Morgunblaðið - 10.10.2000, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 10. OKTÓBER 2000 63
k T V I l\I IM
ING/ð
Biskup íslands
auglýsir eftirfarandi embætti laus
til umsóknar.
1. Embætti sóknarprests í Árbæjarprestakalli,
Reykjavíkurprófastsdæmi eystra frá 1. janúar
2001.
2. Embætti prests í Dómkirkjuprestakalli,
Reykjavíkurprófastsdæmi vestra frá 1. febrúar
2001.
• Kirkjumálaráöherra skipar í embætti sóknar-
presta til fimm ára.
• Biskup íslands skipar í embætti presta til
fimm ára.
• Um launakjör fer skv. ákvörðun kjaranefndar,
en að öðru leyti gilda um starfið lög um
stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar
nr. 78/1997 og lög um réttindi og skyldur
starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.
• Óskað er eftir því að umsækjendur geri í
umsókn skriflega grein fyrir menntun sinni,
starfsferli og öðru því sem þeir óska eftir
að taka fram.
• Valnefnd velur sóknarprest/prest skv. starfs-
reglum um presta nr. 735/1998, en biskup
ákveður með hvaða umsækjanda hann
mælir náist ekki samstaða í valnefnd.
• Heimilt er að óska eftir því að almennar
prestskosningar fari fram samkvæmt 20.
gr. starfsreglna um presta nr. 735/1998, en
ákvæðið er svohljóðandi:
„Óski minnst þriðjungur atkvæðisbærra
sóknarbarna í prestakalli þess, að almenn
prestskosning fari fram, er skylt að verða
við því. Skrifleg ósk um kosningu skal
hafa borist biskupi eigi síðar en að hálf-
um mánuði liðnum frá þeim degi er kallið
var auglýst laust til umsóknar."
• Allar nánari upplýsingar um embættið,
starfskjör, erindisbréf, helstu lög og reglur
sem um starfið gilda, eru veittar á Biskups-
stofu, s. 535 1500, grænt nr. 800 6550, fax
551 3284.
• Umsóknarfrestur rennur út 15. nóvember
2000.
• Umsóknir sendist Biskupi íslands, Biskups-
stofu, Laugavegi 31, 150 Reykjavík.
Það athugist að embætti sóknarpresta eru aug-
lýst með fyrirvara um breytingar á sóknar- og
prestakallaskipan. Prestum er skylt að hlýta
breytingu á störfum sínum og verksviði á skip-
unartímanum, sbr. 19. gr. laga nr. 70/1996 um
réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
Með vísan til 13. og 15. gr. laga um jafna stöðu
og jafnan rétt kvenna og karla nr. 96/2000 eru
konur hvattartil að sækja um ofangreint
embætti.
Biskup íslands.
Flugvirkjar
Air Cargo Carriers Inc, stofnað árið 1986,
með höfuðstöðvar í Milwaukee Wl í Banda-
ríkjunum, er flutningaflugfélag með þjón-
ustu við frakt- og flutningamiðlara.
Hjá Air Cargo er laus staða flugvirkja á sviði
flugskrokka og hreyfla. Við fljúgum Short
330 og Short 360 fragt- og flutningavélum
og reynsla af slíkum vélum er kostur.
Air Cargo Carriers Inc býður samkeppnis-
hæf laun og mjög góðar tryggingar að
meðtaldri 401K áætlun.
Nánari upplýsingar fást á heimasíðu okkar
www.aircar.com. Ef þú uppfyllir þessi
skilyrði og hefur áhuga, sendu okkur fax
með starfsferilskrá og launakröfum til:
Air Cargo Carriers, Inc.,
B/t E.M. Bezie - Human Resources
4984 S. Howell Ave. Milwaukee, Wl 53207,
United States of America,
faxnúmer 4414 486 5550.
Raf- eða rafvélavirki
Vélstjóri/vélvirki
Eimskip óskar eftir tveimur starfsmönnum til starfe
á rafmagnsverkstæði fyrirtækisins í Sundahöfn.
Annars vegar leitum við að vélstjóra eða vélvirkja
með reynslu af viðgerðum frystivéla. Hins vegar
Leitum við að raf- eða rafvélavirkja með sveinspróf
og reynslu af viðgerðum rafvéla. Leitað er að
duglegum og áhugasömum starfsmönnum í fram-
tíðarstarf.
Við bjóðum fjölbreytt og krefjandi starfsumhverfi
hjá traustu fyrirtæki. Frekari upplýsingar um starfið
veitir Árni Pálsson verkstjóri á rafmagnsverkstæði
í síma 525 7541 eða 899 6044.
Hægt er að sækja um starfið á heimasíðu Eimskips
en umsóknareyðublöð liggja einnig frammi á
skrifstofu Eimskips í Sundakletti. Vinsamlega skilið
umsóknum tíl starfsþróunardeildar Eimskips, Sunda-
kletti í síðasta lagi föstudaginn 20. október n.k.
Öllum umsóknum verður svarað og farið með þær sem trúnaðarmál.
EIMSKIP
Sími 525 7373 • Fax 525 7379 • info@eimskip.is • www.eimskip.is
HRAFNISTA DAS
Hrafnista Hafnarfirdi
óskar eftir:
Hjúkrunarfræðingum
Á kvöld- og helgarvaktir.
Unnin er fjórða hver helgi, átta tíma
vaktir.
Um er að ræða stöðu á 30 manna hjúkrun-
ardeild 4-B, sem skiptist í tvær einingar, 10
manna heimilislega einingu fyrir heilabilaða
og 20 manna almenna hjúkrunardeild.
Gert er ráð fyrir að alltaf séu tveir hjúkrunar-
fræðingar á kvöldvöktum virka daga.
Markmiðið er að veita einstaklingshæfða
hjúkrun í heimilislegu umhverfi.
Stór hluti starfsins er stuðningur og fræðsla
til aðstandenda og starfsfólks.
Upplýsingar veita Elín Stefánsdóttir,
deildarstjóri, í síma 585 3116 og Alma
Birgisdóttir, hjúkrunarframkv.stjóri
í síma 585 3101.
Við bjóðum upp á vinnustað í fallegu umhverfi,
með góðri vinnuaðstöðu og góðum starfs-
anda.
Smmmm^^—mmmmmm^^m—mmmmmmmmmm.mmt
RÁÐGJÖF EHF.|
Byggmgaverkfrædmgiu/
byggmgatæknifræðingur
Orion Ráðgjöf er ungt og vaxandi ráð-
gjafafyrirtæki sem sérhæfir sig í veg-
hönnun, snjóflóðavörnum og snjóverk-
fræði almennt. Vegna aukinna umsvifa
leitum við að ungu og frísku fólki, sem
vill starfa með okkur að skemmtilegum
og áhugaverðum verkefnum á ofan-
greindum sviðum.
Upplýsingar veitir Árni í síma 552 9970
eða með netpósti arni@orion.is
HRAFNISTA DAS
Hrafnista Reykjavík
óskar eftir:
Aðstodardeildarstjóra
Við leitum að hjúkrunarfraeðingi með góóa
skipulags- og samskiptahæfileika í stöðu að-
stoðardeildarstjóra. Um er að ræða 100%
starf.
Hjúkrunarfrædingum
í kvöld- og helgarvinnu.
Sjúkraiiðum
í dagvinnu eða vaktavinnu.
Aðhiynning
Leitum að starfsfólki bæði í fullt starf og
hlutastörf, 4—6 og 8 tíma vaktir.
Nánari upplýsingar gefur Þórunn Svein-
bjarnardóttir á staðnum eða í síma 585 9500
og 585 9401.
Hrafnista býður upp á fjölbreyttan vinnutíma
og mismunandi starfshlutfall á launum sem eru
fyliilega samkeppnishæf.
Við leitum að starfsfólki til framtíðarstarfa.
Við bjóðum upp á vinnustað, þar sem ríkir
heimilislegt andrúmsloft, góður starfsandi og
gott vinnuumhverfi.
Lwmmmm^^mmmmmmm^^mmmmmmmmmmmm
Landlæknisembættið
Móttökuritari
Laus ertil umsóknar staða móttökuritara við
embætti landlæknis. Um er að ræða fullt starf
og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf
sem fyrst. Meginverkefni eru símavarsla,
skjalaskráning og skjalavarsla.
Leitað er að aðila sem hefur góða framkomu,
er vanur tölvuvinnu og hefur einhverja kunn-
áttu í ensku og einu Norðurlandamáli.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Gerður
Helgadóttir, aðstoðarmaður landlæknis,
í síma 510 1900.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf, skulu berast Landlæknisembætt-
inu, Laugavegi 116, fyrir 23. október 2000.
Landlæknisembættið,
Reykjavík 10. október 2000.
Spennandi starf á
ferðaskrífstofu
Ferðaskrifstofa í fremstu röð á
íslandi óskar að ráða áhugasaman,
reglusaman, nákvæman starfs-
mann með ágæta kunnáttu og
leikni í AMADEUS kerfinu til starfa
sem fyrst.
Spennandi starf í góðu starfsum-
hverfi og góð laun fyrir réttan
starfskraft.
Aðeins vel menntuð með þjónustu-
lund og aðlaðandi framkomu.
Skriflegar umsóknir, m. mynd og
meðmælum, ef fyrir hendi eru,
sendist auglýsingadeild Mbl.,
fyrir 14. okt., merktar: „LOVE
AMADEUS 354".