Morgunblaðið - 03.09.2000, Síða 36
36 SUNNUDAGUR 3. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
+
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
GUÐRÚN F. HANNESDÓTTIR,
Vallargötu 6,
til heimilis á Suðurgötu 15-17,
Keflavik,
er lést að morgni 28. ágúst, verður jarðsungin
frá Keflavíkurkirkju þríðjudaginn 5. september
kl. 14.00.
Þeim sem vildu minnast hinnar látnu er bent á
Minningarsjóð Ólafs S. Lárussonar hjá Þroskahjálp á Suðurnesjum
Guðrún K. J. Ólafsdóttir, Ásgeir Einarsson,
Jane M. Ólafsdóttir,
Arnbjörn Ólafsson,
Guðjón G. Ólafsson,
Bára Ólafsdóttir,
Sigríður K. Ólafsdóttir,
Særún Ólafsdóttir,
Reynir Ólafsson,
Guðmundur Ólafsson,
Jóna Ólafsdóttir,
Marin Marelsdóttir,
Ellert Pétursson,
Guðmundur Ingólfsson,
Svala Grímsdóttir,
Anna Lilja Gestsdóttir
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabörn.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir,
afi, langafi og systkini,
KONRÁÐ GUNNARSSON,
Ólafsbraut 50,
Ólafsvík,
verður jarðsunginn frá Ólafsvíkurkirkju mið-
vikudaginn 6. september kl. 14.00.
Sætaferðir verða frá BSÍ kl. 9.00.
Jarðsett verður á Hellnum.
Guðrún Tryggvadóttir,
Sigurlaug Konráðsdóttir, Haraldur Ingvason,
Tryggvi Konráðsson, Sigrún Reynisdóttir,
Sölvi Konráðsson,
Jóna Konráðsdóttir,
Kári Konráðsson,
Agnes Konráðsdóttir,
barnabörn, langafabarn
og systkini.
Erla Höskuldsdóttir,
Jóhann Jónsson,
Elín Hanna Sigurðardóttir,
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
ÓLAFUR M. PÁLSSON,
f.v. pípulagningarmeistari
Boðahlein 21,
Garðabæ,
sem andaðist þann 26. ágúst síðastliðinn,
verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju þriðju-
daginn 5. september kl. 15.00.
Björn Ólafsson,
Gunnhild Ólafsdóttir,
Edda Ólafsdóttir,
Bjornsdóttir,
Jóhanna Guðnadóttir,
Finnbogi G. Kristjánsson,
Ágúst Þórðarson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Okkar ástkæra,
LOVfSA MARGRÉT ÞORVALDSDÓTTIR,
Snorrabraut 56,
Reykjavfk,
lést á Vífilsstöðum þriðjudaginn 29. ágúst.
Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju þriðju-
daginn 5. september kl. 15.00.
Einar Páll Stefánsson,
Sólveig Stefánsdóttir,
Bjarghildur Stefánsdóttir,
Davíð Stefánsson,
og fjölskyldur.
Guðfinna Ingólfsdóttir,
Snorri Loftsson,
Jón Kárason,
Inger Stefánsson
+
Frændi okkar,
GUÐMUNDUR GUÐBJARTSSON
frá Drangsnesi,
andaðist á Hrafnistu Reykjavík sunnudaginn
27. ágúst.
Útför hans hefur farið fram.
Guðrún og Dýrðieif Jónsdætur.
TRAUSTI
JÓNSSON
+ Trausti Jónsson,
bóndi á Rand-
versstöðum í Breið-
dal var fæddur 7. júní
1977. Hann lést af
slysförum 27. ágúst
síðastliðinn. Trausti
var sonur hjónanna
Jóns Þórðarsonar, f.
14. júlí 1938 og Emel-
íu Mýrdal Jónsdótt-
ur, f. 26. aprfl 1938,
sem búa í Grænuhlíð í
Hjaltastaðaþinghá í
Norður-Múlasýslu.
Yngstur í stórum
systkinahópi. Syst-
kini hans eru: Arnþór, f. 28. janúar
1962, vélvirkjameistari, Bolungar-
vík. Kona hans er Margrét Ólafs-
dóttir, búfræðingur og eiga þau
tvö börn; Sigríkur, f. 15. desember
1965, búfræðingur og tamninga-
maður, kvæntur Sigríði Kristjáns-
dóttur, búfræðingi og eiga þau
tvær dætur; Freyja, f. 15. janúar
1969, búfræðingur og klæðskeri,
gift Jóni Krisfjáni Arnarsyni og
eiga þau tvær dætur; Dagbjartur,
f. 19. október 1972,
vélstjóri, til heimilis í
Grænuhlíð. Kona
hans er Áslaug Sig-
urgestsdóttir kenn-
ari; Geirþrúður, f.
17. febrúar 1974,
húsmóðir í Luxem-
búrg. Maður hennar
er Mikael Einar
Reynis, flugvirkja-
nemi og eiga þau
tvær dætur; Eygló, f.
30. janúar 1975,
matreiðslunemi, býr
íNoregi.
Trausti gekk í
grunnskóla á Eiðum og var eina
önn við nám í Iðnskólanum í
Reykjavík. Eftir það vann hann
víða við afleysingastörf til sveita á
Héraði, í Skagaflrði og vestur í
Reykhólasveit þar til hann hóf bú-
skap á Randversstöðum á sl. ári.
Trausti var ókvæntur og barnlaus.
títför Trausta fer fram frá
Egilsstaðakirkju mánudaginn 4.
september og hefst athöfnin
klukkan 14.
Kæri vinur!
Þeir deyja ungir sem guðirnir
elska, þvílíkt óréttlæti, af hverju þú?
Við héldum þessar fréttir ljótan
draum en við vöknum því miður ekki
af honum og smátt og smátt áttar
maður sig á að þú ert farinn eftir allt
of stutta dvöl. Við fengum að hafa
þig hjá okkur í eitt sumar af þinni
stuttu ævi fyrir tveimur árum. Þú
komst hingað um vorið á bílnum þín-
um með hestana og kanínurnar þín-
ar, sjálfseignarbóndi á uppleið. Nú
eru allir stóru draumarnir þínir sem
bónda allt í einu horfnir með þér. Þú
varst frábær í alla staði, duglegur og
góður verkmaður, alltaf rólegur,
brosmOdur og oftast var stutt í
glettur og glens. Þú varst sérstak-
lega góður við börn og dýr, börnin
okkar elskuðu þig ekki síður en við
sem eldri erum.Sindri hljóp gjarnan
á eftir þér úti við og læddi litlum lófa
í Trausta hendi, mjög oft fékk hann
þá verðlaunin, að fá að fara á háhest.
Elsku Trausti, það er gott að eiga
þessar góðu minningar þegar þú ert
farinn.
Guð varðveiti þig og gefi fjöl-
skyldu þinni styrk til að takast á við
sorgina.
Við vottum fjölskyldunni frá
Grænuhlíð okkar dýpstu samúð.
Skoðaðu hug þinn vel þegar þú ert glaður
ogþúmunntsjá,
að aðeins það sem valdið hefur hryggð
þinni gerði þig glaðan.
Þegar þú ert sorgmæddur skoðaðu þá aft-
ur huga þinn og þú munt sjá,
að þú grætur vegna þess sem var gleði
þín.
(Spámaðurinn K.G.)
Fjölskyldan Fremri-Gufudal.
Ein hreyfing eitt orð og á örskots stund
örlaga vorra grunn við leggjum.
(E.Ben.)
Trausti, tvö byggðai-lög drúpa
höfði í orðlausri sorg og spurn. Af
hverju var þér svipt á burt svo
óvænt? Af hverju þurftu allar þessar
björtu vonir að eyðast á einu augna-
bliki? - Ekkert svar.
Samt hljótum við að reyna að
skiptast á orðum og leyfa tárunum
að streyma.
Víst er það erfitt að sætta sig við,
að þessi sérstaklega mikla lífsgleði
og dugnaður, velvilji og glettni séu
ekki lengur. Bjartsýni þín og æðru-
leysi voru svo líkleg til þess að sigra
alla erfiðleika sem mæta frumbýl-
ingnum. En svo féll þessi stóri dóm-
ur. Allt virðist dimmt. í dimmunni
förum við mannanna börn samt allt-
af að leita að einhverjum geisla. Þess
vegna vil ég segja hér og nú: Við sem
vorum svo heppin að kynnast þér
Trausti, erum miklu ríkari eftir en
áður, því skulum við ekki gleyma.
Og það vona ég að verði þeirra
styrkur og huggun sem um sárast
eiga að binda á þessum vegamótum.
Um leið og ég sendi þeim
samúðarkveðjur mínar rifja ég upp
lokaerindi úr minningarljóði eftir
Tómas Guðmundsson sem hann orti
eftir skólabróður sinn sem hvarf
alltof fljótt:
Og skín ei bjarta ævi þeirri yfir,
sem ung á morgni lífsins staðar nemur.
Um alla framtíð óháð því sem kemur
í æsku sinnar tignu fegurð lifir.
Sem sjálfúr drottinn myldum lófum lyki
um lífsinsperlu á gullnu augabliki.
Sævar í Rauðholti.
AGUSTA
SIGURJÓNSDÓTTIR
+ Ágústa Sigur-
jónsdóttir fædd-
ist að Holti í Innri-
Njarðvík 16. sept.
1899. Hún lést að
Garðvangi, Garði,
28. ágúst síðastlið-
inn. Foreldrar henn-
ar voru Guðrún Jóns-
dóttir, f. 29.2. 1876,
d. 27.5. 1966, og Sig-
urjón Arnbjörnsson,
f. 14.9. 1865, d. 18.8.
1905. Alsystur
Ágústu voru: Sigur-
jóna Sigurjónsdóttir,
f.26.5.1897, d. 22.11.
1918; Karólína Sigurjónsdóttir, f.
16.9. 1899, d. 2.9. 1911; Gunnhild-
ur Sigurjónsdóttir, f. 23.9._ 1902,
d. 5.5. 1984. Hálfsystir Ágústu
samfeðra var Sigríður Sigur-
jónsdóttir, f. 5.12. 1889, d. í des-
ember 1990. Hálfsystkini Ágústu
sammæðra voru Karólfna
Kristjánsdóttir, f. 14.7. 1911, d.
27.1. 1981; Helga Kristjánsdóttir,
f. 1.12. 1912, d. 27.10. 1978; Ásta
Kristjánsdóttir, f. 9.11. 1914, d.
8.11. 1980; Tjörvi Kristjánsson, f.
1.7. 1917, d. 29.6.1971.
Ágústa giftist 17. maí 1924 Jóni
Sigurðssyni frá Vogi á Mýrum, f.
16.9. 1897, d. 7.12. 1966. Þau
eignuðust tvær dætur 1) Sigríður,
húsmóðir í Reykja-
vík, f. 25.10. 1924,
eiginmaður hennar
er Jóhann Iljartar-
son, trésmíðameist-
ari, f. 30.1. 1921,
■JicirFá börn éru;
Bjarnfríður, f. 16.2.
1946, Jóhann, f.
24.11. 1948, Málfríð-
ur, f. 16.9. 1956,
Hjörtur Magni, f.
18.4. 1958. 2) Ásdís,
húsmóðir í Keflavík,
f. 24.2. 1927, eigin-
maður hennar er
Hilmar Pétursson
fyrrv. fasteignasali, f. 11.9. 1926,
þeirra synir eru: Jón Bjarni, f.
23.10. 1952 og Pétur Kristinn, f.
28.10.1965.
Ágústa ólst upp hjá móðurfor-
eldrum sínum Ingigerði og Jóni í
Akri, I-Njarðvík. Hún var lengst
af húsmóðir en vann sem sauma-
kona fyrir Sjúkrahúsið í Keflavík
um 20 ár. Hún bjó lengst af á
Hafnargötu 51 Keflavík. Síðast-
liðin átta ár dvaldi hún á elli- og
hjúkrunarheimilunum Hlévangi
og Garðvangi.
títför Ágústu fer fram frá
Keflavíkurkirkju mánudaginn 4.
september og hefst athöfnin
klukkan 14.
legt hana heim að sækja, það sást
best eftir að hún flutti á elliheimilin
Hlévang og síðar Garðvang. Hún
fékk ætíð margar heimsóknir afkom-
enda sinna, skyldmenna og vina.
Dætur hennar heimsóttu hana næst-
um daglega, það þótti henni mjög
vænt um. Málfríður dótturdóttir
hennar var einstaklega dugleg að
heimsækja ömmu sína og bar mikla
umhyggju fyrir henni sem seint verð-
ur fílllhfllrkaa ___________________
Tengdamóðir mín Ágústa Sigur-
jónsdóttir andaðist aðfaranótt 28.
ágúst sl. tæplega 101 árs að aldri. Mig
langar til að minnast hennar í stuttu
máli. Hún var mótfallin því að um sig
yrði skrifað og alls ekki í löngu máli.
Hennar lífsmáti var þannig að hún
vildi lítið láta fara fyrir sér og vera
sem minnst uppá aðra komin. Lifa
heilbrigðu lífí, hugsa vel um sitt
heimili og sína nánustu, það var
hennar lífssýn. Ég efast um að hægt
hafi verið að gera það betur en hún
gerði. Umhyggja hennar fyrir eigin-
manni sínum Jóni Sigurðssyni, sem
var heilsulítill seinni hluta ævi sinnar,
var einstök, en hann andaðist árið
1966.
Tengdamóðir mín var afar verk-
lagin, hannyrðakona mjög góð, öll
verk hennar voru einstaklega vel
gerð og til fyrirmyndar. Þá fóru öll
heimilisverk henni vel úr hendi.
Ágústa var vinsæl kona og ánægju-
16. september á sl. ári varð Ágústa
tengdamóðir mín 100 ára. Ekki vildi
hún láta mikið fara fyrir þessum
merku tímamótum í lífi sínu. Samt fór
það nú svo að það urðu æði margir
sem heimsóttu hana á Garðvang,
skyldmenni hennar, nánustu vensla-
menn og vinir. Forstjóri og starfsfólk
Garðvangs hjálpuðu mikið til að gera
afmæli Agústu hið glæsilegasta og vil
ég þakka innilega fyrir þá miklu
hjálp. Þá var afmælis hennar getið í
Víkurfréttum og blaðið Faxi sagði frá
afmæli hennar með hlýlegum orðum.
Þvi miður fékkst Ágústa ekki til að
segja frá lífinu hér á Suðumesjum á
uppvaxtarárum sínum. Var það
slæmt því hún var stálminnug og
hafði frá mjög mörgu að segja og vil
ég meina að með henni hafi farið mik-
ill fróðleikur sem gagnlegt hefði verið
að festa á blað.
Mest alla sína búskapartíð bjó
Ágústa á Hafnargötu 51, Keflavík, í
gömlu fallegu húsi sem þau hjónin
byggðu árið 1932. Þar leið henni vel
enda alla tíð mjög heimakær. Eftir
andlát Jóns svaf hún hjá Ásdísi dótt-
ur sinni þótt hún byggi áfram í húsinu
sínu við Hafnargötuna en fór alltaf
frá okkur snemma morguns og kom
svo aftur seint á kvöldin. Allt var
þetta mjög skipulagt eins og henni
var lagið. Síðustu átta árin á sinni
löngu ævibraut dvaldi hún á elliheim-
ilunum Hlévangi og Garðvangi.
Við Ásdís eiginkona mín og fjöl-
skylda þökkum góða umönnun sem
hún fékk þau ár sem hún dvaldi á áð-
umefndum elliheimilum.
Guð blessi minningu hinnar látnu
heiðurskonu.
Hilmar Pétursson.