Morgunblaðið - 15.08.2000, Page 57

Morgunblaðið - 15.08.2000, Page 57
MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN ÞRIÐJUDAGUR 15. ÁGÚST 2000 57 KIRKJUSTARF " Island árið 2000 GERUM okkur í hugarlund að til íslands kæmi aðkomumaður sem þekkti ekki að- stæður í landinu að öðru leyti en því sem ráða mætti af upplýs- ingum fjölmiðla undan- farnar vikur. Við hon- um blasti eflaust þjóðfélag sem byggi við ofgnótt. Ríkisstjóm landsins virtist hafa svo mikla peninga handa á milli að hún vissi nánast ekki hvað við þá ætti að gera. Að sögn fjármála- ráðherrans væri íyrir- sjáanlegt að tekjuaf- gangur ríkissjóðs yrði á þessu ári jafnvel enn meiri en bjarsýnstu menn hefðu þorað að vona og helsta áhyggjuefni verkalýðshreyfingarinn- ar virtist vera að almenningur hefði það of gott, eyddi um efni fram. Þetta mátti skilja á yfirlýsingum eins starfsmanns AJþýðusambandsins nýlega þegar hann sagði að brýnasta verkefni á ríkisbúinu væri að draga úr neyslu þjóðarinnar. Ekki gerði hann greinarmun á lágtekjufólki og hátekjufólki. Ofan á allt þetta bætist síðan að fyrrnefndur aðkomumaður hefði orðið vitni að einhverjum kostn- aðarsömustu hátíðahöldum sem efnt hefur verið til á íslandi til að minnast þess að kristni var lögtekin í landinu fyrir eitt þúsund árum. Ekki létu menn sér nægja hátíðahöld á Þing- völlum sem kostuðu mörg hundmð milljónir króna. Seint virðist ætla að ljúka fréttaflutningi af minnisvörðum sem reistir hafa verið af þessu tilefni. Svo stórhuga hafa menn verið að ís- land hefur ekki nægt eitt til þessara umfangsmiklu hátíðahalda. Kvíarnar vora því færðar út til Grænlands þar sem Islendingar hafa nú tekið að sér að opna og vígja kirkjur og aðra minnsvarða undir forystu Árna John- sens. En hversu raunsönn er þessi mynd SigiTður Stefánsdóttir Guðmundur Magnússon Það er orðið tímabært að halda uppskeruhátíð þjóðarinnar allrar, segja Guðmundur Magnússon og Sigríður Stefáns- dóttir. En áður þarf að tryggja að hún njóti öll uppskerunnar. sem blasir við aðkomumanni á ís- landi? Staðreyndin er vitaskuld sú að á íslandi breikkai' ört bilið á milli ríkra og fátækra og jafnvel þótt því sé ekki flaggað í hátíðaræðum um sigurgöngu kristinnar trúar þá er það engu að síðm- staðreynd að á ís- landi búa stórir hópar við lítil efni og kröpp kjör. Það er líka staðreynd að þessa dagana er verið að skerða enn kjör þeirra sem þjakaðir eru af sjúk- dómum með því að draga úr stuðn- ingi við lyfjakaup. Þá er það líka stað- reynd að húsnæðiskerfið hefur verið lagt í rúst og er svo komið að stöðugt fjölgar því fólki sem er í hrakningum af þeim sökum. Þessum þjóðfélags- veraleika hefur lítt verið haldið fram í opinberri umræðu með undantekn- ingum þó. Það hefur vissulega vakið athygli sá mikli munur sem fram hef- m’ komið í málflutningi stjórnmála- flokka að undanförnu ekki aðeins á milli stjómar og stjórnarandstöðu heldur hefur einnig verið sláandi munur á málflutningi Vinstri hreyf- ingarinnar - græns framboðs og Samfylkingarinnai'. Þannig hefur Samfýlkingin skammað ííkisstjórn- ina fýrir að skera ekki enn meira nið- ur og var að skilja á talsmanni Sam- fylkingarinnar í fréttum RÚV að ríkissjóður þyrfti helst að skila helm- ingi meiri afgangi en ráð er fyrir gert. Talsmenn Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs virðast einir hafa pólitískt jarðsamband. Þeir tala fyrir aðhaldi gagnvart óhófsmönnum og vilja að tekjuafgangurinn verði not- aður til kjarajöfnunar og til að styrkja verlferðarþjónustuna í land- inu. Þarna er grundvallarmunur á pólitískri afstöðu sem mikilvægt er að hafa í huga. Kristnihátíð og aðrir bautasteinar valdsins Lærdómurinn sem di'aga má af at- burðum sumarsins og þjóðfélagsum- ræðunni í tengslum við þá er í raun- inni ekki nýr af nálinni heldur sígildur. Það fer ekki á milli mála að stundum er til nóg af opinbera fé í landinu og stundum ekki. Þegar vald- hafar era að reisa sér bautasteina í húsum og hátíðum og jafnvel fá sér syndaaflausn í leiðinni er alltaf til nóg en þegar öryrkjar og aldraðir vilja ski-imta og jafnvel lifa einhverju sem gæti nálgazt mannsæmandi líf þá er kassinn galtómur. Nýafstaðin kristnitökuhátíð er þörf áminning um hvað gerzt getur þegar valdhafar era búnir að missa tengsl við fólkið í land- inu. Fólkið langaði ekki í kristnitöku- hátíð og fólkinu ofbauð braðlið og það mætti ekki þrátt fyrir auglýsingarn- ar þegar „skundum á Þingvöll" var allt í einu farið að öðlast nýja merk- ingu, ekki bara boðhátturinn heldur skipunartónninn. Ef til vill var þetta uppskerahátíð síðustu ríkisstjórna. Þeim hefur tek- izt einstaklega vel að selja þau ríkis- fyrirtæki sem gefa arð, ýta út þeim er áður treystu á aðstoð samfélagsins og fin-a sig allri ábyi'gð á þegnum landsins. Allt hófst með samtrygg- ingu Sjálfstæðisflokksins og Alþýðu- flokksins sáluga og hefur komizt á veralegt skrið, sem vart verður stöðvað á næstunni, með samstarfi Framsóknai' og Sjálfstæðisflokks. Sá eini af þessum þremui' flokkum sem hefur þetta á stefnuskrá er Sjálf- stæðisflokkurinn. Hinir tveir hafa hingað til kennt sig við félagshyggju, jafnvel samþykkt veralega fagrar áætlanir í samfélagsmálum rétt fyrir þær kosningar sem komu þeim í sæng með íhaldinu. Uppskeruhátíð fyrir alla En það er mál að spyrna við fótum. Það er nefnfiega staðreynd að al- menningur á íslandi vill hafa hér vel- ferðarkerfi sem virkar. Vill geta sent böm sín í góða skóla sem ekki era fjársveltir til að hægt sé að varpa þeim fyrir róða líka. Vfil geta treyst á bezta hugsanlega heilbrigðiskerfi þegar eitthvað bjátar á. Vill hafa ráðamenn sem hugsa um hag fjöld- ans en ekki fámenna klíku eiginhags- munaseggja sem hafa makað krókinn á opinbera fé! Það er þörf á pólitískri vakningu í landinu. Hlustum eftir því hvað stjómmálamenn og talsmenn hagsmunasamtaka segja og geram þá ábyrga fyrir orðum sínum og at- höfnum. En látum ekki þar við sitja, höldum vöku okkar og látum frá okk- ur heyra um hvert við viljum stefna með þjóðfélagið og hvenær okkur þykir það á rangri leið. Án kraftmik- illar lýðræðislegrar umræðu í land- inu er hætt við að uppskerahátíð for- réttindafólks verði viðvarandi á íslandi. Það er löngu orðið tímabært að halda uppskerahátíð þjóðarinnar allrar. En áður þarf að tryggja að hún njóti öll uppskerannar en ekki aðeins fáeinir útvaldir. Höfundar eru stjórnarmenn í Vinstri hreyfingunni - grænu framboði iReykjavík. Safnaðarstarf Minningar- athöfn vegna * fósturláta ÁRLEG minningarathöfn vegna fósturláta verður haldin í Fossvogs- kapellu miðvikudaginn 16. ágúst nk. kl. 17. Athöfnin er öllum opin. Fósturreiturinn í Fossvogskirkju- garði var vígður 17. september 1994 og mánuði síðar einnig Minnisvarði um líf, sem stendur nálægt kirkju- dyram Fossvogskirkju. Eftir minn- ingarathöfnina verður fylgd að Minnisvarðanum og í Fósturreitinn. Þetta er í 6. skipti sem slík athöfn er haldin. Sr. Guðlaug Helga Ás- geirsdóttir annast athöfnina ásamt Rósu Kristjánsdóttur djákna í sam- vinnu við Kirkjugarða Reykjavíkur- prófastsdæma. Sjúkrahúsprestar og djákni. Hallgrímskirkja. Fyrirbæna- guðsþjónusta í dag kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum. Breiðholtskirkja. Bænaguðsþjón- usta með altarisgöngu kl. 18.30. Bænaefnum má koma til sóknar- prests í viðtalstímum hans. Fella- og Húlakirkja. Samveru- stund með litlu börnunum kl. 10-12. Hjallakirkja. Bæna- og kyrrðar- stund kl. 18. Víðistaðakirkja. Aftansöngur og —■ fyrirbænir kl. 18.30. Hafnaríjarðarkirkja. Opið hús fyrir 10-12 ára börn í Vonarhöfn, Strandbergi, kl. 17-18.30. Frfkirkjan í Hafnarfírði. Opið hús kl. 17-18.30 fyrir 7-9 ára börn. Grindavíkurkirkja. Foreldra- morgunn kl. 10-12. Borgarneskirkja. TTT, tíu - tólf ára starf alla þriðjudaga kl. 17-18. Helgistund í kirkjunni sömu daga kl. 18.15-19. Krossinn. Almenn samkoma kl. 20.30 í Hlíðasmára 5. Allir velkomnir. ’ Þorlákskirkja. Mömmumorgnar á þriðjudögum kl. 10-12. Frelsið, kristileg miðstöð. Biblíu- skóli í kvöld kl. 20. Skeifunni 11 • Simi 588 9890 • ominn.is Opið frá kl. 9-18 virka daga og kl. 10-16 laugardaga t

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.