Morgunblaðið - 26.10.2000, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER 2000 35
LISTIR
Merlínus mannsbarkans
TONLIST
Sal uri n n
ART 2000
Paul Lansky: Six Fantasies (1978);
Ride (1999). Tinnitus (Kristín Björk
Kristjánsdóttir, Böðvar Ing-vi
Jakobsson): Hver geymir sína eigin
stunguskóflu. Trevor Wishart: Vox
5; Tongues of Fire. Mánudaginn 23.
október kl. 20.
ALÞJÓÐLEGA raf- og tölvutón-
listarhátíðin er þegar hálfnuð.
Sjöttu tónleikar af alls ellefu fóru
fram á mánudaginn var við aðsókn
sem þætti dágóð, a.m.k. í smærri
sölum. Þótt einum of stórt væri
upp í sig tekið að jafna við mynd-
breytingu beinkylfu apamannsins
úr „2001“ Stanleys Kubrick í geim-
stöð bendir samt flest til að metn-
aðarfullt framtak Tónvers Tónlist-
arskóla Kópavogs og annarra
aðstandenda ætli sér að skjóta ís-
lenzkri tónlist á sporbaug um
hnöttinn með litlu minna stökki en
þegar fyrstu módernistarnir
fleyttu henni hálfa öld áfram í einu
vetfangi á 6. áratugnum. Jafnframt
hefur okkur opnazt verðmætur
gluggi að nýjustu tónsköpun um-
heimsins á öldum rafmagnsins,
sem umrætt mánudagskvöld birtist
í verkum Engilsaxanna Pauls
Lansky og Trevors Wishart.
Fleira fer annars fram á ART-
hátíðinni en tónílutningur. Undir-
ritaður átti þess kost að hlýða á
fyrirlestur Wisharts um viðhorf
hans og vinnuaðferðir fyi'r um dag-
inn í Salnum, þar sem brezki hljóð-
galdrameistarinn lýsti með tón-
dæmum smásjárnálgun sinni að
meginviðfangsefni seinni ára,
mannsröddinni. Hefur sá leikvöllur
orðanna reynzt honum óþrjótandi
uppspretta ólíklegustu undrahljóða
fyrir millikomu tölvutækninnar,
sem getur teygt og tosað, stytt og
þjappað, síað, ýkt eða umbreytt
jafnvel minnsta umli í ýmist All-
adinsvíðgelmi glitrandi gimsteina,
rýtandi furðuskepnur, kosmíska
martröð eða edenssælu. Þrátt fyrir
að umráðatíminn dygði rétt til þess
að krota lauslega í yfirborð fræð-
anna fengu nærstaddir skilnings-
aukandi forsmekk af því sem koma
skyldi á kvöldtónleikunum. Meðal
þess sem eftir sat var brot, unnið
úr rómi Díönu prinsessu af Wales
að kvarta undan ágengni æsifrétta-
ljósmyndara, sem í umbreytingu
Wisharts birtist sem átakanlegt
röntgenportrett af einmana mann-
eskju á barmi örvæntingar.
Paul Lansky, yfirmaður tónlist-
ardeildar Princeton-háskóla, hefur
fengizt við tölvutónlist síðan 1966
og telst því ef að líkum lætur til-
heyra fyrstu kynslóð tölvutón-
skálda. Hafa óneitanlega mörg
bæti um víra runnið síðan vinna
þurfti með gataspjöldum og höf-
undar fengu ekki hljómandi mynd
af verkum sínum fyrr en á lokast-
igi, og vekur jafnan undrun manns
hvað þeim hefur samt tekist að fá
heila brú í viðfangsefnið. Enda má
stundum gruna að þægileg edíter-
ingartækni nútímans hafi í þó-
nokkrum tilvikum orðið á kostnað
vandaðrar forvinnu og formrænnar
festu brautryðjendanna, sem gerðu
dyggð úr biturri nauðsyn. Ekki var
tilgreint hvort fyrra verk Lanskys,
Six Fantasies on a poem by Thom-
as Campion frá 1978, væri byggt á
kvæði samnefnds lútusöngvaskálds
frá Elísabetartímanum, en hitt er
víst, að þrátt fyrir nútímalega
tækni og tónferli birtist þar fegurð
í óvæntu samræmi við heiðríkju
endurreisnar. Hljóðgjafar voru
annars vegai' rafeindakyns, hins
vegar tal- og söngrödd ónafn-
greindrar konu sem hleraðist á
skotspónum að væri núverandi
maki tónskáldsins. Meðal áberandi
efnisþátta var samstíg fjölröddun
söngi'addar svipuð effektum sem
hrynbundnir tónlistarmenn kann-
ast við úr tækjum eins og vocoder,
og var henni beitt á smekklegan
hátt með ígripum úr klasa-
krydduðum djasshljómum. Má
segja að í þessari sérlega aðgengi-
legu og fjölbreyttu tónbandssmíð
hafi víða náðst sem næst fullkomið
jafnvægi milli tals og kórsöngs.
Þótt heildarblærinn væri að mestu
í ætt við dreymandi flæði skerptu
hvöss og jafnvel hvæsandi rafhljóð
annað slagið á andstæðum og settu
með því yndisþokkann í enn skýr-
ari fókus.
Seinna verk Lanskys, Ride, var
nýtt af snældunni, samið 1999 fyrir
8 rásir. Hér fór ósvikin „vegatón-
list“ unnin úr umferðarhljóðum (þ.
á m. með tilheyrandi doppler-þyt-
um), og varpaði verkið upp á breið-
tjald innra eyrans áhrifamiklu pan-
óramísku ferðalagi um borgir og
sveitir, sem að sumu leyti gat
minnt á „Hringinn", hina sérkenni-
legu tilraunakvikmynd Friðriks Þ.
Friðrikssonar við tónlist Lárusar
H. Grímssonar. Öllu ágengara
verk, og að sumu leyti óþægilegra
áheyrnar, en hið undangengna,
sem í samanburði verkaði nánast
sem ástarjátning - en auðheyran-
lega samið af mikilli kunnáttu og
reynslu.
Tinnitus - alþjóðaheiti yfir
eyrnasuð - var nafnið á dúói Krist-
ínar Bjarkar Kristjánsdóttur og
Böðvars Ingva Jakobssonar og
skartaði margmiðlunarverk þeirra
auk tónlistar bandmynd af kapp-
sömum pilti í hvítum bol að moka
með ímyndaðri stunguskóflu. Pæl-
ingar þessar fikruðu sig smám
saman upp úr neðra kanti tjaldsins
í hinn efra. Undirtitill verksins
(„fyrir rödd, mjálm, skruðninga og
púlsbylgjur“) voru orð að sönnu og
hétu litlu meira en þau gátu staðið
við, enda samanstóð ópusinn varla
nema úr örfáum afbrigðum af
djúpu urri í anda bilaðs eða illa
jarðtengds útvarpstækis, en mynd-
aði á hinn bóginn ákveðinn hvíldar-
punkt milli þaulunnu atriðanna á
undan og eftir.
Himinn og haf skildu á milli
frumstæðs hljóðheims þeirra tví-
menninga og verka Trevors Wis-
hart í tónleikalok, sem reyndust
sannkölluð erkidæmi um þrotlausa
forvinnu og ígrundun er mættu
verða ófáum nútímatölvuhöfund-
um holl fyrirmynd. Vox 5 var
fimmti þáttur úr miklu sexþættu
verki og að sögn tónleikaskrár
„hinn eini sem eingöngu er gerður
fyrir tölvuhljóð“. Hvernig svo sem
bar að skilja það var hreint út
sagt stórkostlegt að upplifa út-
pælda „morphing“ eða umbreyt-
ingartækni Wisharts, sem líkt og
Merlínus forðum gat haft hamsk-
ipti á auðþekkjanlegri mannsrödd
með kísilgandi sínum svo úr urðu,
með orðalagi höfundar fyrstu
málfræðiritgerðar, „vitlaus hljóð“
á við fuglatíst, vindhviður, regn og
þórdrunur. Þátturinn var knappur
og markviss í formi og myndaði
ágætan inngang að 25 mín. löngu
nýrra verki, Tongues of Fire
(1994), sem að sögn var allt unnið
úr einnar sekúndu upptöku frá
barka tónskáldsins sjálfs. Hljóða-
veröld Wisharts var hér ágengari,
stundum ógnvekjandi og tæpast
við hæfi yngri barna undir svefn-
inn, t.d. þegar við buldu annarleg
búkhljóð líkt og úr iðrum ófreskju,
en að sönnu engu minna ótrúleg
reynsla. Hún var eins konar vit-
undarvíkkun, þar sem tónleika-
gestir höndluðu ósjálfrátt ómvist
umheimsins, ýmist með nístings-
næmum skynfærum skordýra eða
lágtíðnihlustum ffla. Lengdar
vegna fór varla hjá því að verkið
hætti að koma á óvart undir lokin,
en þó að 20% stytting hefði eflaust
tryggt betur athygli forsendum-
innstu hlustenda til enda var samt
fáum blöðum um það að fletta, að
ART 2000 náði þetta kvöld að
spila út einu af eftirminnilegustu
trompum hátíðarinnar.
Ríkarður Ö. Pálsson
Herraskór
3ja daga tilboð
fimmtudag - föstudag - laugardag
20-50%
afsláttur
EURO SKO
Kringlunni 8-12 • sími 568 6211
Skóhöllin • Bæjarhrauni 16 • Hf. • sími 555 4420
Verslunin eva verður opnuð aftur á morgun.föstudag,
í glæsilegu húsnæði á Laugavegi 91 (galleri Sautján).
eva
Laugavegi 91,
s. 5620625
NICOLE FARHI • DKNY • GERARD DAREL • VIRMANI • JOSEPH • FREELANCE • PAUL ET JOE