Morgunblaðið - 03.09.2000, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 03.09.2000, Blaðsíða 54
54 SUNNUDAGUR 3. SEPTEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM •• mm !0tf£ma mm Upplífgandi Fatboy Slim DANSBOLTINN ofursvali Fatboy Slim gefur út nýja plötu 6. nóvem- ber næstkomandi sem fengið hefur heitið Halfway Between The Gutt- er And The Stars. „Feiti drengur- inn“, sem í raun og veru heitir Norman Cook og plokkaði bassann nett með Housemartins hér áður fyrr, segir að nýja platan verði mun afslappaðri og þægilegri áheyrnar en síðasta platan Yoúve Come A Long Way Baby: „Það verða gospel- kenndir hljómar á nýju plötunni í stað harða og háværa taktsins sem einkenndi þá síðust. Hún er heldur ekki eins poppuð og blátt áfram - það verður ekkert lag á henni á _ borð við „Rockafeller Skanks“. Ég hef líka pælt meira í heildarmynd- inni núna og húsáhrifin eru auð- heyranleg. Hún verður fyrst og fremst upplífgandi.“ Meðal samstarfsmanna Slim á plötunni eru söngdrottninginn Macy Gray, gamli glansfönkarinn Bootsy Collins og Jim Morrison heitinn sem heimtur var úr helju til að fara með ljóðlínur í fyrsta smá- skífulagi plötunnar „Sunset (Bird Of Prey)“. Reuters Fatboy Slim vann til fjölda verð- launa fyrir sfðustu plötu. MYNDBOND Að gullöld lokinni Síðasti framleiðandinn (The Last Producer) Gamanmyiid ★★ Leiksljóri: Burt Reynolds. Handrit: Clyde Hayes. Aðalhlutverk: Burt Reynolds, Benjamin Bratt, Lauren Holly. (86 mín.) Bandarikin 1999. Háskólabfó. Öllum leyfð. viðtal og leiðbeiningar nr vetunnn, 20 tímar á verði 10-aðeins í dag! Förðunarfraðingur frá No Name með fría ráðgjöf. Láttu mæla fituhlutfall líkamans-fritt i dag! um æfii ita ráðgjöf og svara spumingum þínumi Allar sem fara í heitu laugina i dag fá fritt höfuðnudd hjá nuddurum okkar. Setur á gervineglur. Sjáðu vinnubrögðin! Tilboð á nöelum. Frí barnagæsla frá 13.00-17.00, svo þu getir tekið þér tíma til að skoða og spyrja. - kiktu i heimsokn ! Veita Er einkaþjálfun eitthvað fyrir þig? Komdu og kynntu þér málið. Snyrtifraeðingar veit fría ráðgjöf um umhirðu húðar og val á þeirri húðlínu er hentar þér best. Þarf ég að geta staðið á haus til að stunda jóga? Jógakennarar svara spurningum. Kennarar og viðskiptavinir taka þátt í 2 klst. löngum blönduðum þolfimirima! Þú getur komið og séð eða prófað, hinar ýmsu tegundir af tímum. Endað á afslöppun í kyrrðarstund. Á heilsubamum-fyrir alla gesti, Fáðu ráðgjöf og mælingu. Kynning á heilsuátökum og stórátökum. LASt IXOaWSlt MYNDIR um streðið í kvik- myndasmiðju Hollywoodborgar eru orðnar nokkrar. Það er ætíð ■HHMnn gaman að fylgjast með kvikmynda- gerðarmönnum skoða eigin starfs- stétt, skjóta nett á félagana og jafn- vel sjálfa sig ef vel og heiðarlega er að verki staðið. The Player er hér í sérflokki, hár- beitt og tímabær naflaskoðun á hé- góma Hollywood. Önnur lúmsk mynd er The Big Picture eftir Spinal Tap-meðliminn Christopher Guest. Hún lýsir síðan hversu erf- itt getur verið að koma sér áfram - jafnvel þótt hæfileikinn sé ótvíræð- ur. I Síðasta framleiðandanum er Burt karlinn Reynolds að undir- strika að tímarnir hafi breyst - að gullöld Hollywood sé liðin, tíminn þegar allir sem að kvikmyndagerð- inni komu voru í bransanum vegna áhugans á því að gera góða kvik- mynd en ekki vegna peninganna, þar með taldir sjálfir framleiðend- urnir. Nú séu sendiboðar Mamm- ons við stjórnvölinn - ungir pabba- strákar sem hugsi um það eitt að græða sem mest. Þótt Reynolds lýsi hér bitrum veruleika fyrir gamlan jaxl eins og sig þá passar hann sig sem betur fer á því að taka sig og sér eldri kynslóðir ekki of hátíðlega. Þótt hinn fjárþurfi framleiðandi, sem hann leikur hér með ágætum, muni tímana tvenna þá var hann aldrei neinn stórlax heldur einungis einn af þeim fjöl- mörgu sem rembdust eins og rjúp- an við staurinn við að slá í gegn. Skarphéðinn Guðmundsson Sænskur tryllir Kafarinn (Dykaren) S p e n n ii iii y n d ★% Leikstjóri: Erik Gustavson. Hand- rit: Erik Gustavson og Kjetil Indregard. Aðalhlutverk: Stefan Sauk, Klaus M. Brandauer og Iza- bella Scorupco. (91 mín.) Danmörk/ Svíþjóð, 2000. Sam myndbönd. Bönnuð innan 16 ára. SVÍAR virðast hafa komið sér upp talsverðri framleiðslu spennu- mynda og -þátta, en einhvern veg- inn veit titillinn „sænskur spennu- tryllir" sjaldnast á gott. Kafarinn styrkir mig að minnsta kosti í þeirri trú þar sem fyfoj um mjög útvatn- aða hollywoodíska formúlumynd er að ræða. Glæpa- umsvif rússnesku mafíunnar eru að HláÆtÖÍll sjálfsögðu tilval- 3 inn efniviður í slíkar myndir, og hér kynnumst við sérlega illskeytt- um durtum úr þeim hópi. Heiðar- legur sænskur skipstjóri í lopa- peysu dregst inn í flókin glæpaátök þegar hann bjargar dularfullri konu frá drukknun. Sú hefur verið í slagtogi við mafíuna og býr yfir vitneskju sem félagar hennar töldu best geymda á hafs- botni. Að hætti formúlunnar þarf skipstjórinn síðan að takast á við dulda og sársaukafulla fortíð sína sem áhorfandinn fær að kynnast í dramatískum endurlitsatriðum. Persónusköpun og flétta er þunn eftir því, fyrir utan nokkrar viðkunnanlegar aukapersónur. Leikstjórinn Erik Gustavson gerir síðan nokkrar tilraunir til að hressa upp á handritið en árang- urinn er takmarkaður. Heiða Jóhannsdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.