Morgunblaðið - 26.10.2000, Side 18
18 FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER 2000
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Sjávarútvegsfyrirtækin BGB-Snæfell og Samherji verða sameinuð fyrir áramót
KEA verður stærsti hluthafínn í
Samherja með 17% eignaraðild
Morgunblaðið/Kristján
Eiríkur S. Jóhannsson, kaupfélagsstjóri KEA, Jóhannes Geir Sigurgeirsson, stjórnarformaður KEA, Finnbogi
Jónsson, stjórnarformaður Samherja, og Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samheija, kynntu fyrirhugaða
sameiningu sjávarútvegsfyrirtækjanna BGB-Snæfells og Samheija en frá henni verður gengið fyrir áramót.
Félagið verður stærsta sjávarútvegslyrirtæki landsins.
SJÁVARÚTVEGSFYRIRTÆKIN
Samheiji og BGB-Snæfell verða
sameinuð fyrir áramót, en viðræður
hafa farið fram síðustu daga um
skipti á hlutabréfum KEA í BGB-
Snæfelli fyrir hlutabréf í Samherja.
Viðræðum er nú lokið og hefur verið
ákveðið að skiptahlutfall í hinu sam-
einaða félagi verður þannig að nú-
verandi hluthafar BGB-Snæfells
eignast 26% í því og núverandi hlut-
hafar Samherja 74%. KEA verður
stærsti einstaki hluthafmn í hinu
sameinaða félagi með 17% eignar-
aðild.
„Þetta verður stærsta sjávarút-
vegsfyrirtæki landsins og við teljum
að þessi sameining sé til hagsbóta,
bæði fyrir fyrirtæki og ekki síður
byggðir Eyjafjarðar," sagði Jóhann-
es Geir Sigurgeirsson, formaður
stjómar Kaupfélags Eyfirðinga, en
félagið verður með starfsemi í fimm
löndum. „I þessu félagi býr gríðar-
legt afl til uppbyggingar og það hef-
ur þegar markað sér þá stefnu að
vera í forystu í fiskeldi á íslandi."
I samkomulaginu er kveðið á um
að boðað verði til hluthafafundar í
Samherja innan 14 daga og þar verði
leitað heimildar til hlutafjáraukn-
ingar og að hluthafar falli frá forka-
upsrétti sínum. Gert er ráð fyrir að
heildarhlutafé í félaginu verði aukið
úr 1.374 milljónum króna í 1.857
milljónir. Þar verður einnig kjörin
ný stjórn fyrir Samherja og mun
KE A tilnefna einn aðalmann og einn
varamann til setu í stjórninni.
Höfuðstöðvar landvinnslu
verða á Dalvík
Höfuðstöðvar landvinnslu Sam-
herja verða á Dalvík og þar verður
útgerðarstjórn á ferskfiskkaupum
hins sameiginlega félags einnig.
Forsvarsmenn KEA og Samheija
KAUP Baldurs Guðnasonar á 60%
hlut Kaupfélags Eyfirðinga í Efna-
verksmiðjunni Sjöfn á dögunum
vöktu nokkra athygli og þá ekki síst
á Akureyri. Baldur starfar sem
framkvæmdastjóri Samskipa í
Þýskalandi en mun taka við stöðu
framkvæmdastjóra Sjafnar um
næstu áramót og flytja þá á heima-
slóðir á ný, ásamt konu sinni, Örnu
Alfreðsdóttur, sem einnig er Akur-
eyringur og þremur börnum þeirra.
Baldur sagði að kaup hans á hlut
KEA í Sjöfn hefðu haft frekar stutt-
an aðdraganda en á bak við hann
stendur hópur aðila. Hann hafi hins
vegar horft lengi á fyrirtækið og
sjái þar fjölmörg tækifæri. KEA var
að leita eftir samstarfsaðila í Sjöfn
og sagði Baldur að málin hefðu
þróast á þann veg að hann kæmi að
rekstrinum með þessum hætti, enda
hefðu hann og forsvarsmenn KEA
sameiginlega sýn á framtíð fyrir-
tækisins.
„Sjöfn er gamalgróið fyrirtækið
með mjög farsæla sögu. Fyrirtækið
framleiðir góðar vörur, er með gott
starfsfólk og hefur þvi' alla burði til
þess að ná enn frekari árangri á
markaðnum. Við munum leita eftir
samstarfsaðilum sem geta styrkt
dreifileiðir fyrir okkar vöru og þá
sérstaklega á þeim svæðum þar sem
við höfum ekki náð nægilegri fót-
festu. Og ég sé mikla möguleika á
því að nýta þau sambönd sem ég hef
eru sammála um að viðhalda öflugri
landvinnslu í Dalvíkurbyggð og að
nýta tækifæri eins og í laxeldi og
þurrkun á fiski til að treysta þá
starfsemi enn frekar.
Finnbogi Jónsson, fonnaður
stjórnar Samherja, sagði að félagið
hefði möguleika á að efla starfsemi
sína á sviði fiskeldis. KEA hefur því
nú þegar selt Samherja 5,7% hluta-
fjáreign sína í Fiskeldi Eyjafjarðar,
en fyrir átti Samherji 10,9% hlut og
á því nú um 17% í félaginu. Verði eft-
ir því leitað mun KEA einnig selja
Samherja hlut sinn í
fóðurverksmiðjunni Laxá. I báðum
tilvikum er miðað við að greiðsla fyr-
ir bréfin verði í formi hlutabréfa í
Samherja.
Finnbogi sagði að með samkomu-
laginu um sameiningu félaganna
sæju Samherjamenn tækifæri til að
renna fleiri og styrkari stoðum und-
sjálfur í því sambandi." Baldur
sagði að á Akureyri væri gott
rekstrarumhverfi og traust vinnu-
afl. Enda væri staðreyndin sú að
mörg markaðsráðandi fyrirtæki í
landinu væru rekin í bæjarfélaginu.
Framtíðarmarkmiðið væri því að
styrkja reksturinn, snúa við tap-
rekstri og fjölga störfum í tyrirtæk-
inu. „Við ætlum ekki að vera með
neina minnimáttarkennd og mun-
um sækja af krafti inn á stærsta
markaðinn á höfuðborgarsvæðinu
með okkar framleiðsluvörur."
Aukin áhersla á þjónustu
Baldur sagði að áherslum í
rekstrinum yrði breytt og að nafn
fyrirtækisins yrði Sjöfn hf. en ekki
Efnaverksmiðjan Sjöfn eins og það
heitir í dag. Fyrirtækið mun áfram
framleiða breiða li'nu af málningar-,
hreinlætis- og hreinsivörum. „Við
munum leggja áherslu á eigin
gæðaframleiðslu, innflutning og
söludreifingu en þetta á jafnframt
að vera þjónustufyrirtæki þar sem
sölumenn okkar munu í auknum
mæli veita viðskiptavinum ráðgjöf
um það hvemig á að nota okkar
framleiðslu.“
Rekstur Sjafnar hefur verið erf-
iður sl. tvö ár en fram að þeim tíma
var rekstur fyrirtækisins farsæll,
að sögn Baldurs. í fyrra var tap á
rekstri fyrirtækisins og útlit fyrir
að þetta ár verði einnig gert upp
ir rekstur félagsins. „Við höfum
mikla trú á því að hér sé að myndast
öflugt og sterkt félag sem hefur
mikla burði til uppbyggingar,“ sagði
hann.
KEA og Samherji eiga í samein-
ingu hlutafélagið Kaldbak, en hluta-
fé þess var 500 milljónir króna þegar
það var stofnað fyrir um ári. Finn-
bogi sagði að félagið hefði fjárfest
m.a. í Snæfelli, íslandsbanka og ís-
lenskum aðalverktökum og væri
höfuðstóllinn nú um milljarður
króna. Stefnt væri að því að halda
fjárfestingum á vegum félagsins
áfram.
Starfsmenn um 1.000
talsins og skipin 22
Hið sameinaða félag á alls 22 skip,
þar af 12 frystiskip, fjögur ísfis-
kskip, þrjú fjölveiðiskip, tvö nóta-
skip og einn netabát. Sjö skipanna
með tapi. Hjá Sjöfn starfa nálægt 50
manns, þar af 10-15 manns í Lita-
ríkisverslunum fyrirtækisins, sem
reknar eru á fimm stöðum á land-
inu. Gert er ráð fyrir að velta Sjafn-
ar í ár verði um 430 milljónir króna,
sem er svipuð velta og í fyrra en
Baldur sagði að fyrirtækið hefði
velt 400-500 milljónum króna á ári
síðustu 10 ár.
Húsnæði Sjafnar við Austursíðu,
sem er um 9.000 fermetrar að
stærð, verður áfram í eigu Kaupfé-
lags Eyfirðinga en Sjöfn mun áfram
leigja um 6.000 fermetra undir
starfsemi sína.
í forystusveit Samskipa
Baldur, sem er 34 ára, hefur
starfað hjá Samskipum í rúm 13 og
þar af 7 ár erlendis. Þrátt fyrir ung-
an aldur, hefur hann frá upphafi
verið í forystusveit Samskipa, tekið
virkan þátt í uppbyggingu þess og
er stór hluthafi í fyrirtækinu.
„Þegar ég kom til starfa hjá Sam-
skipum var fyrirtækið frekar lítið,
með þriggja milljarða ársveltu og
eru í rekstri erlendis. Stjórn BGB-
Snæfells hefur þegar markað þá
stefnu að fækka skipum í rekstri
með sölu á frystiskipum þess, en
Samheiji mun tryggja að sameining
BGB-Snæfells og Samherja muni
ekki leiða til fækkunar sjómanns-
starfa í Dalvíkurbyggð.
Veiðiheimildir félagsins á íslensk-
um veiðileyfum nema um 34 þúsund
þorskígildistonnum, þar af eru um
5.200 tonn utan landhelgi en því til
viðbótar hefur félagið umtalsverðar
aflaheimildir í öðrum löndum eða
um 17 þúsund tonn.
Velta fyrirtækjanna tveggja
fyrstu sex mánuði þessa árs nam um
6 milljörðum króna, en áætlað er að
velta sameinaðs félags á ári verði
um 11-12 milljarðar króna. Saman-
lagður starfsmannafjöldi félaganna
tveggja er um 1.040 manns, þar af
starfa 740 hér á Iandi.
taprekstur en í dag er hagnaður af
rekstrinum og veltan um 12 millj-
arðar króna. Það hefur verið nyög
ánægjulegt að taka þátt í þessum
miklu breytingum hjá Samskipum
og ekki síst að hafa fengið tækifæri
til að hafa mikil áhrif á þróun mála
á þessu timabili.
Baldur hefur verið framkvæmda-
stjóri Samskipa í Þýskalandi sl. tvö
ár og jafnramt framkvæmdastjóri
sölu- og markaðsmála erlendis á
þeim tíma. Áður var Baldur fram-
kvæmdastjóri flutnmgsviðs félags-
ins og starfaði þá á Islandi en einnig
hefur hann starfað á vegum Sam-
skipa í Rotterdam í Hollandi og
Hamborg í Þýskalandi.
Baldur sagðist hafa verið með
samning við Samskip um að starfa
áfram í Þýskalandi næstu þijú árin.
„Ég varð að endurskoða málið þeg-
ar þetta kom upp og ég er rnjög
spenntur að koma heim á ný.
Tengslin við Samskip munu þó ekki
rofna, því ég mun taka að mér ein-
hver verkefni fyrir félagið í fram-
tíðinni."
Bæjarstjóri Dalvík-
urbyggðar segir sig
úr stjórn KEA
„Settur íþá
stöðu að
ganga á bak
orða minna“
RÖGNVALDUR Skíði Frið-
björnsson, bæjarstjóri Dalvík-
urbyggðar, hefur sagt sig úr
stjóm Kaupfélags Eyfirðinga.
Rögnvaldur Skíði telur óeðli-
legt og óheppilegt að hann sem
bæjarstjóri Dalvíkurbyggðar
sé þátttakandi í þeim ákvörð-
unum stjórnar KEA, er lúta að
sameiningu BGB-Snæfells hf.
og Samherja hf.
„Eg lít líka svo á að ég hafi
verið settur í þá stöðu í stjóm
KEA að ganga á bak orða
minna,“ sagði Rögnvaldur Skíði
og að hann hafi lofað sem
stjómmaður í KEA að BGB og
Snæfell ynnu saman. Sæti hans
í stjóm KEA tekur Haukur
Halldórsson, bóndi í Þórsmörk
á Svalbarðsströnd.
„Þetta hefur haft ákveðinn
aðdraganda. Ég ætlaði málinu
að fara í annan farveg og að
menn héldu sig þar sem sagt
var í upphafi varðandi samein-
ingu BGB og Snæfells," sagði
Rögnvaldur Skíði. Hann sagð-
ist þó fagna því að af sameingu
BGB-Snæfells og Samherja
yrði. „Mér finnst samt óeðlilegt
að það sé litið á það sem eitt-
hvert sérhagsmunamál fyrir
mig hvemig málið fer gagnvart
byggðarlaginu. Mér finnst rétt
að aðrir taki afstöðu til þess en
hinu hafði ég lofað sem stjórn-
armaður í KEA, að BGB og
Snæfell ynnu saman.
Rögnvaldur Skíði sagði að á
sínum tíma hefði verið stofnað
til þess að á sameiningu BGB
og Snæfells yrði látið reyna til
lengri tíma en raun varð á. Að
auki snerti þetta mál allt hags-
muni sveitarfélagsins, „en ég
býð Samheijamenn velkomna
til starfa hér“.
Bangsadagur á
bókasafninu
BANGSADAGURINN verður
haldinn á Amtsbókasafninu á Ak-
ureyri á föstudag, 27. október, og
verður ýmislegt gert í tilefni dags-
ins.
Sýning verður á böngsum barna
úr Lundar- og Síðuskóla og þá "
kemur almenningur einnig með
sína bangsa á safnið. Sögustundir
verða á tveggja tíma fresti, frá kl.
10 til 18 og þá verður boðið upp á
bangsanammi, bangsagetraun
verður í gangi og veitt verða verð-
laun. Allir krakkar sem koma á
bókasafnið fá bókamerki og þá má
geta þess að allir sem heita eitt-
hvað í líkingu við Björn (Birna, t
Guðbjörn, Bjarnfríður, svo dæmi
séu tekin) fá felldar niður sektir ef w
einhverjar eru, sem og ókeypis lán
þennan dag.
Námskeið
í opinni radd-
þjálfun
KÓR Glerárkirkju stendur fyrir
námskeiði í opinni raddþjálfun, þar w
sem öllu söngáhugafólki er velkomið
að taka þátt. Söngkennararnir Elín
Halldórsdóttir og Sigríður Elliða-
dóttir leiðbeina.
Námskeiðið verður haldið í Gler-
árkirkju næsta laugardag, 28. októ-
ber, og stendur frá kl. 10 til 15. Verð
er 1.000 krónur fyrir hvem þátttak-
anda og er boðið upp á léttan hádeg- j
isverð. Nánari upplýsingar fást í
Glerárkirkju milli kl. 12 og 13 á
fimmtudag og föstudag.
Baldur Guðnason - nýr meirihlutaeigandi í Sjöfn hf. á Akureyri
Markmiðið að
styrkja rekstur-
inn o g byggj a upp
Morgunblaðið/Kristján
Baldur Guðnason hefur verið á Akureyri síðustu daga að kynna sér frekar
rekstur Sjafnar og ræða við starfsfólk. Á myndinni er Baldur, t.v., með
Áma Gunnarssyni, starfsmanni á lager fyrirtækisins.