Morgunblaðið - 03.09.2000, Page 4

Morgunblaðið - 03.09.2000, Page 4
4 SUNNUDAGUR 3. SEPTEMBER 2000 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ VIKAN 27/8-2/9 ► STJÓRN Félags ís- lenskra leikskólakennara hefur lýst yfir áhyggjum sínum af ástandinu sem skapast hefur vegna starfsmannaskorts í leik- skólum. ► Forsætisráðherrar Norðurlanda og Eystra- saltslanda héldu samráðs- fund í vikunni. Efst á baugi voru umræður um ESB- aðild og sjúkdómavamir. ► BRESK kona og tvö börn hennar féllu í Skafta- fellsá þegar íshelia sem þau stóðu á, gaf sig. Konan var flutt á gjörgæsludeild, en börnin sluppu að mestu ómeidd. ► UMMÆLI Halidórs Ás- grímssonar, utanríkis- ráðherra í Jótlandspóstin- um, um stöðu íslands gagnvart ESB, hafa vakið nokkra athygli. Halldór sagði ljóst að ef íslending- ar sæktust eftir aðild yrði að finnast lausn sem væri viðunandi fyrir íslenskan sjávarútveg.en í því sam- bandi hlyti að reyna á vilja annarra Evrópuþjóða. ► FERJAN Baldur rakst á sker á leið til Flateyjar á miðvikudagskvöld. Um fjórtán farþegar voru um borð auk áhafnar og hlutu bæði áhafnameðlimir og farþegar meiðsl við högg- ið. ► OPINBER heimsókn Li Peng, forseta þjóðþings Kína, til Islands hófst í gær. Fjölmörg félaga- samtök hafa boðað til úti- fundar á Austurvelli klukkan 14:30 í dag, til að mótmæla heimsókninni. Skuldir sjávarútvegs hafa stóraukist SKULDIR sjávarútvegsins voru tald- ar vera kringum 175 milljarða króna um síðustu ái-amót og hafa þær aukist um 70 milljarða á fjórum árum. Sveinn Hjörtur Hjartarson, hagfræðingur LIÚ, segir skuldastöðu sjávarútvegs- ins áhyggjuefni, en hana megi að mestu rekja til nýfjárfestinga í fiskiskipum. Benedikt Valsson, framkvæmdastjóri Farmanna- og fiskimannasambands- ins, segir að skuldaaukninguna megi að nokkru leyti rekja til þess að kvóti og fyrirtæki hafi verið seld fyrir fé sem ekki hafi verið endurfjárfest í greininni. Netverk eykur hlutafé sitt um 770 milljónir HUGBÚNAÐAR- og hátæknifyrir- tækið Netverk hefur aukið hlutafé sitt um 770 millljónir króna í samvinnu við hóp erlendra ijármálafyrirtækja. Net- verk ætlar að nýta hið nýja hlutafé í frekari þróun á hugbúnaði fyrirtækis- ins og markaðssetningu hans og sölu erlendis og hyggst fyrirtækið auka um- svif sín í Evrópu, Asíu og N-Ameríku. Bílvelta af vegöxl á Reykjanesbraut ÞRÍR ungir piltar voru í fólksbiðreið sem valt a.m.k. þrjár veltur eftir að ökumaður hafði misst stjóm á bílnum á Reykjanesbraut. Tildrög slyssins voru þau að ökumaður reyndi að taka fram úr rútu og fólksbifreið sem ekið var samhliða, með því að aka út á vegöxl. Ökumaður hlaut hálsmeiðsli og skurði við bflveltuna en farþegarnir tveir munu hafa sloppið betur. Nokkuð mun hafa borið á því að ökumenn noti vegaxlir á Reykjanesbraut til að taka fram úr, en Lögreglan og Vegagerðin segja þær eingöngu ætlaðar til þess að bflar geti vikið fyrir hraðari umferð. Gíslar látnir lausir SEX gíslar sem múslímskir öfgamenn á Filippseyjum hafa látið lausa tóku á þriðjudag þátt í móttökuathöfn sem haldin var þeim til heiðurs skammt frá Trípólí, höfuðborg Líbýu. Héldu gísl- amir síðan hver til síns heima. Hvorki Múammar Gaddafi Líbýuleiðtogi né sonur hans var viðstaddur athöfnina en líbýskur embættismaður hvatti gíslana fyrrverandi til að gleyma því ekki að Gaddafí hafi átt stóran þátt í að þeir vora látnir lausir. Sex aðrir vestrænir menn era enn í haldi. Stjómvöld á Filippseyjum greindu síðan frá því sama dag, að Abu- Sayyaf-uppreisnarmennimir, sem höfðu haldið gíslunum í fjóra mánuði, hefðu tekið Bandaríkjamann í gíslingu og hóti að taka hann af lífi. „Svarti ágúst“ RÚSSNESK stjórnvöld hétu því að Moskvubúar myndu á miðvikudag geta á ný náð útsendingum nokkurra sjónvarpsstöðva frá Ostankino-sjón- varpsturninum, sem eldur kom upp í á sunnudag. Moskvubúar bjuggu við sjónvarpsleysi frá því síðdegis á sunnudag og hörmuðu fjölmiðlar þetta síðasta slys. Gengu sumir svo langt að tala um „svarta ágúst“ og sagði eitt blað að í sögu Rússlands hin síðari ár hefðu aldrei orðið svo mörg óhöpp í einum mánuði. Clinton lofar aðstoð BILL Clinton Bandaríkjaforseti lof- aðlyfirvöMum í S-Ameríkuríkiilu Kól- umbíú 1,3 milljarða Bandaríkjadollara aðstöð í baráttu þeirra gegn fíkniefna- viðskiptum. Kom Clinton í stutta heimsókn til landsins á miðvikudag. Hitti forsetinn hinn kólumbíska starfsbróður sinn, Andreas Pastrana. Kólumbíska lögreglan greindi frá því að tveir menn hefðu verið handteknir með sprengju í húsi skammt frá ein- um af viðkomustöðum Clintons. ► RÚSSNESKIR og norsk- ir kafarar munu í lok sept- ember hefja það vanda- sama verk að ná upp líkamsleifum sjóliðanna 118 sem fórust með rúss- neska kjarnorkukafbátnum Kúrsk í Barentshafi. Að- stoðarforsætisráðherra Rússlands, Ilija Klebanov, greindi frá þessu eftir að hafa átt fund með Vladímír Pútín forseta. Sagði Kleb- anov ennfremur að fram- kvæmdir við að ná bátnum sjálfum af hafsbotni myndu að líkindum hefjast eftír eitt ár. Hann sagði ekkert um það hvernig farið yrði að þvi að ná bátnum upp. ► NORSKI Framfara- fiokkurinn nýtur nú meiri vinsælda en aðrir sfjórn- málafiokkar í landinu sam- kvæmt skoðanakönnun sem birt var í blaðinu Nationen á miðvikudaginn. ►SKOÐANAKÖNNUNá vegum Gallups, er birt var á mánudag, benti til þess að George W. Bush, for- setafranyóðandi repúblík- ana í Bandarflqunum, pjÓti nú örlítið meiri stuðnings kjósenda en frambjóðandi demókrata, A1 Gore. ► JÓHANNES Páll páfi II fordæmdi á þriðjudag klón- un fósturvísa og hvatti viV . : indamenn til að sýna manrH - fólki virðingu. Skírskotaði páfi til hugmynda um klón- un fósturvfsa til að rækta líffæri til ígræðslu, en hann flutti ræðu á alþjóðai'áð- stefnu um líffæraígræðsu, sem haldin var í Róm. Sagði páfi klónun fósturvfsa sið- ferðilega ranga, jafnvel þótt í góðum tilgangi væri. Íslandssími og Lína.Net semja um ljósleiðarakerfi á Suðurlandi Ljósleiöari lagður um Suðurland ÍSLANDSSÍMI og Lína.Net hafa skrifað undir samning um sameig- inlega lagningu ljósleiðara frá Reykjavík til Vestmannaeyja. Verktíminn er áætlaður tæpir 4 mánuðir og er gert ráð fyrir að ljós- leiðarakerfið verði tilbúið í byrjun næsta árs. Heildarkostnaður við verkið er áætlaður 110 milljónír kr. í fréttatilkynningu frá Islands- síma segir að með þessum nýju tengingum standi þéttbýliskjarnar á Suðurlandi og Vestmannaeyjar jafnfætis höfuðborgarsvæðinu hvað varðar möguleika á þróun öflugrar Net- og fjarskiptaþjónustu og út- breíðslu á stafrænu sjónvarpi. Öll millilandafjarskipti viðskiptavina Íslandssíma, hvort sem um er að ræða tal, gagnaflutninga eða net- umferð, fara um eigið net fyrirtæk- isins. Allri netumferð verður beint inn á nýja strenginn „Nýi strengurinn, sem hafist verður handa við að leggja 15. sept- ember, er um 150 km og verður ljósleiðarakerfí fyrirtækjanna því samanlagt hálft fjórða hundrað kílómetra. Leggurinn til Vest- mannaeyja er tengdur inn á kerfið við Höfðabakka og í Tæknigarð við Dunhaga. Hann liggur um Hvera- gerði, Selíoss, Hellu, Hvolsvöll, Austur-Landeyjar og yfir sundið til Vestmannaeyja í kapalhús Cantat 3 sæstrengsins þar. Gert er ráð fyrir að aðgangsbúnaður verði settur upp í öllum þéttbýliskjörnum. Þá .er í samningnum ákvæði um áð Íslandssími geti komið upp ATM- tengingum á leiðinni og Lína.Net svokölluðum IP-samböndum fyrir gagnaflutninga. Lína.Net hefur fyr- ir að ráða 45 mb/s tengingu um Cantat vestur um haf, og mun beina allri sinni netumferð um þennan nýja streng," segir m.a í tilkynning- unni. Gunnarsdóttir Eiríkur Bragason, forstjóri Línú.Nets, og Eyþór Amalds, forsljóri Islandssíma, tóku fyrstu skóflustunguna vegna nýja Ijósleiðarakerfisins uppi á Kambabrún í gærmorgun. Markaðsstjóri Nóa-Síríusar vegna fagnaðar í Esjimni Gengið var frá öllum leyf- um fyrir tveimur vikum HJALTI Jónsson, markaðsstjóri Nóa-SWusar, segir að einhver mis- brestur hafi orðið í samskiptum Landsbjargar og lögreglu varðandi leyfi til að skjóta upp neyðarblysum í Esjunni. Fram kom i Morgunblaðinu í gær að þyrla Landhelgisgæslunnar var sett í viðbragðsstöðu í fyrrakvöld þegar tilkynning barst um neyðar- blys í hlíðum Esju. Starfsmenn Nóa-SWusar voru þar að halda upp á 80 ára afmæli fyrir- tækisins og að sögn Hjalta var þar um að ræða lokahátíð fyrir starfs- menn og fjölskyldur þeirra vegna af- mælishátíðarinnar, sem hefur staðið yfir allan ágústmánuð. Var ákveðið að Ijúka hátíðarhöldunum með tákn- rænum hætti þar sem gengið yrði á Esjuna og tveir hjálparsveitarmenn tendraðu blys sem mynda áttu töl- una 80. Tók hann fram að um fjöl- skylduhátíð hefði verið að ræða og áfengi ekki verið haft um hönd. „Við gerðum þetta í samstarfi við Landsbjörgu og Hjálparsveit skáta. Þeir seldu okkur blysin og gengu frá öllum leyfum fyrir tveimur vikum,“ sagði hann. Haft var eftir lögreglu í Morgun- blaðinu í gær að engin leyfi hefðu verið veitt til að skjóta upp neyðar- blysum. Hjalti sagði að auk þess sem leyfa hafi verið aflað hjá lögreglu- stjóra og Landvemd hafi einnig ver- ið aflað leyfa hjá Skógrækt ríkisins til að skjóta upp blysunum þar sem Esjan er friðlýst svæði. „Þarna er augljóslega um einhvern misbrest að ræða í samskiptum á milli Lands- bjargar, Hjálparsveitar skáta og lög- reglu,“ sagði hann. Framkvæmdastjóri miðborgar sagði ekki þörf á lögregluleyfi Einnig kom fram í fréttinni að lög- reglan hefði fyrr á föstudag stöðvað hátíðarhöld Nóa-SWusar á Lækjar- torgti þar sem tilskilin leyfi lægju ekki fyrir. Hjalti segir ofsagt að um hátíðarhöld hafi verið að ræða held- ur hafi fyrirtækið fengið tvo krafta- karla til að gefa gestum og gangandi kost á að lyfta lóðum á Lækjartorgi. Hjalti sagði að talað hefði verið við framkvæmdastjóra miðborgar Reykjavíkur og fengið leyfi hans vegna undirbúnings þessarar uppá- komu. Framkvæmdastjóri miðborg- arinnar hefði sagt að ekki væri þörf á lögregluleyfi vegna þessa atriðis þar sem ekki væri um opinberan tónlist- arviðburð að ræða.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.