Morgunblaðið - 15.08.2000, Qupperneq 69
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 15. ÁGÚST 2000 6@
FÓLK í FRÉTTUM
Nú er rétti tíminn...
nu^ Vilt þú margfalda lestrarhraðann og auka afköst í námi?
!!>■► Ifilt þú stórauka afköst þín í starfi um alla framtíð
Nú er rétti tíminn til að fara á hraðlestrarnámskeið, ef þú
vilt ná frábærum árangri í vetur. Námskeið hefst 17. ágúst.
1 ntni.
Skráning er í síma 565 9500
HRAÐLESTRARSKÓLIN N
www.hradlestrarskolinn.is
VÍÐA beinist kastljósið að íslensk-
um kvikmyndum og íslenskum
listamönnum á kvikmyndahátíðum
sem haldnar eru í Evrópu um þess-
ar mundir. Edinborgarhátíðin er
hafin og á laugardaginn lauk há-
tíðinni í Locarno með því að úrslit
dómnefnda voru gerð kunnug í
þeim keppnum sem fóru fram sam-
hliða hátíðinni. Skemmst er
frá því að segja að mynd
Baltasars Kormáks, 101
Reykjavík, sem tók þátt í að-
alkeppni hátíðarinnar, var
valin besta myndin af dóm-
nefnd skipuðum 26 ára og
yngri í flokki sem kallast
„Euros26“. í umsögn
dómnefndar um myndina
segir að myndin hljóti
verðlaunin vegna „létt-
leika, kímnigáfu og
óvæntra aðstæðna," sem
haldið er utan um með
staðfastri og öflugri leik-
stjórn. í dómnefndaráliti
kemur einnig fram að
sagan hafi góð áhrif á
áhorfandann og geti
hæglega eytt fordómum
og aukið umburðar-
lyndi.
Aðstandendurnir eru vitanlega
himinlifandi yfír heiðrinum og
segjast þeir Ingvar Þórðarson
framleiðandi og Baltasar Kormák-
ur leikstjóri sannfærðir um að
hann muni auka hróður myndar-
innar á alþjóðamarkaði og gera
auðveldara um vik að vekja á
henni athygli og selja.
Aðaldómnefnd hátíðarinnar
valdi kínversku myndina Baba en
sú mynd er bönnuð í Kína og er
eina eintak myndarinnar á hátíð-
inni í Locarno og telur Þorfinnur
Ómarsson framkvæmdastjóri
Kvikmyndasjóðs íslands að þar
hafi myndinni hugsanlega verið
bjargað frá því að vera eytt af kín-
verskum stjórnvöldum.
Hátíðin í Locarno er ein af þess-
um „stóru“ kvikmyndahátíðum,
svokölluð A-hátíð og er þar í
flokki með hátíðum á borð við þær
sem kenndar eru við Cannes, Fen-
eyjar, Berlín og Toronto. Við val á
myndum í keppnina voru skoðaðar
um 1.200 myndir frá um 80 þjóð-
löndum en einungis 19 valdar, sem
sýnir glöggt hversu mikið afrek
það var út af fyrir sig að hafa
komist f keppnina. T.a.m. var 101
Reykjavík eini fulltrúinn frá Norð-
urlöndum.
Mannbætandi mynd
„Eg er rosalega ánægður með
þessar móttökur,“ sagði Baltasar.
„Þetta er fyrsta hátíðin sem mynd-
in fer á og það sem meira er,
fyrsta hátíð sem ég fer á sem kvik-
myndaleikstjóri þannig að það er
frábært að fá slíka viðurkenn-
ingu.“ Baltasar sagði ennfremur
að sér þætti vænt um orð dóm-
nefndarinnar um myndina, eink-
um að myndin væri mannbætandi:
„Þetta er skemmtileg greining á
myndinni sem mér hefur eiginlega
þótt fara fyrir ofan garð og neðan
heima á íslandi því fyrir mér eru
persónurnar í myndinni alvöru
fólk í erfíðum aðstæðum, þótt þær
séu oft á tíðum spaugi-
’nborgarhátíoarmnar.
legar og rneinfyndnar."
Baltasar segist viðurkenna að
þetta muni eitthvað breyta fram-
tíðaráformum sínum og að leik-
húsið verði því miður að sitja á
hakanum á meðan hann sinnir
kvikmyndaferlinum en honum
hafa borist allmörg handrit til yf-
irlesturs og hann segist einnig
vera að undirbúa eigin myndgerð
á Hafínu eftir Ólaf Hauk Símonar-
son.
Ingvar framleiðandi segist sér-
lega ánægður með að myndin skuli
hafa hlotið einmitt verðlaun yngri
kvikmyndaunnenda því það þýði
að myndin verði söluvænlegri því
sá sé einmitt aldurinn sem stundi
bíóferðirnar hvað grimmast. En
hvaða áhrif hafa þessi verðlaun á
áframhaldandi kynningu á mynd-
inni? „Þetta eykur vissulega áhug-
ann sem þó var mikill fyrir," segir
Ingvar. „Reyndar höfum við þegar
þegið boð stærri hátíða á borð við
Toronto, þannig að verðlaunin
reyna ekki á þann þáttinn en við
höfum áþreifanlega fundið fyrir
auknum áhuga smærri hátíða og
fengið boð sem verið er að íhuga
og reyna að koma við.“
Rosebud og Myrkradansarinn
Locamo er einungis fyrsta kvik-
myndahátíðin sem 101 Reykjavík
tekur þátt í því framundan er þétt-
skipuð dagskrá fyrir aðstandend-
ur myndarinnar þar sem þeir
munu ferðast heimshorna á milli
til að vera viðstaddir sýningu
myndarinnar á minna og meira
þekktum kvikmyndahátíðum.
fisangað tað að
iiinn magiiaði
Sjpennntryllir
X-MEN verðnr
firiamsýðidnr I
iniikmyndahiBsnm
. um land Æ
Þessa stundina eru aðstandendur
staddir á Edinborgarhátíðinni þar
sem hún er í Rosebud-keppninni
svokölluðu - sem helguð er fram-
úrskarandi frumraunum. Að sögn
Ingvars virðist gott gengi hennar
á Locarno þegar farið að hafa
áhrif því það er uppselt á báðar
sýningar myndarinnar í Edinborg
- fyrr en á flestar aðrar myndir
sem sýndar eru á hátíðinni. Nær-
vera Damons Albarns muni að
líkum einnig draga athygli að
myndinni en tónlist hans og Ein-
ars Arnar Benediktssonar hafi
verið tilnefnd til verðlauna á há-
tíðinni.
Islendingar eru áberandi á Ed-
inborgarhátíðinni í ár því auk 101
Reykjavíkur verður mynd Friðriks
Þórs Friðrikssonar, Englar al-
heimsins, sýnd á hátíðinni auk
þess sem Dancer in the Dark er
opnunarmyndin og þar með aðal-
mynd hátíðarinnar. Sú síðast-
nefnda hefur vakið gífurlega at-
hygli skoskra fjölmiðla líkt og
gerðist á Cannes þar sem myndin
hreppti GuIIpálmann og Björk
hlaut verðlaun sem besta leikkon-
an. Athyglin sem Björk og Dansar-
inn fá virðist ennfremur ætla að
veita hinum íslensku myndunum
byr undir báða vængi og hafa báð-
ar vakið talsverðan áhuga fjöl-
miðla eins og nefnt hefur verið að
ofan ítilfelli 101 Reykjavfkur.
Sfókus
iWhraii
skifan.is
x-men.simnet.is
jqrad/o-x to3,7
islenskar kvikmyndir á alþjóðlegum kvikmyndahátíðum
Sterkar neglur
á 2-3 vikum.
Útsölustaðir:
Lyf og heilsa - Apótek
og helstu snyrtivöruverslanir
Dreifingaraðilí: Cosmic ehf., simi S8S 6S2S
Unga fólkið valdi
101 Reykjavík