Morgunblaðið - 03.09.2000, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 3. SEPTEMBER 2000 47
__________FRÉTTIR______
Reykjanesbraut verð-
ur merkt á næstunni
^ Hef hafið störf á
nvrri hársnvrtistofu.
Hár og smink, Hlíðarsmára 1 7,
Kópavogi, sími 5646868.
Elín Björg Ásbjörnsdóttir,
l hársnyrtimeistari.
MARGIR vegfarendur hafa bent
blaðinu á að yfirborðsmerkingar
hafa enn ekki verið settar á kafla á
Reykjanesbrautinni, sem var mal-
bikaður í byrjun ágúst. Finnst mörg-
um þetta óþægilegt ef ekki beinlínis
hættulegt.
Jónas Snæbjörnsson umdæmis-
stjóri Vegagerðarinnar á Reykjanesi
sagði, þegar blaðið hafði samband
við hann, að ekki væri langt í að sett-
ar yrðu yfirborðsmerkingar. „Þær
eiga að koma í beinu framhaldi [af
malbikunarframkvæmdunum], það
er náttúrulega meiningin, en þetta
hefur stundum viljað dragast, bæði
vegna veðurs og annarra verka.
Þetta verður vonandi allt komið í lag
mjög fljótlega." Sagði Jónas að
kannski hefðu menn verið heldur af-
slappaðir á meðan enn var svo bjart
en nú stæði til að bæta úr þessu.
Annað er að Vegagerðin hefur
verið að lagfæra svonefndar axlir,
sem voru upphaflega malarræmur
utan með akreinunum, ætlaðar til að
gefa svigrúm til að víkja út af vegin-
um eða leggja biluðum ökutækjum
utan vegar. Að sögn Jónasar vildi
myndast ákveðið hættusvæði þar
sem mölin á öxlunum sópaðist frá
malbikinu og myndaðist þá brún,
sem gat átt þátt í slysum. Þetta
hættusvæði var síðan fært fjær um-
ferðinni með því að leggja ræmur úr
ódýru slitlagi utan með akreinunum
en fyrir tveimur árum byrjaði það
verkefni að klæða fulla breidd á öxl-
inni sitt hvoru megin við brautina.
„Við erum að klæða hana þriggja
metra breiða, réttum hana svolítið af
sums staðar en almennt er hún 2,5 tii
þrír metrar,“ sagði Jónas. Hann
sagði það vera nánast akreinar-
breidd en það næði þó ekki alveg
fullri akrein. Vegstikurnar standa
síðan hálfan metra fyrir utan axlirn-
ar. Sagði Jónas að það væri mat
Vegagerðarinnar að hinar nýju axlir
gerðu þeim ökumönnum, sem vildu
fara aðeins hægar en meginstraum-
------H-*---------
LEIÐRÉTT
Minningargrein á röngum stað
Minningargrein sem birtist í
Morgunblaðinu 1. september sl. á
bls. 54 og var undirrituð Sigurlaug,
Sævar, Olöf, Sverrir, Jóhannes, Ósk-
ar og fjölskyldur, birtist með grein-
um um Gunnar H. Kristinsson en
átti að fylgja greinum um Halldór
Kristjánsson. Hlutaðeigendur eru
beðnir velvirðingar á mistökunum.
urinn, kleift að víkja frá umferðinni.
Hann lagði þó áherslu á að axlirnar
væru ekki hugsaðar sem sjálfstæðar
akreinar, bilaðir bílar gætu t.d. stað-
ið á þeim.
Jónas sagði að breikkun axlanna
tengdist ekki breikkun Reykjanes-
brautarinnar, það væri sjálfstæð
framkvæmd og framkvæmdirnar við
axlirnar nýttust ekkert við breikkun
brautarinnar, sem áformað er að
verði boðin út árið 2002 og taki 6-8
ár. Er gert ráð fyrir að 11 metra
breið eyja verði á milli akreinastefn-
anna og mun þá núverandi braut
bera umferð í aðra áttina.
Skagfirska söngsveitin í Reykjavík getur bætt
við sig nokkrum góðum söngröddum.
Upplýsingar gefur söngstjóri kórsins, Björgvin
Þ. Valdimarsson, í síma 553 6561 eftir kl. 19.
KY€NNAKÓR R€ykjavíkur
Kórskóli Kvennakórs Reykjavíkur
Námskeið verður haldið fyrir konur sem ekki hafa
mikla reynslu í söng en langar til að syngja í kór.
Á námskeiðinu verður farið í undirstöðuatriði
söngs og tónfræði. Kennt er á miðvikudögum
kl. 18 til 19.30.
Senjorítur
Kórinn er ætlaður konum 60 ára og eldri. Æft er
á mánudögum kl. 16 til 18. Æfingar hefjast
18. september. Nýir söngfélagar velkomnir.
Kvennakór Reykjavíkur
Æft er á mánudags- og miðvikudagskvöldum.
Æfingar hefjast 13. september. Inntaka nýrra
félaga verður fyrstu vikuna í september.
Kennari kórskóla og stjórnandi kóranna er
Sigrún Þorgeirsdóttir.
Skráning og upplýsingar í símum 8966468 og 6963688.
Viðskipavinir athugið
£r ýlutt á Sfrace ááfi&túdíá.
“Detuta.
Símar 551 3430
og 552 3430
Finnst þér
w K •
"g|
I
Árnesingakórinn í Reykjavík vantar
d? söngfólk í allar raddir.
Stjórnandi kórsins er Siguróur Bragason.
Æfingar eru á mánudags- og
mióvikudagskvöldum.
Upplýsingar veita Pétur í síma 898 1792 og
Siguróur í síma 588 6867.
Láttu heyra í þér.
Nýkomin sending af sófasettum
Vandaö Mantelassi
leðursófasett, alklætt leðri
3+1 +1. - Litir Vínrautt,
grænt, dökkkoníaksbrúnt
og Ijóskoníaksbrúnt
I
w*
Vönduðgæda
á góðu verði!
Hjá okkur eru Visa- og
Euro-raðsamningar
ávfsun á staðgreiðslu
iSlhusqogn
Ármúla 8 - 108 Reykjavík
Slml 581-2275 ■ 568-5375 ■ Fax 568-5275
/ ••
KYNNING
í versluninni
MARION
ídag kl. 13-17
20% kynningarafsíáttur
lnklilMil
Strandgötu 11 Hafnarfirði
Sími: 565 1147