Morgunblaðið - 03.09.2000, Page 46
^46 SUNNUDAGUR 3. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
Ljóska
Þú hefðir meira gaman af
bakpokaferðum, Magga, ef þú
kynnir að rúlla upp
svefnpokanum þínum..
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Vegna greinar
Einars Eyjólfs-
sonar prests
Frá Jómnni Sörensen:
í SVARI Einars Eyjólfssonar
prests við grein er ég ritaði í Morg-
unblaðið 15. ágúst sl. ræðir hann
m.a. þá skoðun
mína að margir
sem alla jafna
sækja ekki kirkju
en nota engu að
síður þjónustu
kirkjunnar geri
það vegna þess
að þeir vita ekki
að hægt er að
hafa persónuleg-
ar athafnir er
tengjast gleði og
sorgum á annan hátt. Þessa skoðun
mína velur Einar að túlka þannig að
ég sé að „gera lítið úr því fólki sem
notfærir sér þjónustu kirkjunnar"
og ennfremur segir hann að þessi
skoðun sé „einstæð yfirlýsing um
andlegt ásigkomulag þjóðarinnar".
Ekkert er fjær mér en að gera lítið
úr þeim sem ekki vita.
Meginástæðan fyrir því að al-
menningur er ekki upplýstari um
fjölbreyttari valkosti við nafngiftir,
giftingar og minningarathafnir er
sú að þrátt fyrir að trúfrelsi sé hér
á landi samkvæmt lögum er hér rík-
iskirkja. Ef einstaklingur velur sér
ekki trúfélag sérstaklega eða að
standa utan trúfélaga er hann
skráður í þjóðkirkjuna. Minnir dá-
lítið á umræðuna um gagnagrunn-
inn svokallaða og „ætlað samþykki"
sem skiptar skoðanir eru á um
þessar mundir.
Hefðir leika einnig stórt hlutverk
í samfélagi mannanna. Ungur mað-
ur, Haraldur Óh Haraldsson, ritaði
lesendabréf í Morgunblaðið fyrir
skömmu og benti á að fólk leitaði
eftir þjónustu kirkjunnar vegna
hefðar en ekki trúarþarfar. Einar
notar einnig orðið „hefð“ þegar
hann ræðir um notkun kirkjunnar á
orðinu „ferming". Hefðin kemur oft
í veg fyrir að fólk leiti annarra leiða.
„Svona hefur þetta alltaf verið“ eða
„svona gera allir“ er oft góð út-
skýring á því sem gert er.
Aðskilnaður ríkis og kirkju er
knýjandi nauðsyn. Aðskilnaður við
ríkið gerir kirkjuna sjálfstæða og
fólk sjálfstæðara gagnvart
kirkjunni. Aðskilnaður ríkis og
kirkju knýr fólk til að taka afstöðu
og velja hvort það vill tilheyra
kirkjunni eða standa utan hennar.
JÓRUNN SÖRENSEN,
kennari.
Jórunn
Sörensen
Þakkir fyrir umbót
á umferðargötu
Frá Auðuni Braga Sveinssyni:
FYRIR rúmu ári skrifaði ég stutt
lesendabréf hér í blaðið um ákveðna
götu hér í borginni, nánar tiltekið
Birkimel. Þar varð ég fyrir þeirri
óskemmtilegu reynslu að vera næst-
um ekinn niður í vatnsflóði frá bíl
einum, er ók þar á ofsahraða. Síðan
forðaðist ég að ganga þar á gang-
stétt, eftir að vatn hafði safnast í
hjólför, sem þar höfðu myndast, og
voru alldjúp. Veit ég að fleiri munu
hafa forðast þetta eins og ég. Ég
benti á í bréfi mínu, að gera þyrfti
umbætur á götu þessari, og það sem
fyrst. Eyða þyrfti hjólförum þessum
og þar með vatnsrásum þeim, er
myndast höfðu. Borgin hefur í
mörgu að snúast, og þetta var látið
dragast, þvf miður allt of lengi.
Nú tek ég eftir því, að búið er að
gera lagfæringar á götu þessari, á
þann veg, að vatn safnast ekki leng-
ur í gömlu hjólförin. Borgin hefur
látið fræsa upp gamla og slitna götu
og gert hana eins og nýja. Vafalaust
mörgum til hagræðis og ánægju.
Fyrir þetta vil ég leyfa mér að þakka
borginni okkar, og hið sama held ég
að margir geti tekið undir. Þetta er
kannske ekki stórt mál, en varðar
samt allmarga, ekki síst gangandi
vegfarendur, sem leið eiga meðfram
þessari götu, en þeir eru margir.
Landsbókasafn-Háskólabókasafn er
þarna rétt hjá, og eflaust þurfa
margir þangað að leita, bæði starfs-
menn og notendur safnsins.
Eitt sinn benti Pétur Gunnarsson
rithöfundur á, að borgin væri raunar
ekki eingöngu úr efnislegum hlutum
gjörð, heldur engu síður úr orðum,
og væri þess vegna „í höfðinu", eins
og hann orðaði það.
Að lokum tvö erindi um Reykja-
vík, sem ég leyfi mér að setja hér, og
vonast til að fáist birt við hentug-
leika.
Borgin er úr grjóti og gleri,
- gjörð úr steypu og malbiki.
Signuðhúnæséogveri,
með sínu glaða mannlífi.
En Pétur Gunnars fann þó forðum
fleira í borgarlandinu.
Borgin, hún er byggð úr orðum;
borginer,jhöfðinu“.
AUÐUNN BRAGI
SVEINSSON,
Hjarðarhaga 28, Reykjavík.
AUt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskiiur sér rétt tii að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda biaðinu efni
til birtingar teijast samþykkja þetta, ef ekki fvlgir fyrirvari hér að lútandi.