Morgunblaðið - 15.08.2000, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 15.08.2000, Qupperneq 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 15. ÁGÚST 2000 AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ A Islandsmót í siglingum á optimistbátum Morgunblaðið/Birkir Björnsson Þátttakendur á Islandsmótinu í siglingum á optimistbátum við verðlaunaafhendingu sem fram fór í Kjarna- skógi um helgina að mótinu loknu. Bikarar og verðlaunapeningar voru veittir keppendum á mótinu, Kappar úr Ymi sigur- sælir ÍSLANDSMÓT í siglingum á optim- ist-bátum var haldið á Akureyri um helgina, en Siglingaklúbburinn Nökkvi hélt mótið að þessu sinni. Keppendur voru ríflega tuttugu tals- ins og komu þeir frá Akureyri, Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfirði og Keflavík. Vindurinn blés á þátttak- endur úr hinum ýmsu áttum þannig að þeir fengu að reyna sig við marg- víslegar aðstæður. Keppt í tveimur flokkum Úrslit urðu þau að í A-flokki varð Elvar Steinn Þorvaldsson, Ými, Kópavogi, í fyrsta sæti, Pétur Orri Tryggvason í öðru og Valgeir Torfa- son í þriðja en báðir eru í Siglinga- klúbbnum Nökkva, Akureyri. I B-flokki varð Teitur Gunnars- son, Ými, i fyrsta sæti, Aron Böð- varsson, Nökkva, í öðru sæti og Björgvin Ingi Jónsson, Þyt, Hafnar- firði, varð í þriðja sæti. Horfur á góðri kartöfluuppskeru ÞRÁTT fyrir mikla þurrka í sumar stefnir í góða kartöíluuppskeru hjá kartöflubændum á Norðurlandi eystra. Kartöflugrösin hafa sprottið fyrr en á sfðasta ári og eru bændur ánægðir með þær kartöfiur sem þeir hafa þegar tekið upp. Morgunblaðið heyrði hljóðið í tveimur kartöflu- bændum á svæðinu. Eiríkur Sigfússon er bóndi á Sfla- stöðum, rétt utan Akureyrar. Hann segir að horfur séu á góðri uppskeru. „Þetta er allt annað en í fyrra, þá spruttu grösin svo seint. Reyndar voru miklir þurrkar að gera mörgum erfitt framan af sumri, en við slepp- um áætlega því hér er svo jarð- djúpt,“ sagði Eiríkur. Á Sílastöðum var byrjað að taka upp kartöflur fyiir sumarmarkað fyrir rúmri viku og segir Eiríkur þær kartöflur líta mjög vel út. „Að mínum dómi eru þessar kartöflur mjög góðar, þær eru stórar og þurr- efnisríkar.“ Eiríkur sagðist búast við að byrja að taka upp af krafti um næstu mánaðamót. „Ég er mjög bjartsýnn á góða uppskeru. Sumarið er búið að vera alveg einstakt og ég man bara varla eftir svona góðu sumri áður,“ sagði hann. Bergvin Jóhannson er kartöflu- bóndi á Áshóli í Grýtubakkahreppi. Þar byrjuðu menn að taka upp kartöflur á sumarmarkað 27. júlí síðastliðinn. „Hér á svæðinu er útlit fyrir góða uppskeru og ég tel að hún verði betri en í fyrra. Þurrkurinn hamlaði sprettu framan af en í rign- ingum síðustu daga hafa grösin þotið upp,“ sagði Bergvin. Hann telur að kartöflurnar verði heldur betri en á síðasta ári, en það komi betur í ljós þegar uppskerutím- inn hefst fyrir alvöru í bjTjun sept- ember. wmmmm Morgunblaðið/Rúnar Pór Gestur á handverkssýningunni á Hrafnagili fylgist áhugasamur með Iistamanni að störfum. BÚDARVOGIR • Verðútreikningur kr/kg • 30 verðminni kr/kg • Stór upplýsingaskjár Kynningarverð frá kr. 29.700 án vsk. ELTAK, - vogir cru okkcir fag ■■ Síðumúla 13, sími 588 2122 Morgunblaðið/BFH Hollendingarnir hjólandi Mývatn. Morgnnblaðið. " ÞETTA hjólandi par var á leið austan af landi og í þau það en trúlega hafa þau nú þegar lagt að baki Mývatnssveit. Þau komu til íslands frá Hollandi til að erfiðasta hluta íslandshringsins, eða sjálf Möðrudals- hjóla tvímenning um landið næstu vikumar. Varla vita öræfin. Góð aðsókn að hand- verkshátíð AÐSÓKN að handverkshátíðinni að Hrafnagili var góð að sögn for- ráðamanna og talið er að allt að átta þúsund manns hafið komið á hátíðina þá fjóra daga sem hún stóð yfir. Þær upplýsingar fengust að flestir hefðu komið á laugardegin- um en annars hefði aðsóknin verið jöfn og þétt. Vegna góðs veðurs dreifði fólkið sér um útisvæði sýn- ingarinnar og lét fara vel um sig. Fagurtón- leikar falla niður ÁÐUR auglýstir fagurtónleik- ar Rósu Kristínar Baldursdótt- ur söngkonu og Helgu Bryndís- ar Magnúsdóttur píanóleikara sem fyrirhugaðir voru í Deigl- unni þriðjudaginn 15. ágúst kl. 20 á vegum Listasumars á Ak- ureyri falla því miður niður af óviðráðanlegum orsökum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.