Morgunblaðið - 03.09.2000, Page 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1,103 REYKJAVÍK, StMl 5691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF304O,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RlTSTJiSMBUS, AKUREYRl: KAUPVANGSSTRÆTI1
SUNNUDAGUR 3. SEPTEMBER 2000
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK.
Morgunblaðið/Júlíus Sigurjónsson
Eldur kviknaði í íþrdttahúsi Árbæjarskdla í gær og talið er að um milljdnatjdn sd að ræða.
, Milljónatjón í eldsvoða í
íþróttahúsi Arbæjarskóla
Sigurður Einarsson
forstjóri Kaupþings hf.
Dótturfélag
stofnað í
Sviss á
næsta ári
KAUPÞING stefnir markvisst að
því að auka starfsemi sína á erlend-
um mörkuðum og er með í skoðun að
stofna nýjar starfsstöðvar á nokkr-
um stöðum erlendis. Hefur verið
tekin ákvörðun um að stofna dóttur-
félag í Sviss sem mun sérhæfa sig í
rekstri lífeyrissjóða og einkabanka-
þjónustu. Þetta kemur fram í viðtali
við Sigurð Einarsson, forstjóra
Kaupþings, sem birt er í Morgun-
blaðinu í dag.
Samstarf við svissneska aðila
„Frá árinu 1990 hefur verið byggð
upp mikil þekking innan Kaupþings í
umsjón og stjórnun á lífeyrissjóðum.
Við veitum all mörgum lífeyrissjóð-
um þjónustu, ýmist út frá því að sjá
eingöngu um eignastýringu yfir í að
sjá algjörlega um allan reksturinn.
Þessa þekkingu ætlum við nú að
flytja út. í því sambandi höfum við
gengið til samstarfs við svissneska
aðila um að stofna dótturfyrirtæki í
Lausanne í Sviss sem mun sérhæfa
sig í rekstri lífeyrissjóða og einka-
bankaþjónustu. Þetta verður hrein
viðbót við rekstur Kaupþings og
verður sett á fót í byrjun næsta árs,“
segir Sigurður í viðtalinu.
■ Útrás/lO-11
stöðvarnar og til þess að aðstoða
við að slökkva eldinn,“ sagði Jón
Viðar. Hann sagði að um þrjátíu
slökkviliðsmenn hefðu unnið að
slökkviaðgerðum. „Það veitti ekki
af auka aðstoðinni, en stuttu eftir
að brunaútkallið kom þurftum við
að sinna fimm sjúkraflutningum,"
sagði Jón Viðar.
Skólastarf
raskast ekki
Að sögn Þorsteins Sæberg,
skólastjóra Arbæjarskóla, mun
skólastarf ekki raskast vegna eld-
voðans. Hann segir þó að það verði
að endurskipuleggja leikfimi-
kennslu skólans og verður hún
með nýju móti næstu vikurnar
vegna brunans.
hafa gengið vel en þó er talið að
um milljónatjón sé að ræða.
„Það er erfitt að fást við eld í
þökum," sagði Jón Viðar í samtali
við Morgunblaðið í gær. „Svona
eldar vilja hlaupa um allt en
slökkvistarf gekk þó bara nokkuð
vel. Þetta er mikið tjón. Það er
mikið verk framundan að hreinsa
upp vatnið af íþróttagólfinu, sem
er mjög illa farið,“ sagði Jón Viðar,
en það tókst að koma í veg fyrir að
vatn bærist í önnur húsakynni
skólans.
Að sögn Jóns Viðars hjálpuðu
slökkviliðsmenn í Hafnarfirði við
að ráða niðurlögum eldsins. „Við
sendum út svokallað minna útkall
og komu þá til aðstoðar bakvaktar-
menn, bæði til að manna slökkvi-
Hátíð í Grafarvogi
Morgunblaðið/Ásdís
Grafarvogsdagurinn var haldinn
,. jj, hátíðlegur í þriðja sinn í gær. Há-
tíðarhöldin eru hluti af menningar-
verkefni sem nefnist Ljósbrot, en
verkefnið er einn af dagskrárliðum
Reykjavíkur - menningarborgar
Evrópu árið 2000. Dagskráin var
fjölbreytt og var meðal annars
boðið upp á vatnsleikfimi. Hátíðar-
höldunum lauk svo með flug-
eldasýningu og fjörugri fjöl-
skylduskemmtun þar sem
hljómsveitin Á móti sól lék fyrir
dansi.
®BÚNAÐARBANKINN
Tmntur bamkj 170 tr
90 milljónir
símanúmera
PÓST- og fjarskiptastofnun hefur
ákveðið að fjölga símanúmerum í
landinu um 90 milljónir. Tekin verða
upp 9 stafa símanúmer sem byrja á
tölunni 3, en Halló, Frjáls fjarsldpti
og Ipternational Mobile Commun-
ications Inc. hafa sótt um milljónir
nýrra númera. Þessi breyting mun
ekki hafa áhrif á núverandi kerfi, og
breytir ekki símanúmerum heimila
og fyrirtækja í landinu.
Gústaf Arnar, forstöðumaður
Póst- og fjarskiptastofnunar, segir
að fjölgunin sé til að mæta þessari
eftirspum fyrirtækjanna. Hann
segir fjölgunina kalla á talsverða
skipulagningu. „Við höfum sent til-
kynningu til Alþjóðafjarskiptasam-
bandsins, sem síðan birtir frétt í riti
sem það gefur út reglulega. Þá
þurfa símstöðvar um allan heim að
gera þær tæknilegu breytingar sem
til þarf,“ segir Gústaf. Hann segist
reikna með því að hægt verði að
byrja úthlutun á númerunum í nóv-
embermánuði.
Gústaf segir að stofnunin hafi
heimild í lögum til að taka gjald af
fyrirtækjunum fyrir númerin. „Við
erum að undirbúa nýja gjaldskrá og
samkvæmt henni verður tekið gjald
íyrir hvert þessara nýju númera.
Reyndar þarf að leggja gjaldskrána
fyrir ráðherra áður en hún tekur
gildi,“ segir hann. Hann segir að
gjaldinu sé ætlað að mæta kostnaði
við þá vinnu sem Póst- og fjar-
skiptastofnunin verði að inna af
hendi við þessa aðgerð.
Auglýst eftir umsóknum um
rekstrarleyfi fyrir farsíma
Póst- og fjarskiptastofnun aug-
lýsti í Morgunblaðinu í vikunni eftir
ALLT tiltækt slökkvilið höfuð-
borgarinnar var kallað út vegna
elds í Árbæjarskóla um hálftíuleyt-
ið í gærmorgun. Tókst að slökkva
eldinn rúmri klukkustund síðar. Að
sögn Jóns Viðars Matthíassonar,
varaslökkviliðsstjóra í Reykjavík,
kviknaði í þakinu á íþróttasal skól-
ans er verið var að leggja þar þak-
pappa. Hann sagði slökkvistarf
------------
Samdráttur
íbflasölu
BÍLASALA hefur dregist saman um
tæp 10,5% fyrstu átta mánuði ársins,
samkvæmt bráðabirgðatölum frá
Bílgreinasambandi Islands. Ails
seldust 10.370 bílar á tímabilinu en
11.577 á sama tíma í fyrra. Þessi
samdráttur er í samræmi við vænt-
ingar og spár sem Bílgreinasam-
bandið sendi frá sér fyrr á þessu ári.
3% aukning varð í bílasölunni í
nýliðnum ágúst miðað við sama mán-
uð í fyrra. Þá seldist 1.161 bfll en
1.199 í nýliðnum ágúst.
nýrra
í haust
umsóknum um rekstrarleyfi fyrir
farsíma. Um er að ræða þriðja leyfið
til að starfrækja farsímanet og
þjónustu samkvæmt GSM-staðli í
900 MHz-tíðnisviðinu. Fyrir eru
Landssíminn og Tal með slíkt leyfi,
en að auki eru sex fyrirtæki með
rekstrarleyfi á 1800 MHz-tíðnisvið-
inu.
Að sögn Gústafs má rekja tildrög
auglýsingarinnar nokkuð aftur í
tímann. „Þegar Islandssími var
settur á stofn sótti hann um leyfi á
900 MHz-tíðnisviðinu. Þá þótti
óljóst hvort stjórnvöld hefðu skuld-
bundið sig til að úthluta ekki fleiri
leyfum. Sett var í gang athugun á
því og fyrr á þessu ári ákvað ráð-
herra að leyfinu skyldi úthlutað.
Síðan hefur undirbúningur staðið
yfir hjá Póst- og fjarskiptastofnun,“
segir Gústaf Amar.