Morgunblaðið - 03.09.2000, Page 56

Morgunblaðið - 03.09.2000, Page 56
56 SUNNUDAGUR 3. SEPTEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM Tríó danska djasspíanistans Arne Forchhammer Sterkir Danir á ferð ÞAÐ verður margt góðra erlendra gesta á Jazzhátíðinni í ár, og meðal þeirra er Ame Forchhammer pían- isti sem kemur hingað til lands ásamt Birgit Lokke Larsen slagverksleik- ara og Jesper Bodilsen bassaleikara. Arne var meðal helstu djasspían- Arne Forchhammer leikur með tríóinu sfnu á mánudagskvöld. ista Dana um 1960 og hljóðritaði þá fræga breiðskífu með Erik Mose- holm og Jöm Elniff. Hann hætti að leika í áratug og fékkst mest við TÓNLIST - HREYFINC teikningar og ritun sjónvarpsleik- rita. Nú er hann kominn á fullt aftur og nýr diskur með tríói hans, „As- similiation", kom út í júlí, og hlaut mjög lofsamlega dóma, þar sem Birgit er sögð fara á kostum. Tríóið lék á Jazzhátíðinni í Þórs- höfn í sumar og nú er það komið til Islands að halda upp á 25 ára aftnæli Jesper er yngsta bassastjama Dana. Jazzvakningar á Jazzhátíð Reykja- víkur. Birgit er slagverksleikari og trommari, sem m.a. hefur leikið mik- ið með Marilyn Mazur, fyrrverandi slagverksleikara Miles Davis, og lék á RúRek djasshátíðinni 1996 með Norrænu kvennastórsveitinni. Jesper er yngsta bassastjarnan í dönskum djassi og segir það meira um hann en nokkur orð að Ed Thigpen valdi hann til að leika á bass- ann á nýjasta geisladiski sínum og hann lék með Phil Woods í klukku- tímalöngum sjónvarpsþætti er danska sjónvarpið gerði um Woods. Tríóið heldur tónleika á Kaffi Reykjavík á mánudaginn kl. 22. Aldursskipt 3ja-12 ára Elfa Húsie S m 551 5103 Maestro ÞITT FÉ HVAR SEM ÞÚ ERT Viðburður í íslensku djasslífi á Broadway Djasshetjur leika frumsamið efni Morgunblaðið/Arnaldur Ámi Scheving, Þórarinn, Árni Egilss., Pétur og Jón Páll voru glaðir og reifir á æfingu í húsnæði FIH. ÚTLENDINGAHERSVEITIN mun hefja tónleika sína á Broadway í kvöld kl. 20.30 en sveitin er nú í annað sinn að leika á Islandi en sveitin spilaði á djasshátið 1992 við mikinn fögnuð áheyrenda. Það er ekki nema von að langt líði á milli tónleika, því eins og nafn sveitarinnar gefur til kynna búa þeir vítt og breitt um heiminn og hafa allir getið sér gott orð þar sem snilldar djassarar og margir unnið með stærstu nöfnunum í djassheim- inum. Árni Egilsson bassaleikari og Jón Páll Bjamason gítarleikari búa í Los Angeles, Þórarinn Ólafsson píanisti í London, Pétur Ostlund trommari í Stokkhólmi, og Ámi Scheving víbrafónleikari býr í Reykjavík. Árni segir þá félagana hafa haft það mjög skemmtilegt þessa daga sem þeir hafa verið að æfa en þeir hafa ekkert hist síðan á síðustu tónieikum árið 1992. „Við ætlum að leika bæði eldra og nýrra frumsamið efni og svo djass- standarda," skýrir Ámi frá. Við leikum Iag eftir mig, Pétur, Árna og Jón Pál og útsetningar eftir Þórar- in. Hann hefur m.a. útsett íslenskt LIÐ-AKTÍN Góð fæðubót fyrir fólk sem er með mikið álag á liðum Skólavörðustlg, Kringlunni & Smáratorgi lag eitt sem við tökum og bjó til hálfgerða svítu úr því, þannig að það má segja að allir eigum við frumsamið efni á dagskránni. Svo leikum við auk þess sameig- inlegar útsetningar á vel völdum standördum.“ Árni segir að það hafi verið gífur- lega erfitt að velja lögin í dag- skrána. „Það var mjög erfitt. Við vorum komnir með alveg gífurlega marg- ar hugmyndir að lögum og það var sárt að kasta öllu því sem ekki næst með.“ - Hvernig væri að hittast a ftur innan átta ára oggera eitthvað úr þeimlögum? „Það er mjög góð hugmynd," tek- ur Árni undir með blaðamanni enda hafa þessar djasshetjur Islands nóg að starfa í heimsókninni. Þeir léku á Norðfírði á föstudagskvöldið og munu á mánudaginn leika í Akoges- húsinu í Vestmannaeyjum og á mið- vikudaginn í kirkjunni á Hornafirði. Okkur vantar 2 nema sem langar að byrja á hárgreiðslustofu. 1. Nema sem lokið hefur amk. tveimur önnum 2. Nema sem er að byrja Þeir sem hafa áhuga á að starfa með fagfölki í hárgreiðslu ineð mikinn metnað og í góðum starfsanda verið velkomin til okkar í viðtal mánudaginn 4. september milli kl. 9 og 18. HÁRtí REI ÐSLUSTOFA Lámúli 5 Sími: 553 1033

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.