Morgunblaðið - 30.08.2000, Side 55
'M'OÍUitíMBLAfelT)
MrÐ\TKTrDAcnm 30: Aoúst 2000 55
IfflMAGNAÐ
Pji /nnrr «&«
JíUíi' SíUckbetnier helur
ími okkm stórmyntBr á
bord við Top Gun,
Bevcríy HHfs Cop og
Artnageárfon. Nu sendir
harmfrasér stuö-
myndina'Coyote Ugly, í
anda Cocktail ogflash-
dance. nenut hvað
stelpurnar 1 Coyote Ugly
eru inikju sætari.
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10.
SKOÐIÐ ALLT UM KVIKMYNPIR q skifanJs
í draumum var þetta helst
Við erum óhrædd-
ir við heiminn
tUUJGÁflÆð Sr58^75 ALVÖRU Bíd! mctolbý
* =~ = J==-^ STAFRÆNT
k ===§!£=£= = HÍJÓeKBtBÍ UY
--------- — IkJLUM SðLURII -1-J-JA
Tókus
ftsH
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10.
InMlú-x ioj.7 f5f ókus
€** *
Treystu fáúni
Fordíistu fjöldahn
x-rwen/
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.10.
Sýnd kl. 10.10.
B. i. 16.
www.laugarásbió
Rokkskáldið og ryþmamennirnir fylg;ja
gestum Súfístans um lendur íslenskrar
ljóðlistar og erlendættaðrar tónlistar.
Morgunblaðið/Ásdís
Matthías, Tómas, Eyþór, Óskar og Einar Már leika og lesa ljóðadjass á Súfístanum í kvöld.
„í DRAUMUM var þetta helst‘‘ er
nýr geisladiskur sem Kvartett Tóm-
asar R. og skáldið Einar Már Guð-
mundsson ætla að kynna fyrir gest-
um Súfistans í kvöld kl. 20. Með
Tómasi í kvartettinum eru hljóð-
færaleikarar af betri endanum, þeir
Eyþór Gunnarsson píanóleikari,
Matthías Hemstock trommuleikari
og Óskar Guðjónsson saxófónleik-
ari. Stemmningin ætti engan að
svíkja, og ekki er verra að aðgangur
að herlegheitum er ókeypis.
Kennir ýmissa grasa
„Á diskinum verða tíu lög við
kvæði Einars Más sem hann les
sjálfur. Þau eru úr flestum hans
ljóðabókum sem komu út á árunum
1980 til 1995 og eru mjög fjölbreytt
í anda, bæði kvæðin og tónlistin.
Þetta er úrval af því sem var
frumflutt á Djasshátíð Reykjavíkur
í fyrra. Níu laganna eru eftir mig,
og síðan er eitt lag þar sem allir
leggja í púkkið, sameiginlegur
spuni.
- Teljast lögin annars hefðbundin
eða...?
„Tvö lög myndu flokkast til blús-
ættar. Það era þrjú lög þar sem
bæði Matthías og Eyþór leika á
slagverk undir hjá okkur Óskari.
Eyþór spilar á kongó- og bongó-
trommur sem skapar töluvert ann-
an blæ, þegar píanóinu er sleppt.
Það ei-u töluverð áhrif frá kúbanskri
tónlist í mörgum lögum, latínættar
og slagverksleg áhrif. Svo er þarna
frjáls djass þar sem við spinnum
undir lestri Einars Más á þeim stað
og stund sem lagið var tekið upp og
síðar eru nokkrar ofurviðkvæmar
ballöður, getum við sagt, og eitt gal-
ið danslag sem heitú- „Dansaðu fíflið
þitt, dansaðu“, þannig að þarna
kennir ýmissa grasa. Við getum
sagt að í grófum dráttum séu áhrif
frá djassi og latíntónlist, og svo líka
frá gamalli danstónlist eins og í
þessu síðastnefnda lagi.“
Frábærir slagverksleikarar
- Hvcrnig fer suðræni stQlinn við
hin rammíslensku ljóð hans Einars
Más?
„Mjög vel í þessum þremur lög-
um þar sem við erum ekki með
píanó. Við erum reyndar með latín-
hryn í fleiri lögum, en það skapar að
sumu leyti meii-a rými fyrir rödd-
ina, áherslurnar verða allt aðrar
þannig að tónlistin í heildina verður
fjölbrejttari. Við erum náttúmlega
báðir Islendingar en við Einar Már
tökum báðii- allt gott sem við finn-
um utanlands. Við erum óhræddir
við heiminn eins og allir bestu menn
íslands hafa verið fyrr og síðar.
Eitt af því sem hjálpar til hvað
þessi latín hljómui- er skemmtilegur
í mínum eyrum er að við erum ekki
bara með einn frábæran slagsverks-
mann, hann Matthías Hemstock,
heldur er Eyþór Gunnarsson líka
yfirburðamaður á kúbanskt slag-
verk. Og þeir vinna mjög vel sam-
an.“
- Vaidir þú ljóðin til að semja við?
„Já og bar það síðan undir Ein-
ar.“
- Og hvernig fellur rokkskáldinu
að djassa?
„Það kom í rauninni mjög vel út.
Jú, jú, hann er rokkskáld en hann
er líka svo margt, margt annað.
Rokkskáldið er ekki nema einn flöt-
ur á honum, og í það sem við getum
kallað mesta rokkkvæðið hans,
Dansaðu fíflið, setjum við gamal-
dags rokkbít með frjálsdjass áhrif-
um ofan á, og það smellpassar. Ein-
ar Már á líka mjög sterka ljóðræna
hlið, lágværa en sterka, sem hefur
komið fram í mörgum af hans
skáldsögum, og það gerir sig líka
mjög vel. Þetta er ekki þröng lesn-
ing á Einari Má, ég held að hér sé
horft á flestar hliðar á hans skáld-
skap.“
Raddhljdmurinn
kveikti hugmyndina
- Reynið þið hljóðfæraieikararnir
að túika á einhvern hátt textann
með einhverri stemmningarmynd-
un?
„Eg hafði það til grundvallar þeg-
ar ég samdi þessa tónlist að það er
andi hvers kvæðis sem skapar anda
tónlistarinnar mjög skýrt og greini-
lega. Og flutningur Einars hefur
óhjákvæmilega víða bein og óbein
áhrif.“
- Er þetta fyrsti ljóðadjass-
geisladiskurinn sem út kemur á ís-
landi?
„I þessum anda. Sjálfur gerði ég
disk árið 1994 þar sem ég fékk mjög
fjölbreytt úrval af söngvurum til að
syngja lög sem ég hafði gert við
ýmis kvæði og þannig diska hafa
fleiri gert, en ég held að þetta sé
fyrsti diskurinn þar sem skáldið
sjálft les öll sín kvæði með hljóm-
sveit.“
- Og þú ert ánægður með árang-
urinn?
„Áður en að þetta samstarf hófst,
þá þekkti ég röddina í Einari Má, að
því að ég taldi, býsna vel og það var
hljómurinn í hans rödd sem kveikti
hjá mér hugmyndinaum að þetta
gæti virkað, en mig hafði ekki *
dreymt um að hann myndi hljóma
jafnt sterkt og persónulega og
skemmtilega og raun varð á.“
RADÍÓ-X 103,7
CHAN WTLSON
Sfókus
m&m* m
11 POUBY ]
D I G I T A L
RADHÚSTORQI
mvm
*
StifNVJ/lElg)
Keflavik - simi 421 1170 samfilm.is
= i C O’Y OT E : í - U ,G L Ýf: !:• B í' '•»«■■» n»-wi f'í ■ 1 .„ w* :' t „n : •" lip íg. 1 liH, * uii : M: A 'xfl ■ ' ^ ■ . ■
Sýnd kl.8. Vit nr. 117. Sýndkl.10. Vitnr.104. Q