Morgunblaðið - 30.08.2000, Page 27

Morgunblaðið - 30.08.2000, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. ÁGÚST 2000 27 LISTIR Samhljómur í Skien N orræna/Eystrasalts- kórahátíðin var haldin í bænum Skien í Noregi í sumar. Einum kór frá hverri Norðurlandaþjóð og Eystrasaltslöndunum var sérstaklega boðið til hátíðarinnar. Hljómeyki þáði boðið fyrir íslands hönd og kynnti nýlega ís- lenska kóratónlist. Hildigunnur Rúnarsdóttir segir frá. Stund milli stríða. Nokkrir kórfélagar fyrir framan kirkjuna í Skien. HLJÓMEYKI var stofnaður fyrir 26 árum og 1986 var ákveðið að áhersla yrði lögð á nýlega íslenska tónlist í samstarfi við Sumartón- leika í Skálholtskirkju. Kórinn hef- ur haft nægan starfa og flutt ný tónverk eftir Jón Nordal, Hjálmar H. Ragnarsson, Þorkel Sigur- björnsson, Hafliða Hallgrímsson, John Speight, Hildigunni Rúnar- sdóttur og fleiri á Sumartónleikun- um hin síðari ár. Kórinn hefur líka látið til sín taka við annars konar verkefni og er þar hægt að nefna uppfærslur á óperum á borð við Dido og Æneas eftir Purcell, út- varpsupptöku af Orfeus og Evridís eftir Gluck og Orfeo eftir Mont- everdi. Hljómeyki hefur gefið út þrjá geisladiska með verkum eftir Hjálmar H. Ragnarsson, Þorkel Sigurbjörnsson og nú síðast Jón Nordal, í samvinnu við Mótettukór Hallgrímskirkju. Raddir Hljómeykis hafa borist víða og vann kórinn til bæði gull- og silfurviðurkenninga í kóra- keppni í Riva del Garda á Italíu ár- ið 1998. Ekkert var því að vanbún- aði af hálfu kórfélaganna að vera fulltrúi Islands á þessu móti. Eftir að boðið kom fór æfingatímabil í hönd og fljótlega fór spenningur að gera vart við sig í hópnum. Eftir- væntingin varð ekki minni þegar í ljós kom að kórnum var ætlað að gista undir sama þaki og tveir hvað virtustu kórarnir, þ.e. Eistneski fílharmóníukammerkórinn og kam- merkór Óslóborgar. Eini gallinn var að um var að ræða lýðháskóla í um 30 km fjarlægð frá sjálfum bænum! Ekkert þýddi auðvitað að kvarta yfir því enda eðlilegt að 15.000 íbúar Skienbæjar gætu átt í erfiðleikum með að taka á móti 4.000 gestum í um 150 kórum, á einu bretti um hásumar. Glataði smókingurinn Rúta var fengin til að lóðsa mannskapinn í bæinn og fyrir sjálfa opnunarhátíðina var öllum boðið til hádegisverðar í stórri íþróttaskemmu skammt frá hátíð- arsvæðinu á aðaltorgi bæjarins. Vegna leiðinlegs misskilnings vildi svo til að einn karlmannanna í kórnum gleymdi einkennisbúningi sínum í rútunni og stóð því uppi smókinglaus að lokinni máltíðinni. Nú voru góð ráð dýr og reyndu nokkrir í hópnum að sannfæra þann fatalausa um að svört flís- peysa gæti vel þjónað sama til- gangi og smókingurinn góði. Eftir að hafa litið í eigin barm dofnaði sannfæringarkrafturinn í röddun- um og fátt virtist til ráða. Skyndi- lega datt einum kórfélaganna snjallræði í hug og lét ekki sitja við orðin tóm. Hann arkaði inn í herra- fataverslunina Dressmann, festi kaup á skyrtu og sokkum, og spurði kurteislega hvort að hægt væri að fá lánaðan smóking í réttri stærð í um 30 mínútur. Málaleitan- inni var vel tekið og léttist brúnin heldur betur á kórfélaganum eftir að lausn hafði verið fundin á vand- anum. Hljómeyki komst á svið á tilsettum tíma og við þetta tæki- færi sungu boðskórarnir - hver fyrir sig og allir átta saman - sig inn í hug og hjörtu áheyrendanna á torginu í blíðskaparveðri. Við sama tækifæri skemmtu þjóðdansa- og þjóðlagahópar viðstöddum. Eftir opnunarhátíðina hlýddu flestir í kórnum á tónleika eist- neska fílharmóníukammerkórsins og er óhætt að segja að áheyrend- ur hafi ekki orðið fyrir vonbrigð- um. Stjórnandanum Tönu Kaljuste þykir hafa tekist sérstaklega vel til við mótun kórsins. Á efnisskrá kórsins var aðeins eitt verk, eftir Arvo Párt, rúmur klukkutími á lengd, en langt var frá því að nokkrum leiddist. Þakklæti norska sjónvarpsins Skien er í um 100 km fjarlægð suðvestur af höfuðborginni Ósló. Bærinn er fæðingarbær norska skáldjöfurins Ibsens og fóru aðal- tónleikar Hljómeykis fram í stærsta tónleikasal svokallaðs Ib- senshúss daginn eftir opnunarhá- tíðina. Salurinn tekur um 1.200 manns í sæti og voru tónleikarnir nokkuð vel sóttir. Góður rómur var gerður að söng kórsins og sérstak- lega sóst eftir nótum að lögum Jóns Nordals við Heilræðavísur séra Hallgríms Péturssonar og lögum eftir Snorra Sigfús Birgis- son. Eftir tónleikana gafst lítið ráðrúm til hvíldar því að við tók undirbúningur fyrir hátíðartón- leika með hinum boðskórunum í aðalkirkjunni í bænum um kvöldið. Skýrt hafði verið tekið fram að hver kór hefði aðeins um 10 mínút- ur til umráða á tónleikunum. Engu síður áttu kórarnir erfitt með að halda sig innan þess tímaramma - nema Hljómeyki sem hélt sig vel innan settra marka - og hlaut að launum innilegt þakklæti frá tæknimönnum norska sjónvarps- ins. Hátíðartónleikarnir verða væntanlega á dagskrá norska sjónvarpsins seinna í haust. Vegna þrengsla gafst kórunum því miður ekki tækifæri til að njóta framlags hver annars. Aðeins bárust af því fregnir að tónleikarnir hafi verið hin mesta veisla fyrir augu og eyru. Lykilmenn spá í spilin Eins og allir vita gegnir stjórn- andinn lykilhlutverki í öllum kór- um. Stjórnendurnir gleymdust heldur ekki á kórahátíðinni því stjómendur boðskóranna héldu hver fyrir sig sérstakt stjórnenda- námskeið. Bernharður Wilkinson, stjórnandi Hljómeykis, hélt stjórn- endanámskeið daginn eftir og naut að sjálfsögðu fulltingis kórsins. Kórinn söng einstök dæmi úr efn- isskrá sinni og var þar að finna verk eftir tónskáld á borð við Jón Leifs, Jón Nordal, Hafliða Hall- grímsson og Báru Grímsdóttur. Námskeiðið sóttu bæði stjórnend- ur annarra boðskóra og fleiri kóra því eins og áður segir sóttu sam- tals um 4.000 manns kórahátíðina að þessu sinni. Hingað til hefur kórahátíðin verið haldin þrisvar sinnum, annað hvort ár, til skiptis á Norðurlöndunum og í Eystra- saltslöndunum þremur. Eftir stjórnendanámskeiðið tóku við aðrir hátíðartónleikar, að sögn ekki síðri hinum fyrri og lauk þess- um degi eins og deginum á undan ekki fyrr en upp úr kl. 1 eftir mið- nætti. Stórfengleg lokahátíð Á lokadegi hátíðarinnar hófst dagskráin á stórfenglegri skrúð- göngu. Norðmennirnir létu sér ekki nægja að láta alla þátttakend- urna strunsa um bæinn í ferfaldri röð. Ormurinn langi var látinn bylgjast með skipulögðum hætti, bíta í halann á sér og fara hinar ýmsu krókaleiðir um bæinn þveran og endilangan áður en komið var að stórum íþróttaleikvangi þar sem lokatónleikarnir fóru fram undir berum himni. Stemmningin var ólýsanleg þar sem öllum bæjarbú- um var boðið á íþróttavöllinn til að hlýða á samsöng kóranna uppi í stúku. Gleðin var heldur ekki á enda eftir tónleikana því á eftir var öllum boðið til glæsilegs lokahófs í íþróttaskemmunni. Með því lauk hinni glæsilegu kórahátíð í Skien í Noregi og er óhætt að segja að kórinn hafi haft bæði gagn og gam- an af öllu saman. Að fá tækifæri til að njóta og mynda tengsl við kóra af öllum stærðum og gerðum á einu virtasta kórasvæði heimsins er ekki aðeins fræðandi heldur hvetjandi fyrir alla áhugasama kórfélaga. LIÐ-AKTIN Góð fæðubót fyrir fólk sem er með mikið álag á liðum Skólavðrðuatfg, Kringlunni & Smáratorgi ' 1 ■ J Innritun í síma 567 8965 B alletskóli, Sigríðar Armann I Reykjavík og Kópavogi Námskeið fyrir byrjendur (4 ára yngst) og framhaldsnemendur. 1 I WM lllf A Kennslustaðir: Félagsheimili Þróttar í Laugardal og Iþróttahúsi Breiðabliks, Smáranum Maestro ÞITT FÉ HVAR SEM ÞÚ ERT

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.