Morgunblaðið - 15.08.2000, Blaðsíða 66
66 ÞRIÐJUDAGUR 15. ÁGÚST 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Vesturgðtu 3 ■iiiiaia7flaaM8iiw
I kvöld kl 21.00
Kvintettinn MESKI
Tónleikar
Fim. 17/8 kl. 22.00 Margrét Eir
ásamt hljómsveit - útgáfutónleikar
MIÐASALA í síma 551 9055
ISI.I ASk V OI'IÍH v\
^!1111 Sími SII 4200
W^ASjdÚíijJyJ
3 J ■ ■■■ i
Gamanleikrit í leikstjórn
Sigurðar Sigurjónssonar
mið 16/8 kl. 20 örfá sæti laus
fim 17/8 kl. 20 örfá sæti laus
Miðasölusími 551 1475
Miðasala opin kl. 15—19 mán—lau.
og fram að sýningu sýningardaga.
Símapantanir frá kl. 10.
I.E1KFÉLAG ÍSI AMK
3000
THRILLER sýnt af NFVI
fös. 18/8 kl. 20.30. Nokkur sæti laus
lau. 26/8 kl. 20.00.
Síðustu sýningar
530 3030
BJÖRNINN — Hádegisieikhús
7— .> meö stuðningi Símans
If)N0 Þri. 15/8 kl. 12
mið 16/8 kl. 12
ATH Allra síðustu sýningar
Miðasalan er opin í Loftkastalanum og
Iðnó frá kl. 11-17. A báðum stöðum er
opið fram að sýníngu sýningarkvöld og
um helgar þegar sýning er. Miðar óskast
sóttir í viðkomandi leikhús.
(Loftkastalinn/lðnó).
Ath. Ósóttar pantanir seldar 3 dögum fyrir
sýningu.
MYNDBÖND
Oheppinn
með
nágranna
Allt heila klabbið
(The Whole Nine Yards)
Gamaiimynd
★★
Leikstjóri: Jonathan Lynn. Handrit:
Mitchell Kapner. Aðalhlutverk:
Matthew Perry og Bruce Willis.
(100 mín.) Bandarikin, 2000. Mynd-
form. Bönnuð innan 12 ára.
LEIGUMORÐINGJAR eru ekki
síður vinsælar söguhetjur í kvik-
myndum en tómstundamorðingjar
og koma iðulega
fyrir sem hinir
mestu töffarar.
Allt heila klabbið
er reyndar undar-
leg samsuða leigu-
morðingj amyndar,
svartrar komedíu,
maííutryllis og
film noir myndar.
Reyndar held ég
að handritshöfundarnir hafí ekki
haft neina skýra stefnu þegar þeir
voru að skrifa myndina, sem lítur
út eins og flókið en um leið furðu
þunnt fyrsta uppkast. Aðalpersón-
urnar tvær, þ.e. lífsleiði tannlækn-
irinn Nick (Matthew Perry) og ná-
granni hans, yfirvegaði leigumorð-
inginn Jimmy Tulip (Bruce Willis),
halda myndinni gangandi en bæði
Perry og Willis eru fínir gaman-
leikarar sem hefðu líklega notið sín
enn betur hefðu hlutverkin boðið
upp á það. Gamanatriðin í mynd-
inni eru nefnilega mjög misjöfn og
aðeins fá þeirra hitta í mark. Vel
flestar aukapersónur sögunnar eru
leiðinlegar og á það ekki síst við
um hina ömurlegu eiginkonu sem
Rosanna Arquette leikur með fár-
ánlegum frönskum hreim. Þessi
mynd stenst engan veginn þær
væntingar sem „sniðugt" söguefni
og efnilegir leikarar vekja, en er
ágætis afþreying.
Heiða Jóhannsdóttir
v(§> mb l.i is
ALLTA/= eiTTH\SAÐ NÝTl
r
v
Siðustu sýningar
„futlkomið í forminu..." Þ.H.S. 0V 23. júní.
„Bravó." Þ.H.S. DV 23. júní.
„Hressilegur farsi sem má vel skemmta sér yfir."
S.A.B. Mbl. 24. júní.
Miðapantanir í síma 530 3030.
I.EIKFÉLAG ÍSLANDS
y
FÓLKí FRÉTTUM
Ég trúi því að þetta
sé allt í lagi
TðJVLIST
Geisladiskur
ÍSLANDSLÖG 5:
f KIRKJUM LANDSINS
Flytjendur Björgvin Halldórsson,
Egill Ólafsson, Bubbi Morthens,
Sigrún Hjálmtýsdóttir, Sigríður
Beinteinsdóttir, Guðrún Gunnars-
dóttir, Helgi Björnsson, Páll Rósin-
krans, Karlakórinn Fóstbræður,
Mótettukórinn og B.H. Kvartettinn.
Lögin eru eftir ýmsa höfunda, er-
lenda sem innlenda, s.s. Johann
Friedrich Reichardt,
Andrew Lloyd Webber, William
Henry Monk, Margréti Scheving,
Sigvalda Kaldalóns og Jónas
Tómasson. Texta, sálma og sálma-
þýðingar eiga t.d. William Bernard
Hanssen, Linda Sandeil-Berg,
M.B.B. Edwards, Jónas Friðrik
Gunnarsson, Matthías Jochumsson
og Steingrímur Thorsteinsson.
Framleiðsla, umsjón og upp-
tökustjórn var í höndum Björgvins
Halldórssonar. 50,46 mín.
Ski'fan gefur út.
FIMMTA íslandslagaplatan tek-
ur með sér undirtitil í þetta sinnið:
„í kirkjum landsins", enda ber hún
með sér trúarlegt undirþema í til-
efni þess að 1000 ár eru liðin frá
kristnitöku á Islandi. Hér er því að
finna aldagamla sálma ásamt líka
nýlegum trúarsöngvum, klæddum í
poppaðan dægurlagabúning eins og
venja hefur verið til í þessari út-
gáfuröð. Eins og gengur og gerist
er allur gangur á afrakstrinum,
sum lögin dável heppnuð en önnur
miður. Þó er eitthvað við heildar-
svip plötunnar sem heldur henni
nokkuð niðri, lögin eru oft of keim-
lík og útsetningar í flestum tilfell-
um mjög svipaðar. Flóran var fjöl-
breyttari á síðustu íslandslagaplötu
og þar var oft að finna fina spretti.
Björgvin Halldórsson, umsjónar-
maður útgáfunnar, ríður hér sjálfur
á vaðið og syngur „Drottinn er
minn hirðir“ (The lord is my shep-
herd) af fagmennsku hins sjóaða
dægurlagasöngvara, flutningurinn
látlaus og í góðu jafnvægi við lagið.
Bubbi Morthens landar svo næsta
lagi, „I bljúgri bæn“ (Banks of the
Ohio), nokkuð farsællega, lagið er
amerískt þjóðlag og Bubbi spilar út
sjarmanum og sigrar örugglega
með honum eins og venjulega.
Þriðja lagið, „Friðarhöfn", er sung-
ið af Páli Rósinkrans. Hvílíkur
söngvari! Rödd hans er voldug og
sterk en býr um leið yfir tilfinn-
ingalegu næmi sem á fáa sína líka í
dægurtónlistarflóru landsins. Páll
er trúmaður mikill og söngur hans
hér er svo einlægur og sannfær-
andi að lagið tekst hreinlega á loft.
Ég myndi telja það affarasælast er
„Islandslög 8-1 kirkjum landsins
2“ kemur út að Páll verði hreinlega
látinn syngja hana einn því hér er
kominn langbesti dægurlagasöngv-
ari landsins, um það skyldi enginn
efast, og ekki skortir hann inn-
blásturinn er að svona verkefnum
kemur.
Innkoma Helga „rokkara"
Björnssonar er miður glæsilegri og
Morgunblaðið/Arni Sæberg
Diddú syngur dúettinn „Jörð“ með Björgvini Halldórssyni.
Björgvin Halldórsson hefur
sem fyrr veg og vanda af út-
gáfu Islandslaga.
hann er vandræðalega úr takti við
flutning annarra á þessari plötu,
engu líkara en hann sé ekki alveg
viss um hvað hann sé að gera
hérna. Hins vegar stendur Guðrún
Gunnarsdóttir sig með sóma og
sann í „Ástarfaðir himinhæða“
(Loving father in the heavens on
high), vopnuð alþýðlegum og góð-
um, jarðbundnum söng. Meistarinn
sjálfur, Egill Ólafsson, klárar svo
sína pligt í „Ave Maria“ með glans
eins og við mátti búast. Innkoma
Sigríðar Beinteinsdóttur á síðustu
Islandslagaplötu var lítt eftirminni-
leg en hér nær hún að bæta úr því,
með fyrirtaksflutningi á hinum vin-
sæla barnasálmi „O, Jesús bróðir
besti“ (Oh Jesus, best of brothers).
I laginu „Jörð“ (Amigos Para
Siempre) er teflt saman tveimur
söngvurum, dægursöngvaranum
Björgvini Halldórssyni og Sigrúnu
„Diddú“ Hjálmtýsdóttur, sem var
dægursöngvari í eina tíð en hefur,
eins og fiestir kannski vita, numið
klassískan söng og syngur hún á
þann veginn í þetta sinnið. Til eru
dæmi um vel heppnuð stefnumót af
þessu taginu, mér kemur í huga
ágætis flutningur þeirra Johns
heitins Denver og Placido Domingo
á lagi Denvers, „Perhaps Love“.
Hér virkar þetta ekki alveg jafn vel
en þess ber að geta að lagið sjálft
er nú ekki upp á marga fiska til að
byrja með. Klassíkerinn Diddú
skilur popparann Bjögga eftir úti í
kuldanum þó hann geri sitt besta
til að halda í við hana.
Björgvin, sem er vel að merkja
afar góður söngvari, og þá er ég að
meina dægurlagasöngvari, stendur
sig þó af mikilli prýðl í lögunum
„Drottinn er minn hirðir" (The lord
is my shepherd) eins og áður segir,
svo og í „Ó, faðir, gjör mig lítið
ljós“ (God, make my life a little
light) og „Ver hjá mér, Herra“
(Abide with me). Það eina sem
skyggir oft á tíðum á er hinn svo-
kallaði B.H. kvartett sem er
Björgvin Halldórsson í fjórða veldi.
Mér hefur aldrei þótt mikið til þess
kvartetts koma og ekki verður
frammistaða hans hér, hvort sem
er í hlutverki bak- eða aðalradda til
að koma mér af þeirri skoðun.
Raddimar em einfaldlega aðeins of
silkimjúkar til að vel sé.
Hljómur plötunnar er, eins og
við mátti búast, dauðhreinsaður, líf-
laus og ofdekraður. Helst er að
eitthvað líf sé í gítarleik á plötunni,
önnur hljóðfæri era í íhaldssamara
lagi. Hljóðfæraleikurinn, þótt ein-
strengingslegur sé, er þó jafnan til
fyrirmyndar enda ekki við öðru að
búast þar sem valinn maður er í
hverju rúmi. Mikill fengur, eins og
alltaf, er að upplýsingum þeim sem
Jónatan Garðarsson lætur þessum
plötum í té. Saga hvers lags og
sálms er rakin í stuttu máli og er
þetta kærkomin viðbót við þessar
útgáfur.
Platan er að sjálfsögðu skotheld-
ur sölugripur, hún á greiða leið að
hjörtum flestra þeirra sem „þola
ekki þennan bölvaða hávaða“, svo
og að þeim trúföstu, eðlilega. Vís-
ast á hún líka eftir að seljast vel
um jólaleytið, enda er þá haldin
helsta hátíð kristinna manna. Þetta
vissu menn náttúrulega er þeir réð-
ust í gerð plötunnar. Eg efast þó
ekki á nokkurn hátt um að það sé
ekki hlýr og góður hugur sem
stendur á bak við gerð þessarar
plötu. Engu að síður virðast mörk-
in á milli fölskvalausrar sköpunar
tónlistarinnar vegna og hreinnar
framleiðslu í ábataskyni verða
óskýrari með hverjum deginum.
Ég tel nú líklegast að platan standi
með vinstri fótinn á svæði sköpun-
arinnar á meðan sá hægri hvílir á
svæði markaðsframleiðslunnar,
eins og raunin er með flestar
hljómlistarútgáfur í dag. En í
hvom fótinn ætli hún stígi?
Arnar Eggert Thoroddsen
MIÐASALA Á BALDUR
OG RADDIR EVRÓPU
o BANKASTRÆTI 2.
Miðasala opin alla daga 10-18 » Sími 552 8588