Morgunblaðið - 03.09.2000, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 03.09.2000, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 3. SEPTEMBER 2000 37 + Erla Guðmunds- dóttir fæddist 27. maí 1929. Hún lést 12. ágúst síðastlið- inn. Foreldrar henn- ar voru Vilborg Ein- arsdóttir frá Með- alfelli, Hornafirði og Guðmundur Benja- mínsson klæðskeri frá Flatey á Breiða- firði. Eiginmaður Erlu var Gunnar Mekkín- ósson húsgagna- bólstrari. Þau slitu samvistir. Börn Erlu eru: Vilborg Gunnarsdóttir; Björk Gunnars- dóttir Huzell; Dagmar Gunnars- dóttir; Guðmundur Gunnarsson, lést í bernsku; Gunnar M. Gunn- arsson og Máría Kamal Gordons- dóttir. Erla starfaði Iengst sem Iöggilt,- ur dómtúlkur og skjalaþýðandi hjá varnarliðinu á Keflavíkurflug- velli. Erla var jarðsett 20. ágúst. Það var á kvennafrídeginum 1975 sem ég sá fyrst nafn Erlu Guðmundsdóttur. Þó að komið væri haust var vor í hugum þeirra kvenna, sem fjölmennt höfðu á útifund í Reykjavík og sátu síðan fjölmennan fund kvenna í Félagsheimilinu Stapa, Njarðvík. Við vorum tilbúnar að reyna eitthvað nýtt, eitthvað fyrir okkur og því vakti lítil auglýsing áhuga okkar, en þar bauð Erla kon- um að kynnast I.T.C. (International Toastmistress Club). Þetta var al- þjóðlegur félagsskapur kvenna, þar sem m.a. var lögð áhersla á tjáningu, hlustun og sjálfsöryggi. Við mættum hjá Erlu, nokkrar systur, mæðgur, frænkur og vinkon- ur og hún hreif okkur með eldmóði sínum og persónuleika. Erla átti sér draum, hann var að gera eitthvað sérstakt iýi’ir konur á kvennaári, eitthvað sem skipti máli og gæti breytt lífl kvenna og bætt íslenskt samfélag. Sjaldan hefur eins lítil þúfa og auglýsing Erlu var velt jafn stóru hlassi og raun varð á. Hin eld- rauðhærða og skapmikla Erla bók- staflega lyfti okkur upp úr skónum, það var ekkert ómögulegt fyrir konur, við höfðum gáf- ur, þrek, úthald og hún lét okkur vita að það skipti máli hvað við sögðum/gerðum. Kvennaári hjá okkur lauk með glæsibrag. Við höfðum unnið vel undir stjóm Erlu, við þýðingar á kennsluefni I.T.C. jrfir á íslensku. Allt efni átti að vera að- gengilegt fyrir íslensk- ar konur, þótt félags- skapunnn væri alþjóðlegur, leggja átti áherslu á móðumiál okkar í allri framsetningu. I.T.C. fékk íslenska nafnið Málfreyjur og fyrsta deildin sem stofnuð var í Keflavík 22. des- ember 1975 fékk nafnið Málfreyju- deildin Varðan. Þetta var erfitt, gaman og umfram allt þroskandi. Konur fundu þarna vettvang þar sem þær gátu eflt sjálfsöryggi sitt í hópi góðra vina. Málfreyjufélagsskapurinn varð stökkpallur til frekari dáða, konur fóm menntaveginn, tóku virkan þátt í félagsstörfum og bæjarmálum og umfram allt nutu þær lífsins, vel meðvitaðar um að þær höfðu sitt- hvað að segja um menn og málefni. Alltaf var Erla með sitt fallega, glettna bros og eld í augum í fai'ar- broddi. Við námum land í Reykjavík, Hafnarfirði og síðan tók landsbyggð- in við, allsstaðar vom konur sem vildu fræðast, efla sjálfsöryggi sitt og koma skoðunum sínum á fram- færi, brátt voru um 600 konur starf- andi innan Málfreyjusamtakanna. En allt er breytingum háð í henni veröld, eins var með félagsskap I.T.C. Breytingar vom gerðar á höf- uðstöðvum okkar í Bandaríkjunum, nú átti að opna félagsskapinn fyi-ir báðum kynjum og átti hið nýja enska nafn þessara samtaka að vera alls- staðar það sama. Þessu undi Erla illa, enda kominn tími á breytingar hér heima, við konur áttum val. Erla samdi nýtt íslenskt fræðslu- efni/-kerfi. Hér urðu kaflaskipti hjá okkur, alíslenskur félagsskapur varð til og hélt nafninu Málfreyjur, áfram var unnið á alþjóðlegum vettvangi í félagsskap I.T.C. ' (Intemational Training in Communieation). Við höldum enn hópinn nokkrar „stelp- ur“ sem vomm stofnaðilar, eða kom- um í félagsskapinn á fyrstu árum hans og köllum hópinn Freyjur. Allt fram á þetta ár hefur Erla verið drif- fjöður hópsins. Hvar sem hún kom setti hún svip sinn á umhverfið, hún var litrík í orðsins fyllstu merkingu. Ég vil þakka Erlu samfylgdina á liðnum ái'um, það var gaman, það var gefandi. Erla Guðmundsdóttir, hafðu þökk fyrir gjöf þína til ís- lenskra kvenna, með viljastyrk þín- um og áræði gafst þú okkur og ís- lensku samfélagi ómældan arf sem seint verður þakkað. Þú lést draum þinn rætast. Við sendum börnum Erlu og fjöl- skyldum þeirra innilegar samúðar- kveðjur. F.h. Freyja, Jórunn Guðmundsdóttir. Elsku, kæra Erla. Ég var að frétta að þú værir farin frá okkur. Ég vissi að þú varst búin að vera veik um tíma. Með eftirsjá hugsa ég til þess að hafa ekki komið í heimsókn. Sú var ætlunin en ekki framkvæmd. Ég man þig sem kjarnorkukonu, alltaf að fást við eitthvað, í háhæluðum skóm með rauða hárið um allt og svo fallegt bros. Faðmur þinn stóð mér alltaf opinn til huggunar. Þú kenndir mér að baka djöflaköku, sem var svona Erlu-kaka, sú besta sem ég hef smakkað. Hjálpsemi þín átti sér lítil takmörk. Þegar við mamma fórum eitt sumar til Englands varðir þú mörgum kvöldum við saumaskap. Mér fannst þú geta allt. Þarna rann út úr saumavélinni hvert dressið á fætur öði-u; tveir kjólar og buxna- dress sem ég tók með mér út. Ég var svo flott. Ofarlega er mér í minni páska- helgi sem þú eyddir með okkur. Ég vaknaði um morguninn og leið eins og Lísu í Undralandi. Hvílíkt páska- hlaðborð sem þú útbjóst handa okk- ur. Annað eins hef ég hvorki séð fyrr né síðar. Best var að kynnast Björk, dóttur þinni, sem varð besta vinkona mín. Ég sendi henni og börnum þín- um mínar samúðarkveðjur. Ég þakka þér gjafir þínar og kveð með söknuði. Þín Steinunn Björk. ERLA GUÐMUNDSDÓTTIR + Málfríður Er- lingsdóttir var fædd á Þorgrínis- stöðum í Brciðdal 6. júlí 1922. Hún andað- ist á Sjúkrahúsi Keflavíkur 26. ágúst síðastliðinn. Foreldr- ar hennar voru Er- lingur Jónsson og Þórhildur Hjartar- dóttir. Málfríður var Igift Ragnari Sigurðs- syni frá Urðarteigi á Berufjarðarströnd. ’ Hann var fæddur 17. júní 1902, d. 14. sept- ember 1964. Börn þeirra voru: 1) Unnur Svanhildur, f. 28. janúar 1940, d. 9. mars 1994. Eftirlifandi „Mínir vinir fara fjöld“. Þessi ljóðlína er orð að sönnu. 1 henni felst bitur reynsla okkar, | sem eigum mörg ár að baki. Kyn- slóðin, sem við ólumst upp og störfuðum með, hverfur smátt og ’ smátt af sjónarsviðinu. Við, sem eftir erum, fyllumst söknuði og tómleika, einkum þegar um ætt- ingja eða vini er að ræða. Énn einu sinni verð ég nú að kveðja kæra vinkonu, sem árum saman bjó undir sama þaki og ég. Maðurinn minn var enn á lífi, þegar Málfríður Erlingsdóttir kom Ií heimsókn til okkar ásamt annarri konu, sem ég þekkti ofurlítið. Mál- Ifríður þurfti þá á húsnæði að halda fyrir sig og dótturdóttur sína, Sól- maki hennar er Hlöðver Kristinsson. Börn þeirra voru sjö talsins. 2) Þórey, f. 13. janúar 1941. Maður hennar er Svavar Borgarsson. Þau eiga fjögur börn. 3) Eiríkur Björn, f. 5. apríl 1942, d. 6. febrúar 1995. Eftirlifandi kona hans er Pálína Guðnadóttir. Börn þeirra eru fimm. Útför Málfríðar fer fram frá kirkju Fíladelfíusafnaðarins mánudag- inn 4. september og hefst athöfnin klukkan 13.30. rúnu, sem ólst upp hjá ömmu sinni. En kunningjakonan hafði frétt, að um þetta leyti losnaði íbúð í húsi okkar hjóna. Ég man, að okkur leist báðum vel á Málfríði og vildum gjarnan gera henni gi-eiða. Svo heppilega vildi líka til, að vinnustaður hennar var í nágrenninu. Varð því að sam- komulagi, að hún flytti bráðlega til okkar. Við urðum ekki fyrir vonbrigð- um með nýja leigjandann. Málfríð- ur var elskuleg kona, ljúf og hlý í viðmóti. Hún var hjálpsöm, skilvís og mjög snyrtileg í allri umgengni. Brátt urðum við góðir vinir. Þó að hún væri ekki orðmörg að jafn- aði eða bæri tilfinningar sínar á torg, þekkti ég hana vel. Hún var einlæglega trúuð kona, tilheyrði Hvítasunnusöfnuðinum og sýndi kristindóm sinn í verki. Því kynnt- ist ég best er ég missti manninn minn skyndilega. Þá var gott að eiga hana að. I tæplega tvo áratugi bjó hún í húsi mínu. Þegar hún kom til að segja upp húsnæðinu af ófyrirsjá- anlegum orsökum, voru vangar okkar beggja votir af tárum. Enda var hún áður búin að segja við mig, að hún vonaði að hún þyrfti ekki að flytja fyrr en Drottinn kallaði hana heim í himin sinn. Þó að leiðir skildu og höf og lönd væru milli okkar héldum við sambandi hvor við aðra. Frá síð- ustu heimsókn hennar til mín fyrir réttu ári, geymist hlý kveðja í gestabókinni. Hún vermdi hjarta mitt þá og enn meira nú, þegar Málfríður er sjálf horfin sjónum. Þó að ég sakni þess að heyra ekki framar rödd hennar í síman- um samgleðst ég henni að vera laus við þrautir og vanmátt, sem fylgdi banameininu. Hún er nú komin heim í himininn til Drottins, sem hún trúði á. Þar er engin þjáning, engin sorg, engin tár. Þar hefur hún fengið að sjá frelsara sinn eins og hann er og verða hon- um lík. Um leið og ég votta öllum ást- vinum Málfríðar einlæga samúð mína, þakka ég Guði fyrir samvist- arár okkar og trúfasta vináttu hennar. En fyrst og fremst vil ég taka undir orð Páls postula í fyrra Korintubréfi, þar sem hann segir: „Guði séu þakkir, sem gefur oss sigurinn fyrir Drottin vorn Jesúm Krist.“ Lilja S. Kristjánsdóttir. MALFRIÐUR ERLINGSDÓTTIR t Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, ÁGÚSTA SIGURJÓNSDÓTTIR, áður Hafnargötu 51, Keflavík, lést á Garðvangi, Garði, mánudaginn 28. ágúst. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju mánu- daginn 4. september kl. 14.00. Fyrir hönd aðstandenda, Sigríður Jónsdóttir, Jóhann Hjartarson, Ásdís Jónsdóttir, Hilmar Pétursson. t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, VALTÝR GÍSLASON, frá Ríp, Aflagranda 40, lést á Landspítalanum í Fossvogi miðviku- daginn 30. ágúst. Fyrir hönd aðstandenda, Eva Benediktsdóttir, frá Þverá, Aflagranda 40. t Elskuleg móðir okkar, fósturmóðir, tengda- móðir, amma og langamma, SIGRÍÐUR ÞÓRA ÁRNADÓTTIR, Gullsmára 7, Kópavogi, verður jarðsett frá Dómkirkjunni í Reykjavík mánudaginn 4. september kl. 13.30. Blóm afþökkuð en þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á Styrktarfélag krabbameins- sjúkra barna. Soffía Einarsdóttir, Anna R. Einarsdóttir, Þórir E. Magnússon, Arnar Gunnarsson, Guðrún Gísladóttir, Einar Ingi Magnússon, Sigrún Guðmundsdóttir, Gunnar Magnússon, María Palma Rocha, Sigrún Magnúsdóttir, Jón Helgason, Ása Magnúsdóttir, Anna Þóra Aradóttir, Karl V. Karlsson, Jóhannes Ari Arason, Sigrún Hallgrímsdóttir, Árni Alvar Arason, Elsa Ævarsdóttir, Sigrún Arna Aradóttir, Jóhannes G. Ólafsson og barnabarnabörn. Okkar ástkæri, VIKTOR MAGNÚSSON, hjarta- og lungnavélasérfræðingur, Skólavörðustíg 20, Reykjavík, sem lést af slysförum þriðjudaginn 29. ágúst sl., verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju miðvikudaginn 6. september kl. 15.00. Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Hallgrímskirkju. Ida Anna Karlsdóttir, Hulda Guðrún Þórólfsdóttir, Sonja Viktorsdóttir, Annalísa Magnúsdóttir, Kristján Gr. Tryggvason, Gunnar Már Kristjánsson, Hermann Kristjánsson, Guðborg A. Guðjónsdóttir, Signý Ó. Kristjánsdóttir, Þórólfur Jónsson, Guðný Laxdal og aðrir aðstandendur. t Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, BIRGIR ÞÓRÐARSON, Akurgerði 12, Akranesi, verður jarðsunginn frá Akraneskirkju þriðju- daginn 5. september kl. 14.00. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Sjúkrahús Akraness. Sigríður Svavarsdóttir, Jónína Birgisdóttir, Þorvaldur Heiðarsson, Anna Sigríður Jóhannesdóttir, Eyjólfur Þór Guðmundsson, Birgir Þór Arnarson, Þorvaldur Heiðar og Þórður Elí Þorvaldssynir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.