Morgunblaðið - 30.08.2000, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 30.08.2000, Qupperneq 35
MGKgWNBLAÍDIÐ MIÐVIK!U©AGUR'30.' ÁGÚST2000 85 UMRÆÐAN samningstíma. Samtals hefði þá starfsmaður kr 129.767 á mánuði. Einnig var boðinn 10% afsláttur á matarúttekt hjá 10-11, frítt í líkamsrækt í sex mánuði eftir þriggja mánaða starf, 20% afsláttur á vörum hjá Top Shop, 20% afsláttur á mat hjá Hard Rock Café, 20% af- sláttur hjá Útilífí í Glæsibæ og 20% afsláttur á mat hjá Pizza Hut. Einn- ig var boðið upp á starfsframa, að allir starfsmenn ættu möguleika á að vinna sig upp í „ábyrgðar- og stjórnunarstöður“. Á Fáskrúðsfírði er boðið upp á starfsframa ef þú hefur flokks- skírteinið í lagi og ert reiðubúinn að kyssa vöndinn og sleikja skósólana hjá yfirmönnum fyiirtækjanna og helst svíkja félaga þína í leiðinni. Dómgreind og hæfíleikar skipta þar engu máli og ekki er furða þó að fólk flýji aðstæður sem þessar og leiti til Reykjavíkur, svo maður tali nú ekki um launakjörin. Deilan í Loðnuvinnslunni á Fá- skrúðsfírði snýst m.a. um laun, starfsaldur og að starfsmannafjöld- inn sex menn á vakt sem hefur verið lágmarksmannskapur í verksmiðj- unni frá 1996 sé hæfíleg mönnun í svona stórri verksmiðju. Verkalýðs- félagið hefur lagt til að deilan verði sett í þriggja manna gerðardóm sem myndi bera saman verksmiðjurnar á Eskifirði og Fáskrúðsfirði varð- andi alla tækni, búnað og manna- hald og verði fenginn hlutlaus aðili af höfuðborgarsvæðinu sem odda- maður og með honum einn fulltrúi frá Loðnuvinnslunni og einn fulltrúi starfsmanna. Deiluaðilar myndu samþykkja að þessi gerðardómur skilaði tilllögu um mannahald í verksmiðjunni á Fáskrúðsfirði og eftir niðurstöðu þessa gerðardóms yrði farið. Pessu höfnuðu fulltrúar Loðnuvinnslunnar og jafnvel þó að þeim væri boðið að niðurstaðan yrði ekki bindandi fyrir þá. Yfirmenn Loðnuvinnslunnar á Fáskrúðsfirði hafa sýnt mikinn hroka í samskiptum við starfsmenn og verkalýðsfélagið og hafa marg- ítrekað brotið undirritaða kjara- samninga á síðasta samningstíma- bili og rústað með því trausti á milli aðila og eiga alla sök á þeim átökum sem nú eiga sér stað. Emil Thorarensen hefur enga hugmynd um hvaða mann forsvars- menn verkalýðsfélagsins hafa að geyma, til þess þekkir hann þá of lít- ið og ætti því ekki að setjast í dóm- arasæti um skynsemi þeirra. Aftur á móti þekkir hann líklega betur snill- ingana sem stjórna Loðnuvinnsl- unni og kaupfélaginu á Fáskrúðs- firði. Hann ætti að setja þá í vinnuskóla og starfskynningu til Alla Jóns á Eskifirði sem í marga áratugi hefur stjórnað Hraðfrysti- húsi Eskifjarðar með frábærum ár- angri og þótt komið hafi fyrir að í odda skærist í kjaradeilum á Eski- firði fullyrði ég að Aðalsteinn Jóns- son hefur ætíð sýnt þá skynsemi og dómgreind að skilja smáatriði frá aðalatriðum. Við Aðalstein Jónsson og alla sem eru hluthafar í Loðnuvinnslunni á Fáskrúðsfirði vil ég segja: Slítið naflastrenginn á milli Loðnuvinn- slunnar og kaupfélagsins á Fá- skrúðsfirði nú þegar og takið ráðin af þessum mönnum sem stjóma, áð- ur en þið tapið öllu ykkar. Þið getið síðan keypt handa þeim lítinn pylsu- vagn sem þessir snillingar geta rek- ið saman og þeir geta þá slegist um hvaða kjör og mönnun á að vera í sh'kum pylsuvagni, sem þeir sjálfir starfa í og þiggja laun. Ekki þarf minna en allt atvinnu- rekendavaldið á íslandi til að yfir- buga þessa fáu verkamenn á Fá- skrúðsfirði og ef verkamennirnir láta sér detta það í hug að leita sér lífsviðurværis annarsstaðar eru þeir hundeltir og reknir frá hvar sem þeir koma. Eg spyr launafólk og verkalýðsforystu um allt land: Eig- um við að láta þessa valdníðslu yfir okkur ganga eða gæta hvert ann- ars? Höfundur er formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Fáskrúðsfjarðar. þess lands sem var haldið eftir við sölu jarðanna til Kristians Kirk 1938 tókst með grunsamlegu tómlæti ráðamanna að ná undir sig ca. 700 ha lands úr óskiptri sameign Hauka- dalstorfunnar en ekkert kom í hlut skógræktarinnar sem er eigandi býl- anna þriggja og Haukadalskirkju. Augljóst er af gögnum málsins að hvorki skógræktin né landbúnaðar- ráðuneytið (hvort tveggja undir stjóm þáverandi landbúnaðarráð- herra, Steingríms Sigfússonar) gættu hagsmuna ríkisins við land- skiptagerðina sem gerð var að kröfu sona Sigurðar Greipssonar á grund- velli laga um landskipti nr 46/1941. Núverandi umboðsmaður Alþing- is, Tryggvi Gunnarsson, sem þá var starfandi hæstaréttarlögmaður gerði mjög alvarlegar athugasemdir við landskiptagerðina í álitsgerð til fjár- málaráðuneytisins 1992. Hann gerði ítarlega könnun á málinu og komst að þeirri niðurstöðu að fullt tilefni væri til þess af hálfu ríkisins að fá land- ' skiptagerðinni frá 1990 hnekkt, jafn- vel með málsókn. í álitsgerðinni er farið ítarlega í alla þætti málsins og ekki unnt hér að gera grein fyrir smáatriðum. Tryggvi segir að hugsanlegt sé að Kristian Kirk hafi keypt öll jarðhitaréttindi jarðanna þriggja og eigi því ríkið öll jarðhitaréttindi í Haukadalstorfunni. Hæstaréttarlögmaðurinn gerði fræðilega ráð fyrir að 5% af réttind- um til jarðhita gætu verið hjá eigend- um spildnanna sem undanskildar vom við sölu jarðanna en setur einnig upp reikningsdæmi þar sem 25% gætu komið í þeirra hlut. Síðasti kosturinn er afar ósennilegur þannig að annaðhvort á ríkið öll jarðhitarétt- indi eða 95% af þeim (auk þess að eiga hverina fjóra sem áður getur). Gera verður kröfu til handhafa rík- isvaldins að þeir gæti hagsmuna al- mennings. Það hefur ekki verið gert í Haukadal. Af ástæðum sem em óskiljanlegar, en sem lýðræðinu og almannaheill bráðliggur á að verði kannaðar, hafa erfingjar manna sem höfðu selt jarðir sínar komist upp með það að ráðskast með þær eins og þeir séu enn eigendur þeirra. Ríkis- valdið hefur öll tök á því að leiðrétta sinn hlut. Raunar er ekkert sjálfsagt að þeir aðilar sem nú njóta einstakrar aðstöðu til að nýta ferðamanna- straum sem liggur á Geysissvæðið, geri það áfram einir né að þeir nýti jarðhita fyrir hús sín án þess að semja um það við eigandann. En fyrst og fremst verður ríkið að end- urheimta verðmætt land sem rang- lega hefur verið tekið frá því og stað- festa yfirráð sín yfir hverasvæðinu í Haukadal og jarðhitaréttindum öðr- um. Höfundur er framkvæmdastjóri. 0 0 898-5153 míídmáCun ‘Rflðgföfog jjyónusta ■■ - A/Sspl 1 * *> * Skrásett mrumerki Vinsælasti ráðherrann Fjármálaráð- herra skilur ekki skattkerfið. I viðtali í Mbl. sunnudaginn 13. ágúst heldur hann því fram að tekjuskattskerfið sé ekki í þrepum, að hátekjuskattinum undanskildum. Þetta er reginfirra. Kerfið er í mjög mörgum og marg- brotnum þrepum. Þau er kölluð tekju- tenging bóta sum hver. Hið sérkenni- lega við íslenska skattkerfið er að það er stiglækkandi. Fólk með lág- ar og miðlungstekjur gi’eiðir hæsta jaðarskatta. Ég gerði ítar- lega grein fyrir jaðarálögum í sex greinum sem birtust í Mbl. á ár- unum 1994 til 1997 og gagnrýndi einkum tekjutengingu barnabóta og húsaleigubóta. Aður hafði ég fjallað um svipað efni, m.a. í Mbl. 12. ágúst 1987. Árið 1994 taldist mér til að jaðarálögur gætu komist upp í 87-89%. Ég taldi að það ætti að vera forgangsverkefni að lækka hæstu jaðarskattana, almennar skattalækkanir ættu að bíða. Rík- isstjórn og Alþingi hafa farið þver- öfugt að. Almenn skattalækkun hefur gengið fyrir þótt sárasti broddurinn hafi einnig verið snið- inn af tekjutengingu barnabóta. Kerfið er hins vegar óbreytt í grundvallaratriðum. Mér sýnist hámarkið sem jaðarálögurnar geta náð hafa lækkað um 14 prósent- ustig, í um 73-75%. Allalgengt mun vera að jaðarálögur séu 60% eða hærri hjá láglaunafólki og fólki með miðlungstekjur, en þær eru sjaldan meira en 45,4% hjá há- tekjumönnum. Og eignamenn borga nær engan skatt af sínum tekjum. Hvað þýðir þetta? Hugs- um okkur fólk með fremur lágar tekjur sem á þess kost að fá 100.000 kr. tekjur með mikilli aukavinnu og fækka þar með sam- verustundum með fjölskyldu og öðrum frístundum. Það sem eftir verður til eigin ráðstöfunar til að greiða dagleg útgjöld, afborganir af lánum o.s.frv. eru aðeins 40.000 ef jaðarálögurnar eru 60%. Það varðar þann sem er í kröggum litlu þótt hluti af þeim 60.000 sem hann ráðstafar ekki sjálfur hafi farið til að greiða afborgun af námsláni eða í lífeyrissjóð til elli- nnar. Og stéttarfélögin ættu að taka sinn hlut til athugunar. Þetta er það sem hefur verið kallað fá- tæktargildra og veldur því að sumt fólk á þess engan kost að koma sér þaki yfir höfuðið. Fj ármálaráðherra hefur engar áhyggjur af þessu, skilur sennilega ekki. Hann hefur hins vegar miklar áhyggjur af því hvemig eignir skerða barnabætur. Ég er honum að miklu leyti sammála um það, þessi skerðing jafngildir margföldun eignarskatts eins og hún er nú. Þeir sem samþykktu þetta ákvæði hafa varla verið með réttu ráði. Áhyggj- Hólmgeir ur ráðherrans einmitt Björnsson nú stafa þó ekki beinlín- is af umhyggju fyrir smælingjanum, heldur hefur hann áttað sig á að hann sem yfírmaður skattamála brást skyldu sinni. Á Skattamál Allalgengt mun vera að jaðarálögur séu 60% eða hærri hjá láglaunafólki og fólki með miðlungs- tekjur, segir Hólmgeir Björnsson, en þær eru sjaldan meiri en 45,4% hjá hátekjumönnum. liðnum vetri varð almenn hækkun á fasteignamati, skattar og önnur gjöld af fasteignum hafa hækkað án þess að eignin hafi í rauninni aukist. Fólk sem fékk barnabætur greiddar í fyrra verður nú að end- urgreiða þær. Þetta mátti sjá fyrir og því bar yfirvöldum skylda til að bregðast við og koma í veg fyrir þessa álagningu. Rétt er að taka undir hvatningu Ki-istínar Magn- úsdóttur í Mbl. 15. ágúst sl. til þeirra sem fyrir þessu urðu að kæra álagninguna. Ég er þó enn þeirrar skoðunar að afnám tekju- tengingar barnabóta eigi að hafa forgang, eða að hún hefjist í fyrsta lagi þegar miðlungstekjum er náð. Það á að gefa fólki kost á að kom- ast úr fátæktargildrunni. Ég er enn þeirrar skoðunar að það sé meiri ástæða til að hafa áhyggjur af þeim sem eiga húsnæði í skuld en þeim sem eiga skuldlaust hús- næði og því megi frekar dragast að minnka tenginguna við eignir. Segja má að það sé óeðlilegt að stóreignamenn fái verulegan stuðning við að koma upp börnum sínum, a.m.k. ef menn líta á barna- bætur sem ölmusu. Eðlilegra væri þó að miða við eignatekjur en skattskylda eign. Þá yrði með öllu sneitt hjá því að skuldlaust hús- næði skerti bæturnar, og eigna- tekjur þola vissulega meiri skattlagningu. Hér er þó líklega komið inn á svið sem fjármála- ráðherra, hagfræðingurinn, telur sig skilja. Fjármálaráðherra lét það verða^ eitt sitt fyrsta verk á ráðherrastól að vinna að því að persónuafslátt hjóna mætti millifæra að fullu í stað 80% eins og áður var. Um- ræðan varð næstum engin, þetta forgangsmál nýja ráðherrans var svo lítilvægt að það þótti ekki um- ræðu vert. Fljótt á litið gat þetta virst sjálfsögð breyting, en á mál- inu eru fleiri hliðar sem ekki verð- ur fjölyrt um, og breytingu í gagn- stæða átt má rökstyðja. Prófessor í hagfræði lýsti stuðningi sínum við þessa breytingu og taldi að nú yrði skatturinn hlutlaus. Hlutlaus skattur! Hlutlaus gagnvart hverju? Ef til vill peningum, ekki fólki. Fjármálaráðherra hreif sjónvarpsáhorfendur í vetur með einlægri námfýsi sinni þegar hag- fræðingur ASI útskýrði fyrir hon- um hvernig það veldur einkum aukinni skattbyrði á láglaunafólk ef laun hækka umfram hækkun skattleysismarka þótt þau skipti hátekjufólk litlu máli. Hann virtist skilja. Á þeirri stundu mun hann hafa orðið vinsælasti ráðherrann. Skilningurinn hefur þó ekki enst fram á sumar. Að minnsta kosti hefur ráðherrann ekki náð að v di’aga hina rökréttu ályktun, að skatturinn skúli vera stighækk- andi. Þá skipti minna máli þótt skattleysismörk fylgdu ekki laun- um. Venjulega er átt við að skatt- urinn hækki í þrepum, en betra er að hann fari jafnt vaxandi á all- breiðu bili, skatthlutfallið hækki eftir jöfnu beinnar línu. Ef álagn- ingin byrjar í 15-20% mega skatt- leysismörkin lækka frá því sem nú er. í tölvu er auðvelt að reikna skattinn og hann verður gerður upp eftir á líkt og nú er. Engin vandamál! Höfundur er tölfræðingur hjá Rannsóknastofnun landbúnaðarins. * /HHn ■, ■ ^ JUML ataf fyrlr staf. Orðabækurnar Ensk-íslensk & íslensk-ensk vasabrot svört ................1.590 kr. Ensk-íslensk & íslensk-ensk gui ...........................1.990 kr. Ensk-íslensk rauð ...................................... 2.590 kr. íslensk-ensk rauð ........................................2.590 kr. Ensk-íslensk & íslensk-ensk rauðar í gjafaöskju ..........4.990 kr. Ensk-íslensk & íslensk-ensk veltiorðabók grá 2000 útg.kynningarverð 5.800 kr. Ensk-íslensk & íslensk-ensk orðabók stór blá 2000 útg.kynningarverð 6.800 kr. Sænsk-íslensk & íslensk-sænsk gul ........................2.590 kr. Dönsk-íslensk & íslensk-dönsk gul.............................2.590 kr. Ítölsk-íslensk & íslensk-ítölsk gul ......................3.990 kr. Frönsk-íslensk & íslensk-frönsk gul 1996 útgáfa ..........2.990 kr. Spænsk-íslensk & íslensk-spænsk gul...........................1.990 kr. Þýsk-íslensk & íslensk-þýsk gul 1997 útgáfa...................2.990 kr. Ódýrar og góðar orðabækur fyrir skóla, skrifstofur og ferðalög Fást hjá öllum bóksölum Orðabókaútgáfan

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.