlega íýrir skömmu. Þá munu starfs- menn VÍS verða á stærstu tjaldstæðum landsins og dreifa þar bæklingum og öðm forvarnarefni sem miðar að því að vekja fólk til umhugsunar um skelfi- legar afleiðingar umferðarslysa. Auk þess munum við hengja upp myndspjöld á öllum ESSO-bensín- stöðvum landsins, þar sem minnt verður á hörmulegar afleiðingar gáleysis-, ölvunar- og hraðaksturs, undir kjörorðunum: Sýndu þroska, aktu eins og maður.“ - Hvað með auglýsingar, verða þær umfangsmeiri um þessa helgi en endranær? „Já, við munum auka mjög birt- ingar á forvamarauglýsingum okkar sem við höfum birt af og til þetta ár og era einn liður í miklu átaki sem hófst í janúar. Þessar auglýsingar hafa vakið mikla at- hygli vegna þess að þar hafa komið fram aðstandendur ungmenna sem látist hafa í umferðarslysum, lækn- ar, lögreglumenn og sjúkraflutn- ingamenn sem tala á áhrifaríkan hátt um reynslu sína á þessum vettvangi.“ - Hvers vegna er VIS með svona mikla starfsemi á forvamarsviðinu núna? „VÍS hefur frá fyrstu tíð lagt injög mikla áherslu á hvers konar forvamir og þá einkanlega for- vamir gegn umferðarslysum. Það hefur sýnt sig að stór hluti þjóðar- innar er á ferðinni um verslunar- mannahelgina og því ástæða til að vera með aukinn viðbúnað um þessa helgi. Þegar undanfamar sex verslunarmannahelgar hafa fjórar manneskjur látið lífið, hundrað og ellefu slasast og þar af tuttugu og þrír alvarlega. Þetta sýnir alvöra málsins. Þetta átak er stuðningur VÍS við átak dóms- málaráðuneytisins, Ríkislögreglu- stjóra, Vegagerðarinnar og Um- ferðarráðs, þar sem markvisst er stefnt að fækkun umferðarslysa næstu mánuðina. Við teljum það enn fremur vera skyldu okkar hjá VÍS, sem tryggingarfélags, að gera allt sem í okkar valdi stendur til að koma í veg fyrir umferðarslys.“ - Hvers vegna verða svona mörgslys? „Það er engin ein skýring sem getur verið svar við þeirri spum- ingu en persónulega hef ég lengi verið þeirrar skoðunar að helsta ástæða um- ferðarslysa, og þá eink- anlega meðal ungs fólks, sé skortur á um- ferðarlöggæslu og aga- leysi meðal ökumanna, sem er auð- vitað fylgifiskur lítillai- löggæslu. Menn komast einfaldlega upp með að brjóta af sér í umferðinni og tveir allra stærstu áhættuþættim- ir era allt of mikill ökuhraði og van- ræksla á notkun bílbelta.“ - Telur þú rétt að lækka öku- hraða á vegum úti? „Ég held að það þjóni litlum til- gangi að setja lög og reglur ef eng- ► Ragnheiður Davíðsdóttir fæddist 28. júlí 1954. Hún stund- aði nám við Menntaskólann við Hamrahlíð og lauk síðan prófi frá Lögregluskóla ríkisins 1978. Hún stundaði tveggja ára nám í íslensku og lauk prófi f hagnýtri fjölmiðlun. Háskóla íslands 1998. Hún hefur um árabil starfað um- ferðaröryggismálum og við ijöl- miðla en er nú forvama- og ör- yggismálafulltrúi hjá Vátryggingafélagi íslands. Ragnheiður er gift Jóhanni Ósk- arssyni teiknara og eiga þau tvo drengi, 16 og 28 ára. inn er til staðar til að framfylgja þeim lögum.“ - Hvað þarf að fjölga í löggæsl- unni til þess að viðunandi gæsla fari fram að þínu mati? „Svarið við þeirri spumingu er einfalt. Bílum hefur fjölgað um hundrað þúsund á síðastliðnum tuttugu áram en löggæsla hefur dregist saman á sama tíma. Þegar ég var að byija í lögreglunni fyrir 24 áram var starfrækt öflug um- ferðardeild í Reykjavík með allt að tuttugu sérhæfðum löggæslu- mönnum og átta eftirlitsbílum úti á þjóðvegunum þegar mest var, t.d. um verslunarmannahelgar. Nú heyrir til undantekninga ef maður mætir lögreglubíl nema í nánd við þéttbýli úti á landi. Góð undan- tekning er þó auðvitað lögreglan í Húnvatnssýslu sem sannarlega sinnir umferðargæslu á sínu svæði. Við gætum byijað á því að fjölga lögreglumönnum um helming, þá væri ástandið kannski viðunandi." - Hvað getum við öll gert til þess að þetta markmið ykkar náist, að verslunarmannahelgin verði slysu- laus? „Fyrsta reglan er að aka eftir aðstæðum, það er samasemmerki milli alvarleika slyss og þess hraða sem bíll er á sem lendir í eða veldur slysi. Að halda ökuhraða í skefjum skiptir öllu máli. Regla númer tvö: Spenna beltin, ekki stundum, held- ur alltaf, hvort sem farnar era stuttar eða langar vegalengdir. Gætið þess að lítil böm noti viðurkenndan ör- yggisbúnað og sitji aldrei í framsæti þar sem öryggis floft)púði er. Þetta er auðvitað há- leitt markmið sem við setjum okk- ur, en VÍS gerir það ekki eitt og sér, það þarf ekki minna en þjóðar- vakningu til þess að helgin verði slysalaus. Nú geri ég mér engar vonir um að hún verði óhappalaus en markmiðið er að hún skilji ekki eftir sig mannlega harmleiki eða dauðsföll. Fyrsta reglan er að aka eftir aðstæðum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.