Morgunblaðið - 03.09.2000, Side 26
26 SUNNUDAGUR 3. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Haustnámskeid
i fronsku
hefjast 18. september. Námskeið fyrir
byrjendur og lengra komna. Námskeið fyrir
börn og eldri borgara. Nýtt kennsluefni byggt á
myndböndum.
Byrjendur -►
Áhersla lögð á orðaforða ferðamannsins.
Innritun 4-15 september.
©Ilpplýsingar í síma 552 3870 frá
kl. 11.00-18.00.
Veffang:http://af.ismennt.is
Netfang: af@ismennt.is
ALLIANCB PRANCAISB
Austurstræti 3
¥í5 létum
verkin tala
ára reynsla okkar tryggir frábæran árangur.
Vikuna 4. til 8. september
hefjast í Wopld Class
8. vikna aðhaldsnámskeið
Gauja lítla.
InnitallA i námskeiðínu er ettirfarandi:
Yogaspunl 3 tí 5 sinnutn í yflai - vigtun - fltumæflng - ýtarleg kennslugngn - matardagbækur
æfíngabolur - vatnsbnisi fræðsludagur - viðtal viA næringarráðgjafa - kennsla í tækiasal
ótakmarkaðir aðgangur í World Class.
(0
0
P
œ
(0
0)
c
ffl
•>
3
Petta eru ný námskeiðmeðbreyttum áherslum.
Við kappkostum að vinna með einstaklingnum |
í góðrí samvinnu við foreldra.
Aðhaldshópap fyrin unglinga
13 til 16 ára í World Class.
Nánari upplýsingar og skráning í síma 561 8585
WorltlClass
/Mum.
m
Sérvcraiun |
^f=*
LITT
t m
skuli að verndun og varðveislu þess
menningarsögulega arfs sem fólg-
inn er í merkum byggingum fyrri
tíðar.
í umsögn Árbæjarsafns 6.8. 1998
er m.a. bent á mikilvægi þess að
viðhalda hinu sögulega samhengi í
reykvískri byggingarlist og er húsið
Skildinganes 50 talið ágætt dæmi
um framsækna hönnun á 6. áratug
aldarinnar.
Samkvæmt áliti borgarlögmanns
er skipulagsyfirvöldum ekki talið
stætt á að synja niðurrifí. Engu að
síður telur skipulags- og umferðar-
nefnd að rétt hefði verið að rífa ekki
húsið og lýsir vonbrigðum sínum
með að eigendur hússins skuli fara
þessa leið, Skipulags- og umferðar-
nefnd tekur jafnframt undir þær at-
hugasemdir nágranna að veruleg
eftirsjá sé eftir þessari byggingu í
umhverfinu verði hún rifin.“
Loftið á Kjarvalsstöðum
Ekki næst alltaf sátt um breyt-
ingar á hönnun húsa. Á níunda ára-
tugnum var deilt um breytingar á
lofti Kjarvalsstaða sem lyktaði í
júní 1989 þegar Hæstiréttur kvað
upp dóm í máli borgarstjórans í
Reykjavík gegn Hannesi Kr. Dav-
íðssyni arkitekt.
í stuttu máli voru málavextir þeir
að stjórn Kjarvalsstaða hafði farið
fram á það við Hannes Kr. Davíðs-
son, arkitekt hússins, að breyta lofti
þess og lýsingu. Hannes varð ekki
við því og var fenginn annar hönn-
uður til verksins. 16. október 1985
fékk Hannes lagt lögbann við því að
gerðar yrðu breytingar á lofti og
lýsingu Kjarvalsstaða. Stefndi hann
síðan borgarstjóra, fyrir hönd borg-
arsjóðs, 19. desember sama ár fyrir
Bæjarþing Reykjavíkur til staðfest-
ingar á lögbanninu, en borgarstjóri
krafðist þess að það yrði fellt niður.
Borgardómur staðfesti lögbannið
21. febrúar 1987 að því er breyting-
ar á loftinu varðaði, því hið listræna
form loftsins var að mati dómsins
talið njóta verndar höfundarlaga.
Ekki var talið að verndin næði til
lýsingarinnar og því heimilt að
breyta henni. Málinu var áfrýjað til
Hæstaréttar sem kvað upp dóm 27.
júní 1989. Þar var dómur borgar-
dóms staðfestur og lögbannið við
breytingum á loftinu því áfram í
gildi.
Magnús Sædal Svavarsson
byggingarfulltrúi í Reykjavík
HÖNNUÐIR HALDI
VÖKU SINNI
M'AGNÚS Sædal Svavarsson, bygging-
arfulltrúi í Reykjavík, sagði að em-
bætti hans hefði ekkert eftirlit með því
hvort þeir sem hanna breytingar á verkum
annarra hönnuða hefðu samband eða samráð
við upphaflegan höfund eða handhafa höfund-
arréttar.
„Við teljum okkur það ekki skylt. Það er lit-
ið á þetta sem einkaréttarmál. I almennum
samskiptum manna ætti það að vera regla þess
sem tekur að sér að vinna í húsi sem annar
hefur hannað að gera honum viðvart. Hinn
upprunalegi höfundur fær þá kannski að fylgj-
ast með málinu. Ef honum er ofboðið á ein-
hvern hátt verður hann að leita til dómstóla til
að reyna að ná fram rétti sínum. Svo eru
skiptar skoðanir um hver réttur hans er.“
Magnús sagði það alveg undir hælinn lagt
hvort hönnuðir húsa fréttu af því þegar verið
væri að breyta hönnun þeirra. „Fundargerðir
okkar fara allar út á Netið. Þeir hönnuðir sem vilja sinna sínu
hlutverki geta gluggað í þær þar. En auðvitað ætti sá sem tekur
að sér verk sem annar hefur unnið að láta vita af því.“
Magnús sagði ákveðnar reglur gilda um eldri hús og þau sem
njóta friðunar.
„Öll hús sem byggð voru fyrir 1918 þurfa að fá umfjöllun
Húsafriðunarnefndar ríkisins sem og minjavarðar á hverjum
stað. Ef einhver sækir um breytingu á húsi sem byggt er fyrir
1918 óskum við eftir umsögn þessara aðila, í okkar tilviki Ár-
bæjarsafns og Húsafriðunarnefndar. Síðan höfum við umsögn
þeirra til hliðsjónar þegar málið er afgreitt. Svo eru hús sem
eru friðuð með sérstökum gjörningi menntamálaráðherra. Þar
með má ekki neinu breyta í því húsi. Dæmi um friðaðar bygg-
ingar er Þjóðmenningarhúsið, gamla Landsbókasafnið. Þar voru
gerðar ákveðnar breytingar vegna breyttrar notkunar, en í anda
hússins og í fullu samráði við minjaverndina.
Síðan getur það verið skoðun skipulagsyfirvalda að eitthvert
hús megi helst ekki fara. En mér sýnist að það sé ekki hægt að
meina eiganda að rífa hús, nema það sé friðað.“
Borgaryfirvöld hafa stundum þurft að kaupa hús vegna hús-
verndar. Magnús nefnir til dæmis húsið á Vesturgötu 50 sem er
gamall steinbær. Eigandi hússins vildi rífa bæinn og byggja á
lóðinni. Þetta vildu borgaryfirvöld ekki og enduðu með því að
kaupa húsið. Það var síðan selt með þeirri kvöð að gert yrði við
það.
Magnús Sædal
Svavarsson
byggingarfulltrúi.
NÝJARVÖRUR
/
/
/
/
/
/
/
/
Leðurjakkar (rauðir & svartir)
Leðurkápur (þrjár síddir)
Regnkápur
Ullarkápur
Ulpur
Stuttkápur
Alpahúfur (2 stærðir)
Hattar
\o^Hl/l5IÐ
Opið sunnudag
fráki. 13-17. Mörkinni 6, sími 588 5518
20% aukaafsláttur
af útsöluvörum
ÍP'óttir á Netinu