Morgunblaðið - 29.08.2000, Síða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 29. ÁGÚST 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Morgunblaðið/Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir
Norrænu yfirdýralæknamir staddir í Sögusetrinu á Hvolsvelli. Frá vinstri: Eivind Liven, Noregi, Bengt Nord-
blom, Svíþjóð, Jaana Husu-Kallio, Finnlandi, Preben Willeberg, Danmörku, Halldór Runólfsson, íslandi, Leif
Denneberg, Svíþjóð og Katrín Andrésdóttir, héraðsdýralæknir í Suðurlandsumdæmi.
Norrænir yfírdýralækn-
ar funda á Hvolsvelli
Hvolsvelli - Fundur yfirdýralækna
frá öllum Norðurlöndunum var
haldinn á Hvolsvelli 21. ágúst sl.
Slíkir fundir hafa verið haldnir ár-
lega síðan 1962, til skiptis á Norð-
urlöndunum. Að sögn Halldórs
Runólfssonar yfirdýralæknis eru
þessir fundir afar gagnlegir, eink-
um fyrir Noreg og Island og skap-
ar þeim góð tengsl við Evrópu-
sambandslöndin.
Á fundinum gerði hvert land-
anna grein fyrir helstu vandamál-
um sem verið er að fást við og
einnig voru tekin fyrir mál sem
snerta öll löndin. Af íslands hálfu
var m.a. gerð grein fyrir þeim góða
árangri sem náðst hefur í barátt-
unni við Campylobacter í kjúkling-
um og sagt frá rannsóknum sem
eru í gangi á þessu sviði. Einnig
var rædd nauðsyn þess að ísland
næði hagstæðum samningum í
komandi viðræðum við ESB um
undanþágur frá reglum um dýra-
flutninga og dýraafurðir.
Finnar munu á næsta ári halda
samnorræna æfingu þar sem æfð
verður viðbrögð við bráðsmitandi
dýrasjúkdómum, en Danir gerðu
grein fyrir samræmingu matvæla-
eftirlits þar í landi. Að Noregs
hálfu var sagt frá öflugu samskipt-
aneti milli yfirdýralæknisembætt-
anna en Svíar ræddu þörfina á
samræmdum reglum um flutning á
keppnishestum milli landanna fjög-
urra og lögð voru drög að sam-
komulagi þar að lútandi.
Fundurinn var haldinn í Sögu-
setrinu á Hvolsvelli og var einnig
farið með gestina í ferð um Njálu-
slóðir undir öruggri leiðsögn Art-
húrs Björgvins Bollasonar for-
stöðumanns setursins.
Brúarhlaup
Selfoss 2.
september
Selfossi - Hið árlega Brúar-
hlaup Selfoss fer fram laugar-
daginn 2. september nk. Keppt
er í 2,5 km skemmtiskokki, 5 km
skemmtiskokki, 10 km hlaupi, 21
km hálfmaraþoni, 5 km hjólreið-
um og 12 km hjólreiðum.
Flokkaskipting bæði kyn: 12 ára
og yngri (2,5 km), 13-17 ára, 16-
39 ára (hálfmaraþon), 18-39 ára,
40-49 ára, 50-59 ára og 60 ára
og eldri. Hjólreiðakeppnin hefst
klukkan 13.00. Hálfmaraþon
hefst klukkan 13.30 og aðrar
vegalengdir klukkan 14.00. Allar
hlaupaleiðir eru löggildar vega-
lengdir.
Einn stærsti
íþróttaviðburður Selfoss
Hlauparar eru ræstir á Ölfus-
árbrú enda ber hlaupið nafn sitt
af brúnni. Allir sem ljúka keppni
fá verðlaunapening og stutt-
ermabol við skráningu. Auk
þess fá allir sem hlaupa frítt í
sund í Sundhöll Selfoss eftir
hlaup gegn framvísun keppnis-
númers. Búist er við góðri þátt-
töku í hlaupinu eins og undan-
farin ár en hlaupið er einn
stærsti íþróttaviðburður á Sel-
fossi og jafnan góð stemmning í
kringum hlaupið og þátttakend-
urna.
Skráning fer fram í Kjarnan-
um á Selfossi fimmtudaginn 31.
ágúst kl. 16-19, föstudaginn 1.
september kl. 14-19 og í
Tryggvaskála Selfossi laugar-
daginn 2. september kl.10-11.
Einnig er hægt að senda skrán-
ingu á tölvupóstfangið helgih-
@ka-verslanir.is til og með
föstudeginum 1. september.
Skráningargjald er 800 kr fyrir
12 ára og eldri (f.1988) og 400
kr. fyrir 11 ára og yngri (f.1989).
Afhending númera fer fram í
Tryggvaskála, á hlaupadag frá
klukkan 10-12, fyrir hjólreiðar
og frá klukkan 10-13 fyrir
hlaupara. Það er Frjálsíþrótta-
deild Umf. Selfoss sem er fram-
kvæmdaaðili hlaupsins.
Úrslit hlaupsins verða síðan
birt á heimasíðu Selfoss, www.-
selfoss.is.
Séra Solveig Lára
sett í embætti
SÉRA Solveig Lára Guðmunds-
dóttir var sett inn í embætti sókn-
arprests í Möðruvallakirkju í
Hörgárdal, af séra Hannesi Erni
Blandon, prófasti, síðastliðinn
sunnudag.
Séra Solveig Lára þjónaði Sel-
tjarnarnessókn í 14 ár. Eiginmað-
ur hennar, séra Gylfí Jónsson, hef-
ur verið ráðinn fræðslufulltrúi
kirkjunnar í Eyjafjarðar- og Þing-
eyjarprófastsdæmum, en hann hef-
ur verið héraðsprestur í Reykja-
víkurprófastsdæmi vestra.
Hólkur settur
í Staðará
Norður-Héraði - Sævar Jónsson
og verkamenn hans hjá Stjörnu-
blæstri á Seyðisfirði hafa verið að
setja saman hólk við Staðará á
Jökuldal. Uppsetning hólksins er
liður í nýbyggingu vegarins um
Jökuldal milli Skjöldólfsstaða og
Hvannár.
Klæðning í Kópavogi hefur unn-
ið að nýbyggingunni frá því síðasta
haust en þessi nýi kafli verður um
13 kílómetra langur lagður bundnu
slitlagi. Stjörnublástur var undir-
verktaki við samsetningu þriggja
stórra hólka í verkinu og er hólk-
urinn í Staðará sá síðasti af þeim.
Nú er farið að síga á seinni hluta
vegagerðarinnar og vegurinn orðin
fullgerður að þremur fjórðu og að-
eins eftir að setja út bundið slitlag
á fjórðung sem verður klárað fljót-
lega.
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Nýtt kaupfélagshús rís hratt
FRAMKVÆMDIR við nýtt hús
Kaupfélagsins í Borgarnesi eru
nú í fullum gangi en áætlað er að
þeim Ijúki um miðjan nóvember.
Fyrsta skdflustungan að húsinu
var tekin 26. mai síðastliðinn, og
að sögn Guðsteins Einarssonar
kaupfélagsstjdra hafa fram-
kvæmdir gengið afar vel og er
stefnt að því að opnað verði um
mánaðamdtin ndvember, desem-
ber.
Húsið er byggt á tveimur Idð-
um við hlið verslunarinnar Hyrn-
unnar. Aðra ldðina keypti Kaup-
félagið af bilasölu Vesturlands,
en hinni úthlutaði bærinn Kaup-
félaginu. Grunnflötur hússins er
2.260 fermetrar og verður megin-
hluti þess á einni hæð, en önnur
hæð, 300 fermetrar að stærð, er
ætluð fyrir skrifstofur og stárfs-
mannaaðstöðu. Auk verslunar
Kaupfélagsins verður verslun
ÁTVR, útibú frá Sparisjdði Mýr-
arsýslu, apdtek, umboð VÍS og
fjdrar aðrar verslanir í húsinu.