Morgunblaðið - 12.10.2000, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 2000 13
FRÉTTIR
Samningur um aðgang að
rafrænum gagnasöfnum
BJÖRN Bjarnason menntamála-
ráðherra og Einar Sigurðsson
landsbókavörður munu ásamt Steve
Sidaway, aðstoðarforstjóra sölu- og
markaðsmála hjá alþjóðadeild Bell
& Howell, undirrita í dag heildar-
samning um aðgang íslendinga að
rafrænum gagnasöfnum. Undirrit-
unin fer fram í Þjóðarbókhlöðunni,
2. hæð, kl. 16.30.
Samningurinn felur í sér aðgang
að 19 gagnasöfnum á ýmsum sviðum
og 3.500 rafrænum tímaritum nokk-
ur ár aftur í tímann og til dagsins í
dag. Má þar nefna aðgang að gagna-
söfnum um mennta- og menningar-
mál, heilbrigðismál, tækni, ýmsar
vísindagreinar, tölvunarfræði og
fjarskipti, trúarbrögð og viðskipti
og fjármál. Samningurinn er sagður
opna ný svið í upplýsinga- og
fræðslumálum en á alþjóðlega vísu
felst sú nýjung í því að aðgengi verð-
ur ekki takmarkað við starfsmenn
tiltekinna stofnana heldur munu
starfsmenn fyrirtækja og fólk í
heimahúsum geta tengst þessum
gagnasöfnum ef internetveitan sem
þeir eru tengdir uppfyllir öryggis-
reglur.
Afnot af forriti
fyrir gagnasöfn
Auk áskriftar að gagnasöfnum og
rafrænum tímaritum veitir aðgang-
urinn notendum afnot af „Site-
Builder" frá Bell & Howell sem er
forrit sem gerir öllum kleift að
hanna sitt eigið gagnasafn byggt á
völdum upplýsingum úr öllu gagna-
safninu. Þannig geta notendur verið
með sínar eigin heimasíður með
völdum greinum og einnig vel upp-
byggða leit sem endurnýjast jafnóð-
um og nýtt efni bætist í gagnasöfnin.
Menntamálaráðherra skipaði í
upphafi árs verkefnisstjórn um að-
gang að gagnasöfnum undir for-
mennsku Hauks Ingibergssonar
forstjóra og er hlutverk hennar að
móta stefnu um aðgang fyrn- ís-
lenskt samfélag að gagnasöfnum og
ennfremur að hlutast til um að henni
sé hrundið í framkvæmd.
Samningurinn gildir til ársloka
2002. Árleg greiðsla fyrir aðganginn
er 9 milljónir kr. á ári og er miðað
við að að háskólar og bókasöfn
greiði sem svarar 75% þess kostnað-
ar og atvinnulífið 25% kostnaðarins.
Landsbókasafn - Háskólabóka-
safn mun fara með framkvæmd
samningsins fyrir hönd íslands.
Morgunblaðið/ Kristinn.
Frá undirritun samningsins. F.h. Einar Sigurðsson landsbókavörður,
Björn Bjarnason menntamálaráðherra, Steve Sidaway, aðstoðarfor-
stjóri sölu- og markaðsmála hjá Howell & Bell, og Haukur Ingibergsson,
formaður verkefnisstjórnar um aðgang að gagnasöfnum.
Morgunblaðið/Njáll Haraldsson
Hálka var á Reykjavíkurvegi í gærmorgun og hún er talin hafa átt þátt í því að jeppinn valt.
Hálka gerir öku-
mönnum skráveifu
JEPPABIFREIÐ valt á Reykjavík-
urvegi, skammt sunnan við Engidal,
um kl. 9 í gærmorgun. Nokkur
hálka var á veginum þegar óhappið
varð.
Jeppanum var ekið suður Hafnar-
fjarðarveg og ætlaði ökumaður hans
að fara fram úr öðrum bíl en missti
við það stjórn á jeppanum sem lenti
á umferðareyju og valt. Konan sem
ók bílnum meiddist á hálsi og var
flutt á slysadeild, en meiðsli hennar
virtust við fyrstu sýn ekki alvarleg,
að sögn lögreglunnar í Hafnarfirði.
Lögreglan í Kópavogi þurfti í
gærmorgun að kalla út bæjarstarfs-
menn til að bera salt á götur vegna
hálku, en þetta var í fyrsta skipti
sem þess þarf í haust. Ekki dugði
saltburðurinn þó öllum því í Tún-
brekku lenti bíll á ljósastaur eftir að
ökumaður fólksbifreiðar hafði misst
stjórn á bílnum í hálku. Ökumaður
meiddist lítillega.
Nú má víða búast við hálku á göt-
um og beinir lögreglan þeim tilmæl-
um til ökumanna að þeir taki tillit til
þess við akstur.
775 úrsagnir úr þjóð-
kirkjunni frá áramótum
ALLS voru gerðar 1.285 breytingar
á trúfélagsskráningu hjá Hagstofu
íslands á fyrstu níu mánuðum ársins.
Það svarar til þess að um 0,5% lands-
manna hafi skipt um trúfélag. Er
þetta nokkur fjölgun frá undanförn-
um árum en á sama tímabili árið 1999
voru breytingamar 1.120 og 1.017 á
fyrstu níu mánuðum ársins 1998.
Alls skráðu sig 775 úr þjóðkirkj-
unni á fyrstu níu mánuðum ársins en
á móti voru 143 skráðir í þjóðkirkj-
una á sama tímabili. Brottskráðir
umfram nýskráða voru því 632 sam-
anborið við 471 á sama tíma í fyrra. Á
sama tímabili í fyrra létu 609 skrá sig
úr þjóðkirkjunni og 576 á fyrstu níu
mánuðum ársins 1998, samkvæmt
fréttatilkynningu frá Hagstofunni.
Meirihlutinn skráði
sig í önnur trúfélög
Af þeim sem skráðu sig úr
þjóðkirkjunni kusu 280 að vera utan
trúfélaga, 139 létu skrá sig í
Fríkirkjuna í Reykjavík, 95 í Asa-
trúarfélagið, 85 í Fríkirkjuna í Hafn-
arfirði og 79 í Óháða söfnuðinn.
Sólheimavegur
Sex tilboð undir áætlun
TILBOÐ í vegaframkvæmdir á Sól-
heimavegi við Biskupstungnabraut
voru nýlega opnuð hjá Vegagerðinni.
Alls bárust 8 tilboð og þar af voru 6
undir kostnaðaráætlun Vegagerðar-
innai', sem hljóðaði upp á 31,5 milljón-
ir ki'óna.
Lægsta tilboð kom frá Ingileifi
Jónssyni frá Svínavatni, sem bauð
23,8 milljónir í verkið, eða 75% af
áætluninni.
Munur á hæsta og lægsta tilboði
var 155% en hæst bauð Fleygtak,
Reykjavík, eða 60,8 milljónir. Aðrir
bjóðendur í verkið vora Bauðholt sf.,
Reykjavöllum, sem var aðeins um 200
þúsund krónum frá lægsta tilboði,
Vörabílstjórafélagið Mjölnfr frá Sel-
fossi bauð 24,2 milljónir, Sigurjón A.
Hjartarson frá Brjánsstöðum bauð
27,9 milljónir, SG-vélar frá Djúpavogi
voru með 28,9 milljóna tilboð, Rækt-
unarmiðstöðin sf. í Hveragerði bauð
29,6 milljónfr og Verktækni ehf. frá
Selfossi lagði fram 34,9 milljóna
króna tilboð.
Aform um
sölu lögð
til hliðar
EIGANDI Hótel Valhallar á
Þingvöllum, Jón Ragnarsson,
hefrn’ lagt áform um sölu hótels-
ins til hliðai' í bili. I samtali við
Morgunblaðið sagði Jón að
ástæðan væri sú neitun sem
kom frá dómsmálaráðuneytinu
á undanþágubeiðni fyrir sölu til
auðmannsins Howards Krug-
ers. Ráðuneytið taldi söluna
ólöglega þar sem Verino Invest-
ments, fjárfestingafyrirtæki
Krugers í Mónakó sem lagði inn
tilboðið, stæði utan EES-svæð-
isins auk þess sem hótelið væri
innan þjóðgai'ðsins á Þingvöll-
um, „í næsta nágrenni við þá
staði sem þjóðin hefur safnast
saman á Alþingi hinu forna og á
sérstökum hátíðarstundum í lífi
og sögu þjóðarinnar á síðustu
áratugum", svo vitnað sé til
neitunarbréfs ráðuneytisins.
Jón sagði málið þó ekki end-
anlega dautt. Howard Kruger
væri að skoða sinn gang og sá
möguleiki væri inni í myndinni
að hann legði fram annað tilboð
í eigin nafni, en Kruger er einn-
ig með breskt ríkisfang.
Héraðsdómur fell-
ir lögbann úr gildi
HÉRAÐSDOMUR Reykjavíkur
felldi í gær úr gildi lögbann sem
sýslumaðurinn í Reykjavík lagði við
aðgerðum félaga í Sjómannafélagi
Reykjavíkur þegar þeir hindraðu
losun og lestun skipsins MV Nord-
heim í Sundahöfn í Reykjavík í
nóvember 1999. Aðgerðunum var
ætlað að knýja eigendur skipsins til
að skuldbinda sig til að greiða
áhöfn þess samningsbundin lág-
markslaun.
Útgerðarfélag skipsins, Reederei
„Nord“ Klaus E. Oldendorf Ltd.,
höfðaði mál til þess að fá lögbannið
staðfest og að dómurinn viður-
kenndi að aðgerðir Sjómannafélags
Reykjavíkur, sem dagana 19.-24.
nóvember sl. hindruðu losun og
lestun skipsins, hefðu verið ólög-
mætar. Héraðsdómur féllst ekki á
þessa kröfu heldur sýknaði Sjó-
mannafélag Reykjavíkur.
Lögbannið lagt á
rangan aðila
I dómnum segir að það sé
ósannað að Sjómannafélag Reykja-
víkur hafi staðið fyrir aðgerðunum
heldur hafi það verið Alþjóðasam-
band flutningaverkamanna og
starfsmaður þess, Borgþór Kjæme-
sted. Lögbannið hefði því ekki átt
að leggja á Sjómannafélag Reykja-
víkur. Engu breytti þótt félags-
menn þess hefðu tekið þátt í að-
gerðunum. Héraðsdómur tók ekki
afstöðu til þess hvort aðgerðirnar
hefðu verið lögmætar eða ekki og
var þeirri kröfu vísað frá dómi.
Viðræður um nýjan kjarasamning í
álverinu í Straumsvík að hefjast
Starfsmenn semja
í tvennu lagi
VERKALÝÐSFÉLÖGIN, sem
semja fyrir hönd starfsmanna ál-
versins í Straumsvík, ganga til
kjaraviðræðna í tveimur hópum, en
kjarasamningar renna út 1. desem-
ber nk. Ófaglærðir ætla að semja
sér og iðnaðarmenn sér. Þetta mun
vera í fyrsta skipti sem starfsmenn
álversins ganga til viðræðna í
tvennu lagi.
Sigurður T. Sigurðsson, formað-
ur Hlífar í Hafnarfirði, sagði að fé-
lög iðnaðarmanna hefðu tekið þá
ákvörðun að ganga ekki til kjara-
viðræðna með verkafólki í Hlíf og
verslunarmönnum í Verslunar-
mannafélagi Hafnarfirði. Hann
sagði í sjálfu sér ekkert athugavert
við þetta. Iðnaðarmenn hefðu metið
það svo að þeir stæðu betur að vígi
í viðræðunum með því að standa
sér líkt og félög verkafólks á Suð-
vesturlandi gerðu í vor þegar þau
mynduðu svokallað Flóabandalag.
Félagsmenn í Hlíf era rúmlega
helmingur starfsmanna álversins.
Sigurður sagði að viðræður um
gerð nýs kjarasamnings væru hafn-
ar. Samninganefndir væru búnar
að hittast og kynna kröfur. Sigurð-
ur sagðist ekki telja að kröfur
verkafólks og iðnaðamianna væru
ólíkar, en framsetning væri
kannski ekki sú sama.
Fyrstu níu mánuðir ársins
Fjölgaði um 1.400 manns
á höfuðborgarsvæðinu
TÆPLEGA 1.400 manns fluttust til
höfuðborgarsvæðisins fyrstu níu
mánuði ársins umfram þá sem flutt-
ust þaðan og komu 669 af lands-
byggðinni en 713 frá útlöndum, að
því er fram kemur í samantekt
Hagstofu íslands yfir búferlaflutn-
inga frá janúar til september í ár.
Fram kemur að auk höfuðborgar-
svæðisins fjölgaði einnig fólki á
Suðurnesjum, Suðurlandi og Vest-
urlandi, en fækkaði í öðrum lands-
hlutum. Flestir fluttu frá Austur-
landi eða 254, en mest fjölgaði í
Kópavogi um 499 og í Reykjavík um
468. Flestfr fluttust hins vegar frá
Fjarðabyggð eða 112, frá ísafjarð-
arbæ 89 og frá Vestmannaeyjum 81.
1.122 fluttust til landsins
Ef aðflutningur til landsins er
skoðaður í heild kemur fram að
1.122 einstaklingar fluttust til
landsins umfram brottflutta fyrstu
níu mánuði ársins. Þar af voru að-
fluttir íslendingar 40 fleiri en brott-
fluttir og aðfluttir erlendir ríkis-
borgarar 1.082 fleiri en brottfluttir.
Heildarfjöldi aðfluttra umfram
brottflutta var svipaður sama tíma-
bil í fyrra en þó ívið minni eða 1.048
frá janúar til september.