Morgunblaðið - 03.09.2000, Blaðsíða 22
22 SUNNUDAGUR 3. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
—
^sii
Mikið líf er við smábátahöfnina í Bolungarvík eftir hádegi á virkum dögum þegar trillurnar koma til að landa.
vvvvmi'
Guðmundur Einarsson fylgist með fóður sínum Einari
Guðmundssyni beita í einum af beitningaskúrunum.
Tveir nýir bátar komu til hafnar í Bolungarvík, Guðmundur Ein-
arsson IS sem er 6 tonna trilla og Þorlákur IS sem er 150 tonna.
Um 17 manns starfa í fiskvinnslunni Vík sem fær allt sitt
hráefni frá smábátum.
BOLUNGARVÍK hefur, líkt
og mörg önnur sjávarþorp
á íslandi, mátt þola miklar
þrengingar samfara erfið-
leikum í rekstri sjávarútvegsfyrir-
tækja. Fyrir aðeins fáeinum árum
voru 5 togarar í bænum og bæjarlífið
fjölskrúðugt og lifandi, en eftir árið
1990 upphófst nýtt tímabil í sögu bæj-
arins er erfiðleikar steðjuðu að fyrir-
tæki Einars Guðfinnssonar og það
varð gjaldþrota árið 1993. Á næstu
árum missti Bolungarvík megnið af
aflaheimildum sínum úr bænum og
árið 1995 til 1996 má segja að botnin-
um hafi verið náð og endurspeglast
það hvað best í því að í kjölfarið fór
íbúatala bæjarins í fyrsta skipti um
langan tíma undir 1.000. Atvinnu-
ástandið var slæmt og fólk sá framtíð
sinni ekki borgið í bænum.
Nú, við upphaf nýrrar aldar, virðist
ný dagsbrún - sumir tala jafnvel um
endurreisn - í augsýn í sjávarútvegi í
Bolungarvík. Breytingin er sú að í
stað togara eru það 6 tonna trillur
sem halda uppi atvinnulíftnu við höfn-
ina og í fyrsta skipti í 16 ár er að koma
nýtt skip inn í byggðarlagið, en út-
gerðarfélagið Dýri ehf. hefur fljót-
lega veiðar á linuveiðiskipinu Þorláki
ÍS.
Ólafur Kristjánsson, bæjarstjóri
Bolungarvíkur, sagði að það hefðu
eðlilega orðið ákveðin þáttaskil í bæn-
um þegar fyrirtæki Einars Guðfinns-
sonar hefði hætt rekstri.
„Ég held hinsvegar að við séum að
ná áttum og sáttum núna eftir þetta
ótímabæra gjaldþrot," sagði Ólafur.
„Menn voru svolítið lengi að fóta sig
eftir þetta.“
Ólafur sagðist vera mjög bjartsýnn
á að nú væri verið að snúa þróuninni
við, sérstaklega í ljósi þess að íbúa-
fækkunin hefði stöðvast.
„Ég tel að þessi smábátaútgerð
hafi haft alveg gífurlega góð áhrif á
þróun byggðamála hér. Fjölmargir
einstaklingar hafa ráðist í stórvirki
Smábátar leysa
togara af hólmi í
Bolungarvík
Það eru breyttir tímar í Bol-
ungarvík. Trillur hafa nú leyst
togarana af hólmi sem helsta
lífæð bæjarins og ríkir nú mikil
bjartsýni á meðal bæjarbúa um
að atvinnuástandið sé að kom-
ast á réttan kjöl. Trausti
Hafliðason blaðamaður og Árni
Sæberg ljósmyndari fóru til
Bolungarvíkur og kynntu sér
smábátaútgerðina og þau áhrif
sem hún hefur haft á bæjarlífíð.
með því að kaupa báta og kvóta
og hafa gert það með stuðningi
Sparisjóðs Bolungarvíkur, sem
hefur lánað á annan milljarð
króna til þeirra kaupa. Bolvík-
ingar eru alveg ákveðnir í því að
bjarga sjálfum sér og byggðar-
laginu - í dag finnst mér ríkja ró
og friður yfir bænum.“
Guðmundur Halldórsson,
smábátaeigandi og formaður
Smábátafélagsins Eldingar,
sem er félag smábátamanna á
norðanverðum Vestfjörðum,
sagði að það væri sóknarhugur í
fólki. Hann sagði að eftír að
frystihús Naseo hefði hætt bol-
fiskvinnslu og hafið rækju-
vinnslu hefðu margir áttað sig á
því að bærinn myndi ekki þríf-
ast á rækjuvinnslunni einni
saman, sérstaklega ekki þar
sem að engir rækjubátar væru
gerðir út frá Bolungarvík og allt hrá-
efnið kæmi frá Flæmingjagrunni.
„Uppbyggingin hófst með því að
menn hófu að fjárfesta í trilluútgerð
og kaupa kvóta með hjálp frá Spari-
sjóðnum,“ sagði Guðmundur H.
„Þetta var á þeim tíma sem mikil
svartsýni ríkti í bæjarfélaginu í kjöl-
far gjaldþrots EG (Einars Guðfinns-
sonar). Margir höfðu misst vinnuna
eftir gjaldþrotið og vildu flytja úr
bænum, en nú kveður við nýjan tón. í
stað þess að selja húsin sín og flytja
úr bænum eru margir að kaupa göm-
ul hús til þess að gera þau upp. Meira
að segja elsta steinhús bæjarins, sem
byggt var fyrir aldamót, hefur verið
keypt og það á að fara að gera það
upp íljótlega."
Að sögn Guðmundar H. eiga Bol-
víkingar næststærsta kvóta landsins í
aflahámarkinu.
„Á þessu ári hafa fimm nýir bátar
komið í bæinn, þannig að það eru
mikil umskipti í bænum núna og
þessi svartsýni, sem ríkti, hefur á
skömmum tíma breyst í
bjartsýni. Þá hafa sprottið upp
tvær nýjar fiskvinnslur í tengsl-
um við smábátaútgerðina, fisk-
vinnsla Björgvins Bjamasonar
ogVík.“
Guðmundui’ H., sem nú er 68
ára, sagðist sjálfur gera út trill-
una Tóta ÍS, sem ber sama nafn
og fyrsta skip Einars Guðfinns-
sonar, sem var áraskip. Guð-
mundur H., sem er systursonur
Einars og fyrrverandi skipstjóri
á Hugrúnu, rækjuveiðiskipi EG,
sagðist hafa viljað viðhalda þessu
nafni, ekki síst vegna sögunnar.
Hann sagðist sækja miðin frá
apríl og fram í nóvember og veið-
in hefði verið góð undanfarið og
ekkert undan því að kvarta.
Erum að stökkva marga
áratugi aftur í tímann
Einn af þeim mönnum sem hafa
tekið þátt í uppbyggingu smábátaút-
gerðarinnar í Bolungarvík er Guð-
mundur Einarsson, en hann hefur
verið aflakóngur á 6 tonna bátum síð-
ustu ár og hefur veitt yfir 800 tonn á
ári, síðustu tvö ár.
„Það ríkir bjartsýni þó við séum í
raun að stökkva marga áratugi aftur í
tímann," sagði Guðmundur. „Við er-
um eiginlega komnir í heilan hring í
þróuninni - bátastærðin er svipuð og
hún var í kringum 1930 til 1940.“
Að sögn Guðmundar eru fimmtán 6
tonna trillur í bænum, sem gera út
allt árið um kring, og skila þær gífur-
lega miklum afla inn í byggðarlagið.
Guðmundur sagðist hafa keypt
fyrsta smábátinn fyrir 13 árum.
„Ég keypti hann fyrst og fremst til
þess að fara út í Jökulfjörð að leika
mér. Þetta vatt síðan upp á sig og ég
fór að stunda færaveiðar og í slagtogi
við aðra keypti ég annan bát. Það var
hinsvegar ekki fyrr en árið 1997 að ég
ákvað að gera þetta að heilsárs starfi,
en fram að þeim tíma hafði ég verið á
Guðbjörginni."
Guðmundur hefur stundað sjó-
mennsku stóran hluta af ævinni, eri í
20 ár starfaði hann á Guðbjörgu ÍS,
einu fengsælasta aflaskipi landsins
fyrr og síðar. Hann byrjaði þar sem
háseti og endaði sem skipstjóri og því
óhætt að segja að hann hafi unnið sig
upp allan metorðastigann. Þegar út-
gerðarfyrirtækið Hrönn, sem gerði
út Guðbjörgina, sameinaðist Sam-
heija sagðist hann hafa notað tæki-
færið til þess að hætta og fara út í
sjálfstæðan atvinnurekstur.
„Ég var orðinn leiður þessu togara-
fiskeríi og hafði alltaf haft áhuga á að
stofna eigin rekstur," sagði Guð-
mundur. „Ég er ekki sá eini sem
stend í þessum sporum, því það eni
að minnsta kosti 4 eða 5 menn sem
hafa klárað Stýrimannaskólann og
hafa full réttindi á stóru skipin, sem
eru nú á trillum héma í Bolungarvík.“
15 trillur skapa vel á
annað hundrað störf
Guðmundur rekur nú útgerðarfyr-
irtækið Ós ásamt föður sínum, Einari
Guðmundssyni og foðurbróður, Daða
Guðmundssyni og gera þeir út trill-
urnar Guðmund Einarsson og Völu-