Morgunblaðið - 10.10.2000, Qupperneq 56
56 ÞRIÐJUDAGUR 10. OKTÓBER 2000
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
AGUSTÞOR
ÞORSSON
+ Ágúst Þór Þórs-
son fæddist í
Iteykjavik 9. desem-
ber 1972. Hann lést af
slysförum 1. október
síðastliðinn. Ágiíst
Þór var sonur Helgu
Hallbjörnsdóttur, f.
20. febrúar 1951, og
Þórs Ottesen, f. 26.
júlí 1950. Þau slitu
samvistir. Bróðir
hans er Hallbjöm Eð-
. varð, f. 15. júní 1970,
unnusta hans er Anna
María Magnúsdóttir,
f. 29. júní 1976. Systir sammæðra
Fjóla Helgadóttir, f. 22. apríl 1983.
Systkin samfeðra Anna Lovísa, f.
28. október 1977, Áslaug, f. 20. júm'
1981, Brynja, f. 11. júní 1987, og
Bjarki, f. 3. desember 1991. Sam-
býliskona Ágústar var Erla Rut
Kristínardóttir, f. 29. apríl 1978.
Ágúst Þór nam Rafeindavirkjun
hjáTæknivali og starfaði þar.
Ágúst Þór verður jarðsunginn
frá Bústaðakirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 15.
Hinsta kveðja frá mömmu.
■*r í bljúgri bæn og þökk til þín,
sem þekkir mig og verkin mín.
Ég leita þín, Guð leiddu mig
oglýstumérumævistig.
Ég reika oft á rangri leið,
sú rétta virðist aldrei greið.
Ég geri margt, sem miður fer,
og man svo sjaldan eftir þér.
Sú ein er bæn í brjósti mér,
ég betur kunni þjóna þér,
því veit mér feta veginn þinn,
að verðir þú æ Drottinn minn.
m*’ (PéturPórarinsson.)
Hvíl í friði.
Þín
mamma.
Elsku bróðir og sonur, um leið og
við kveðjum þig í þetta sinn rifjast
upp ótal fagrar minningar um þau ár
sem við áttum saman. Heimsókn ykk-
ar bræðranna til Danmerkur svo og
allar ánægjustundir sem þið veittuð
okkur með nærveru, hlýju og glað-
væru viðmóti. Þú varst alltaf tilbúinn
að leika við okkur systkinin þótt ald-
ursmunur væri töluverður. Bros þitt
sem var svo einlægt yljar okkur öllum
í minningunni um góðan son og bróð-
^ _ur, og síðasta samverustund okkar í
afmælisveislu pabba verður einkar
kær vegna þess hve lífsgleði þín hreif
allasemþarvoru.
Elsku Erla, megi algóður guð
styrkja þig og okkur öll í þeirri sorg
sem nú leitar á okkur og hjálpa okkur
að líta fram á veginn með góðar minn-
ingar um frábæran dreng sem Ágúst
Þór var. Jafnan er dimmast undir
dögunina, en öll él birtir upp um síðir
og oft verða tárin sjónaukar, sem
hjálpa mönnum til að sjá langt inn í
himininn.
Því hamingja þín mælist
viðþaðsemertapað,
ogþáerlífiðfagurt
ogeftirsóknarvert,
JF efaldreihafafegurri
himinstjömurhrapað
enhiminstjömurþær,
erþúsjálfurhefurgert
(Tómas Guðm.)
Pabbi, Brynhildur, Áslaug,
Brynja og Bjarki.
Fyrir u.þ.b. 22 árum labbaði lítill
hnokki hér inn tO okkar með sitt stóra
bros og ekki bara inn á heimilið held-
ur beint inn í mitt móðurhjarta, þar
sem hann á sitt pláss eins og hin böm-
in mín. Þetta var svo
sjálfsagt og eðlilegt og
gerðist svo sjálfkrafa að
enginn hefur velt vöng-
um yfir hvemig þetta
gerðist. Mikið gæfi ég
fyrir að geta tekið hann
Ágúst minn í fangið eins
og svo oft áður og þerr-
að tárin eða sett plástur
á meiddið og kyssa á
bágtið eða sett hann í
bólið og pakkað honum
inn.
Siggi Már og Bjössi
vom stóm strákamir og
alltaf eins og Knoll og Tott og hentaði
þeim ekki á stundum að hafa Ágúst
með og væri þeim skipað að leyfa
honum með þá kom frá þeim eins og
úr einum hálsi „alltaf heldur þú með
honum“. Milli Guðrúnar og Ágústar
var alltaf mjög sérstakt væntum-
þykju-systkinastríðni samband.
En meiri samheldni og væntum-
þykja en milli þeirra allra er mjög
vandfundin. Vandamál eins þeirra
var allra að leysa úr. Gleði eins þeirra
var gleði þeirra allra.
Ágúst minn hefði ekki getað verið
mér mefra eins og mitt eigið bam þó
að ég hefði fætt hann sjálf. Það var
jafneðliiegt að finna hann í bólinu sinu
að morgni og hin bömin. Eða í sófan-
um með bók þegar ég kom heim úr
vinnunni. Og alltaf yljaði það jafnmik-
ið þegar hann kallaði mig mömmu
tvö. Þótt hann væri ekki margorður
um tilfinningar sínar hafði hann alveg
einstaklega sérstakt lag á að sýna og
láta mann finna hvað honum þótti
mikið vænt um mann.
Þegar hann kynntist svo Erlunni
sinni féll hún inn í hópinn eins og
púsluspilið sem vantaði en enginn
hafði þó tekið eftir því fvrr en hún var
komin á sinn stað. Við Oli eigum eftir
að fá að hafa hana hjá okkur um
ókomna tíð og fömm með hana í sveit-
ina þína á Vindfelli og í Sigtúni þar
sem hún undi sér jafnvel og þú, elsku
drengurinn minn.
Ég bið öllum hans ástvinum allrar
góðrar blessunar.
Ég vil gera þessi erindi að kveðju-
orðum okkar Ola þar til við hittumst
öll á ný í sólskinslandinu mikla.
Og því varð allt svo hjjótt við helfregn þína,
sem hefði klökkur gígjustrengur brostið.
Og enn ég veit margt þjarta, harmi lostið,
sem hugsar til þín alla daga sína.
En meðan árin þreyta þjörtu hinna
sem horfa eftír þér í sárum trega,
þá blómgast enn og blómgast ævinlega,
þitt bjarta vor í hugum vina þinna.
Og skín ei þúfast æfi þeirra yfir,
sem ung á morgni lífsins staðar nemur,
og eilíflega óháð því sem kemur,
í æsku sinnar tignu fegurð lifir?
Allar góðar vættir fylgi þér og leiði
þig, elsku barnið mitt.
Inga og Ólafur.
Kveðja frá stóra bróður
Tuttugu og sjö ár eru ekki langur
tími í ævi mannsins.
Tuttugu og sjö yndisleg ár fékk ég
af lífi bróður míns Ágústs Þórs, tíma
sem enginn fær tekinn frá mér.
Ég þarf ekki nema líta örstutt til
baka, tíl síðustu vikna þar sem fjöl-
skyldan hafði notið samvista við
Ágúst bæði við gullbrúðkaupsafmæli
afa og ömmu og einnig við síðbúna af-
mælisveislu pabba. A slíkum stund-
um naut Ágúst sín, innan um fullt af
fólki sem honum var kært, brandarar
fuku og stríðnisbrosið virtist eins og
fast á andliti hans. Þannig minnist ég
bróður míns.
Hamingjusamur ungur maður sem
ÚTFARARÞJÓNUSTAN
Persónuleg þjónusta
Höfum undirbúið og séð um útfarir
fyrir landsmenn í 10 ár.
Sími 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is utfarir@utfarir.is
Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson
útfararstjóri útfararstjóri
með unnustu sinni, Erlu Rut, hafði
fyrir réttu ári fest kaup á fyrstu íbúð
sinni. Lífið brosti við þeim.
Það var mér mikil ánægjustund
þegar Ágúst sýndi mér stoltur hreiðr-
ið þeirra Erlu við Sogaveginn, ég er
ekki frá því að hann hafi verið pínulít-
ið montinn, enda hafði hann alveg efni
áþví.
Sem persóna var Ágúst heilsteypt-
ur, fastur fyrir en sanngjam, nær-
vera hans var ákaflega sterk.
í texta sem Gylfi Ægisson samdi
um vin sinn Gústa guðsmann segir:
Bömum var hann góður... Einhvem
veginn hjómar þetta í huga mínum
þegar ég minnist litla bróður míns.
Ágúst Þór átti ekki sjálfur böm, engu
síður virtist hann hafa allt að því ótrú-
legt aðdráttarafl þegar börn vora
annars vegar, alltaf tilbúinn að setjast
á gólfið og verða átta ára eða fimm.
Líklega var hann að búa sig undir að
verða besti pabbi í heimi. Ef það hefði
verið keppt í bamgæsku á síðustu Ól-
ympíuleikum hefði hann komið heim
með gull.
En Ágúst var ekki einungis galdra-
maður á böm, allt sem snerti raf-
magn og tölvur lá fyrir honum eins og
opin bók. Ailtaf virtist hann tilbúinn
til að rétta stóra bróður hjálparhönd,
hvort sem var við að setja upp Ijós,
stilla fyrir hann sjónvarpið eða hvað-
eina sem menn með tíu þumalputta
ráða ekki við. Aldrei var viðkvæðið að
hann gæti ekki eða nennti ekki að
hjálpa, í versta falli klóraði hann sér í
höfðinu og sagði síðan: „Þetta redd-
ast.“ Þannig maður var Ágúst, alltaf
tilbúinn að rétta hjálpandi hönd, ekk-
ert vandamál var of stórt.
Þrátt fyrir alla þá kosti sem Ágúst
hafði sem sérleg hjálparhella var
hann fyrst og fremst minn besti vinur
í lífinu og líka í dauðanum. Við voram
samheijar, sama hvað bjátaði á gat ég
alltaf treyst því að Ágúst stæði mér
við hlið.
Það að geta minnst jafn ungs
manns sem hafði gefið svo mikið af
sér veitir okkur sem eftir stöndum
mikinn styrk og hjálpar okkur að
komast yfir þann harm sem kveðinn
hefir verið að okkur.
Öll höfum við misst mikið.
Ég kveð litla bróður minn, minn-
ingin um ljúfan dreng lifir í hjarta
allra sem urðu á vegi hans.
Ágúst Þór er farinn heim.
Deyrfé
deyjafrændur
deyrsjálfurhiðsama
en orðstír dejrr aldrigi
hveim er sér góðan getur.
(ÚrHávamálum.)
Hallbjöm Eðvarð.
Elsku stóri bróðir.
Ég trúi ekki að þú sért farinn frá
okkur, trúi ekki að ég muni aldrei
heyra þig hlæja, heyra rödd þína og
brandarana. Én rödd þín hljómar í
huga mínum og minningamar um þig
era alltaf í huga mér. Þú varst alltaf
svo góður við mig og ef eitthvað var
að þá var svo gott að koma til þín og
þú hjálpaðir mér. Það var alltaf svo
gaman hjá okkur þegar ég og Einar
komum til ykkar Erlu og við sátum og
töluðum saman, hlógum og horfðum á
boxið.
Ég veit þú ert á góðum stað og þar
ætla ég að hitta þig þegar ég dey og
þá getum við hlustað á Bubba saman,
talað saman og hlegið. En þangað til
hlusta ég á Bubba án þín en þú fylgist
með mér og passar upp á mig alveg
eins og þegar þú varst lifandi. Líkt og
þegar ég fékk bílpróf, aðeins tveimur
dögum áður en þú lést, þá komst þú
og leyfðir mér að keyra bílinn þinn.
Eg og Erla fóram að rúnta en þú og
Einar sátuð heima og biðuð eftir okk-
ur. Ég sá þig ekki mikið þessa síðustu
stund okkar saman því þegar við
komum aftur vildir þú fara heim að
horfa á Utangarðsmenn í sjónvarp-
inu. En ég get huggað mig við það að
ég á fullt af góðum minningum um þig
og ég veit að eftir einhvern tíma eiga
minningarnar eftir að standa upp úr
og ég gleymi hvað ég átti erfitt á þess-
umtíma.
Ég gæti skrifað miklu meira um
þig, þannig að ekkert annað kæmist
fyrir í Mogganum, en ég læt þetta
duga. Við vitum bæði að allar minn-
ingar sem ég á um þig, elsku Ágúst,
era vel geymdar í huga mínum og ég
þreytist aldrei á að tala um þig við
aðra og deila minningunum um þig.
Engar þarftu áhyggjumar að hafa
af Erlu þinni, Bjössi hugsar vel um
hana.
Við hittumst seinna elsku Ágúst,
ég elska þig.
Þín litla systir,
Fjóla.
Sunnudaginn 1, október barst okk-
ur sú harmafregn að hann Ágúst væri
dáinn. Hvemig má það vera, hann
sem var svo ungur og átti allt lífið
framundan? Hugurinn leitar til sum-
arsins þegar þau kynntust fyrst Erla
Rut og Ágúst. Þau hittust á Beni-
dorm og komu heim svo ástfangin að
þau hafa vart mátt hvort af öðra líta
síðan. Þau vora alltaf boðin og búin að
gæta barnanna fyrir okkur systur
þegar við þurftum á að halda og
meira en það því ljóst var af brosum
þeirra og viðmóti að allt það stúss
væri meira en sjálfsagt. Það kom líka
í ljós í sumarfríinu í Portúgal nú í
sumar að jþeir yngri áttu hauk í homi
þar sem Ágúst var. Ef einhver þurfti
að fá far á háhesti eða félagsskap í
sundlauginni eðá við að ýta vindsæng
á flot þá var hann alltaf tiltækur.Mik-
il var gleði okkar systra þegar Agúst
og Erla keyptu íbúðina á Sogavegi.
Þar höfum við átt margar ánægju-
stundir saman.
Elsku litla stelpan okkar, mikil er
sorg þín og missir. Þið sem áttuð allt
lifið framundan. Við biðjum þess að
góður Guð gefi þér styrk og þrek til
þess að komast yfir þessa erfiðu tíma.
Við viijum einnig votta Stínu syst-
ur og fjölskyldu hennar, Helgu og
Þór foreldram Ágústar og systkinum
hans og einnig Ingu og Óla, okkar
innilegustu samúðarkveðjur.
Sigríður og Harpa
Viðarsdætur.
Sagt er að það sé stutt á milli hlát-
urs og gráts. Sorgin sem nístir hjarta
okkar í dag, elsku Agúst, er ólýsan-
leg. EkM grunaði okkur þegar við
héldum upp á gullbrúðkaup ömmu
þinnar og afa að viku seinna yrði
komið skarð í okkar hóp. Myndin sem
var tekin af ykkur bamabömunum
og þið gáfuð ömmu og afa, þar sem
með hjálp tækninnar var Pétri bætt
inn á, er ómetanleg í dag. Hver er
tilgangurinn með því að taka ham-
ingjusaman ungan mann eins og þig
svona fljótt? Bjössi bróðir þinn sagði
að það vantaði eflaust snjallan tækni-
mann þarna uppi. Hver veit? Við fá-
um engin svör en við vitum að ekkert
verður aftur eins og það var og við
munum aldrei sætta okkur við orðinn
hlut, getum bara reynt að læra að lifa
við hann.
Einhvem veginn er það þannig að
fyrstu barnabörnin í hverri fjölskyldu
verða alltaf svolítið sérstök. Fyrstur
kom Bjössi og sfðan þú tveimur áram
seinna, eins ólíkir og dagur og nótt í
útliti, en með ykkur þróaðist svo ná-
inn vinskapur að í hugum okkar vora
alltaf ,Á-gúst og Bjössi“ nánast eins
og eitt orð. Fjóla bættist í hópinn og
varst þú henni sannur vinur og fyrir-
mynd, stóri bróðir sem hún leitaði til
þegar á þurfti að halda.
Við yíjum okkur við minningamar
sem koma upp í hugann. Þú sem ert
búinn að vera hluti af okkar lífi frá því
þú fæddist. Brosið þitt var alveg sér-
stakt og góða skapið var þitt aðals-
merki. Lítill pjakkur að gista hjá okk-
ur, seinna með óþrjótandi þolinmæði
að leika við litlu frænkumar, sumar-
dagar í Selvík, endalausir fótbolta-
leikir, tölvuspil sem áttu hug þinn all-
an, sunnudagar á Lynghaganum og
enn seinna að passa Dagnýju Ósk og
Pétur.
Ómetanleg hjálp við húsið okkar
þegar þú komst kvöld eftir kvöld til að
hjálpa okkur. Urræðagóður, ef þú
vissir ekki leitaðir þú svara. Viðkvæð-
ið hjá þér var „ekki málið“. Það era
ófá penslaförin eftir þig hér á heimil-
inu. Við grínuðumst stundum með
það, hvernig svona skjálfhentur mað-
ur eins og þú gætir málað svona bein-
ar línur og þá hlóst þú og sagðist ekk-
ert skilja í því sjálfur.
Svo kynntist þú ástinni í lífi þínu,
henni Erlu Rut. Það fór ekki fram hjá
neinum hversu einlægt samband ykk-
ar var.
Að leiðarlokum, elsku Ágúst, vilj-
um við þakka þér samfylgdina sem
fékk svo sviplegan endi. Ástarkveðjur
frá Pétri í Guatemala sem ekki getur
fylgt þér síðasta spölinn.
Kæra fjölskylda og aðrir ástvinir,
við biðjum Guð að veita ykkur styrk í
ykkar miklu sorg.
Elsku Ágúst, við vitum að þú tekur
vel á móti okkur þegar þar að kemur.
Megi Guð geyma þig að eilífu. Vertu
sæll að sinni.
Erla og Ásgeir.
Nú er hann elsku Ágúst frændi far-
inn. Á stundu sem þessari er erfitt að
lýsa þeim söknuði sem okkur býr í
brjósti. Minningamar streyma upp í
hugann, allar góðar, og alltaf varstu
brosandi elsku frændi.
Við áttum margar góðar stundir
saman, hann var alltaf tilbúinn að
leika við okkur litlu frænkurnar og
vora þau ófá leikritin sem sett vora
upp á Lynghaganum hjá afa og ömmu
undir styrkri stjóm Agústar leik-
stjóra. Ágúst hafði alltaf gott lag á
okkur ærslabelgjunum en hann sá
um að róa liðið þegar hinir fullorðnu
vora orðnir þreyttir. Hann varð
aldrei leiður á að spila við okkur og
eyddum við mörgum stundum saman
frammi í eldhúsi við spilaborðið.
Þegar við hugsum um Ágúst þá
kemur Bjössi bróðir hans einnig upp í
hugann en þeir bræður vora mjög
nánir. I raun munum við varla eftir
því að hafa sagt Ágúst án þess að
segja Bjössi eða öfugt. Þeir bræður
vora báðir miklir brandarakarlar og
skemmtu sér mörgum stundum við
það að skjóta á aðra fjölskyldumeð-
limi við mismikinn fögnuð þeirra. En
alltaf var þetta samt saklaust grín og
höfðu flestir gaman af.
Ágúst var mikill dugnaðarforkur
og lagði sig allan fram um að leysa
þau verkefni sem hann tók að sér og
alltaf gat hann reddað málunum.
Hann var einstaklega glaðlyndur og
hafði góðan húmor og tókst honum
alltaf að koma að litlum brandara,
þrátt fyrir að aðstæður væra stund-
um erfiðar. Þannig smitaði hann út
frá sér lífsgleði og hamingju. Við er-
um vissar um að ef hann hefði fengið
tækifæri til að koma einum boðskap
út í lífið þá væri hann eitthvað á þessa
leið:
Brostu og þá mun lífið brosa við
þér!
Þessi fáu orð lýsa þér vel elsku
Agúst en þetta era okkar minningar
um þig, þessar minningar era fallegar
og þær munu ylja okkur um ókomna
tíð. Það er erfitt að skilja að þú skulir
vera farinn og að við fáum aldrei að
hitta þig aftur en um leið þökkum við
fyrir að hafa fengið að kynnast þér og
njóta þess að vera í kringum þig.
Elsku Erla Rut, Helga, Bjössi og
Fjóla, Guð styrki ykkur og veri með
ykkur í þessari mikiu sorg.
María, Dagný Ósk
og Linda Björk.
Hinn 2. október barst okkur sú
sorgarfrétt að samstarfsmaður okkar
Ágúst Þór Þórsson hefði látist í um-
ferðarslysi daginn áður.
Gústi, eins og hann var kallaður
meðal okkar, hafði starfað sem verk-
tald hjá Tæknivali við viðgerðir á
tölvum hjá Íslandsbanka-FBA í lið-
lega tvö ár. Gústi var alltaf til 1 að
ræða málin, hvort sem það var á fag-
legum nótum eða um önnur mál.
Hann hafði reynslu og kunnáttu til að
leysa öll þau verk sem við settum inn
á borð til hans, hratt og öragglega.
Það þurfti aldrei að ýta á eftir hlutun-
um eða ítreka þá, Gústi var búinn að
leysa málið.
Fótboltinn var honum ofarlega í
huga og var auðvelt að fletta upp á
ýmiss konar fróðleik um ensku knatt-
spyrnuna hjá honum, en einnig fylgd-
ist hann vel með þeirri innlendu og
var afar ánægður nú í haust er liði
hans tókst að vinna sér sæti í efstu
deild á ný.
Strax frá fyrsta degi hans hjá okk-
ur féll hann inn í hópinn og var alveg
til í að spauga með samstarfsmennina
ef svo bar undir. Við munum sakna
hans sem samstarfsmanns og góðs fé-
laga um leið og við vottum Erlu Rut,
ættingjum hans og vinum okkar
dýpstu samúð.
Samstarísfólk hjá Tækniþjónustu
Íslandsbanka-FBA.
• Fleirí minningargrcimir
um Ágúst Þór Þórsson bi'ða birt-
ingar og munu birtast í blaðinu
næstu daga.