Morgunblaðið - 30.08.2000, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 30.08.2000, Qupperneq 48
48 MIÐVIKUDAGUR 30. ÁGÚST 2000 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens Grettir BREF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1103 Reykjavik • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Fjallkonunni nauðgað Frá Ásthildi Cesil Þúrðardóttur: í GÆR laugardaginn 26. ágúst var fjallkonu Islands nauðgað af austfirskum manneskjum sem með mjög ógeðfelldum hætti tróðu sér með ofbeldi inn í félagskap sem hefur verið að reyna að vinna að náttúru- vemdarmálum þar eystra. Þessu fólki er greinilega ekkert heilagt. Gjörðin er af nákvæmlega sama toga og önnur ofbeldisverk sem unninn eru af ribböldum. Peningahyggjan og græðgin eina markmiðið. Þetta er einhver ógeðfelldasta frétt sem ég hef heyrt lengi og er þó af nógu að taka á þessum umbrotatímum. Það er þýðingarlaust að reyna að halda því fram að þetta sé ekki vel skipulagt of- beldisverk, það sjá allir sem vilja sjá af hvaða toga þetta er. Ég vil votta náttúruvemdarsamtökum Austur- lands innilegustu samúð og vona að þau losni við óvæmna sem allra fyrst. Það er að koma upp ný kynslóð af fólki, sem vflar ekki fyrir sér alls kon- ar óþokkabrögð, sem hingað til hafa einungis verið stunduð í öðmm lönd- um. Mér finnst þetta vera óheilla- vænleg þróun. Góðu gildin sem vom óskráð lög hér áður fyrr em á undan- haldi. Ég man þá tíð að menn lögðu upp úr því að orð þeirra stæðu, eða handaband innsiglaði samning og því var hægt að treysta. Mér finnst sorg- legt að upplifa að í dag þarf allt að vera skriflegt og undirskrifað af vott- um til að tryggja að orð haldi. Meira að segja þurfti að setja sérstök lög um gamalt fólk í óskiptu búi til að koma í veg fyrir að börn beri aldraða foreldra sína út, til að hafa „sitt á hreinu“. Hvar er heiðarleikinn og umhyggja fyrir náunganum? Er þetta gjörsamlega vikið fyrir stund- argróðavon eða kannski því að reyna að sölsa sem mest undir sig á annarra kostnað? Vita menn ekki að skuld þarf að greiða? Það kemst enginn upp með að gera öðram illt. Ekki til lengdar. Sál okkar er sköpuð þannig að við þurfum á endanum að standa frammi fyrir gerðum okkar og þá er betra að hafa hreina samvisku. Því ég held að það sárasta sem nokkur getur staðið frammi fyrir sé að þurfa að horfast í augu við sjálfan sig og illar gjörðir sínar. Ég vona að Austfirðing- ar beri gæfu til að komast heflir og óskaddaðir út úr þeim hildarleik sem virkjunammræðan er orðin. En fyrst og fremst að þeim takist að vera heið- arlegir í baráttu sinni á hvom veginn sem er. Þessi nýja aðferð virkjunar- sinna ber frekar vott um uppgjöf og hræðslu og er svo sannarlega veik- leikamerki. Austfirðingum er svo sannarlega vorkunn, það er búið að etja þeim saman í atgang sem verður sífellt grímulausari og grimmari. Ég vona að þeir beri gæfu til að komast að skynsamlegri niðurstöðu og muni virða hana. Þetta er ekki bara mál Austfjarða, því landið er lítið og hvað gerist í hinum dreifðu byggðum er sameiginlegt hagsmunamál okkar allra. Afstaða mín er líka ljós, mitt hjarta slær með náttúm landsins og engir heimsins peningar geta komið í stað eyðileggingar hennar. ÁSTHILDUR CESIL ÞÓRÐARDÓTTIR, Seljalandsveg 100, Isafirði. Horft framhjá staðreyndum Guðvarður Jónsson skrifar: ÞAÐ er útúrsnúningur, segir Einar K. Guðfinnsson í Dagblaðinu 19. ágúst, ef hámarkshraði væri hækkað- ur upp í 110 km, þá þýddi það að menn fæm að keyra á 120-130 km hraða. Það er merkflegt hvað alþingis- mennimir okkar em orðnir sérþjálfað- ir í því að sniðganga raunveruleikann. Þegar hámarkshraðinn var 60 km á þjóðvegum landsins óku fjölmargir á 70-80 km hraða, eða á 10-20 km yfir hámarkshraða. Eftir að svo hafði gengið í nokkur ár ákvað alþingi að hækka hámarkshraðann upp í 70 km og í 80 km þar sem akstursaðstaða var best. Eftir þessa breytingu fóm menn að aka á 90-100 km hraða. Eftir að þessi hámarkshraði hafði verið gildandi í nokkur ár, taldi alþingi ástæðu til þess að hækka hámarks- hraðann til samræmis við þann hraða, sem menn óku almennt á og hækkuðu hámarkshraðann upp í 90 km hraða. Þá fóm menn að aka á 100-110 km hraða og eftir að alþingismenn lögðu fram tillögu um að rétt væri að hækka hámarkshraðann upp í 110 km, þá fór stærri hluti ökumanna að aka á 120-130 km hraða og fjölgaði mjög þeim sem aka á 140-145 km hraða, þó svo að tillagan um hækkun hámarkshraða upp í 110 km væri aldrei samþykkt. Þá töldu þeir sem stinga heilanum í rassvasann þegar þeir setjast undir stýri, að nóg væri að alþingismenn sem líta framhjá staðreyndum þegar þeir ræða um- ferðarmál á alþingi, væm samþykkir auknum hraða í umferðinni. Rétt er að hafa í huga að þó há- markshraði sé núna 90 km, þá er heimilt að aka á 100 km hraða, án þess að það sé talið lögbrot. Yrði há- markshraðinn hækkaður upp í 110 km, væm menn ekki orðnir ólöglegir íyrr en þeir væm komnir upp í 120 km hraða. Hverjum dytti í hug að menn ækju undir þeim hraða sem þeir mættu vera á án þess að verða sektaðir, menn hafa ekki gert það hingað tfl. Rétt er líka að hafa í huga þegar talað er um hámarkshraða, að hann er aldrei gerður virkur, vegna þess að löggæsla er engin á vegum landsins. Vegna þess sem á undan er sagt tel ég ummæli Einars K. Guðfinnssonar útúrsnúning á staðreyndum. Ef há- markshraði væri hækkaður upp í 110 km á völdum vegaköflum, myndu menn allstaðar aka eins og hámarks- hraði væri 110 km. Það sýnir sig nú þegar að menn virða ekki breytingar áhámarkshraða. GUÐVARÐUR JÓNSSON, Hamrabergi 5,111 Reykjavík. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.