Morgunblaðið - 03.09.2000, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Faðir, sonur og siðferðið
BÆKUR
F r æ ð i r i t
Siðfræði handa Amador
eftir Fernando Savater. 2000. Sið-
fræðistofnun Háskólaútgáfan,
Reykjavík. 201 bls.
ÞAÐ GEFAST fá færi í daglegu
lífi fyrir foreldra að rökræða um
hin mikilvægustu efni við stálpuð
börn sín. Þegar þau vilja ekki
lengur láta lesa fyrir sig á kvöldin
og þykjast geta séð um það sjálf
vilja þau síður hlusta á umvandan-
ir foreldra sinna. En þar liggur
einmitt vandinn. Börn og ungling-
Slóð fíðrild-
anna gefin
út á Spáni
SPÆNSKA
útgáfusam-
steypan RBA
hefur keypt
réttinn á Slóð
fiðrildanna
eftir Ólaf Jó-
hann Ólafs-
son. Þar með
hefur skáld-
sagan verið
seld til sex
landa, austan
hafs og vestan, en hún er
væntanleg á markað í Banda-
ríkjunum þann 21. nóvember
næstkomandi og verður það
fyrsta erlenda útgáfan á sög-
unni sem lítur dagsins ljós.
Ólafur
Jóhann
Ólafsson
ar vilja iðulega láta taka mark á
sér og skoðunum sínum hversu
langsóttar sem þær eru en for-
eldrar eiga erfitt með að eyða
löngum tíma í rökræður en vilja
koma því til skila að sumir hlutir
séu réttir og aðrir rangir og við
sumu eru blá bönn. Það vill því
fara lítill tími í rökræðu á milli for-
eldra og barna en þeim mun meiri
í átök um hver ræður hverju.
Fernando Savater hefur skrifað
bók um siðferði sem er stíluð eins
og samtal föður og sonar. Amador
er sonurinn. Raunar fær sonurinn
ekki að komast að heldur les faðir-
inn honum fyrir í góðgjarnlegum
tón um þau efni sem ungu fólki
eru mikilvæg og segir honum hvað
hann skuli lesa. í hverjum kafla
eru í lokin örstuttar ívitnanir í
klassísk siðfræðirit þar sem vikið
er að því efni sem um hefur verið
fjallað.
I upphafi er greint frá því um
hvað siðfræðin snýst. Síðan veltir
höfundur fyrir sér ólíkum tegund-
um af ástæðum, boðum, venjum og
duttlungum og hvernig þessar
ólíku ástæður tengjast frelsi í
breytni. Þær vangaveltur leiða til
þeirrar niðurstöðu að maður eigi
að gera það sem maður vill og
maður eigi að vilja lifa hinu góða
lífi og gott líf krefst þess að maður
ígrundi breytni sína, láti ekki
skeika að sköpuðu. Frelsið og
ábyrgðin á eigin lífí eru eðlisþættir
hins góða lífs og undan þessu
verður ekki vikist. En það er ekki
einungis að við höfum skyldur við
okkur sjálf heldur höfum við
skyldur við aðra og Savater orðar
það svo að það að koma fram við
annað fólk eins og manneskjur fel-
ist í að setja sig í þeirra spor. í lok
bókarinnar fer höfundurinn nokkr-
um orðum um tvö siðferðileg efni,
stöðu og hlutverk kynlífs í hinu
góða lífi og hvers konar skipulag á
samfélagi hæfi bezt hinu góða lífi.
Eftirmálinn nefnist „Þú verður að
hugsa málið“ og í honum leggur
faðirinn syni sínum þá lífsreglu að
sjálfur verði hann að ákveða hvað
hann geri við líf sitt og hann dreg-
ur fram röksemdir sem sýna fram
á fánýti þess að telja lífið til-
gangslaust eða eitthvert vit sé í
því að svipta sig lífinu.
Þetta er bráðskemmtileg bók og
hún er skrifuð af umtalsverðri
fimi. Það kemur bæði fram í því að
hún er vel stfluð, höfundurinn
hugsar vel hvað höfðar til ungs
fólks, finnur góð og viðeigandi
dæmi og leitast við að gera hlutina
ljósa og skýra. En þegar hann
leyfir sér að víkja að tæknilegum
atriðum, eins og í upphafi fjórða
kafla, þá er það vel gert og þjónar
tilgangi í textanum. Það ætti í
raun engan að undra að bókin hef-
ur orðið metsölubók því hún er
skemmtileg aflestrar, vel hugsuð
og um hin mikilsverðustu efni. Eg
vona bara að sem allra flest ungt
fólk lesi þessa bók, ekki vegna
þess að þetta sé inngangur að sið-
fræði heldur vegna þess að maður
getur nálgast siðferðið í þessari
bók: hún bendir manni á mikils-
verð atriði þegar maður hugsar
um siðferði í hversdagslegum
kringumstæðum. Svo held ég að
höfundurinn hafi á réttu að standa
um flest sem hann segir.
Þýðingin hefur tekist vel, er á
látlausu máli en áferðarfallegu. Ef
það eru prentvillur í bókinni fóru
þær fram hjá mér.
Guðmundur Heiðar
Frímannsson
anqar pi
DlTtippáhaldslögin þín!
......og eigá það á myndbandi!
Hjá SÖNGLIST gefst þér tækifæri til þess!
Einungis FAGMENNTAÐIR kennarar sjá um kennslu.
Mikil áhersla lögð á rétta TÆKNI og TÚLKUN.
Burjenda- oq framhaldsnámskeið fyrir.
20 ára og eldri
Söngskemmtun
ílok hvers námskeið
12-13 ára______________
14-16 ára LeiklistarnámskeiéL< Geisladiskur með afrakstri
17-19 ára fyrir fullorðna!\JEA * hvers hóps!
Kennsla hetst
Innritun þegar hafin
i sima
V Ásgeirsdótt ir ml m
.«11111 Agnar Jón Égilsson
SUNNUDAGUR 3. SEPTEMBER 2000 21
fyrir alla
Allir almennir dansar fyrir börn, unglinga og fullorðna.
Gömlu dansarnir - Standard - Latin
Byrjendur og framhald.
Kántry línudans
Salsa + Mambó + Merenge
Brúðarpör
Keppnispöræfingar 2-3svar í viku
Erlenáir gestakennarar
Einkatímar
Frábærir kennarar og skemmtilegt
anárúmsloft
• Opið hús á
laugaráagskvöláum
Faýmenns/íci.
DANSSKÓLI
Sigurðar Hákonarsonar
Auöbrekku 17 - Kópavogi
1 ■ 'aris
frá 1
y Ekki innifalið: Föst aukagjöld - fullorðnir 3.025 kr., börn 2.290 kr. J
Út 13/9 - Heim 20/9
Haust í París:
Ljúfur og rómantiskur sumarauki!
Flug13-20/9 fyrstu 10sætin
Ekki innifalið: Föst aukagjöld
Flug almennt verð
Ekki innifalið: Föst aukagjöld
VIKA í PARÍS*
Innifaiið: Flug + skattar,
akstur hótel/flugv., gisting
2** m/morgunv.
Flug aðra leið
Ekki innifalið: Föst aukagjöld
áfj
TERRA
NOVA
-Spennandl valkostur-
Slangarhyl 3A ■ 110 floykjavik
Simi: 587 1919 ■ Fax: 587 0036
info@terranova.is ■ lerranova.is
ÁDUR FEROAMIDSTÖB AUSTURLANDS