Morgunblaðið - 03.09.2000, Síða 51

Morgunblaðið - 03.09.2000, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið/Stefán Á.Magnússon Jónas Elfar Halldórsson með urriðahrúgnna úr Höfuðhyl. Krakkarnir slógu þeim fullorðnu við STÓR hópur barna- og unglinga, félagar í Stangaveiðifélagi Reykjavíkur, var mættur á bakka Elliðaánna síðast liðið sunnudagssíð- degi, en þá fór fram síðari barna- og unglingadagur SVFR við Elliða- ámar á þessu sumri. Ungviðið sýndi fína takta við veiði- mennskuna og und- ir rökkur lágu 7 lax- ar og fjölmargir silungar, staðbundnir urriðar og sjóbirtingar í valnum. Var eftir því tekið að fullskipað holl fullvaxinna veiðimanna á morgunvaktinni náði ekki einum einasta laxi á land. Margir krakkar lentu í ævintýr- um, Vignir Már Lýðsson veiddi t.d. maríulaxinn sinn, Hekla Karen Páls- dóttir dró lax annað sumarið í röð og að þessu sinni á gersamlega vonlaus- um veiðistað, eða „við Steininn", sem er neðsti veiðistaðurinn í ánni og veiðistaða ólíklegastur til að gefa lax á síðsumardegi. Þá lenti Jónas Elfar Halldórsson í grimmdartöku í Höf- uðhyl er hann landaði 14 vænum urr- iðum á flugu á rétt tæpum hálftíma. Meðfylgjandi er myndasyrpa sem Stefán Agúst Magnússon, umsjónar- maður barna- og unglingastarfs SVFR til margra ára, tók á dögun- um. Morgunblaðið/Stefán A. Magnússon Vignir Már Lýðsson nagar veiðiuggann af maríu- laxinum sínum. Morgunblaðið/Stefán Á. Magnússon Hekla Karen Pálsdóttir með lax- inn sinn. Nokkrir krakkanna með hluta af aflanum, f.v.: Jónas Elfar Halldórsson, Elfar Þór Karlsson, Vignir Már Lýðsson, Hekla Karen Pálsdóttir og Ellen Magnúsdóttir. -------------------------------------- ,t/lfmœli$þakkir Hjartans þakkir færi ég öllum sem heimsóttu mig á 100 ára afmœlinu og eins þeim sem heim- sóttu mig síðar og sendu mér skeyti og gjafir. Guð blessi ykkur öll. Agúst Benediktsson, frá Hvalsá. SUNNUDAGUR 3. SEPTEMBER 2000 51 Okkur er sönn ánægja að kynna sænska matreiðslu- meistarann Christian Reimeringer. Christian hefur sérhæft sig í chilipiparréttum. Chili er ekki bara sterkt bragð, það gefur matnum sérstakan keim sé það rétt notað. Þeir sem komast á bragðið elska chilipiparrétti. Á chilimatseðlinum er að finna ýmsa spennandi rétti sem upprunnir eru í Mexíkó, Spáni, Tælandi og Italíu: Spánskur chilipipar Kryddlegin hörpuskel með sólflftlshýði og chilipipar-engifersósu Tælenskur chilipipar „ Tom Yum “ súpa „Chipotle“ chilipipar Lambahryggvöðvi með kúrbítsfrauði, salsa og chipotle-chilipiparsósu Ancho chilipipar Súkkulaði „soufflé" með vanillufroðu og kókos og engiferís 1 Hér gefst aðdáendum chili- rétta, svo og íorvítnum sælkerum, einstakt tækifært til að njóta frábrugðins kvbldverðar í Perlunní. PlJilAN SÍMI 56 20 200 RPIFRPEN SKRRNING HLUTPBRÉFfi Þann 11. desember 2000 verða hlutabréf Tryggingamiðstöðvarinnar hf. tekin til rafrænnar skráningar hjá Verðbréfaskráningu íslands hf. Þar af leiðandi verða engin viðskipti með hlutabréf félagsins þann dag. Frá þeim tíma ógildast hlutabréf félagsins sem eru útgefin á pappírsformi í samræmi við heimild í ákvæði til bráðabirgðarlaga nr. II ílögum nr. 131/1997, um rafræna eignarskráningu verðbréfa, sbr. 6. gr. laga nr. 32/2000, um breytingar á ýmsum lögum vegna tilkomu rafrænnar eignar- skráningar á verðbréfum, og reglugerð nr. 397/ 2000, um rafræna eignarskráningu verðbréfa í verðbréfamiðstöð. Skorað er á eigendur ofangreindra hlutabréfa, sem telja nokkurn vafa leika á því að eignarhald þeirra sé réttilega fært í hlutaskrá Tryggingamiðstöðvarinnar hf., að staðreyna skráninguna með fyrirspurn til skrifstofu Tryggingamiðstöðvarinnar hf. í Aðalstræti 6-8, 101 Reykjavík fyrir nefndan dag. Ennfremur er skorað á þá sem eiga takmörkuð réttindi til ofangreindra hlutabréfa, s.s. veðréttindi, að koma þeim á framfæri við fullgilda reikningsstofnun (viðskiptabanka, sparisjóð eða verðbréfafyrirtæki). Að lokinni rafrænni skráningu geta hluthafar falið reikningsstofnun, sem hefur gert aðildar- samning við Verðbréfaskráningu íslands hf., að hafa umsjón með eignarhlut sínum í félaginu. Hluthöfum félagsins verður nánar kynnt þetta bréfleiðis. Stjórn Tryggingamiðstöðvarinnar hf. TRYGCINCAMIÐSTÖÐIN HF - þegar mest á reynlr! Aðalstræti 6-8 • 101 Reykjavík • Sími 515 2000 • www.tmhf.is a r g u s P E058 -

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.