Morgunblaðið - 03.09.2000, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 03.09.2000, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ I DAG SUNNUDAGUR 3. SEPTEMBER 2000 49 ISIMIIS Árnað heilla IJnisjón (■iiómunilur l‘áll Arnarson BRIDSHÁTÍÐIN í St. Er- iks-klúbbnum í Stokkhólmi endaði með fjölmennum tveggja daga tvímenningi, þar sem Magnús Magnússon og Þröstur Ingimarsson enduðu í tíunda sæti. Hér er fallegt spil hjá þeim frá fyrri degi, þar sem góð sagnvenja gerði fólkið spil einfalt: Norður gefur; allir á hættu. Norður * 3 *KD Suður * ÁKD108653 » - * D4 * 963 Vestur Norður Austur Suður - Þröstur - Magnús - 2lauf Pass 3grönd Pass 6grönd Allirpass Opnun Þrastar á tveimur laufum er alkrafa og svarið á þremur gröndum sýnir ein- hvern þéttan lit, en lftið sem ekkert til hliðar. Þröstur sá að litur makkers var spaði og ennfremur að vörnin átti laufásinn. Hann stökk því beint í rétta tvímennings- samninginn - sex grönd. Tommy Gullberg sagði farir sínar ekki sléttar í þessu spili. Hann var í vest- ur og átti út gegn sjö spöð- um! Laufásinn var í austur og ekki fann Gullberg að koma þar út. Þess í stað valdi hann tígul frá kóngnum, því hann þóttist vita af tígulásn- um í borði. Sagnhafi hleypti tíglinum heim á drottning- una, tók trompin og henti síðan þremur laufum niður í AKD í hjarta. Þrettán slagir. Sk\k llmsjón llelgi Ass (íriUarssoii Hvítur á leik. STAÐAN kom upp á ofur- mótinu í Polanica Zdroj, Póllandi. Mikhaíl Kras- enkov (2702) stýrði hvítu mönnunum gegn Hvít-Rúss- anum Alexey Federov (2646). 21.Bxg5! hxg5 21...Bxg4 væri vel svarað með 22. Dg2. 22.h6 Bh8 23.h7+ Kg7 23...Rxh7 24. Dh3 og hvítur mátar. 24.Dh3 Rxg4 25.Bxg4 Kf6 26.Rfl! Ke7 27.Re3 f5 28.Bxf5 Bxf5 29.Rxf5+ Hxf5 30.Dxf5 Hf8 31.Dxg5+ Kd7 32.13 Ra6 33.De3 og svartur gafst upp. Atkvöld Hellis verður haldið 4. september kl. 20 í félagsheimili þess í Mjódd, Þönglabakka 1. Gómsæt verðlaun og skemmtilegur félagsskapur í boði! Svona lokum við fyrir raf- magnið þegar reikningam- ir eru ekki greiddir. ember, varð níræður Egill Kristinn Egilsson vélvirki, Furagmnd 75. Hann heldur upp á daginn í dag í ferming- arveislu bamabarnabams síns, Hönnu Sóleyjar, á Hót- el Loftleiðum eftir kl. 16. 0/\ ÁRA afmæli. í dag, Ol/ sunnudaginn 3. sept- ember, verður áttræð Jó- hanna G. Davíðsdóttir, Kópavogsbraut 1A, Pat- reksfirði. Jóhanna dvelur á afmælisdaginn á heimili dóttur sinnar, Hrefnu, að Kambaseli 56, Reykjavík. Hlutavelta Þessar duglegu stiílkur söfnuðu 4.230 kr. til styrktar Rauða krossi ísiands. Þær heita Kolbrún Eyjólfsdóttir og Birta Ólafsdóttir. Þessar duglegu stúlkur héldu tombólu og söfnuðu kr. 6.137 til styrktar Rauða kross íslands. Þær heita Lovísa Rut Kristjánsdóttir og Karen Ösp Guðbjartsdóttir. UOÐABROT ÉG VITJA ÞÍN, ÆSKA Ég vitja þín, æska, um veglausan mar eins og vinar á horfinni strönd, og ég man þá var vor, er við mættustum þar, þá var morgunn um himin og lönd. Þar var söngfugla mergð, öll á flugi á ferð, en þó flaug enginn glaðar sinn veg og um heiðloftin blá vatt sér væng sínum á og sér vaggaði léttar en ég. Þá söng ég um ástina sigurljóð tóm og um sakleysi, æsku og frið og ég leitaði upp öll hin ljúfustu blóm til að leggja þau hjarta mitt við. Kossar margtóku þá unga, eldheita þrá, sem að eilífðin gæti’ ekki kælt; hvað hún helg var og hrein vita vorkvöldin ein og hvað vinina dreymdi þá sælt. Og þá man ég það löngum, efblómið var blítt, er við brjóstið mitt hallaði sér að mér fannst þá, sem guð hefði gert það svo frítt og hann geymdi það rétt handa mér; en hin fegurstu blóm urðu allslaus og tóm ef þau urðu mér dáh'tið kunn; eftir örstuttan leik varð hver blómkróna bleik og hver bikar var tæmdur í grunn. Þorsteinn Erlingsson. Hringdu núna Krabbi (21.júní-22.júlí) Láttu ekki aðra fara í taug- amar á þér þótt þeir vilji tjá þér vangaveltur sínar um daginn og veginn. Farðu vel með tíma þinn og sjálfan þig. Með dáleiðslu getur þú sigrast á kvíða og ójafnvægi og aukið getu þína og jákvæða uppbyggingu á öllum sviðum. Leiðbeinandi: Viðar Aðalsteinsson, dáleiðslufræðingur. Ljón (23. júlí - 22. ágúst) m Það er líf eftir vinnu og þótt starfið sé mikilvægt máttu ekki vanrækja sjálfan þig og gleyma áhugamálum þínum. Sinntu líka vinunum. Meyja (23. ágúst - 22. sept.) Það jafnast ekkert á við það að njóta íslenzkrar náttúru. Gefðu þér tíma til þess og sæktu orku í umhverfi þitt. Miðlaðu svo öðrum af reynslu þinni. Vog m (23.sept.-22.okt.) . Það eru ýmsar skyldur sam- fara vinnunni og þótt sumar séu ljúfari en aðrar máttu ekki gera þai- upp á milli held- ur sinntu þeim öllum af at- orku. Sþorðdreki (23. okt. - 21. nóv.) Þér hættir tii að láta tímann líða án þess að þú komir miklu í verk. Nú þarftu að bretta upp ermamar og heila þér út í starfið. Bogmaður m ^ (22. nóv. - 21. des.) AO Þú kannt að lenda í útistöðum við samverkamenn þína. Stattu fast á þínum rétti hvað sem á dynur. Tíminn vinnur með þér, ef þú bara leyfir honum það. Steingeit (22. des. -19. janúar) áSH Það er alltaf gaman að koma öðrum skemmtilega á óvart. Brjóttu upp gráma hvers- dagsins og settu lit á dag þinna nánustu. Sýndu samt aðgæzlu. Vatnsberi (20. jan. -18. febr.) WSvt Ymis tækifæri bíða þín hand- an við homið. Sýndu kjark og leyfðu hæfileikum þínum að blómstra. Leiði þeir þig í óvænta átt skaltu fylgja þeim. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Vertu hreinskilinn og láttu sannfæringu þína ráða ferð- inni því á endanum ert það þú sem tekur afleiðingum gjörða þinna. Sýndu öðmm sann- girni. Stjömuspána á að iesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. Einkatímar • sími 694 5494 • Námskeið STJÖRJVUSPÁ eftir Frances Urake * 4 MEYJA Afmælisbarn dagsins: Þú ert tilli tssam urog leggur þigfram um aðgera öðrum til hæfís, stundum um of. Lærðu að verja þig. Hrútur (21. mars -19. apríl) I samstarfi hefst ekkert án málamiðlana. Mundu samt að það eru takmörk fyrir öllu, líka því sem hægt er að semja um.Gættu virðingar þinnar. Naut (20. apríl - 20. maí) Þér hefur tekist vel upp við endurskipulagningu starfs þíns. Búðu þig undir að til þín verði leitað varðandi skipu- lagningu annarra starfa. Tvíburar . (21.maí-20.júní) Art Þú hefur lagt hart að þér og nú er komið að því að þú getir sýnt öðram árangur erfiðis þíns. Gættu þess að ofmetn- ast ekki og taktu gagnrýni vel. ballet.is ANTIK Stórkostleg antikverslun í Hafnarfirði - Ný sending Islantik-Sjónarhóll Hólehrauni 5 (Fyrir aftan Fjarðarkaup), eími 565 5658 - www.ielantik.com fyrir byr[endur og lengra komna. Urval hugmynda. ____________9 ára reynsla. Aldís, sími 698 5704 Mámskeið í postulínsbpúðugepð Er að tijrja aftur með námsfeið fijrsta námskei SiS liefst 19. scpt. Langar [^iq að gera upp gömlu brúðuna fnna? MitiS úrval af alls BPú3uqePS Önnu Marfu hns íl,lq'Mu,um- Garðsstöðum 64, símar 587 7064 861 7064. Sími 533 5444 Fax 533 5445 Heimasíða margaretha.is Svarseðill □ já takk! Sendið mér póstlistann - mér að KOSTNAÐARLAUSU! Nafn______________________________________________ Heimilisfang___________________________________ Póstnúmer-------------------------------------- Margaretha, Kringlunni 7, 103 Reykjavík, s. 533 5444 Haust- og jólalistinn er kominn Pantið ókeypis eintak PÓSTVERSLUN FYRIR HANNYRÐAVINI Frábær árangur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.